Morgunblaðið - 30.10.1987, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
-i
Hér verður sagt frá tónleikum
Molanna í Hart rokk kaffi á
fimmtudaginn í síðustu viku, en
þá sýndu þeir og sönnuðu að þar
fer besta rokksveit landsins og
þótt víðar væri leitað. Einnig verð-
ur sagt frá tónleikum sem hafn-
firskar sveitir héldu í Bæjarbíói.
Hart rokk kaffi er kannski ekki
besti hljómleikastaður á landinu,
en þar sem þeim fækkar nú óðum
var ánægjulegt að fá einn stað til
viðbótar. Ekki stóð sú dýrð þó
lengi, því fregnir herma að Sykur-
molarnir hafi leitað eftir því að fá
þar inni með tónleikana í kvöld en
ekki fengið.
Framan af var hljómburður ekki
upp á það besta en eftir þriðja
lagið small allt saman og ekki verð-
ur kvartað yfir honum. Molarnir
keyrðu á gömlu efni og nýju í bland
og sýndu á sér allar sínar bestu
hliðar. Þeir náðu og upp feikna
stemmningu meðal þeirra nær
þrjúhundruð manns sem tróðu sér
inn á staðinn, enda engin venjuleg
tónleikasveit á ferð. Mesta hrifn-
ingu vakti Ammæli sem vonlegt
var, en menn könnuðust greinilega
ekki síður við önnur lög eins og
meistaraverkið Tekið í takt og
trega og Heitt kjöt sem út var
gefið á tólftommunni Cold Sweat.
I lok tónleikanna var sveitin klöpp-
uð tvisvar upp og gerð var heiðar-
leg tilraun til að kalla hana upp í
þriðja sinn. Hápunktur uppklapps-
Ammæli
Morgunblaðið/BAR
Sykurmolarnir eru að
verða sú hljómsveit
íslensk sem lengst hefur
náð ytra og í kvöld
heldur sveitin tónleika
fyrir útsendara
nokkurra af stærstu
h I jóm plötufy ri rtækj u m
heims í Casablanca.
Herma fregnir að þar
verði samankomnir
helstu hákarlar breska
hljómplötuiðnaðarins til
að reyna að festa sér
sveitina. Reyndar er
umstangið í kring um
Molana orðið slíkt að
erfitt er að átta sig á því.
TEKIÐ
ITAKT OG TREGA