Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 1
80 SIÐUR B/C
11
#rjtusiltfafrffr
STOFNAÐ 1913
246. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sri Lanka:
Óbreyttir borgar-
ar falla í árásum
Nýju Delhí, Colombo, Reuter.
INDVERSKAR friðargæslusveitir á Sri I>anka gerðu í gær loftárás-
ir á eina af höfuðstöðvum skæruliða tamíla austur af borginni Jaffna
á norðurhluta eyjarinnar. Að sögn sjónarvotta skutu árásarþyrlur
eldflaugum á markað og íbúðarhús í aðalverslunarhverfi bæjarins
Chavakacheri. Indverska herstjórnin á eyjunni sagði 27 skæruliða
hafa fallið en indverskur blaðamaður sem var vitni að árásinni sagði
flesta þeirra föllnu hafa verið óbreytta borgara.
Árásin á Chavakacheri hófst á
þriðjudagskvöld og lauk henni í
gær. Talsmaður indversku friðar-
gæslusveitanna, sem freista þess
að afvopna skæruliða tamíla sam-
kvæmt samkomulagi stjómvalda á
Indlandi og Sri Lanka, sagði að
gengið hefði verið úr skugga um
að óbreyttir borgarar væru ekki í
hættu áður en merki var gefíð um
árásina. Hins vegar kvaðst ind-
verskur blaðamaður hafa fundið lík
15 óbreyttra borgara og sagði hann
fleiri hafa látist í sjúkrahúsi bæjar-
ins. Indverski talsmaðurinn vildi
ekki tjá sig um hvort óbreyttir borg-
arar hefðu fallið.
Bretland:
Ríkishluta-
bréf í BP
verða seld
London, Reuter.
BRESKA ríkisstjórnin til-
kynnti f gærkvöldi að hún
hygðist ekki hætta við sölu
á hlutabréfum rikisins í
breska olíoufélaginu BP
þrátt fyrir verðfall á hluta-
bréfamörkuðum.
Nigel Lawson fjármálaráð-
herra kvaðst hafa komist að
þessari niðurstöðu eftir að
hafa ráðfært sig við hags-
munaðila og fjármálasér-
fræðinga. Sagði hann að þess
yrði gætt að viðunandi verð
fengist fyrir bréfín en sér-
fræðingar höfðu bent á að
að aukið framboð á hlutabréf-
um myndi einungis verða til
þess að stuðla að frekara
verðfalli á verðbréfamarkað-
inum í London.
Skæruliðar tamfla hafa undan-
farin fjögur ár barist fyrir stofnun
sjálfstæðs ríkis á Sri Lanka. í júlí-
mánuði gerðu stjómir Indlands og
Sri Lanka með sér samkomulag um
að binda enda á borgarastyijöldina
sem kostað hefur rúmlega 6.000
manns lífíð. Skæmliðar tamfla sam-
þykktu í fyrstu að leggja niður vopn
en gengu síðan á bak orða sinna.
Hófu indversku friðargæslusveit-
imar þá umsátur um borgina Jaffna
og hafa hundmð manna fallið í
þeim átökum. Fullyrt hefur verið
að fjöldi óbreyttra borgara hafi
beðið bana í stórskotaliðsárásum
Indveija og er þiýst á Rajiv Gand-
hi, forsætisráðherra Indlands, um
að kalla sveitimar heim.
Sjá einnig „Af erlendum vett-
vangi“ á miðopnu blaðsins.
50.000 Frakkar flýja eiturský
Reuter
Um 50.000 manns í vesturhluta Frakklands var
skipað að jrfirgefa heimili sín í gær þegar 15 kfló-
metra hátt eiturský lagðist yfír ána Loire og
nærliggjandi sveitir. Að sögn yfírvalda slapp eitur-
efni út í andrúmsloftið er eldur varð laus í áburði
sem geymdur var í skemmu á hafnarsvæði borgar-
innar Nantes, sem er við mynni árinnar. íbúum sjö
smábæja í grennd við Nantes var sagt að yfirgefa
heimili sín til að forðast gasskýið. Gasið er ammoní-
aksblandað, og getur að sögn lækna verið banvænt
andi menn því að sér í langan tíma. 24 íjórir þurftu
á aðhlynningu lækna að halda vegna minniháttar
áverka. í gærkvöldi höfðu vindar blásið eiturskýinu
langleiðina á haf út.
Sovétmenn búa sig undir leiðtogafund fyrir áramót:
Fyrirvörum um geimvam-
ir hefur verið ýtt til hliðar
Moskvu. Waiihinaton. Rpntpr.
Ónafngreindir heimildarmenn Re-
uters-fréttastofunnar í Moskvu
sögðu að fundurinn yrði líklega í
byijun desember eða um miðjan
mánuðinn. Boris Pyadyshev, einn
yfirmanna upplýsingaskrifstofu sov-
éska utanríkisráðuneytisins, sagði á
blaðamannafundi í gær að öllum
Rustamenni
fá raflost
Norbert Benzaous,
formaður stéttarfé-
lags franskra
leigubílstjóra,
kynnti fréttamönn-
um í gær nýstárleg-
an öryggisbúnað,
sem komið hefur
verið fyrir í nokkr-
um leigubflum í
Parísarborg. Með
búnaði þessum get-
ur bflstjórinn hleypt
rafstraumi í rusta-
menni sem láta
ófriðlega eða gera
sig líkleg til að beita
bflstjórann ofbeldi.
Moskvu, Washington, Reuter.
TALSMAÐUR sovéska utanríkisráduneytsins skýrði frá því í gær að
leiðtogar risaveldanna, þeir Mikhail Gorbachev og Ronald Reagan,
myndu koma saman til fundar á þessu ári. Ronald Reagan kvaðst
ætla að bíða komu Eduards Shevardnadze, utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, sem var væntanlegur til Bandaríkjanna í nótt, og vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um hvort af fundinum yrði. Shevardnadze mun
hafa bréf meðferðis til Reagans frá Gorbachev og er talið fullvíst að
í þvi sé að finna tillögu um dagsetningu næsta leiðtogafundar, sem
að líkindum fer fram í Washington.
hindrunum hefði verið rutt úr vegi
og því myndu leiðtogamir eiga við-
ræður fyrir áramót. Pyadyshev sagði
Bandaríkjastjóm hafa fallist á að
ræða fækkun langdrægra kjam-
orkuflauga og ákvæði ABM-sátt-
málans svonefnda um takmörkun
gagneldflaugakerfa en Sovétmenn
túlka þann sáttmála á þann veg að
hann taki fyrir tilraunir með geim-
vopn. Sovétmenn höfðu áður krafíst
þess að fyrir lægju drög að sam-
komulagi um þessi atriði áður en
næsti leiðtogafundur yrði haldinn.
Hafði þess almennt verið vænst
að leiðtogamir þinguðu í nóvember
og yrði þar undirritað samkomulag
um upprætingu meðal- og skamm-
drægra kjamorkuflauga á landi.
Fréttaskýrendur telja að með þessu
hafi Sovétstjómin ætlað sér að beita
Reagan og stjórn hans þrýstingi.
Það hafi á hinn bóginn ekki tekist
enda hafa bæði bandarískir embætt-
ismenn og ráðamenn í Vestur-Evr-
ópu lýst yfir því að ekki sé
nauðsynlegt að boða til leiðtoga-
fundar til að undirrita samkomulag
það sem nú liggur fyrir um útrým-
ingu meðaldrægu flauganna.
Boris Pyadyshev sagði Banda-
Reuter
ríkjamenn hafa lýst sig reiðubúna
til að ræða ágreiningsefni varðandi
ABM-sáttmálann og fækkun lang-
drægra flauga. „Þetta er fullnægj-
andi ástæða fyrir því að boða til
leiðtogafundar," sagði hann. Kvað
hann Sovétstjómina ekki hafa skipt
um skoðun, æskilegra hefði verið
að fyrir lægju drög að samkomu-
lagi, en fyrst svo væri ekki myndu
leiðtogamir freista þess að ná þeim
fram og yrði þá unnt að undirrita
þau er Reagan kæmi til Moskvu á
næsta ári. Aður höfðu Sovétmenn
lagt til að bráðabirgðasamkomulag
yrði gert á leiðtogafundi á þessu ári
og iokadrögin yrðu síðan undirrituð
í Moskvu. Reagan hefur lýst því
yfír að hann stefni að því að ná
samkomulagi unm helmingsfækkun
langdrægra kjamorkuflauga á þeim
15 mánuðum, sem eftir lifa af valda-
tíma hans. Hins vegar hefur hann
gefíð skýrt til kynna að hann sé
ekki reiðubúinn til að semja um
geimvamaáætlun Bandaríkjastjóm-
ar og hefur það legið fyrir allt frá
því að leiðtogamir ræddu afvopnun-
armál á fundi þeirra í Reykjavík
fyrir rúmu ári.
Hæstiréttur Bandaríkjanna:
Douglas Ginsburg út-
nefndur í stað Borks
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti tilkynnti I gær að hann hefði
útnefnt Douglas Ginsburg til embættis dómara í hæstarétti Banda-
ríkjanna. Ginsburg er 41 árs að aldri og hljóti hann samþykki þingsins
verður hann yngsti dómari hæstaréttar frá því að Lewis Powell fékk
þar sæti fertugur að aldri árið 1939.
Ginsburg kemur í stað Roberts
Bork, sem Reagan hafði tilnefnt til
starfans, en bandarískir þingmenn
höfnuðu honum í síðustu viku.
Reagan sagði Ginsburg, sem er gyð-
ingur, njóta virðingar bæði frjáls-
lyndra manna og íhaldsmanna og
hvatti hann þingmenn öldungadeild-
arinnar til að fjalla sem fyrst um
tilnefninguna. Sagði forsetinn að
deilumar um Bork hefðu verið bæði
hæstarétti og bandarísku þjóðinni
til vansa. Kvaðst hann vænta þess
að barátta þrýstihópa setti ekki
mark sitt á umræður um hæfni Gins-
burgs til starfans.