Morgunblaðið - 11.10.1987, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1987
ar höfðu mikil samskipti og hittust
reglulega. Á hverjum morgni var
framborið morgunkaffi á heimili
hennar klukkan tíu og þangað komu
margir þeirra sem unnu í veslúninni
eða ljósmyndastofunni, böm hennar
úr næstu húsum eða þeir sem áttu
leið hjá. Daglegt líf þessarar stóru
fjölskyldu varð okkur að bakhjarli
og samofið bemsku okkar.
í Fossvogi dvöldust Guðrún og
dætur hennar oft á sumrin í sumar-
bústað, einkum meðan bömin voru
ung, en þá þótti Fossvogur vera
langt út úr bænum, eiginlega uppi
í sveit. Man ég eftir myndum frá
þeim dögum, þar sem varla sést
nokkur byggð í Kópavogi þar sem
nú er Nýbýlavegur og umhverfí
hans.
Þannig ólust systkinabömin upp
saman að hluta næstum eins og
systkin og kynntust jafnframt móð-
ur- og föðursystkinum sínum sem
nákomnum ættingjum.
Una lét sér einnig annt um okk-
ur eftir að við urðum fullorðin og
sinnti bömum okkar af alúð og
áhuga, var greiðvikin og góð. Öll
emm við miklu fátækari við lát
hennar, söknum hennar og fínnst
að með henni hverfí hluti af okkar
Ávöxtunarbréfín
vínna fyrír tnig!
ÓVERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF:
Ávöxtunarbréfin eru
í fjórum verðflokkum:
Kr. 1.000,-, kr. 10.000,-,
kr. 50.000,-, og kr. 100.000,-
Tima- Akv. umfr. Ar»-
lengd verðb,- vextir
Ar ■pá 20%
1. 8,00 85,5
2. 9,00 79,8
3. 10,00 78,8
4. 11,00 69,0
Enginn aukakostnaður er dreginn frá
andvirði bréfanna við innlausn.
Innlausn getur að jafnaði farið
fram samdægurs.
38% á
ársgrundvefíí.
í dag ná fjármunir á Ávöxtunarbréfum
38% ávöxtum á ársgrundvelli,
sem er 14% umfram verðbólgu.
ÁVftXTUNSf^
Fjármálaráðgjöf - Avöxtunarþjónusta - Verðbréfamarkaður
LAUGAVEGI 97 - StMI 621660
Gengi Ávöxtunarbréfa
11.10.1987 er 1.2642
Gengi
Spariskírteina Ríkissjóðs
2. fl. 1987 10.000 að nafnverði
Söluverð
11.10.1987:
til2jaára 10.437.33
til 4ra ára 10.430.07
til 6 ára 10.418.39
Verðtryggð og óverðtryggð
veðskuldabréf óskast i sölu.
Ath.: . .
Innleysum Spariskírteini
ríkissjóðs fynr
viðskiptavini okkar.
eigin lífí.
Mestur er þó missir Þorsteins,
bama hennar og fjölskyldna þeirra,
og harður er sá vetur sem hefst
með dauða svo vænnar konu sem
virtist enn eiga langt og gott líf
framundan.
Við getum þó þakkað að hún
þurfti hvorki að þola erfíð veikindi,
þjáningu eða ellihrumleika. Einnig
má gleðjast yfír minningum um
góða konu sem var sátt og glöð við
líf sitt, guð og menn, konu, sem
hafði bætandi áhrif á umhverfí sit.
Hún mun lifa áfram meðal þeirra
sem tileinka sér lífsgildi hennar og
virða þau.
Ástvinum hennar flyt ég innileg-
ar samúðarkveðjur frá föður
mínum, mér og systkinum mínum
og fjölskyldum okkar.
Blessuð sé minning hennar.
Guðrún Agnarsdóttir
Á morgun, mánudaginn 12. októ-
ber, verður kvödd frá Fossvogs-
kirkju í Reykjavík Una Thoraren-
sen.
Una var fædd í Reykjavík 11.
marz 1921, dóttir hjónanna Guð-
rúnar Jónsdóttur Petersen og Hans
Petersen kaupmanns í Reykjavík.
Hún ól allan sinn aldur í Reykjavík,
var því sannkallað Reykjavíkur-
bam. Á yngri árum stundaði hún
verzlunarstörf eða þar til hún gift-
ist 10. desember 1949 Þorsteini
Thorarensen borgarfógeta. Þor-
steinn er ættaður frá Móeiðarhvoli
í Hvolhreppi. Þar í grennd áttu þau
Una og Þorsteinn sumarbústað og
fóru þau mikið þangað á sumrin
og frameftir hausti, ef veður leyfði.
Una og Þorsteinn eignuðust 2 böm,
Ástríði hjúkrunarfræðing, gifta
Davíð Oddssyni borgarstjóra og
eiga þau einn son, Þorstein, og
Skúla verzlunarmann og er hans
kona Sigríður Þórarinsdóttir kenn-
ari, þau eiga 2 böm, Þorstein og
Hildi. Una hafði mikla ánægju af
að vera samvistum með bamaböm-
unum.
Una var heilsteypt kona. Manni
leið vel í návist hennar. Hún var
glaðlynd að eðlisfari, hafði létta
kímnigáfu, án þess að nokkum
tímann væri broddur í. Hún leitaði
eftir því jákvæða í fari hvers og
eins, þó hafði hún fastmótaðar
skoðanir á mönnum og málefnum.
Það er mannbætandi að hafa átt
vin i slíkri konu.
Áhugamál Unu vom mörg. Hún
var mikil hannyrðakona og liggja
eftir hana margir fallegir munir.
Hún hafði líka gaman af að taka í
spil og höfum við spilað saman brids
í mörg ár, ásamt Lilju systur henn-
ar og Nínu Hjaltadóttur, frænku
þeirra. Við spiluðum ýmist heima
hver hjá annarri eða í bridsfélagi
kvenna. Þær Una og Lilja vom
óvenju samiýndar systur og var
vart annarrar getið svo hin væri
ekki nefnd um leið. Una átti hlýlegt
og fallegt heimili í Stigahlíð 4,
þangað var gott að koma. Það var
alltaf tilhlökkunarefni að hitta þess-
ar góðu konur.
Þetta eru aðeins nokkur kveðju-
orð til þess að þakka henni vináttu
hennar og allar gleðistundimar,
sem við áttum saman. Hún var mér
ómetanleg, því hún er einhver
elskulegasta kona, sem ég hef hitt
á lífsleiðinni. Nú er hún horfin yfir
móðuna miklu, langt um aldur
fram. Hún dó í svefni á heimili sínu
aðfaranótt 2. október.
Manni hennar, bömum, tengda-
bömum og bamabömum og systr-
um hennar og öllum hennar
ástvinum, votta ég mína dýpstu
samúð og bið Guð að styrkja þau
í þeirra miklu sorg.
Anna S. Lúðvíksdóttir
Hún Una móðursystir mín er
dáin.
Ein af mínum fyrstu minningum
er sú þegar mamma og pabbi fóra
í siglingu með Bimu og Sigga, tvö
elstu systkini min, og ég var hjá
Unu á meðan. Ég hef ekki verið
nema 2—3 ára en samt er mér í
fersku minni hversu vel mér leið
hjá Unu og Þorsteini. Svo vel, að
ég stóð á því fastar en fótunum í
lok dvalar að Una væri mamma
mín.
Eftir að ég fór sjálf að stjóma
ferðum mínum og gerðum lá leið