Morgunblaðið - 29.10.1987, Blaðsíða 31
ftp
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987
Þegarþú
biðurum
ríssúkkulaði
meinaröu
örugglega
þetta her
if
.ssSSix
FrtEYJA HF. SÆLQÆtlSOEHÖ,
KAHðNEÖBHAUt 104, KðBAVÖQ!
Menn hafa misgóða
stjórn á sínu liði
- segir forsætisráðherra um ágreining stj órnarþingmanna
„Að kastast skyldi í kekki
milli félagsmálaráðherra og
fyrrverandi félagsmálaráð-
herra á þingi, svo og ályktanir
fulltrúaráðsfundar framsóknar-
félaganna í Reykjavík í Ijósi
samtals okkar flokksformann-
anna sl. fimmtudag, bendir
kannski til þess að menn hafa
misjafnlega góða stjórn á sínu
Uði,“ sagði Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið.
Formenn stjómarflokkanna
Scandinavia Today í Tókýó:
Menntamálaráð-
herra heiðursgestur
BIRGIR ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra og kona
hans, Sonja Backman, verða
heiðursgestir norrænu menn-
ingarkynningarinnar „Scand-
inavia Today“ í Japan.
Sunnudaginn 1. nóvember næst-
komandi verða þau viðstödd
opnun sýningar á nytjalist ásamt
Karli XVI Gústaf Svíakonungi
og fleiri gestum.
Menntamálaráðherra og föru-
neyti hans halda til Tókýó í Japan
frá París, þar sem ráðherrann hef-
ur undanfama daga setið aðalráð-
stefnu Menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNESCO)
og fund vísindamálaráðherra aðild-
arrílq'a Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar (OECD).
Á menningarkynningunni í Jap-
an mun menntamálaráðherra og
föruneyti hans meðal annars skoða
myndlistarsýningu, þar sem Gunn-
ar Kvaran, listfræðingur, kynnir
norræna myndlist, sækja hátíðar-
tónleika ásamt Svíakonungi,
krónprins og krónprinsessu Japans
og fleiri gestum. Þar verður meðal
annars flutt tónverkið „Choralis"
eftir Jón Nordal. Einnig verður
menntamálaráðherra viðstaddur
opnun listhönnunarsýningar og
sækja fyrstu tónleikana í tónleika-
röð kynningarinnar í Tókýó. Fleiri
merka atburði mætti nefna, en
heimsókn menntamálaráðherra til
Japan lýkur föstudaginn 6. nóvem-
ber næstkomandi.
(Úr fréttatilkynningu.)
þriggja ræddu á fimmtudaginn
nauðsyn þess að koma í veg fyrir
að einstakir stjómarþingmenn eða
ráðherrar gæfu yfirlýsingar sem
gengju oft þvert á stefnu stjómar-
innar í ákveðnum málum, vegna
þess að engin efnisleg rök væra
fyrir að stjómarsamstarfíð væri
að bresta. Á sunnudaginn sam-
þykkti fulltrúaráð framsóknarfé-
laganna í Reykjavík síðan ályktun
þar sem deilt var á alla ráðherra
Alþýðuflokksins bg á mánudag
deildu Jóhanna Sigurðardóttir og
Alexander Stefánsson hart um
nýtt húsnæðisframvarp.
Þorsteinn vildi ekkert segja ann-
að um þessar deilur. Hann sagði
aðspurður um húsnæðisframvarp-
ið, sem mikill ágreiningur virtist
ríkja á milli stjómarflokkanna, en
hann teldi hægt að fínna lausn á
því máli ef vilji væri fyrir hendi.
„Það þarf ef til vill að kæla menn
aðeins niður fyrst," sagði Þor-
steinn Pálsson.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Gísli Ólafsson ritstjóri íslenska kaflans f bókinni Árið 1986 lengst
til hægri, Hafsteinn Guðmundsson bókaútgefandi, hönnuður íslenska
kaflans og Björn Jóhannsson sem samdi kaflann.
ÁRH) 1986 komið út hjá Þjóðsögu
BÓKAÚTGÁFAN Þjóðsaga hef-
ur gefið út bókina „Árið 1986 -
stórviðburðir í myndum og máli
með islenskum sérkafla*1. Þessi
fjölþjóðaútgáfa, sem kemur út á
átta tungumálum, hefur komið
út hér á landi frá árinu 1965.
Ritstjóri íslensku útgáfunnar er
Gfsli Ólafsson. Höfundur
íslenska kaflans er Björn Jó-
hannsson og hönnuður hans er
Hafsteinn Guðmundsson.
Meginkafli bókarinnar heitir
Annáll ársins þar sem atburðir árs-
ins era raktir í máli og myndum.
Skiptist hann eftir mánuðum og
hefst hver kafli á fréttaskýringu.
í kaflanum Mannlíf og menning
era greinar eftir sérfræðinga frá
ýmsum löndum sem fjalla um at-
burði ársins, hver á sínu sviði. Er
þar fjallað um efnahagsmál, um-
hverfísmál, tækni, læknisfræði,
myndlist, kvikmyndir, tísku og
íþróttir.
í íslenska sérkaflanum er greint
frá markverðustu atburðum sem
gerðust hér á landi á árinu 1986,
t.d. leiðtogafundi stórveldanna og
200 ára afmæli Reykjavíkurborgar.
Auk þess era í bókinni ýmsar töl-
fræðilegar upplýsingar sýndar með
grafískum myndum og tölum.
Bókin er 344 blaðsíður að stærð
og í henni era 536 myndir, þar af
337 litmyndir. í íslenska kaflanum
er 71 mynd, og þar af 22 litmyndir.
Sanitas
Með 10% hreinum
eplasafa