Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 Noregnr: Hörpudisks- birgðirnar safnast fyrir Tromsö, frá Baldrí Sveinbjörnssyni, fréttarít&ra Morgnnblaðsinö. UM 1000 tonn af hörpudiski, til- búnum tU útflutnings, liggja nú í geymslum víða um Noreg og er þess beðið, að verðið á Banda- rikjamarkaði hækki eftir mikla lækkun á árinu. Um þesar mundir er verðið svo lágt, að framleiðendur stórtöpuðu á að flytja skelfiskinn út en birgða- söfnuninni verður haldið áfram enn um hríð í þeirri von, að verðið hækki aftur. Það, sem af er árinu, hafa Norðmenn flutt út 8-900 tonn af hörpudiski. Um 300 tonn hafa farið til Frakklands en hitt til Banda- ríkjanna. Framleiðendur segjast þurfa um 290 ísl. kr. fyrir kflóið til að tapa ekki á vinnslunni en í Bandaríkjun- um fást nú aðeins fyrir það 200-230 kr. í fyrrahaust var verðið 406 ísl. kr. fyrir kg. Menn eru ekki á einu máli um hvað olli verðfallinu en það átti þó mikinn þátt í því, að Bandaríkja- menn og Kanadamenn hófu veiðar á eigin skelfiskmiðum á sl. sumri. Meira framboð er því á ferskum hörpudiski og bitnar það á innflutn- ingi Norðmanna og Islendinga. Fórnarlömbum geisla- virkni fjölgar í Brasilíu Kim Dae-jung. Suður-Kórea: Reuter Rio de Janeiro, Reuter. FJÓRIR menn hafa nú látist af völdum geislavirkni, sem slapp út í andrúmsloftið i borginni Goiania í siðasta mánuði, að þvi er tals- maður sjúkrahúss brasilíska sjóhersins sagði á miðvikudag. Sagði Talsmaður sjúkrahússins að sjö fórnarlömb geislavirkninnar væru í lífshættu. 244 urðu fyrir geislavirkni í Goian- ia eftir að brotajámssali skrúfaði í sundur tæki til geislameðferðar, sem skilið hafði verið eftir fyrir utan yfir- gefna læknamiðstöð, með þeim afleiðingum að efnið cesíum 137 slapp út. Talsmaður umhverfisvemdar- flokks Græningja sagði að flokkurinn hygðist grípa til friðsamlegra að- gerða fyrir utan höfuðstöðvar Kjamorkustofnunar Brasilíu í Rio de Janeiro til að mótmæla fyrirhuguðum kjamorkuverkefnum í landinu. Mörg hundruð hermenn hjálpa nú til í Goiania við að minnka geisla- virknina. Tré hafa verið höggvin niður og reynt að hreinsa svæði, sem urðu fyrir mikilli mengun af völdum geislavirkninnar. Sveitir lq'amorkus- érfræðinga leggja nótt við dag til að fjarlægja kjamorkuúrgang. Þrátt fyrir yfírlýsingu Kjamorku- stofnunarinnar um að íbúum í Goiania stafi ekki hætta af geisla- virkni er fyöldi fjölskyldna i þá mund að flytja brott af geislavirka svæð- inu. „Það er aldrei að vita. Þótt þeir hafi sagt okkur að hættan væri eng- in emm við ekki undir það búin að dvelja hér lengur," sagði húsmóðir ein í sjónvarpsviðtali. Stj ómarandstöðuflokk- urínn formlega klofínn Seoul, Reuter. KIM Dae-jung klauf sig formlega útúr flokki sínum, Lýðræðislega samciningarflokknum (RDP), í gær. Hefur hann i hyggju að Svíþjóð: Gista Kreml þrátt fyrir kafbátsferðir Stokkhóimi, frá Erík Liden, fréttarítara Morgunblaðsins. SVEN-Olof Olson, yfirmaður sænska flughersins, er nú í op- inberri heimsókn í Sovétríkjun- um en í sex ár hafa yfirmenn hersins neitað öllum heimboð- um þangað vegna yfirgangs sovéskra kafbáta í sænskri iandhelgi. Ekkert lát er á kaf- bátsferðunum en þrátt fyrir það finnst herforingjunum í samr- áði við stjómvöld, að nú sé kominn tími til að njóta gistivin- áttu Sovétmanna. Síðan sovéskur kafbátur, U 137, strandaði í sænska skerja- garðinum fyrir réttum sex árum hafa yfírmenn í sænska hemum endursent öll heimboð frá Sovét- mönnum. Lennart Ljung, fyrrum yfirmaður heraflans, gerði það margsinnis og svo er einnig um eftirmann hans, Bengt Gustafs- son. Nú er hins vegar breyting á orðin og augljóst, að ríkisstjómin hefur haft hönd í bagga með því enda er tekið fram, að Olson fari á hennar vegum til Kremlar. Ferðir ókunnra kafbáta innan sænskrar landhelgi halda áfram eins og ekkert hafí í skorist og þótt ekki séu beinar sannanir fyr- ir þjóðeminu, segja sænskir stjóm- málamenn og herforingjar bemm orðum, að þeir séu sovéskir. Síðan jafnaðarmenn komust aftur til valda árið 1985 hefur það verið stefnan að vingast við Sovétmenn, m.a. í von um, að þeir fæm að virða fullveldi sænsku þjóðarinnar, en ekki er að sjá, að hún hafí neinn árangur borið. stofna nýjan stjórnmálaflokk sér til stuðnings í komandi kosninga- baráttu í fyrstu forsetakosning- um sem haldnar eru i Suður- Kóreu í 16 ár. Tuttugu og fímm fulltrúar af 70 sem studdu flokkinn á þingi hafa sagt skilið við hann til að fylgja Kim Dae-jung. Gert er ráð fyrir að Kim Young-sam gefí formlega kost á sér til forseta fyrir RDP innan tíðar. Kim Dae-jung og Kim Young-sam, stofnuðu Lýðræðislega sameiningarflokkinn (RDP), í maí- mánuði síðastliðinn. Klufu þeir sig í sameiningu út úr þáverandi stærsta stjómarandstöðuflokki landsins. Nú munu fyrrum samheijar etja kappi í forsetakosningum sem gert er ráð fyrir að fari fram í desember á þessu ári. Hafa verið uppi efa- semdir um að annar þessara muni ná kjöri nú eftir að flokkurinn hef- ur verið klofinn. Kim Dae-jung er þrátt fyrir það mjög sigurviss. Noregur: Austur-þýskur landhelg- isbrjótur sýknaður Ósló. Frá Jan Erík Laure, fréttaritara Morgunblaðains. NORSKA strandgæslan ætlar að fara fram á að héraðsdómur yfir austur-þýskum togara, sem tek- inn var að veiðum í landhelgi, verði endurskoðaður. Austur-þýski togarinn var tekinn að veiðum innan norskrar landhelgi og um borð var mikill afli. Dómstóll- inn komst þegar að þeirri niður- stöðu að togarinn hefði verið á reynsluveiðum og hafí haldið allar reglur um leyfðar veiðar á þeim stað þar sem hann var tekinn. Telja strandgæslumenn að togar- inn hafí brotið gildandi reglur. Verði dómnum ekki hnekkt telja þeir að reglum um veiðar innan norskrar landhelgi verði að breyta nú þegar, að sögn talsmanns þeirra. Kappræður forsetaframbjóðenda repúblikana: Bush reynir að hrekja full- yrðingar um gunguskap Skeggrætt um leiðtogahæf ileika, skatta og fjárlagahalla Houston í Texaa, Reuter. ÞEIR sex repúblikanar, sem gera sér vonir um að verða tilnefndir til forsetaframboðs flokksins á næsta ári, komu saman i Houston í Texas á miðvikudagskvöld og áttu saman kappræður. Þar var George Bush, varaforseti, gagn- rýndur fyrir að hafa ekki neina fastmótaða stefnu, en hann reyndi að bera á móti þvi og ásökunum um að hann væri í raun aðeins meðreiðarsveinn Reagans og þvi ekki vænlegur leiðtogi þjóðarinnar. Fyrrum ríkisstjóri Delawere- fylkis, Pierre du Pont, lýsti Bush sem undirmanni að atvinnu, sem fylgdi yfírmanninum eftir hveiju sem á gengi. „Yrði Bush sem for- seti fær um að vera leiðtogi Bandaríkjanna?" spurði du Pont. „Til þessa höfum við ekkert séð, sem bendir til þess að hann hafí hugsjónir, grundvallarreglur eða stefnu." Þessar ásakanir eru í sam- ræmi við það hald manna að Bush sé ekki nógu ákveðinn og má minna á að fyrir skömmu bar forsíðufregn Newsweek fyrirsögnina „Barist við heybrókarstimpilinn". Reuter George Bush, varaforseti Bandarikjanna, skiptist hér á skoðunum við Pierre du Pont, en Alexander Haig hlýðir á sposkur á svip. í kappræðunum, sem var sjón- varpað rifjaði Alexander Haig, fyrrverandi utanríkisráðherra, upp þegar ríkisstjómin ræddi gamalt afvopnunartilboð Sovétríkjanna, sem óhagstætt var Bandaríkjunum: „Ég barðist gegn því eins og djöfull- inn sjálfur, en við heyrðum aldrei múkk frá þér [Bush] — ekki orð.“ Bush svaraði þessari gagnrýni fullum hálsi og þegar hann var sak- aður um að fylgja forseta sínum eftir í blindni svaraði hann: „Þegar menn em utan við ríkisstjómina er afskaplega þægilegt að gagnrýna og karpa við forsetann. Ég hef hins vegar komst hins vegar að öðm innan hennar og það þarf að gera fleira en gott þykir.“ Hann neitaði að skýra frá því hvaða mistök hann teldi forsetann hafa gert. „Ég gæti það, en vil það ekki.“ Haig benti honum þá á að vinur væri sá er til vamms fyndi og slíkt væri hlutverk varaforsetans. Hvað fjárlagahallann varðaði vom frambjóðendumir sammála um að þar skipti flokkspólitík ekki máli, fínna yrði lausn vandans — það væri skylda þeirra sem stjóm- málamanna, ekki sem demókrata eða repúblikana. Bush og Robert Dole gagnrýndu þó hina fjóra fyrir að vilja ekki fallast á skattahækk- anir til þessa. Umræðunum var stýrt af William F. Buckley, rithöfundi og ritstjóri tímaritsins National Review, og Robert Strauss, fyrrverandi form- anni Demókrataflokksins. Þeir stýrðu einnig samskonar kappræð- um demókrata fyrr á árinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.