Morgunblaðið - 14.10.1987, Page 52
PS
52
nonr rn^íJp»,TfMr» yr crrtp f« rntmtvtrm.K rrrn^ TíTATTncjmy,
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1987
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir SIMON HOGGART
Forsetalqör í Bandaríkjunum
I viðjum siðgæðisíns
EFTIR að Joseph Biden neyddist til að hœtta keppni um fram-
boð til forsetakjörs á næsta ári hafa Bandaríkjamenn beðið
spenntir eftir að sjá hver þeirra 13 frambjóðenda, sem enn eru
eftir í keppninni, falli næstur út. Til útskýringar skal hér rakinn
nokkuð gangur mála eins og þau koma mönnum fyrir sjónir í
Washington. Ekki er allt sem hér fer á eftir byggt á óyggjandi
staðreyndum, en allt bendir þó til að þetta mat á stöðunni sé
rétt. Hér fara á eftir nokkur þeirra hneykslismála, sem búast
má við að sagt verði frá í fjölmiðlum á næstu mánuðum.
Einn frambjóðenda Repúblík
ana á ástkonu í Washington
og tekur gjaman á leigu klám-
myndbönd með til að horfa á með
henni. Hann varð fyrir árás nýlega
þegar hann var á leið frá ástkon-
unni, en málið var þaggað niður.
Þekkt dagblað veit alla söguna
og mun birta hana ef tilefni þykir
til.
Annar repúblíkani er á mála
hjá auðugum kaupsýslumanni er
greiðir honum ríflega þóknun fyr-
ir að stuðla að auknum framgangi
fyrirtækis síns.
Einn demókratanna — ekki
Gary Hart — á í ástarsamböndum
við fjölda kvenna aðrar en eigin-
konuna, og er ein þeirra nokkuð
þekkt dægurlagasöngkona.
Siðgæðisvakning
dagblaðanna
Bandarísku blöðin virðast nú
gripin nýrri siðgæðisvakningu,
eða klámvakningu eins og and-
stæðingar blaðanna vilja halda
fram. Ekki er vitað fýrir víst hvort
hneykslissögumar hér að ofan
komast á síður blaðanna eða ekki
- tvær þeirra gera það sennilega,
ein varla - en frambjóðendumir
mega skjálfa óttaslegnir af til-
hugsuninni um að þær geri það.
Þeir dagar eru löngu liðnir þeg-
ar menn á borð við John Kennedy
gátu leyft sér að eiga fjölda ást-
kvenna, og nú virðist fokið í flest
skjól. Joseph Biden var óheppinn.
Misgjörð hans var lítilfjörleg. Bid-
en varð það ljóst að leikurinn var
úti þegar hann frétti um C-SPAN
myndbandið. C-SPAN er sjón-
varpsþjónusta um kapalkerfí fyrir
áhugasama stjómmálamenn, og
starfsmenn þjónustunnar vom
þeir einu sem komu með upptöku-
vélar á árdegisfundi í New
Hampshire ríki fyrr á árinu, þar
sem Joseph Biden var viðstaddur.
Hann langaði ekkert til að vera
þaraa. Fjölskylda hans hafði farið
á skíði og Biden vildi helzt fara
með. En aðstoðarmenn hans og
ráðgjafar töldu honum trú um að
árdegisfundurinn hefði mikið að
segja fyrir framboðsáform hans.
Þeir höfðu á réttu að standa.
Skröksögur
Biden, sem er öldungadeildar-
þingmaður frá Delaware ríki, var
í fúlu skapi á fundinum. Einhver
viðstaddra spurði hann í hvaða
lagaháskóla hann hefði stundað
nám, og hvemig námið hefði
gengið. Biden virtist telja þetta
óþarfa hnýsni, og hreytti út úr
sér til fyrirspyijandans: „Ég held
að ég hafí mun hærri greindarvísi-
tölu en þú.“
Svo tók hann að skýra frá því
að hann hafí verið ofarlega í
sínum bekk, hafí verið bezti nem-
andi háskólans í stjómmálafræð-
um og lokið háskólaprófí í þremur
greinum. Ekkert af þessu var rétt.
Auk þess virtist Biden bæði
hrokaftillur og taugaveiklaður
þegar hann hélt þessu fram. Ef
til vill var fyrirspyijandinn að
reyna að slá hann út af laginu
með spumingunni. í það minnsta
má sjá hæðnisbros á vör hans á
myndbandinu meðan Biden lét
móðan mása.
Þegar þeir fréttu að endursýna
átti myndbandið í útsendingu á
landskerfí einnar stóra sjónvarps-
stöðvanna, varð Biden og aðstoð-
armönnum hans ljóst að þáttöku
hans í keppninni um framboð var
lokið. Málið snerist í raun ekki
um ritstuld, heldur skrök. Enginn
hefði haft neitt út á það að selja
þótt hann gerði orð Neil Kinnocks
að sínum. Það sem varð honum
að falli var að hann gerði Iffshlaup
Kinnocks að sínu eigin. Það lék
einnig sama ógæfan við Biden og
við Gary Hart: afbrot hans reynd-
ist piýðis sjónvarpsefni og enn
betra brandarafóður. Joe Biden
brandarar verða lífseigir í út-
varpi, sjónvarpi og vínstúkum
næstu mánuðina.
(Það sýnir bandarísk stjómmál
í nýju ljósi að Biden var svo and-
lega fátækur sjálfur að hann
þurfti jafnvel að stela mistökum
sem fram komu í orðum Kinnocks.
Ummæli leiðtoga brezka Verka-
mannaflokksins þess efnis að
forfeður hans í „þúsund ættliði"
hefðu ekki haft tækifæri til há-
skólanáms vitna til þess tíma fyrir
30.000 áram þegar allir forfeður
okkar studdust við framfætuma
sem þá aftari. Hann ætlaði ber-
sýnilega að segja „í þúsund ár“.
Svona mistök era afsakanleg hjá
brezkum stjómmálamönnum, sem
ætlazt er til að geti flutt langtíma
ræður án minnisblaða. Biden hef-
ur ekki sömu afsökun.)
Hann dró sig út úr framboðs-
keppninni tíu dögum eftir að upp
komst um yfírsjón hans, og taldi
fullvíst að áframhaldandi keppni
um framboð gæti aðeins orðið til
þess að skaða framtíðarhorfur
hans enn meir. Með því að draga
sig í hlé nú vonast hann til að
geta reynt aftur síðar — árið 1996
ef ekki árið 1992.
Fleira kemur til
Ekki er víst að hann verði svo
lánsamur. í dagblöðunum í Wash-
ington hefur farið fram hástemmd
umfjöllum um það að þótt yfírsjón
Bidens hafí ekki verið jafn alvar-
leg og hjá Hart, hafí hún engu
að síður dregið persónugerð Bid-
ens fram í dagsljósið. Það orðalag
heyrist oft notað þegar blaðamað-
ur hefur vitneskju um eitthvað
slæmt í fari stjómmálamanns, en
veit ekki alveg hvemig á að not-
færa sér þá vitneskju.
En þetta er ekki allt málið.
Washington er undarlega lítið og
samtvinnað samfélag, og íbúar
þess era fljótir að mynda sér sam-
eiginlega skoðun um aðra. Þar
fékk Biden fyrir mörgum áram
orð á sig fyrir að vera blaðrari,
yfirborðskenndur og innantómur.
Svo til allt sem hann gerði — eins
og árásir hans á George Shultz
utanríkisráðherra og raglingsleg-
ur málflutningur í umræðum á
þingi um tilnefningu Roberts Bork
í embætti dómara hæstaréttar —
Joe Biden ásamt konu sinni Jill,
þegar hann tilkynnti um að
hann hygðist draga sig í hlé
að þessu sinni. Biden vonast þó
til þess að eiga möguleika síðar.
virtist styrkja þessa skoðun.
í rauninni höfðu þeir sem
stjóma ferðinni í Washington —
stjómmála- og blaðamenn — fyrir
löngu ákveðið að Joseph Biden
ætti ekki skilið að vera í framboði
til forsetakjörs. Svo var bara að
bíða eftir því að hann gerði sín
fyrstu alvarlegu mistök.
Jafnvel eftir að hann var fallinn
út úr keppninni gátu gárangamir
ekki látið hann í friði. „Hann
stundar enn ritstuld,“ segir í nýj-
asta brandara þeirra. „Þegar
hann sagði ‘ég er hættur’ tók hann
ekki fram að þetta væra orð Gary
Harts!“
Svo grafíð sé enn dýpra í vizku-
brann Washingtonbúa þá er það
hald manna að Michael Dukakis
ríkisstjóri í Massachusetts hljóti
útnefningu sem forsetaefni
Demókrataflokksins, þótt líkumar
hafí minnkað nokkuð eftir að í
ljós kom að það var kosninga-
stjóri hans, John Sasso, sem
skipulagði ófrægingarherferðina
gegn Biden. Dukakis er ekki mað-
ur til að fylla framtakssama
demókrata eldmóði. Hann er
vissulega mjög hæfur og er tal-
inn, í það minnsta eins og er,
hafa algjörlega hreinan skjöl, eft-
ir að hafa unnið að því að binda
enda á fjármálamisferli í einu
spilltasta ríki landsins.
Honum hefur einnig tekizt að
safna gífurlegu fjármagni í kosn-
ingasjóð sinn — um 7 til 8 milljón-
um dollara þegar síðast var vitað
— aðallega frá íbúum í Massac-
husetts sem, ef trúa má orðum
stuðningsmanna Dukakis, ætlast
ekki til að fá annað fyrir pening-
ana en þá þjóðemislegu ánægju
að tryggja svona sómamanni bú-
setu í Hvíta húsinu.
En svo er hann einnig með ein-
dæmum leiðinlegur. Að sögn
heimablaðs hans, „The Boston
Globe“, þá „gefur hann orðinu
leiðinlegur nýja merkingu...hann
hefur persónuleika stappaðrar
kartöflu. Sumir sem setið hafa
kvöldverðarboð hjá Dukakis segj-
ast hafa sofnað yfír forréttinum."
En í Iowa ríki þar sem fyrstu
forkosningamar verða næsta vor,
stendur hann samkvæmt skoð-
anakönnunum jafnfætist Richard
Gephart frá nágrannaríkinu Miss-
ouri, sem ætti að vera öraggur
sigurvegari. Og í hans eigin ná-
grannaríki, New Hampshire,
hefur Dukakis öragga forastu.
Að vísu nýtur Dukakis þar aðeins
fylgis 12% aðspurðra demókrata,
en þar sem einungis Jesse Jackson
(sem ekki er talinn eiga möguleika
á útnefningu) nýtur meira fylgis,
og Gephart fær aðeins 8%, er
þetta góð byijun.
Vinsæi, en ekki
í framboði
I fjórða sæti í skoðanakönnun-
inni (fyrir ofan Biden, jafnvel áður
en hann hætti við framboð) lenti
Pat Schroeder frá Colorado, sem
virtist ætla að verða eina konan
sem til greina kæm í framboð á
vegum flokkanna tveggja. Hún
lýsti því hinsvegar yfír 28. sept-
ember, eftir skoðanakönnunina,
að hún gæfí ekki kost á sér. Pat
Schroeder hefur vakið mikinn
áhuga meðal fijálslyndra kjós-
enda, karlajafnt sem kvenna. Hún
er vel gefín, talar tæpitungulaust
og kemur vel fyrir sig orði. Það
var hún sem fyrst nefndi Ronald
Reagan „Teflon forsetann", en
Teflon er froðuefni notað til ein-
angrunar og húðunar.
En Washingtonhyskið var ekki
sátt við framboð frúarinnar. Vitr-
ingamir í höfuðborginni komust
að þeirri niðurstöðu að hún væri
„flygsa" sem merkir að hún sé
skiýtin, óútreiknanleg og fari
sínac eigin leiðir.
Sagan sém oftast er sögð af
henni er á þá leið að hún hafí
tekið með sér kanínubúning þegar
hún fór í opinbera heimsókn til
Kína árið 1979. En búninginn
átti að nota til að skemmta böm-
um sendiráðsmanna, ekki
kommúnistaleiðtogum í Kína.
Þetta má túlka sem hugulsemi
og góðlyndi frekar en bjánaskap,
en í sumum hugmyndum hennar
gætir minni fyrirhyggju.
Hún hefur til dæmis lagt til að
skylda bæri aðildarríki Atlants-
hafsbandalagsins til að auka
fjárframlög til vamarmála upp í
sama hlutfall af þjóðartelq'um og
hjá Bandaríkjamönnum — ella
verði þau látin greiða tolla af inn-
flutningi sínum til Bandaríkjanna
í réttu hlutfalli. Með öðram orðum
vill hún bjóða aðildarríkjunum upp
á tvær leiðir til efnahagslegs
hrans. Þar sem þessi tillaga henn-
ar, næði hún fram að ganga, leiddi
til sundrangar NATO auk þess
sem hún yrði upphaf að miskunn-
arlausu viðskiptastríði, virðist
fáránlegt að nokkram hugsanleg-
um forsetaframbjóðanda skuli
detta í hug að bera hana fram.
Pat Schroeder hafði eitt sinn
orð á því að ástæðulaust væri að
bjóða sig fram í kosningum þar
sem hún gæti ekki fari með sigur
af hólmi. Hún hefur nú séð að
sigurlíkur vora nánast engar, og
þessvegna hætt við framboð.
En maðurinn sem flestir telja
líklegastan til sigurs ef hann færi
í framboð er Marío Cuomo ríkis-
stjóri í New York. Hann lýsti því
yfír í febrúar s.l. að hann hefði
ákveðið að vera ekki í framboði.
Áður en sú yfírlýsing var birt
hafði hann ráðgert ferð til Sov-
étríkjanna til að fá betri yfirsýn
í utanríkismálum. Og þótt hann
segðist hættur við framboð fór
hann í þessa heimsókn í septem-
ber.
Árangur heimsóknarinnar varð
ekkert sérstakur. í för með Cuomo
var fyöldi tortrygginna blaða-
manna sem fylgdust með mörgum
klaufalegum skyssum og mistök-
um ríkisstjórans - eins og þegar
hann sagði sovézkum andófs-
mönnum að þeir gættu bætt stöðu
sína með því að „sýna ekki virð-
ingarleysi" í samskiptum við
yfírvöld.
Bandarískum stjómmálamönn-
um færi betur að forðast að taka
sér í munn svona innantóm orð.
En ef til vill skiptir þetta ekki
máli. Eins og einn trúnaðarmanna
Cuomos komst að orði nýlega:
„Mario ætlar enn ekki að taka
þátt í kapphlaupinu um forseta-
embættið - en hann er kominn á
hæga ferð.“
Höfundur er blaðamaður þjá
brezka biaðinu The Observer.
USIA
Michael Dukakis, ríkisstjóri Massachusetts, þykir með sigur-
stranglegri demókrötum, en barátta hans fyrir útnefningu
flokksins (sem fleiri) demókrata) þykir ekki hafa verið með öllu
drengileg.