Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra:
Upplausn á heimilum vegna
aðstæðna í húsnæðismálum
Hér fer á eftir rœða Jóhönnu
Sigurðardóttur, félagsmálaráð-
herra, sem flutt var við umræður
um stefnuræðu forsætisráðherra
á Alþingi á miðvikudag.
Herra forseti. Góðir áheyrendur.
Þrigga herbergja 80 fm íbúð fjög-
urra manna flöslkyldunnar hafði
farið á nauðungaruppboð. Pjöl-
skyldan var sundruð. Faðirinn, sem
að jafnaði vann 14 tíma á sólar-
hring, leigði eitt herbergi. Móðirin,
sem einnig vann úti, bjó með böm-
in tvö hjá ættingjum. Fjölskyldufað-
irinn var mættur í viðtalstíma
félagsmálaráðherra. Þó í svipmóti
hans öllu mætti greina uppgjöf
horfði hann á mig hvössum augum
þegar hann spurði: Hvort ráðleggur
þú okkur að skilja til að konan mín
hafí möguleika á verkamannabú-
staðaíbúð með bömin eða að fjöl-
skyldan verði áfram sundruð í
nokkur ár þangað til röðin kemur
að okkur á biðlista Húsnæðisstofn-
unar?
Sá næsti í viðtalstímanum var
fráskilin einstæð móðir með tvö
böm. Þegar búi þeirra hjóna var
skipt kom í ljós að það nægði ekki
fyrir skuldum. Hún hafði fengið
inni með bömin sín tvö hjá móður
sinni í tveggja herbergja íbúð.
Hennar erindi til félagsmálaráð-
herra var þetta: Þessar aðstæður
hafa slæm áhrif á bömin mín. Þarf
ég að bíða í tvö ár eftir láni hjá
Húsnæðisstofnun?
í bréfi til mín fyrir skömmu skrif-
aði sjómaður eftirfarandi: „Þyngsta
skref sem ég hef stigið um ævina
er að þurfa að ieita á náðir félags-
málaráðherra, en ég er tilneyddur.
Við hjónin emm að gefast upp.“
Fjölskylda þessa sjómanns var í
annað skipti að missa íbúð undir
hamarinn.
Átta af hverjum tíu heimsóknum
sem ég hef fengið I viðtalstíma í
viku hverri sl. þijá mánuði sem fé-
lagsmálaráðherra em erindi af
þessum toga. Fjölskyldur em að
brotna niður. Upplausn á heimilum
vegna aðstæðna í húsnæðismálum.
Fólk sér ekki fram úr þungri
greiðslubyrði húsnæðislána. í hús-
næðisfrumvarpi, sem nú liggur fyrir
Alþingi, er beðið um heimild fyrir
húsnæðismálastjóm til að mega
skerða eða hafna láni til þeirra sem
eiga stórar skuldlausar eignir fyrir
og em að minnka við sig og þeirra
sem eiga fyrir tvær eða fleiri íbúðir
til að losa um flármagn til þeirra
verst settu. Nei, þetta er ekki hægt,
segja sumir. Reglur þurfa að vera
almennar, eins fyrir alla. Það má
ekki skammta lánin, ómögulegt að
setja málið í hendur Húsnæðisstofn-
unar, segja gagnrýnisraddimar.
Fyrir gagnrýnishópinn vil ég ieggja
tvær spumingar. _
1. spuming: í Byggingarsjóði
ríkisins verða 6 milljarðar á næsta
ári. Það er 1 milljarði meira en all-
ur tekjuskattur einstaklinga. Þessir
6 milljarðar duga liðlega fyrir láns-
loforðum til þeirra sem em að kaupa
sína fyrstu íbúð og þeirra sem em
að stækka við sig vegna fjölskyldu-
stærðar. Hvar á að taka þá 2—3
milljarða sem vantar til þeirra 2.000
umsækjenda sem þá em eftir og
húsnæðiskerfið veitir fyrirheit um
lán til á hveiju ári? Á að hækka
skattana? Eða hvar á að taka pen-
ingana? 1 milljarð á núgildandi
verðlagi þarf að tjórum ámm liðn-
um til að greiða niður vexti til allra
þeirra sem sjálfvirkt hafa nú að-
gang að húsnæðiskerfinu. Það er
sama upphæð og á næsta ári fer í
Framkvæmdasjóð fatlaðra sem og
rekstur á öllum stofnunum fyrir
fatlaða f landinu.
2. spuming fyrir gagnrýnishóp-
inn: Ef Húsnæðisstofnunin getur
samkvæmt núgildandi iögum eftir
eigin mati hafnað lánsumsóknum
láglaunahópanna, af hveiju er henni
ekki treystandi til að leggja rétt-
mætt mat á þegar hafna þarf eða
skerða lán hjá þeim efiiameiri?
Samkvæmt upplýsingum Hús-
næðisstofnuar má áætla að frá því
að húsnæðislögin tóku gildi sé þessi
hópur efnafóiks um 700 manns sem
taka til sín um 1 milljarð af fjár-
magni húsnæðiskerfisins. Það er
sama fjárhæð og fer í allt félags-
lega húsnæðiskerfið á þessu ári.
Þetta er álíka stór hópur og sá
hópur láglaunafólks sem annað-
hvort hefur verið synjað eða ekki
fengið afgreiddar sfnar umsóknir í
nýja húsnæðislánakerfinu.
Hver eru önnur ákvæði hús-
næðisfrumvarpsins? Jú, að það sé
hægt af takmörkuðu fjármagni
húsnæðiskerfisins að veita §ögurra
manna Qölskyldu, sem býr í tveggja
herbergja íbúð og þarf að stækka
í þriggja herbergja íbúð, forgang
fram yfir lán úr húsnæðiskerfinu
til hjóna sem eru í raðhúsi og eru
að fara f einbýlishúsið.
En hveijir eru þessir efnameiri í
biðröðum Húsnæðisstofnunar? Er
þetta ekki fólk sem hefur fengið lán
áður úr lífeyrissjóðunum sínum til
að kaupa íbúð, fólkið sem eignaðist
húsnæði áður en lánin voru verð-
tryggð fyrir árið 1980, fólkið sem
tilheyrir þeirri kynslóð, eins og ég
og fleiri, sem áætla má að skuldaði
nú 90 milljörðum meira í sínu hús-
næði ef þeim hefðu verið búin sömu
lánakjör og því fólki sem nú er að
koma sér þaki yfir höfuðið, og sem
ekki má þó setja í forgang umffarn
þá efnameiri í biðröðinni?
Góðir áheyrendur. Ákvæði hús-
næðisffumvarpsins eiga ekki
eingöngu að takmarka aðgang
efnafólks að niðurgreiddu §ár-
magni húsnæðiskerfisins heldur
einnig að koma í veg fyrir óeðlilega
þenslu og verðhækkanir á fast-
eignamarkaðnum og að loka þurfi
húsnæðiskerfínu á nýjan leik að
nokkrum mánuðum liðnum. Ekki
síst eiga þessi ákvæði frumvarpsins
að skapa okkur svigrúm til að fínna
framtíðarlausn f húsnæðiskerfinu.
Ég tel að almenna húsnæðiskerfíð
hafí fyrst og fremst skyldum að
gegna við þá sem eru að kaupa í
fyrsta sinn og þá sem eiga litla
íbúð fyrir og eru að stækka við sig
af fjölskylduástæðum. Síðan þarf
bankakerfið að vera í stakk búið
til að taka við öðrum og bjóða upp
á lengri lánstfma og betri lánakjör
en nú tíðkast. Að þessu þarf að
vmna.
Hvað félagslega kerfíð varðar
stefndi í að ekki yrði um neinar
nýframkvæmdir að ræða í félags-
legum íbúðum á næsta ári. Á
fjárlögum er nú gert ráð fyrir að
fjármagn til félagslegra íbúða tvö-
faldist og hægt sé að hefja bygg-
ingu á 600—700 félagslegum
íbúðum á næsta ári, þar með taldar
kaupleiguíbúðir.
Með kaupleigufbúðum er opnuð
ný leið í húsnæðismálum hér á landi
þar sem fólk getur valið milli leigu
eða kaupa á íbúð. Hér er einnig
um mikið hagsmunamál lands-
byggðarinnar að ræða þar sem
húsnæðisekla hefur staðið atvinnu-
lífinu fyrir þrifum. í könnun sem
félagsmálaráðuneytið hefur látið
gera um áhuga og þörf fyrir kaup-
leiguíbúðir, kom í ljós mikill áhugi
sveitarfélaga og félagasamtaka á
þessum valkosti. Um þriðjungur
sveitarfélaga eða 80 sveitarfélög
auk átta félagasamtaka sem tóku
þátt í þessari könnun telja þörf fyr-
ir rúmlega 2000 kaupleiguíbúðir á
næstu þremur árum.
Mikilvægt er einnig að leysa
vanda þeirra sem lent hafa í miklum
greiðsluerfíðleikum vegna íbúða-
kaupa. Á fjárlögum er gert ráð fyrir
300 millj. í þessu skyni. Einnig eru
hafnar viðræður við forstöðumenn
banka og sparisjóða um frekari
úrlausn fyrir þessa hópa.
Á fjárlögum hafa framlög til
málefna fatlaðra verið aukin veru-
lega eða úr 639 millj. kr. í 968
millj. kr. sem er aukning um 51,4%.
Undirbúningur er nú hafinn að
framkvæmdaáætlun um uppbygg-
ingu á framkvæmdum í þágu
fatlaðra. Verður þar lögð sérstök
áhersla á sambýli og vemdaða
vinnustaði.
Ríkisstjómin hefur ákveðið að
beita sér fyrir þvf að stíga fyrsta
skrefið í heildarendurskoðun verka-
skiptingar ríkis og sveitarfélaga á
árinu 1988 með því að flytja nokk-
ur verkefni til sveitarfélaganna. Við
þetta er talið að um 200 millj. kr.
útgjöld færist frá ríki til sveitarfé-
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra.
laga. Sveitarfélögunum verða
jafnhliða tryggðar auknar tekjur
sem þessu nemur.
Um nokkurra ára skeið hafa tekj-
ur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verið
skertar. Á þessu þarf að verða
breyting. Talið er að þessi skerðing
hefði á næsta ári orðið rúmar 500
millj. kr. að óbreyttum reglum. Við
undirbúning fjárlagafrv. fyrir árið
1988 náðist sá áfangi að dregið er
úr skerðingunni um helming eða
250 millj. kr. í sambandi við flutn-
ing verkefna frá ríki til sveitarfé-
laga er nauðsynlegt að breyta
reglum um Jöfnunarsjóð sveitarfé-
Iaga þannig að verulega auknu
fjármagni verði veitt til jöfnunar
milli sveitarfélaga. Stycja þarf
minni og vanmegnugri sveitarfélög-
in þannig að þau geti haldið uppi
eðlilegri félagslegri þjónustu við
íbúa sfna. í starfsáætlun ríkisstjóm-
arinnar er lögð áhersla á að störf
kvenna hjá hinu opinbera verði end-
urmetin og unnið verði að jafnrétti
f launakjörum og hlunnindagreiðsl-
um hjá ríkinu. Að þessu er nú unnið.
í samræmi við ákvæði í stjómar-
sáttmála ríkisstjómarinnar hefur
einnig verið skipuð nefnd sem ætlað
er að leita leiða til að stytta vinnu-
tímann hér á landi án þess að tekjur
skerðist.
Góðir áheyrendur. í starfsáætlun
ríkisstjómarinnar er að finna mörg
mikilvæg ákvæði sem eiga að auka
jafnrétti og tryggja félagslegar
umbætur og réttlæti í þjóðfélaginu.
Þeirri stefnu þarf að fylgja fast
eftir. Góðar stundir.
Sumardagskrá vélflug-
manna lauk á flugvell-
inum við Hreysiskvísl
SUMARDAGSKRÁ vélflugdeild- Selfossi að Geysi í Haukadal og stefna inn á hálendi á nfu flugvélum
ar Flugmálafélags íslands lauk snæddu saman hádegisverð á að flugvellinum við Hreysikvísl sem
fyrir nokkru en þá hittust áhafn- hótelinu þar. er á Sprengisandsleið skammt
ir tíu flugvéla frá Reykjavík og Að snæðingi loknum var tekin sunnan við Hofsjökul. Snjóföl á
hálendinu gerði mönnum erfítt að
greina flugvöllinn úr fjarska en með
aðstoð Loran C-siglingatækja
fannst vindpokinn fljótlega og
brautarhattar komu í ljós.
Flugvöllurinn við Hreysikvísl er
í 2.050 feta hæð yfir sjávarmáli og
með hæstu flugvöllum yfír sjó á
íslandi. Tvær ágætar flugbrautir
eru þar, önnur 877 metra löng og
hin 630 metrar. Þar ríkti sannkallað
vetrarveður, kuldi og blástur en
allir voru vel búnir. Sólbjart var og
stórfenglegt útsýni til allra átta.
Við Hreysikvísl hittu ferðalangar
björgunarsveitarmenn frá Hvols-
velli sem vom að vitja sæluhúss sem
er skammt frá flugvellinum. Hóp-
amir ræddu saman dágóða stund
en þar sem útséð var að aðrir flug-
vellir á hálendinu væm flestir
komnir undir snjó ákváðu flug-
mennimir að halda aftur til byggða.
Hvolsvellingar buðust til að troða
niður tvo smáskafia á flugbrautinni
með bflum sínum til að létta mönn-
um flugtakið og var það þegið með
þökkum.
Eftir flugtak flaug hópur til suð-
urs eftir virkjunarsvæði Þjórsár að
einkaflugvelli sem er skammt frá
Hellu. Þar þáðu menn kaffi og
meðlæti og með því lauk sumardag-
skrá vélflugmanna á íslandi fyrir
árið 1987.
Myndir og texti: PPJ