Morgunblaðið - 30.10.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
Þjóðleikhúsið:
Yerma aftur á fjalirnar
NÚ á haustmánuðum verða fimm
aukasýningar á uppfærslu Þjóð-
leikhússins á Yermu, eftir
spænska skáldið Federico Garcia
Lorca. Yerma var frumsýnd í
Þjóðleikhúsinu um miðjan maí
siðastliðinn og var síðasta frum-
sýning' leikhússins á stóra sviðinu
það leikárið.
Karl Guðmundsson hefur þýtt
bæði leik og ljóð og leikstjóri er
Þórhildur Þorleifsdóttir. Hjálmar
H. Ragnarsson samdi tónlistina,
Siguijón Jóhannsson hannaði bún-
inga og leikmynd og Páll Ragnars-
son lýsingu.
Tinna Gunnlaugsdóttir fer með
titilhlutverk sýningarinnar, Yermu,
en með önnur hlutverk fara meðal
annars, Signý Sæmundsdóttir,
söngkona, sem fer með aðalsöng-
hlutverkið, Amar Jónsson, sem
leikur Jóann, eiginmann Yermu,
Pálmi Gestsson leikur Viktor fjár-
hirði, Guðný Ragnarsdóttir leikur
Maríu, vinkonu Yermu, Guðrún Þ
Stephensen leikur „þá gömlu guð-
lausu," Kristbjörg Kjeld leikur
Dolores grasakonu og Anna Kristín
Amgrímsdóttir og Anna S Einars-
dóttir em í hlutverkum hinna
ógnvekjandi mágkvenna Yermu.
Auk þess kemur mikill fjöldi ann-
arra leikara, dansara og söngvara
fram í sýningunni.
Yerma er á yflrborðinu afareinf-
alt verk, saga þess er skýr og
söguþráðurinn óslitinn. Þó er Lorca
-Lotto
Hinn
íslenski
5 kúlur
stokkur
\j&*°
Lítill og handhægur
LOTTO - STOKKURINN
Söiudrerfing: Jósk sf. Sími 76540.
^ Líttu við ♦
Þurrskreytingar okkar vekja athygli
Blóm - skreytingar og gjafavara
hvertsem tilefniöer.
GLÆSIBÆ - SÍMI8420«
f I ÍNNI
að fjalla um allflóknar forsendur
fyrir þeim harmi sem aðalpersónan
ber, og sem í verkinu vex eins og
fóstur í móðurkviði, uns hann brýst
út. Í raun mætti segja að leikritið
fyalli um óseðjandi þrá sveitakon-
unnar Yermu eftir að eignast bam,
að það lýsi þeim ráðum sem hún
grípur til og eins þeim sem hún
grípur ekki til, svo henni verði bams
auðið, en það skýrir ekki hvemig
vaxandi örvænting Yermu megnar
að túlka hlutskipti heils samfélags.
Fyrsta sýning haustsins á Yermu
verður laugardaginn 31. október,
en síðan verður verkið á dagskrá
fimmtudaginn 5. nóvember, föstu-
daginn 13. nóvember, sunnudaginn
15. nóvember og föstudaginn 20.
nóvember og er það jafnframt
síðasta sýningin á verkinu.
ssv Tinna Gunnlaugsdóttir í hlutverki Yermu.
Hljómplata með sam-
leik gítars og orgels
ÚT ER komin hljómplata með
samleik gítars og orgels. Á henni
leika Símon H. ívarsson og dr.
Orthulf Prunner verk eftir Bach,
Vivaldi og Rodrigo. Platan var
tekin upp i Dómkirkjunni í
Reykjavík sl. vetur og annaðist
Halldór Víkingsson hljóðritunina
Tæpur milljarð-
ur 1 áfengis-
kaup á þriðja
ársfjórðungi
ÍSLENDINGAR keyptu áfengi
fyrir tæpan milljarð á tímabilinu
1. júlí til 30. september á þessu
ári. Á sama tíma i fyrra var selt
áfengi fvrir rúmar 700 miiyónir
króna. I krónum talin nemur
aukningin i áfengissölu 33,7% á
milli ára, en sú tala segir ekkert
til um selt áfengismagn. Áfengis-
sala jókst um 11,6% ef miðað er
við söluna á 2. ársfjórungi þessa
árs, en á þessum tíma hefur
áfengi ekki hækkað.
í fréttatilkynningu frá Áfengis-
vamarráði segir að mest hafí verið
selt af áfengi á tímabilinu frá 1.
júlí til 30. september 1987 í
Reykjavík, eða fyrir 622 milljónir
króna. Næst kemur Akureyri þar
sem áfengi var selt fyrir 93 milljón-
ir. Á Selfossi var selt fyrir 46,5
milljónir og 42 milljónir í Keflavík.
Alls var áfengi selt fyrir 936.274.
847 krónur á 10 útsölustöðum
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins á tímabilinu.
með starfrænni tækni (digital),
en platan er pressuð hjá Teldec
í V-Þýskalandi og skorin með
DMM-aðgerð (Direct Metal Mast-
ering).
Á hlið 1 eru verkin „Wachet auf“
(Vaknið, Síons verðir kalla) og tríó-
sónata í G-dúr eftir J.S. Bach og
konsert í D-dúr eftir Vivaldi, en á
hlið 2 er verk eftir Joaquin Rodr-
igo, Fantasia para un gentilhombre,
sem byggt er á barokk-dönsum eft-
ir Gaspar Sanz.
Á plötuumslagi segir m.a.: „Hér
mætast tvö ólík hljóðfæri, sem hing-
að til hafa gegnt mismunandi
hlutverki í tónlistarsögunni. Orgelið
hefur verið helsta hljóðfæri kirkj-
unnar á meðan gítarinn var að
mestu leyti í höndum alþýðu. Hér
tengist því hið kirkjulega og verald-
lega í samspili þessara hljóðfæra.
Gítar og orgel
StMON 1». tVARSSON
ORTHGLP PRUNNtR
Racb Yivaitii fíodrigo
Mörgum dettur ef til vill í hug að
gítarinn fari hér með aðalhlutverk
en orgelið gegni eingöngu undir-
leikshlutverki. Svo er þó ekki.
Vandað nútíma orgel gefur ótrúlega
marga möguleika sem fara langt
fram úr kröfum venjulegs messu-
söngs. Samspil þessara hljóðfæra
er einstaklega fallegt og flölbreytt,
blæbrigði, möguleikar og litir eru
ótrúlega víðfeðmir."
Útgefandi er Fermata, en dreif-
ingu annast Bókaútgáfan Öm og
Örlygur.
Aflabrestur smá-
báta fyrir norðan
Veiðibanni ekki
aflétt
AFLI smábáta á Norðurlandi í
septembermánuði varð aðeins
230 tonn vegna ógæfta, sem er
miklum mun minna en f sama
mánuði undanfarin ár. Vegna
þessa óskaði Landssamband smá-
bátaeigenda þess við sjávarút-
VÍÐIR
I BREIÐHOLTI
á Seljabraut í
Opið til kl.20 í kvöld
vegsráðherra, að hann aflétti
banni við veiðum smábáta á
þessu svæði, sem gildir frá 25.
til 31. október. Ráðherra ákvað
að aflétta banninu ekki.
Samkvæmt upplýsingum frá Emi
Pálssyni, framkvæmdastjóra
Landssambands smábátaeigenda,
varð aflinn í september aðeins 230
tonn í september nú. í sama mán-
uði 1986 varð hann 721 tonn, 698
árið 1985 og 858 1984. í gildandi
lögum um stjómun fískveiða segir:
„Fari mánaðarlegt aflamagn báta
undir 10 brúttólestum í einhveijum
lands^órðungi niður fyrir tvo þriðju
af meðalafla þess mánaðar síðustu
þijú árin vegna ógæfta er ráðherra
heimilt að aflétta næstu veiðistöðv-
un á eftir samkvæmt þessum
staflið." Tveir þriðju hlutar meðal-
talsafla í september síðustu þriggja
ára á Norðurlandi er 506 tonn, eða
meira en helmingi meira en nú
veiddist.
Gæftir og afli hafa verið talsvert
mismunandi eftir landshlutum í
september. Á Vesturlandi varð afli
smábáta þá 326 tonn, en tveir þriðju
meðaltals síðustu þriggja ára er 155
tonn. Á Vestfjörðum varð aflinn
476 tonn, en meðaltalið er 472. Á
Austurlandi varð aflinn 585 tonn,
en meðaltalið er 286. 40 tonn öfluð-
ust á Suðurlandi, en meðaltalið er
34. Á Reykjanesi varð aflinn 248
tonn, en meðaitalið er 236. Smábát-
um hefur fjölgað um nálægt 200 á
þessu ári, en afli var samt nánast
sá sami í haust, 31.000 tonn.
4