Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
27
irfis-
neyti
Birgir ísleifur Gunnarsson
gert. Við viljum að íslendingar og
útlendir ferðamenn geti ferðast um
ísland allt og kynnst tignarlegri
náttúru landsins, sögustöðum og
náttúruminjum. Eg held að íslend-
ingum þyki það óþægileg tilhugsun
að takmarka þurfí umferð um ein-
hver svæði sem í hugum okkar eru
prýði þessa lands og stolt þjóðarinn-
ar. Samt kemur að því að við
verðum að horfast í augu við atriði
af þessu tagi og þá skiptir höfuð-
máli að um framkvæmdina náist
víðtæk samstaða og á henni sé al-
mennur skilningur.
í sumar átti ég leið í Dimmuborg-
ir í Mývatnssveit og var sannarlega
hreykinn þegar ég sýndi mennta-
málaráðherra Svía, sem þá var hér
á ferð, þennan fagra stað. Mér var
sagt að umferð ferðamanna, ekki
síst útlendinga, um Dimmuborgir
væri orðin svo gífurlega mikil að
ástæða væri til að óttast um framtíð
staðarins. Álitamál væri hvort hann
þyldi álagið til lengdar. Jafnframt
vantaði fjármagn til nauðsynlegra
viðhalds- og vemdunaraðgerða, t.d.
að leggja og afmarka göngustíga.
Það er óbærileg tilhugsun að
Dimmuborgir verði fyrir hnjaski eða
alvarlegum skemmdum vegna að-
gæsluleysis okkar. Á þeim stað og
annars staðar þar sem svipað er
ástatt, verður að grípa í taumana
með einhveijum hætti. Þegar ég
var þama staddur var þama gífur-
legur fjöldi fólks, aðallega útlend-
ingar. Einn hinna erlendu gesta vék
sér að mér og sagði: Ég sé að þessi
staður er í hættu. — En hvers vegna
í ósköpunum gerið þið ekki það sem
tíðkast á flestum slfkum stöðum
erlendis að taka lítið aðgöngugjaid,
sem nota mætti til að viðhalda
staðnum og vemda hann. Ég hef
hugleitt þessi orð hins erlenda gests
og rifjað upp af eigin reynslu að
það heyrir til undantekninga að
ferðamenn geti ferðast um helstu
náttúruundur að vild án þess að
greiða eitthvert gjald. Þess vegna
varpa ég þessari hugmynd fram hér
á Náttúruvemdarþingi, ykkur til
umhugsunar.
Atak í landgræðslu
Á hitt er einnig að líta að það
er ekki aðeins ástæða til að hafa
áhyggjur af umgengni um einstaka,
fagra staði eins og Dimmuborgir.
í þessu efni verðum við að hafa
ísland allt í augsýn. Náttúm- og
umhverfísvemd beinist ekki aðeins
að afmörkuðum svæðum, heldur
tekur til landsins alls og sjávarins
sem við ráðum yfir. Gróðureyðingin
mikla, sem stafar m.a. af ágangi
búfjár, er til dæmis mikið áhyggju-
efni. I landgræðslumálunum þurf-
um við að heija nýja sókn. Eins og
ég minntist á í upphafí vill ríkis-
stjómin að þar takist samstarf milli
ríkis, sveitarfélaga og ftjálsra sam-
taka. Við munum taka frumkvæðið
og emm að íhuga með hvaða hætti
skynsamlegast og farsælast sé að
standa við þessu mál. Áhugamenn
hafa í bréfum til mín og samtölum
við mig reifað ýmsar forvitnilegar
og skemmtilegar hugmyndir, meðal
annars þá að bjóða félögum, fyrir-
tækjum og einstaklingum skipulega
landspildur til uppgræðslu. Ein-
staka dæmi em þegar til um slíkt
en spumingin er hvcrt ekki sé hægt
að skapa vakningu meðal þjóðarinn-
ar um þetta þarfa mál. í því
sambandi kemur samstarf við skóla
og fjölmiðla mjög til álita. Þetta
hlýtur að vera eitt af veigamestu
verkefnum náttúruvemdarmanna í
náinni framtíð.
Ágætu þingfulltrúar. í lögum um
Náttúmvemdarráð er gert ráð fyrír
því að menntamálaráðherra skipi
formann og varaformann ráðsins
til þriggja ára í senn. í samræmi
við það hef ég skipað Eyþór Einars-
son, forstöðumann Náttúmfræði-
stofnunar íslands, formann
Náttúmvemdarráðs, og Elínu
Pálmadóttur, blaðamann, vara-
formann, fram að næsta Náttúm-
vemdarþingi árið 1990. Ég óska
þeim velfamaðar í starfí og sömu
óskir á ég til handa öðmm stjómar-
mönnum ráðsins og starfsfólki þess.
Ég óska Náttúruvemdarþingi heilla
í störfum sínum.
Grein þesai eraamhfjóða erindi
sem menntamálaráðherra flutti á
sjötta Ná ttúru vemdarþingi 23.
októbersl.
Morgunblaðið/Gunnar
Halldór Jón Hjaltason yfirsmiður, Stef&n Veturliðason verkfræðing-
ur og Halldór Gunnlaugsson, eftirlitsmaður íslenskra aðalverktaka.
AF ERLENDUM VETTVANGI
Borgarastyrj öldin á Sri Lanka:
Stjórnvöld á Indlandi
sæta auknum þrýstingi
INDVERSKUM friðargæslusveitum á Sri Ianka hefur enn ekki
tekist að afvopna skæruliða tamíla þrátt fyrir að þær njóti mik-
illa yfirburða bæði í vopnum og mannafla. Flestir áttu von á
skjótum sigri er indversku hersveitimar hófu fyrr í þessum
mánuði sókn gegn Jaffna-borg á norðurhluta eyjarinnar, sem
er höfuðvigi skæruliðahreyfingar tamíla er nefnist „Tígrarnir“
og barist hefur fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis undanfarin fjögur
ár. Raunin reyndist önnur og herma fréttir að indversku sveitira-
ar hafi ekki verið búnar undir skæruhernað „Tígrana". Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sætir nú miklum þrýstingi.
Stjóm Sri Lanka krefst þess að Indveijar standi við sinn hluta
friðarsáttmála sem ríkin tvö gerðu i júlímánuði og að sveitir
þeirra neyði skæruliða til að leggja niður vopn. Á Indlandi ger-
ast þær raddir nú háværari að Indveijar eigi í styijöld sem
muni reynast þeim kostnaðarsöm og tamílar sem búa á Indlandi
hafa sakað stióravöid um að bera ábyrgð á morðum á óbreyttum
borgurum.
*
Ibúar Jaffna-borgar hafa flúið
heimili sín og leitað skjóls í
opinberum byggingum, skólum,
hofum og musterum. Fregnir
herma að allt að 300.000 manns
þar af um 150.000 tamílar hafi
neyðst til að yfírgefa heimili sín
vegna stríðsástandsins. Skortur á
vatni, matvælum og lyfjum er
tekinn að segja til sín. Stærsta
sjúkrahús borgarinnar hefur verið
rafmagnslaust og sökum þess
hafa blóðbirgðir sem geymdar
voru í frystiklefum eyðilagst. Um
50.000 flóttamenn halda til við
hof eitt sem nefnist Nallur Hindu
og hafa nokkrir þeirra látist úr
blóðkreppusótt.
Liðsauki kallaður til
í síðustu viku neyddust Indveij-
ar til að kalla til liðsauka þar eð
þeim hafði lítt orðið ágengt í bar-
dögum við skæruliða. Um 20.000
indverskir hermenn eru nú á Sri
Lanka en höfuðvígi skæruliða eru
á norður- austurhluta eyjarinnar.
Barist hefur verið um hvert hús
í Jaffna-borg og hefur sóknin
gengið treglega einkum sökum
þess að skæruliðar hafa falið
sprengjur í húsum og grafíð jarð-
sprengjur í götur borgarinnar.
Indversku sveitimar hafa náð
meirihluta borgarinnar á sitt vald
en skæruliðar hafa víða hlaðið
götuvígi og leyniskyttur eiga ör-
uggt skjól í pálmatijám meðfram
götum borgarinnar. Sókn friðar-
gæslusveitanna hefur gengið
hægar en menn væntu. „Hvert
einasta hús hefur að geyma faldar
sprengjur og hver einasta gata
er jarðsprengjusvæði," sagði tals-
maður indverska hersins í
Colombo, höfuðborg Jaffna, nú
nýlega. Fréttamenn sem fengið
hafa Ieyfí til að kynna sér ástand-
ið segja greinilegt að indversku
hersveitimar hafí ekki verið búnar
undir skæmhemað „Tígrana".
Fullyrt er að bartáttuþrek ind-
versku hermannanna fari þver-
randi.
Skæruliðar hyggja á
hefndir
Þrálátur orðrómur er á kreiki
um að skæruliðum hafí tekist að
bijóta sér leið gegnum víglínu
andstæðingsins og hafi þeir í
hyggju að halda áfram hermdar-
verkum sínum úti á landsbyggð-
inni. „Ég tel að skæruliðamir
hafí flestir sloppið frá Jaffna og
hyggist halda baráttunni áfram
annars staðar," sagði herforingi
í stjómarher Sri Lanka í viðtali
við fréttamenn bandaríska viku-
ritsins Time. Indversku sveitimar
hafa hert eftirlit á vegum sem
liggja frá Jaffna en það hefur
hefur lítinn árangur borið.
Fréttir af mannfalli em á reiki
en fullyrt að fjöldi óbreyttra borg-
ara hafí fallið í umsátrinu um
Jaffna. Talsmenn indversku frið-
argæslusveitanna viðurkenna að
fjöldi manns hafí beðið bana en
vísa á bug fullyrðingum tamfla
um að hundmð óbreyttra borgara
tamíla.
hafí faliið. Flestir þeirra föllnu
hafa lent í stórskotaliðsárásum
Indveija á íbúðahverfi í Jaffna þar
sem skæmliðar hafa hreiðrað um
sig. Indveijar kveðast hafa misst
tæplega 150 menn en aðrar heim-
ildit hermá að rúmlega 200
indvesrkir hermenn hafí fallið.
Stjómvöld í Nýju Delhí segja rúm-
lega 650 skæmliða hafa fallið en
almennt er álitið að sú tala fái
ekki staðist.
Leiðtogi „Tígrana" er Velupillai
Praccord og er talið fullvíst að
skæmliðar leggi ekki niður vopn
fyrr en hann gefur skipun þar að
lútandi. Indveijar og stjómvöld á
Sri lanka gerðu með sér sáttmála
þann 29. júlí síðastliðinn um leið-
ir til að bina enda á styrjöldina á
eyjunni, sem kostað hefur um
6.000 manns lífíð. Tamflar, sem
em minihlutahópur hófu fyrir
fjóranm ámm vopnaða baráttu
fyrir stoftiun sjálfstæðs ríkis á
eyjunni. Praccord féllst á að leggja
niður vopn gegn þvf að tamflar
fengju takmarkaða sjálfsstjóm á
norðurT og austurhluta eyjarinn-
ar. Skæmliðar gengu á bak orða
sinna er þeir myrtu fjölda sing-
hala, sem em í meiriMuta á Sri
Lanka, til að hefna skæruliða
tamfla, sem framið höfðu sjálfs-
morð eftir að hafa verið hand-
teknir. í síðasta mánuði krafðist
Praccord þess að fá að útnefna
formann bráðabirgðarstjómar
sem á , samkvæmt friðarsam-
komulaginu, að fara með völd á
norður- og austurhluta eyjarinnar
þar til kosningar geta farið fram.
Þeirri kröfu var umsvifalaust
vísað á bug.
Ekki er vitað hvar Praccord er
niður kominn. Á miðvikudag bár-
ust óstaðfestar fréttir um að
honum og um 1.200 skæmliðum
hefði tekist að komast óséðir frá
Jaffna. í síðustu viku tilkynntu
stjómvöld á Indlandi að þau hefðu
heimildir fyrir því að leiðtogar
skæmliða stæðu einir og að sveit-
ir undir þeirra stjóm væra ekki
reiðubúnar til að fóma lífínu í til-
gangslausum bardögum. Með
þessu móti reyndu stjómvöld að
skapa efasemdir og ringulreið í
röðum skæraliða. Var þeim
skæmliðum sem afhentu vopn sín
og lýstu yfír stuðningi við ftnðar-
samkomulagið boðin uppgjöf
saka. Um síðustu helgi hafði enn
enginn skæmliði gefíð sig fram.
Gandhi í vanda
Átökin á Sri Lanka hafa síst
orðið til þess að styrkja stöðu
Rajivs GandM, forsætisráðherra
Indlands. Hann á við ærinn vanda
að glíma heima fyrir og fullvíst
er að andstæðingar hans hyggjast
færa sér í nyt afskipti stjómarinn-
ar af borgarastyijöldinni á Sri
Lanka. Gandhi hefur lýst yfír því
að Indveijar séu andvígir þvl að
tamflar stofni sjálfstætt ríki á Sri
Lanka. Á Indlandi búa einnig
tamflar og óttast stjómvöld að
þeir taki að setja fram sömu kröf-
ur og bræður þeirra á Sri Lanka.
Talsmenn tamfla á Indlandi hafa
fordæmt framgöngu indversku
friðargæslusveitanna á Sri Lanka
og sakað þær um að bera ábyrgð
á drápum á óbreyttum borgumm.
Hafa þeir hvatt stjómvöld til að
kalla sveitimar til baka og for-
dæmt þá ákvörðun Gandhis að
senda sveitir til Sri Lanka „til að
myrða tamíla" eins og segir i yfír-
lýsingu þeirra. Almenningur á
Indlandi óttast á hinn bóginn að
Indveijar hafí hellt sér út í stríð
sem sé bæði ómögulegt að sigra
og nánast óhugsandi að binda
enda á.
Heimildir: Time, Newsweek og
Reuter.
Indverskar friðargæslusveitir i Jaffna. Fréttir herma að þær
hafi ekki verið búnar undir skæruhernað aðskilnaðarsinna