Morgunblaðið - 29.10.1987, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
245. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Gengi doilarans féU verulega í gær og hefur ekki verið lægra gagnvart vestur-þýsku marki í sjö ár
og franska frankanum í tæp sex. Hér er einn starfsmanna kauphaUarinnar í París að skrá lokagengi
gærdagsins.
Spá „frjálsu
falli“ dollara
New York, London, Tókýó, Reuter.
VERÐBRÉF í kauphöUinni í WaU Street hækkuðu aðeins í gær
þrátt fyrir verulegt gengisfaU doUarans en í Evrópu og Asíu
héldu þau áfram að falla. DoUarinn hefúr ekki verið lægri
gagnvart vestur-þýsku marki í sjö ár og spá því sumir, að
hann eigi eftir að falla enn. Samningamenn Bandaríkjaforseta
og þingsins leggja áherslu á að semja nú í vikunni um fjárlaga-
niðurskurð tíl að lægja mestu öldurnar í fjármálaheiminum.
Almennt lækkuðu hlutabréf í
Wall Street, en á móti kom nokkur
hækkun bréfa í traustustu fyrir-
tælqunum þrátt fyrir gengisfall
dollarans. Það olli hins vegar
nokkru verðfalli í kauphöllum í
Evrópu og Asíu. Gengi dollarans
gagnvart v-þýsku marki hefur
ekki verið minna í sjö ár. Fást nú
1,73 mörk fyrir dollarann og er
hann þar með kominn niður fyrir
1,80 marka viðmiðunina sam-
kvæmt Louvre-samkomulagi
iðnrílqanna sjö.
Skyndiferð Shevardnadzes til Washington:
Vill Sovétstjómin leið-
rétta mistökin í Moskvu?
Washington, Moskvu, Reuter.
EDUARD Shevardnadze, ut-
anrfkisráðherra Sovétrílqanna,
kemur tíl Washington á morgun,
föstudag, og mun þá eiga viðræð-
ur við Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseta um afvopnunarmál
og fyrirhugaðan leiðtogafund.
Kemur þessi ferð mjög á óvart
vegna þess, að i síðustu viku vildi
Gorbachev ekki ákveða nýjan
fund nema horfur væru á samn-
ingi um bandarísku geimvama-
áætlunina og langdrægar
eidflaugar. Bandarískir sérfræð-
ingar telja, að Gorbachev hafi
ætlað að notfæra sér erfiða stöðu
Reagans heima fyrir en komist
að þvi, að hann hafi tapað i þvi
tafli.
í tilkynningu frá Hvíta húsinu
sagði, að Shevardnadze myndi ræða
við Reagan og George Shultz ut-
anríkisráðherra á morgun og
laugardag og taka upp þráðinn þar
sem frá var horfið í Moskvu. Einn-
ig hefur hann með sér bréf til
Reagans frá Gorbachev. í síðustu
viku tókst ekki að ganga endanlega
frá samningi um eyðingu meðal-
og skammdrægra eldflauga og kom
það til, að Gorbachev setti það
skyndilega sem skilyrði, að á vænt-
anlegum leiðtogafundi næðist
einhver árangur í viðræðum um
geimvamaáætlunina og langdræg-
ar eldflaugar.
Þessi nýju skilyrði Gorbachevs
ollu furðu og vonbrigðum á Vestur-
löndum. Reagan sagði hins vegar í
gær, að unnt væri að ná árangri í
afvopnunarmálum án leiðtogafund-
ar og undir það hafa ýmsir
frammámenn í Vestur-Evrópu tek-
ið. Sérfræðingar í afvopnunarmál-
um og bandarískir embættismenn
segja líklegt, að Gorbachev hafi
ætlað að reyna að nýta sér erfið-
leika Reagans, verðfallið á hluta-
bréfamörkuðum, vopnasöluhneyksli
og fleira, en láti sér nú skiljast, að
þar hafi hann leikið af sér.
„Gorbachev hélt, að hann gæti
þvingað forsetann til að gefa eftir
en það gekk ekki. Líklega þekkir
hann Reagan ekki eins vel og hann
hélt,“ sagði bandarískur embættis-
maður og í gær hafði The New
York Times eftir Anatoly Dobrynin,
ráðgjafa Gorbachevs, að Gorbachev
væri reiðubúinn til að eiga fund
með Reagan og undirrita samning-
inn um meðal- og skammdrægu
flaugamar hvað sem liði ágreiningi
um geimvamaáætlunina.
Seðlabankar reyndu í gær að
hamla gegn gengisfallinu með
dollarakaupum en höfðu ekki er-
indi sem erfiði. Jacques Delors,
forseti framkvæmdanefndar Evr-
ópubandalagsins, sagði I gær, að
Bandaríkjastjóm vildi sjá dollar-
ann fara í 1,60 mörk vegna þess,
að Vestur-Evrópuríkin hefðu þrá-
ast við að greiða fyrir auknum
hagvexti. Evrópskir hagfræðingar
taka undir þetta og segja, að doll-
aragengisins bíði nú hugsanlega
„fijálst fall“.
Samningamenn þings og ríkis-
stjómar í Bandaríkjunum vilja
reyna að ná samkomulagi fyrir
helgi um fjárlaganiðurskurð til að
lækka ólguna á fjármálamörkuð-
um. Er stefnt að því að lækka
fjárlögin um 23 milljarða dollara
á einu ári, með útgjaldalækkun
og nýjum sköttum. Ágreiningur
er hins vegar um hlutfallið þama
á milli.
Sjá ennfremur markaðsfrétt-
ir í viðskiptablaði.
Reuter
Slysfarir
á Englandi
Stór byggingarkrani féll í gær á
hliðina í miðborg Lundúna með
þeim afleiðingum, að einn maður
lést og tveir slösuðust alvarlega.
Enn alvarlegra slys varð þó við
bæinn Preston þegar bensín-
flutningabill sprakk í loft upp í
árekstri margra bifreiða. í gær-
kvöld var vitað um 12 látna, þar
af þrjú börn.
Væntanleg bók eftir Mikhail Gorbachev:
Hrósar Stalín fyrir
samyrkjubúskapinn
\f Aolrim Panlor
Moskvu, Reuter.
í væntanlegri bók eftir Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkj-
anna, hrósar hann Jósef heitnum Stalín fyrir saniyrkjubúskapinn,
sem var neyddur upp á rússneska bændur á fjórða áratugnum og
kostaði niilljónir manna iifið. Segir Gorbachev, að samyrkjubúskap-
urinn hafi stuðlað að framförum í landinu.
Gorbachev hefur ekki áður talað inu Moskvufréttum. Þar sem
jafn opniskátt um þetta tímabil í Gorbachev víkur að umdeildum
sögu Sovétríkjanna, þegar milljón-
ir smábænda voru fluttar í vinnu-
búðir eða létust úr hungri, en
ummælin þykja ólík því, sem af
honum er vænst. Segir hann einn-
ig, að Vesturlandabúar verði fyrir
vonbrigðum haldi þeir, að svo sé
sorfið að Sovétmönnum, að þeir
ætli að taka upp vestrænar að-
ferðir í efnahagsmálum.
Útdráttur úr væntanlegri bók
eftir Gorbachev, sem verður gefin
út samtímis í mörgum löndum
meðal annars hér, birtist í vikurit-
atburðum í sögu Sovétríkjanna
kveður við gamalkunnan tón.
„Það var merkisatburður í sögu
lands og þjóðar þegar samyrkjubú-
skapurinn var tekinn upp, mikil-
vægasta endursköpun þjóðfélags-
ins eftir 1917. Vissulega gekk það
ekki sársaukalaust fyrir sig, ekki
án öfga og mistaka, en án hans
hefðu engar framfarir orðið í
landinu," segir Gorbachev.
Gorbachev minnist ekki á þær
milljónir manna, sem létu lífið á
fyrstu árum samyrkjubúskaparins,
og ekki heldur á hreinsanir Stalíns,
sem einnig höfðu í för með sér
dauða ótaldra milljóna og fanga-
búðavist. Hann hrósar hins vegar
Stalín fyrir ofurkappið, sem hann
lagði á iðnvæðingu og segir, að
það hafi verið nauðsynlegt til að
festa byltinguna í sessi.
Ummæli Gorbachevs um Stalín
þykja bergmála yfirlýsingar Yeg-
ors Ligachev, hugmyndafræðings
flokksins. Hann er næstráðandi í
stjómmálaráði kommúnistaflokks-
ins og hefur varað menn við að
einblína um of á dimmu dagana í
sögu Sovétríkjanna. Hefur verið
látið að því liggja, að Ligachev
spymi við fótum og vilji standa
vörð um gamalgróið stjórnkerfí
sovéskra kommúnista.