Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
Noregnr:
Hörpudisks-
birgðirnar
safnast fyrir
Tromsö, frá Baldrí Sveinbjörnssyni,
fréttarít&ra Morgnnblaðsinö.
UM 1000 tonn af hörpudiski, til-
búnum tU útflutnings, liggja nú
í geymslum víða um Noreg og
er þess beðið, að verðið á Banda-
rikjamarkaði hækki eftir mikla
lækkun á árinu.
Um þesar mundir er verðið svo
lágt, að framleiðendur stórtöpuðu á
að flytja skelfiskinn út en birgða-
söfnuninni verður haldið áfram enn
um hríð í þeirri von, að verðið hækki
aftur. Það, sem af er árinu, hafa
Norðmenn flutt út 8-900 tonn af
hörpudiski. Um 300 tonn hafa farið
til Frakklands en hitt til Banda-
ríkjanna.
Framleiðendur segjast þurfa um
290 ísl. kr. fyrir kflóið til að tapa
ekki á vinnslunni en í Bandaríkjun-
um fást nú aðeins fyrir það 200-230
kr. í fyrrahaust var verðið 406 ísl.
kr. fyrir kg.
Menn eru ekki á einu máli um
hvað olli verðfallinu en það átti þó
mikinn þátt í því, að Bandaríkja-
menn og Kanadamenn hófu veiðar
á eigin skelfiskmiðum á sl. sumri.
Meira framboð er því á ferskum
hörpudiski og bitnar það á innflutn-
ingi Norðmanna og Islendinga.
Fórnarlömbum geisla-
virkni fjölgar í Brasilíu
Kim Dae-jung.
Suður-Kórea:
Reuter
Rio de Janeiro, Reuter.
FJÓRIR menn hafa nú látist af
völdum geislavirkni, sem slapp út
í andrúmsloftið i borginni Goiania
í siðasta mánuði, að þvi er tals-
maður sjúkrahúss brasilíska
sjóhersins sagði á miðvikudag.
Sagði Talsmaður sjúkrahússins að
sjö fórnarlömb geislavirkninnar
væru í lífshættu.
244 urðu fyrir geislavirkni í Goian-
ia eftir að brotajámssali skrúfaði í
sundur tæki til geislameðferðar, sem
skilið hafði verið eftir fyrir utan yfir-
gefna læknamiðstöð, með þeim
afleiðingum að efnið cesíum 137
slapp út.
Talsmaður umhverfisvemdar-
flokks Græningja sagði að flokkurinn
hygðist grípa til friðsamlegra að-
gerða fyrir utan höfuðstöðvar
Kjamorkustofnunar Brasilíu í Rio de
Janeiro til að mótmæla fyrirhuguðum
kjamorkuverkefnum í landinu.
Mörg hundruð hermenn hjálpa nú
til í Goiania við að minnka geisla-
virknina. Tré hafa verið höggvin
niður og reynt að hreinsa svæði, sem
urðu fyrir mikilli mengun af völdum
geislavirkninnar. Sveitir lq'amorkus-
érfræðinga leggja nótt við dag til
að fjarlægja kjamorkuúrgang.
Þrátt fyrir yfírlýsingu Kjamorku-
stofnunarinnar um að íbúum í
Goiania stafi ekki hætta af geisla-
virkni er fyöldi fjölskyldna i þá mund
að flytja brott af geislavirka svæð-
inu. „Það er aldrei að vita. Þótt þeir
hafi sagt okkur að hættan væri eng-
in emm við ekki undir það búin að
dvelja hér lengur," sagði húsmóðir
ein í sjónvarpsviðtali.
Stj ómarandstöðuflokk-
urínn formlega klofínn
Seoul, Reuter.
KIM Dae-jung klauf sig formlega
útúr flokki sínum, Lýðræðislega
samciningarflokknum (RDP), í
gær. Hefur hann i hyggju að
Svíþjóð:
Gista Kreml þrátt
fyrir kafbátsferðir
Stokkhóimi, frá Erík Liden, fréttarítara Morgunblaðsins.
SVEN-Olof Olson, yfirmaður
sænska flughersins, er nú í op-
inberri heimsókn í Sovétríkjun-
um en í sex ár hafa yfirmenn
hersins neitað öllum heimboð-
um þangað vegna yfirgangs
sovéskra kafbáta í sænskri
iandhelgi. Ekkert lát er á kaf-
bátsferðunum en þrátt fyrir það
finnst herforingjunum í samr-
áði við stjómvöld, að nú sé
kominn tími til að njóta gistivin-
áttu Sovétmanna.
Síðan sovéskur kafbátur, U
137, strandaði í sænska skerja-
garðinum fyrir réttum sex árum
hafa yfírmenn í sænska hemum
endursent öll heimboð frá Sovét-
mönnum. Lennart Ljung, fyrrum
yfirmaður heraflans, gerði það
margsinnis og svo er einnig um
eftirmann hans, Bengt Gustafs-
son. Nú er hins vegar breyting á
orðin og augljóst, að ríkisstjómin
hefur haft hönd í bagga með því
enda er tekið fram, að Olson fari
á hennar vegum til Kremlar.
Ferðir ókunnra kafbáta innan
sænskrar landhelgi halda áfram
eins og ekkert hafí í skorist og
þótt ekki séu beinar sannanir fyr-
ir þjóðeminu, segja sænskir stjóm-
málamenn og herforingjar bemm
orðum, að þeir séu sovéskir. Síðan
jafnaðarmenn komust aftur til
valda árið 1985 hefur það verið
stefnan að vingast við Sovétmenn,
m.a. í von um, að þeir fæm að
virða fullveldi sænsku þjóðarinnar,
en ekki er að sjá, að hún hafí
neinn árangur borið.
stofna nýjan stjórnmálaflokk sér
til stuðnings í komandi kosninga-
baráttu í fyrstu forsetakosning-
um sem haldnar eru i Suður-
Kóreu í 16 ár.
Tuttugu og fímm fulltrúar af 70
sem studdu flokkinn á þingi hafa
sagt skilið við hann til að fylgja
Kim Dae-jung. Gert er ráð fyrir að
Kim Young-sam gefí formlega kost
á sér til forseta fyrir RDP innan
tíðar. Kim Dae-jung og Kim
Young-sam, stofnuðu Lýðræðislega
sameiningarflokkinn (RDP), í maí-
mánuði síðastliðinn. Klufu þeir sig
í sameiningu út úr þáverandi
stærsta stjómarandstöðuflokki
landsins.
Nú munu fyrrum samheijar etja
kappi í forsetakosningum sem gert
er ráð fyrir að fari fram í desember
á þessu ári. Hafa verið uppi efa-
semdir um að annar þessara muni
ná kjöri nú eftir að flokkurinn hef-
ur verið klofinn. Kim Dae-jung er
þrátt fyrir það mjög sigurviss.
Noregur:
Austur-þýskur landhelg-
isbrjótur sýknaður
Ósló. Frá Jan Erík Laure, fréttaritara Morgunblaðains.
NORSKA strandgæslan ætlar að
fara fram á að héraðsdómur yfir
austur-þýskum togara, sem tek-
inn var að veiðum í landhelgi,
verði endurskoðaður.
Austur-þýski togarinn var tekinn
að veiðum innan norskrar landhelgi
og um borð var mikill afli. Dómstóll-
inn komst þegar að þeirri niður-
stöðu að togarinn hefði verið á
reynsluveiðum og hafí haldið allar
reglur um leyfðar veiðar á þeim
stað þar sem hann var tekinn.
Telja strandgæslumenn að togar-
inn hafí brotið gildandi reglur. Verði
dómnum ekki hnekkt telja þeir að
reglum um veiðar innan norskrar
landhelgi verði að breyta nú þegar,
að sögn talsmanns þeirra.
Kappræður forsetaframbjóðenda repúblikana:
Bush reynir að hrekja full-
yrðingar um gunguskap
Skeggrætt um leiðtogahæf ileika, skatta og fjárlagahalla
Houston í Texaa, Reuter.
ÞEIR sex repúblikanar, sem gera
sér vonir um að verða tilnefndir
til forsetaframboðs flokksins á
næsta ári, komu saman i Houston
í Texas á miðvikudagskvöld og
áttu saman kappræður. Þar var
George Bush, varaforseti, gagn-
rýndur fyrir að hafa ekki neina
fastmótaða stefnu, en hann
reyndi að bera á móti þvi og
ásökunum um að hann væri í
raun aðeins meðreiðarsveinn
Reagans og þvi ekki vænlegur
leiðtogi þjóðarinnar.
Fyrrum ríkisstjóri Delawere-
fylkis, Pierre du Pont, lýsti Bush
sem undirmanni að atvinnu, sem
fylgdi yfírmanninum eftir hveiju
sem á gengi. „Yrði Bush sem for-
seti fær um að vera leiðtogi
Bandaríkjanna?" spurði du Pont.
„Til þessa höfum við ekkert séð,
sem bendir til þess að hann hafí
hugsjónir, grundvallarreglur eða
stefnu." Þessar ásakanir eru í sam-
ræmi við það hald manna að Bush
sé ekki nógu ákveðinn og má minna
á að fyrir skömmu bar forsíðufregn
Newsweek fyrirsögnina „Barist við
heybrókarstimpilinn".
Reuter
George Bush, varaforseti Bandarikjanna, skiptist hér á skoðunum
við Pierre du Pont, en Alexander Haig hlýðir á sposkur á svip.
í kappræðunum, sem var sjón-
varpað rifjaði Alexander Haig,
fyrrverandi utanríkisráðherra, upp
þegar ríkisstjómin ræddi gamalt
afvopnunartilboð Sovétríkjanna,
sem óhagstætt var Bandaríkjunum:
„Ég barðist gegn því eins og djöfull-
inn sjálfur, en við heyrðum aldrei
múkk frá þér [Bush] — ekki orð.“
Bush svaraði þessari gagnrýni
fullum hálsi og þegar hann var sak-
aður um að fylgja forseta sínum
eftir í blindni svaraði hann: „Þegar
menn em utan við ríkisstjómina er
afskaplega þægilegt að gagnrýna
og karpa við forsetann. Ég hef hins
vegar komst hins vegar að öðm
innan hennar og það þarf að gera
fleira en gott þykir.“ Hann neitaði
að skýra frá því hvaða mistök hann
teldi forsetann hafa gert. „Ég gæti
það, en vil það ekki.“ Haig benti
honum þá á að vinur væri sá er til
vamms fyndi og slíkt væri hlutverk
varaforsetans.
Hvað fjárlagahallann varðaði
vom frambjóðendumir sammála um
að þar skipti flokkspólitík ekki
máli, fínna yrði lausn vandans —
það væri skylda þeirra sem stjóm-
málamanna, ekki sem demókrata
eða repúblikana. Bush og Robert
Dole gagnrýndu þó hina fjóra fyrir
að vilja ekki fallast á skattahækk-
anir til þessa.
Umræðunum var stýrt af William
F. Buckley, rithöfundi og ritstjóri
tímaritsins National Review, og
Robert Strauss, fyrrverandi form-
anni Demókrataflokksins. Þeir
stýrðu einnig samskonar kappræð-
um demókrata fyrr á árinu.