Morgunblaðið - 17.10.1987, Side 37

Morgunblaðið - 17.10.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987 37 Sigtirður Ólafsson SF nýlengdur hjá sömu stöð. Sigþór nýkominn úr breytingum Heldur á síldveiðar eftir heigi SIGÞÓR ÞH 100 frá Húsavík kom til heimahafnar aðfaranótt síðastliðins miðvikudags úr breytingxun frá Vestur-Þýskalandi. Skipt var um brú, smíðað- ur var nýr skutur, endurnýjaðar voru togvindur og spilkerfi, nýju stýri ásamt stýrisvél var komið fyrir f skipinu auk þess sem siglingatækjum var Sigþór ÞH í heimahöfn eftir breytingar. fjölgað og sum endurnýjuð. Kostnaður við breyt- ingarnar nemur um það bil 35 miljjónum króna og tók verkið rúmar nfu vikur. Breytingamar voru boðnar út sl. vor og fékk útgerð- arfélag skipsins, Visir hf., alls sjö tilboð, bæði innlend og erlend. Hagstæðasta tilboðið kom frá skipasmíða- stöð Hendriks Brand, bæði hvað verð og tíma snertir, en höfuðstöðvar skipasmíðastöðvarinnar eru í Olden- burg. Skipstjórar á Sigþór eru þeir Ingvar Hólmgeirsson og Hörður Þórhallsson og munu þeir skiptast á að vera með skipið. Að sögn Ingvars er áhöfnin nú að búast til síldveiða og verður væntanlega hægt að fara á veiðar fyrrihluta næstu viku. Síðan er meiningin að skipið haldi annaðhvort á rækju- eða línuveiðar. Sigþór, sem er 168 tonn að stærð, var smíðaður í Svíþjóð árið 1963. Skipt var um vél í skipinu fyrir flórum árum á Húsavík og var það yfírbyggt á sl. ári hjá Slippstöð Akureyrar. Hjá sömu þýsku skipasmfðastöðinni eru nú tvö íslensk skip til viðbótar í breytingum, Sigurður Ólafs- son SF og Huginn VE. Svelnborg afhent SAMHERJI hf, hefur nýlep fest kaup á togaranum Svein- borgu frá Siglufirði og fékk fyrirtækið skipið afhent síðast- liðinn þriðjudag. Skipið, sem er 300 tonna togari, var að koma úr söluferð frá Englandi, og verður það væntanlega gert áfram út á isfiskveiðar. Samheiji hf. leitar nú ýmissa möguleika varðandi kaup á skipi í stað Sveinborgar, en að sögn framkvæmdastjórans, Þorsteins Más Baldvinssonar, er beðið eftir því að ný fiskveiðistefna liggi ljós fýrir. Sveinborg er nú í eigu Samherja hf. Morgunblaðið/GSV Iðnþing Is- lendinga haldið á Akureyri Landssamband iðnaðar- manna heldur Iðnþing ís- lendinga á Akureyri dagana 22.-24. október. Þingið, sem er hið 42. f röðinni, hefst með setningu Haralds Sum- arliðasonar forseta lands- sambandsins og ávarpi Birgis ísleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra. Fjallað verður um starfsemi sambandsins og stefnu í iðnaðar- og atvinnumálum. A föstudegin- um verður umræðuefnið „Ný tækni í iðnaði — aukin fram- leiðni". Fulltrúar ýmissa tækni- og þjónustustofnana iðnaðarins auk forráðamanna fyrirtækja verða frummælendur. Rétt til setu á þinginu hafa 200 manns frá 46 aðildarfélög- um. Morgunblaðið/GSV Frá námsstefnu Kaupþings Norðurlands hf. Gudmundur Magnússon hagfrædingur í ræðustól. Námsstefna Kaupþings Norðurlands hf: Þátttakendur fleiri en búist var við HÁTT í 80 manns sóttu náms- stefnu Kaupþings Norðurlands hf. sem haldin var i gær á Hótel KEA og er sá fjöldi helmingi meiri en búist var við. Þetta er fyrsta náms- stefnan sem Kaupþing Norður- lands stendur fyrir, en fyrirtæk- inu var komið á laggiraar fyrir um það bil sex mánuðum. Fram- kvæmdastjóri er Jón Hallur Pétursson og kom hann til starfa fyrir rúmum mánuði. Pjallað var um hlutverk fjár- magnsmarkaðar frá þjóðhagslegu sjónarmiði og hafði prófessor Guð- mundur Magnússon hagfræðingur framsögu um það efni. Þá ræddi Davíð Bjömsson rekstrarhagfræð- ingur um öflun lánsflár í gegnum verðbréfamarkaði og Dr. Pétur Blöndal stærðfræðingur fjallaði um þýðingu raunvaxta og helstu ávöxt- unarleiðir. Móðurfyrirtæki Kaupþings Norð- urlands hf. er Kaupþing í Reykjavík og em aðrir eigendur fyrirtækisins Akureyrarbær, Kaupfélag Eyfírð- inga auk sparisjóðanna á Siglufírði, Dalvík, Hrísey, Ólafsfirði, Glæsibæj- arhreppi og Akureyri. List- munaupp boð í dag BÓKAUPPBOÐ á vegum Klausturhóla fer fram í dag kl. 14.00 og verða þá yfir hundrað titlar boðnir út. Uppboðið fer fram að Hótel Varðborg Geislagötu 7. Þetta er í fyrsta sinn sem Klausturhólar standa fyrir listmunauppboði á Akureyri. Þær bækur og blöð, sem boðin verða upp, eiga það öll sameiginlegt að hafa ver- ið gefin út og prentuð á Akureyri. Bækumar verða til sýnis í Hótel Varðborg á milli kl. 10.00 og 13.00. flbngtniltffifetfe Akureyri óskar eftir fólki á öllum aldri til að bera út Morgunblaðið strax og það kemur íbæinn. „Hressandi morgunganga“ Hafið samband! fHor^wtblafófr Hafnarstræti 85, Akureyri, sími 23905. NYTT OG BETRA SÚLNABERG sunnudaginn 17. okt.: Sveppasúpa Ofnsteikt lambalæri með beamaise aðeins kr. 525,- Frítt fyrir börn að sex ára aldri Hálft gjald fyrir 6-12 ára. Börnin fá ís eftir matinn. Hótel KEA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.