Morgunblaðið - 17.10.1987, Síða 25

Morgunblaðið - 17.10.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987 25 Bundið slitlag á þjóðvegum landsins 280 km um 300 km Samtais um 1720 km í ársiok 1987 226 km 226 km 168 km 143 144 km km 91 km 104 km HHN fyrir '80 '80 '81 '82 '83 '84 '85 '86 1987 Bundið slitlag IMaiarvegir AKVEGIR þeir sem hér eru sýndir eru einungis númeraðir vegir, hringvegurinn, tveggja og þriggja tölu vegir svo og fjallvegir með F-númerum. Athygli skal vakin á að linutáknið sýnir vegina hér um eins kílómeters breiða. Æskilegt væri að um helm- ingur þessa kerfis yrði lagður bundnu slitlagi. Vegagerð ríkisins: Bundið slitlag komið á um 1720 km — þegar búið að leggja á 70% af þjóðveginum til Akureyrar VEGAGERÐ ríkisins hefur lagt bundið slitlag á um 1720 km af þjóðvegum landsins. Þar af voru um 300 km lagðir í sumar og er vonast til að hægt verið að leggja um 250 til 300 km á næsti ári að sögn Helga Hallgrímssonar aðstoð- arvegamálasljóra. Þegar hefur 70% af þjóðveginum til Akureyrar verið lagður bundnu slitlag. Ættfræði- bókasafn á uppboði Klaustur- hóla á sunnudaginn Uppboðsstarfsemi Klaustur- hóla er að fara í gang eftir sumarið og sunnudaginn 18. október kl. 17.00 verður bóka- og tímaritauppboð á vegum fyrirtækisins haldið í Templ- arahöllinni á Eiríksgötu 5. í fréttatilkynningu frá Klaust- urhólum segir að á uppboðinu verði ýmis rit, fomritaútgáfur og fræðigreinar, leikrit, æviminning- ar, ferðabækur og landafræðirit, saga lands og lýðs, rit Sögufélags- ins, Minningarrit, Þjóðsögur og sagnir, blöð og tímarit frá ýmsum tímum, ættfræði og æviskrár. Má þar nefna: Staðarbræður og Skarðssystur, Skútustaðaætt, Hver er maðurinn? 1-2, Ættartala Steindórs Gunnarssonar, Strandamenn og Dalamenn 1-3, Reykjahlíðarætt, Kollsvíkurætt, Laxamýrarættin, Ættir Skagfirð- inga, gamla skráin _ og fjöldi annarra ættarskráa. Úr héraða- sögum má nefna: Skagfirsk fræði 1-10, Saga Reykjavíkur 1-2, Arbækur Reykjavíkur, Saga Hafnarfjarðar, Saga Vestmanna- eyja 1-2, Blanda 1-9. Uppboðið hefst á sunnudaginn kl. 17.00 en bækumar verða til sýnis í Templarahöllinni kl. 14. 00-16.00 sama dag. „Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjómarinnar er um 7 til 8% raunaukningu á fjárveitingum til vegagerðarinnar að ræða á næsta ári frá því sem var í ár, miðað við byggingarvísitölu og ef verðlags- forsendur standast," sagði Helgi. „Við vonumst til að þessi aukning endist okkur til að halda áfram sem hingað til og leggja 250 til 300 km af bundnu slitlagi á ári.“ Áhersla er lögð á þá þjóðvegi sem mest umferð er um. Unnið er í takt við langtímaáætlun sem gerð var í fyrra og samkvæmt henni eru vissir kaflar á hringveg- inum sem ekki er áætlað að leggja bundnu slitlagi enn sem komið er. „Þegar hefur að mestu verið ákveðið hvað verður framkvæmt á næsta ári en nú verður athugáð hvað þessi aukning gerir. í heild má segja að framkvæmdir dreifíst um landið eins og hingað til,“ sagði Helgi. AUK hf. 93.7/SlA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.