Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
Reuter
Starfsmenn verðbréfafyrirtœkisins Quíck og Reilly höfðu í nógu að snúast í gær við að kaupa og selja
hlutabréf í kauphöllinni í Wall Street.
Dollarinn heldur áfram að falla:
Louvre-samkomu-
lagið úr sögunni?
Hlutabréf í Wall Street hækkuðu verulega
New York, London, Reuter.
GENGI dollarans féll enn í gær,
fjórða daginn I röð, og eru
nokkrar efasemdir um, að ríkis-
stjórnir helstu iðnríkjanna ætli
að stemma stigu við frekara
falli. Hlutabréf í kauphöllinni i
Wall Street hækkuðu allverulega
og þar virðist trú á, að það versta
sé afstaðið. Nokkur óvissa ein-
kenndi markaðina í Evrópu en í
Hong Kong og Tókýó hélt verð-
fallið áfram.
Seðlabankar í Evrópu og Banda-
ríkjunum reyndu að stemma á að
ósi með dollarakaupum og ýmsir
talsmenn sjö-ríkja-hópsins báru sig
karlmannlega en allt kom fyrir ekki,
dollarinn hélt áfram að falla. Hefur
hann ekki verið lægri gagnvart
vestur-þýsku marki í sjö ár, gagn-
vart enska pundinu í fimm og
japanska jeninu í 40 ár.
Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdanefndar Evrópubandalags-
ins, sagði í fyrradag, að Bandaríkja-
stjóm vildi sjá dollarann fara í 1,60
v-þýsk mörk og era þessi ummæli
talin hafa ýtt undir meira fall.
Bandaríska fjármálaráðuneytið
vísaði þeim raunar á bug og einnig
ýmsir evrópskir frammámenn en
gjaldeyriskaupmenn granar, að
reyna að veija ákveðin mörk, heldur
vildu þeir róa markaðina.
Hlutabréf í kauphöllinni í Wall
Street hækkuðu veralega í gær eða
um 90 stig. Stóð þá Dow Jones-
verðbréfavísitalan í 1.939 stigum.
Hafa menn augljóslega trú á, að
mesta óveðrinu sé að linna og mark-
aðurinn að jafna sig. í London og
París hækkuðu hlutabréf örlítið og
féllu aðeins í Vestur-Þýskalandi en
í Tókýó og Hong Kong féllu þau
nokkuð.
GENGI DOLLARANS
New York, Reuter.
TAFLAN hér á eftir sýnir fall Bandaríkjadollara frá því að gengi
hans var sem hæst í febrúar 1985 og skömmu áður en fimm
helstu iðnríki heims gerðu svonefnt Plaza-samkomulag i septem-
ber 1985 til 28. október á þessu ári. í töflunni stendur hvað
dollarinn kostaði í viðkomandi gjaldmiðlum nema sagt er hvað
sterlingspundið kostaði marga doilara.
25. feb. 20. sept. 28. okt. Gengisbr.
1985 1985 1987 í%frá sept. 1985
Vestur-þýsk mörk 3,475 2,84 1,74 -39%
Japönskjen 263 239 138 -42%
Sterlingspund 1,0345 (doll.) 1,37 1,72 +26%
Svissneskir frankar 2,935 2,336 1,43 -39%
Franskir frankar 10,7 8,66 5,88 -32%
iðnríkin sjö, Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Vestur-Þýskaland og
Kanada, séu búin að samþykkja,
að dollarinn fari niður fyrir viðmið-
unarmörk Louvre-samkomulagsins,
1,80 v-þýsk mörk. Segja þeir, að
afskipti seðlabankanna beinist að
því að-hafa hönd í bagga með falli
dollarans en ekki að stöðva það.
Claus Köhler, vestur-þýski seðla-
bankastjórinn, þótti staðfesta
þennan gran þegar hann sagði, að
seðlabankastjóramir væra ekki að
Spánn um ályktim Vestur-Evrópusambandsins:
Krafa um þátttöku
1 kjamorkuvömum
hamlar inngöngu
Madríd, Reuter.
Utanrikisráðuneyti Spánar, sem ekki leyfir kjarnorkuvopn inn-
an landamæra sinna, skýrði frá þvi i gær að Spánn myndi ekki
ganga i Vestur-Evrópusambandið (WEU) ef inngangan fæli í sér
að Spánn þyrfti að taka þátt í kjarnorkuvörnum Evrópu.
Fyrr í vikunni samþykkti fundur
utanríkis- og vamarmálaráðherra
aðildarlanda sambandsins, sem er
vamarbandalag sjö Evrópuþjóða
innan Atlantshafsbandalagsins,
ályktun þess efnis að aðildarlöndin
yrðu að taka þátt í bæði kjamorku-
og hefðbundnum vömum álfunnar.
Spánn hefur áhuga á því að ganga
í sambandið, en nú hefur þetta skil-
yrði reynst Þrándur í Götu.
Spænskur embættismaður sagði
að ef ályktun fundarins yrði stað-
fest gætu Spánverjar ekki gengið
til samstarfs við ríkin sjö um fram-
kvæmd hennar. Fram að þessu
hefur andstaða nokkurra landa inn-
an sambandsins hamlað inngöngu
Spánar. Samkvæmt reglum sam-
bandsins sækja ríki ekki um
inngöngu heldur er þeim boðin þátt-
taka.
Öryggis- og vamarmál Spánar
hafa verið nokkuð til umræðu að
undanfömu, ekki síst í ljósi kröfu
Spánveija um að 72 F-16 orrastu-
þotur Bandaríkjahers í bandarískri
herstöð skammt frá Madrid víki úr
landi, en þær era þar samkvæmt
34 ára gömlum vamarsamningi.
Spænsk blöð greindu m.a. frá því
að á fundi WEU hefði Wim van
Eekelen, utanríkisráðherra Hol-
lands, látið í ljós von um það að
flugvélamar yrðu áfram á sínum
stað.
Spánveijar samþykktu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu á síðasta ári að
landið skyldi áfram vera í Atlants-
hafsbandalaginu, en með skilyrðum
þó. Þau helstu vora að landið skyldi
vera kjamorkuvopnalaust og að
Bandaríkin myndu fækka veralega
í herliði sínu, sem er í fjóram stöðv-
um í landinu.
Reuter
Líbanskur hermaður stendur vörð við minjagripaverslunina þar sem
skotið var á frönsku herlögreglumenn á meðan lögreglan kannar
vegsummerki.
Líbanon:
Tveir fransk-
ir hermenn voru
skotnir til bana
Beirút, Reuter.
SKOTIÐ var á þijá franska her- létust samstundis en einn þeirra
lögreglumenn í austurhluta liggur lifhættulega særður á
Beirút í gær. Tveir mannanna sjúkrahúsi. Ekki er vitað hveijir
__________________ árásarmennirnir voru.
Kínverski kommúnistaflokkurinn:
Deng líklegur til að
sleppa stjómvelinum
Treystir um leið tökin á hernum
Peking, Reuter.
FLEST bendir tíl, að Deng Xia-
oping, helsti ráðamaður i Kína,
sé ákveðinn i að draga sig i hlé
og láta yngri mönnum eftir
áhrifastöðumar í kommúnista-
flokknum. Nafn hans var ekki á
lista yfir frambjóðendur í æðstu
embætti en honum var dreift á
þingi kínverska kommúnista-
flokksins í gær.
Á lista yfir frambjóðendur til
fastanefndar stjómmálaráðsins,
einnar valdamestu stofnunarinnar,
var ekki minnst á Deng og því talið
víst, að Zhao Ziyang, arftaki Dengs,
muni verða í forsvari fyrir nefnd-
inni ásamt öðram umbótasinnuðum
mönnum. Ðeng hefur marglýst yfír,
að hann vilji draga sig í hlé en
þótt hann láti verða af þvi er talið
vlst, að hann hafi áfram mikil völd.
Vestrænir stjómarerindrekar og
aðrir, sem fylgst hafa með þinginu,
segjast vissir um, að Deng ætli
ekki að láta af hendi formannsstöðu
í miðstjóm hersins og muni þar að
auki skipa Zhao Ziyang sem annan
valdamesta mann hennar. Vaki það
fyrir honum að treysta umbótasinn-
aða stuðningsmenn sína í sessi
innan hersins enda sé hann minnug-
ur þeirra orða Maós, að valdið
spretti fram úr byssuhlaupinu.
Kínverski herinn, sem er skipað-
ur 3,2 milljónum manna, hefur
íöngum haft mikil áhrif í stjóm-
málunum og átt þátt í að hefja
menn í hæðir eða steypa af stóli.
Er það sumra sögn, að afstaða hers-
ins hafi valdið mestu um, að Hu
Yaobang, fyrirrennari Zhaos, féll í
ónáð í janúar sl.
Mennimir þrír vora allir í örygg-
issveitum sem sendar vora til Beirút
1984 til að gæta sendiráðs Frakka
eftir að 58 sendiráðsstarfsmenn
vora drepnir í Beirút . Vora menn-
imir staddir utan við minjagripa-
verslun í kristnu hverfi í austurhluta
borgarinnar þegar tveir menn
stukku úr bfl og hófu skothríð.
Árásarmennimir hlupu síðan aftur
inn í bflinn og hurfu á brott. Þetta
er fyrsta skotárásin í Beirút siðan
í september í fyrra.
Hverfinu, þar sem árásin var
gerð, var samstundis lokað af
franska hemum og kristnum her-
sveitum Líbana. Leituðu lögregla
og her árásarmannanna og visbend-
inga um hveijir þama hefðu verið
að verki.
Forsætisráðherra Líbanon, Selim
Hoss, fordæmdi skotárásina í
símtali við Paul Blanc, franska
sendiherrann í Líbanon, að sögn
ríkisútvarpsins í Beirút. Franskir
sendimenn héldu skyndifund vegna
málsins í gær.