Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 18

Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 -i Hér verður sagt frá tónleikum Molanna í Hart rokk kaffi á fimmtudaginn í síðustu viku, en þá sýndu þeir og sönnuðu að þar fer besta rokksveit landsins og þótt víðar væri leitað. Einnig verð- ur sagt frá tónleikum sem hafn- firskar sveitir héldu í Bæjarbíói. Hart rokk kaffi er kannski ekki besti hljómleikastaður á landinu, en þar sem þeim fækkar nú óðum var ánægjulegt að fá einn stað til viðbótar. Ekki stóð sú dýrð þó lengi, því fregnir herma að Sykur- molarnir hafi leitað eftir því að fá þar inni með tónleikana í kvöld en ekki fengið. Framan af var hljómburður ekki upp á það besta en eftir þriðja lagið small allt saman og ekki verð- ur kvartað yfir honum. Molarnir keyrðu á gömlu efni og nýju í bland og sýndu á sér allar sínar bestu hliðar. Þeir náðu og upp feikna stemmningu meðal þeirra nær þrjúhundruð manns sem tróðu sér inn á staðinn, enda engin venjuleg tónleikasveit á ferð. Mesta hrifn- ingu vakti Ammæli sem vonlegt var, en menn könnuðust greinilega ekki síður við önnur lög eins og meistaraverkið Tekið í takt og trega og Heitt kjöt sem út var gefið á tólftommunni Cold Sweat. I lok tónleikanna var sveitin klöpp- uð tvisvar upp og gerð var heiðar- leg tilraun til að kalla hana upp í þriðja sinn. Hápunktur uppklapps- Ammæli Morgunblaðið/BAR Sykurmolarnir eru að verða sú hljómsveit íslensk sem lengst hefur náð ytra og í kvöld heldur sveitin tónleika fyrir útsendara nokkurra af stærstu h I jóm plötufy ri rtækj u m heims í Casablanca. Herma fregnir að þar verði samankomnir helstu hákarlar breska hljómplötuiðnaðarins til að reyna að festa sér sveitina. Reyndar er umstangið í kring um Molana orðið slíkt að erfitt er að átta sig á því. TEKIÐ ITAKT OG TREGA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.