Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 4

Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 Offramboð fellir verð á karfa í Þýzkalandi: Ömurlegt að menn fari ekki eftir leiðbeiningum segir ÁgTÍst Einarsson, útgerðarmaður VERÐ á ferskum karfa í Þýzka- landi er nú failið og er það að minnsta kosti í fjórða skiptið á þessu ári, sem svo fer að frátöldu ormamálinu svokallaða. Ástæðan er, eins og í fyrri skiptin, offram- boð. Karfi fór i gær og fyrradag á lágmarksverði, um 35 krónur og talsvert tap er á slíkum út- flutningi. Ágúst Einarsson, útgerðarmaður Viðeyjar RE, seg- ir að það sé ömurlegt að menn fari ekki eftir leiðbeiningum frá mörkuðunum, heldur yfirfylli þá og valdi sjálfum sér og öðrum verulegu tapi. Viðey RE seldi afla sinn í Brem- erhaven á miðvikudag og fimmtu- dag, alls 239 tonn, mest karfa. Heildarverð var 9,5 milljónir króna, meðalverð 39,89. Verð fyrir karfa var heldur lægra, bæði úr gámum og afla Viðeyjar, en fyrir aðrar fisk- tegundir var verð þokkalegt, enda minna framboð af þeim. Framboð í næstu viku á þessum markaði er enn meira en í þessari og vænta menn mikilla erfíðleika þá. Ágúst Einarsson sagði, að ástæða verðfallsins væri einföld, of mikið framboð. Vitað hefði verið með um þriggja vikna fyrirvara að tvö skip frá Islandi yrðu á markaðnum á þessum tíma og talsvert framboð væri af físki frá heimamönnum. Því hefðu menn ytra beðið um að enginn karfí yrði sendur utan í gámum. Viðbrögð gámaútflytjenda hér hefðu hins vegar verið þau að senda á þriðja hundrað tonn í gámum inn á markaðinn. Markaðurinn réði við um 500 tonn og gámunum hefði algjör- lega verið ofaukið. „Við sitjum agndofa yfír þessu" sagði Ágúst. „LIÚ hefur stjómað siglingum skipanna með góðum ár- angri í fjölda ára, en engin stjóm er á útflutningi í gámum. Miðað við 500 tonn á viku er hægt að fá 55 ti! 60 krónur á kíló af karfa að meðaltali, en svo hrúga menn físki inn, þrátt fyrir viðvaranir og fella verðið fyrir sjálfum sér og öðrum. Það tapa allir á þessu. Síóan fara málin þannig, að menn halda að sér höndum, senda lítið út og eftirspum umfram framboð hækkar verðið óeðlilega mikið. Þá fer skriðan af stað aftur og verðið fellur. Þetta kallar allt á miðstýringu á útflutn- ingi á ferskum físki. Það er ömuleg- ast þegar menn fara ekki eftir leiðbeiningum. Þetta er vont mál fyrir alla, bæði seljendur og kau- pendur. Markaðurinn í Þýzkalandi er góður, sé hann stundaður af skyn- semi, en svona háttalag eyðileggur hann,“ sagði Ágúst Einarsson. VEÐURHORFUR í DAG, 30.10.87 YRRLIT á hódegi í g»r: Yfir íslandi er 1019 miilibara hæðar- hryggur en á Grænlandshafi er 1010 millibara smálægð sem hreyfist austsuðaustur. SPÁ: f dag verður hæg, breytileg átt á landinu, smá él eða slydduól í fyrstu við norðausturströndina en víðast annars staðar úrkomu- laust. Hiti verður víða 1—3 stig við sjávarsíðuna en 4—6 stiga frost inn tii iandsins. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA LAUGARDAGUR: Suðlæg eða suðvestlæg átt og fer að hlýna. Þykknar upp um sunnan- og vestanvert landið og fer að rigna þegar líður á daginn. SUNNUDAGUR: Suðlæg átt og víða 4-stiga hiti. Rigning um sunn- an- og vestanvert landið en þurrt aö mestu Norðaustanlands. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hátfskýjað m Skýjað Alskýjað •á x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * ■\ 0 Hitastig: 10 gráður á Ceisius \j Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —[- Skafrenningur Þrumuveður xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær aö ist. tíma httl veftur Akurayri +4 léttakýjaft Reykjavlk +2 léttskýjað Bergen 8 léttskýjað Helsinki 7 léttskýjað Jan Mayen +8 snjókoma Kaupmannah. 8 þokumóða Narssarssuaq +1 alskýjað Nuuk 0 snjókoma Osló 7 rignlng Stokkhólmur 8 skýjað Þórshöfn 6 alskýjað Algarve 17 skýjað Amsterdam 12 Þokumóða Aþena 12 alskýjað Barcelona 20 láttskýjað Berlin 9 léttskýjað Chlcago 0 skýjað Feneyjar atskýjað Frankfurt 12 mlstur Glasgow 8 mistur Hamborg 7 rlgning Las Palmas 22 skýjað London 10 mlstur LosAngeles 18 skýjað Lúxemborg 11 þoka Madrfd 10 þokumóða Malaga 19 léttskýjað Mallorca 21 skýjað Montroal 0 léttakýjað NewYork 6 helðskirt Parfs 12 skýjað Róm 21 þokumóða Vin 6 léttskýjað Washlngton 3 alskýjað Wlnnlpeg 2 hálfskýjað Valencla 21 láttskýjað Að afhendingunni lokinni. Auk þeirra Ragnars og Taka Yama eru á myndinni Jóhann Kiesel, framkvæmdasfjóri Týlis hf., og Björk Hreiðarsdóttir, hárgreiðslumeistari, eiginkona Ragnars. RAX fær viður- kenningu frá Canon JAPANSKA ljósmyndavörufyr- irtækið Canon og umboðsaðili þess á íslandi, Týli hf., afhentu f gær Ragnari Axelssyni, ljós- myndara við Morgunblaðið, myndavél Canon F-1 N, sem fyrirtækið telur sína fullkomn- ustu myndavél fyrir atvinnuljós- myndara. Þessa viðurkenningu má rekja fyrst og fremst til forsíðumynda, sem Ragnar Axelsson tók og Morgunblaðið birti af leiðtoga- fundinum í Reykjavík fyrir rétt rösku ári. Þessar myndir vöktu ekki aðeins athygli hér á landi, heldur og víða erlendis og m.a. birtust myndir af þessum forsíðum í síðasta tölublaði tímarits Canon- fyrirtækisins, sem dreift er um allan heim. Þetta mun vera í fyrsta skipti, Ragnar Axelsson tekur við ljós- myndavélinni úr hendi markaðs- stjóra Canon í Evrópu, K. Taka Yama. sem íslenzkur fréttaljósmyndari, hlýtur viðurkenningu sem þessa. Húsavík: Útibússtj óraskipti í Landsbanka Islands SIGURÐUR Pétur Björnsson lætur um mánaðamótin af störf- um vegna aldurs sem útibús- stjóri Landsbankans á Húsavik, en því starfi hefur hann gegnt frá stofnun útibúsins 1962. Að- ur var hann sparisjóðsstjóri á Húsavík frá 1943. Bankaráðið hefur ráðið Áma Sveinsson útibússtjóra á Húsavík frá 1. nóvember nk. Hann hefur undanfarin 7 ár verið útibússtjóri í Neskaupstað og þar áður um langt skeið starfsmaður endur- skoðunardeildar bankans. Árni Sveinsson Rómarsáttmálinn: Nefnd undirbýr aðild íslands Menntamálaráðuneytið hefur nýlega skipað nefnd til að und- irbúa aðild íslands að Rómar- sáttmálanum um vernd listflytj- enda, hljóðritaframleiðenda og útvarpsstofnana. Fyrsti fundur nefndarinnar verður 3. nóvember nk. og er gert ráð fyrir að hún ljúki störfum fyr- ir næstu áramót. Nefndina skipa: Þórunn J. Haf- stein lögfræðingur, sem er formaður, Baldur Guðlaugsson hrl., Helgi R. Magnússon lögfræð- ingur, Gunnar Guðmundsson hdl. og Erla Svanhvít Ámadóttir hdl., sem er tilnefnd af frjálsu útvarps- stöðvunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.