Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 29

Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 29 Minjasafn Tannlæknafélagsins: Tæki frá upphafi tannlækninga Morgunblaðið/Svcrrir Tanniæknar munda gömul tæki í minjasafni Tannlæknafélags íslands. Frá vinstri: Jón Birgir Jónsson, sem sæti á í minjasafnsnefnd, Birgir J. Jóhannsson, formaður nefndarinnar, Börkur Thoroddsen, formaður ársþings TFÍ og sitjandi er Sigurgeir Steingrimsson, formaður TFÍ. Osta- og smjörsalan: Ostadagar að Bitru- hálsi um helgina Morgunblaðið/BAR Nokkrir þeirra muna sem á boðstólum verða. Fyrír aftan þá standa þær Guðmunda Ólafsdóttir, Ólöf Krístjánsdóttir og Laufey Þórðar- dóttir. Hrafnista; Arleg sala á handa- vinnu vistfólks NÝJU safni hefur verið komið á laggirnar í Reykjavík. Það er minjasafn Tannlæknafélags ís- lands og eru á safninu gömul tannlæknaáhöld og tæki. Þar á meðal er tannlæknastóll og rönt- gentæki síðan skömmu eftir aldamót. Elstu munirnir eru nærrí aldar gamlir. Safnið er til húsa í íbúð í kjall- ara fjölbýlishúss við Fellsmúla 12. Birgir J. Jóhannsson, formaður minjasafnsnefndar, sagði að árið 1965 hefði Tannlæknafélagið ákveðið að safna gömlum munum, sem gætu orðið vísir að minja- safni. „Safnið var verið á hrak- hólum þar til árið 1984, en þá var keypt íbúð sú, sem nú hýsir það,“ sagði Birgir. „Elstu munir í safninu eru tanntengur, sem eru hartnær aldar gamlar. Þá eigum við líka tæki frá stofu Brynjúlfs Bjama- sonar, sem hóf tannlækningar í Reykjavík árið 1907. Einnig eru í safninu öll elstu tæki Halls L. Hallssonar, sem starfaði lengst af í Austurstræti 14 og notaði þessi tæki allt fram til 1970. Safnið á því marga góða muni frá upphafí tannlækninga hér á landi, en áður en tannlækningar hófust sáu lækn- ar um tannaðgerðir, sem oftast fólust í tanndrætti." Minjasafn tannlæknanna er opið kl. 17 -18 í dag, föstudag, í tengsl- um við ársþing Tannlæknafélgsins. OSTADAGAR verða í húsakynn- um Osta- og snyöraölunnar að Bitruhálsi 2 dagana 30. október til 1. nóvember. Á Ostadögum verða ostar metnir og Ostameist- arí íslands 1987 valinn, auk þess sem haldinn verður fræðslufund- ur og ostasýning. Óskar H. Gunnarsson setur Osta- dagana í dag, föstudag, klukkan 16.30 og þar á eftir flytur Jón Helgason landbúnaðarráðherra ávarp. Þá verða úrslit ostasam- keppninnar sem fram fer fyrr um daginn kynnt, verðlaun afhent og ostasýning opnuð fyrir boðsgesti. Ostasýningin verður opin al- menningi í húsakynnum Osta- og smjörsölunnar að Bitruhálsi 2 á laugardag og sunnudag klukkan 13 til 18. Sýndar verða allar teg- undir osta sem á boðstólum eru hér á landi. Osta- og smjörsalan efnir til Ostadaga á tveggja ára fresti og síðustu Ostadaga mættu um 8000 manns að Bitruhálsi 2. Tilgangur Ostadaga er að auka áhuga á ostum og ostagerð, vekja athygli á vöru- þróun, gæðaeftirliti, tilraunum og nýjungum, segir í fréttatilkynningu. ARLEG sala á handavinnu vist- fólks á Hrafnistu i Reylgavik verður laugardaginn 31. október klukkan 13.30 til 17. Margir munir sem unnir voru á síðasta ári verða á boðstólum, svo sem pijónanærfot, jólavörur, silki- slæður, litlir skinnskór, púðar og margt fleira. Hver vistmaður fær andvirði þeirra muna sem hann bjó til og seldir verða fyrir efniskostn- að. ísafjörður: „Úr magabeltinu“ frumsýnt í Uppsölum LITLI Leikklúbburínn á Isafirði og BG flokkurinn frumsýna kabarettsýninguna „Úr maga- beltinu" laugardaginn 31. októ- ber. „Úr magabeltinu" verður sýnt fyrir matargesti á skemmtistaðnum Uppsölum á ísafírði. Fyrirhugað er að sýna kabarettinn á laugardags- kvöldum eitthvað fram eftir vetri. 17 leikarar taka þátt í sýning- unni auk hljómsveitarinnar BG flokksins. í fréttatilkynningu segir að söngur, grín og græskulaust gaman sé staðfært og sumt frum- samið. Leikstjóri er Guðni Ásmundsson. Helgarfló hjá FEF DÝRINDIS pelsar, húsgögn, ur í tonnatali, skyrtur, blússur, Úr kabarettnum „Úr magabelt- inu“; Hlynur Þ. Magnússon og Björn Garðarsson. skrautmunir og skart verður meðal þess sem kostur gefst að kaupa fyrir lítinn pening, segir I fréttatilkynningu um flóamark- að Félags einstæðra foreldra sem verður í Skeljanesi 6 nú um helg- ina, laugardag og sunnudag frá kl 14 báða dagana. Allur ágóði rennur í að greiða af neyðar og bráðabirgðahúsnæði, sem FEF rekur fyrir einstæða foreldra. Þá verður einnig tízkufatnaður á alla íjölskylduna, bamaflíkur, bux- Lúðrasveit verkalýðsins. Lúðrasveit verkalýðs- ins í Langholtskirkju LÚÐRASVEIT verkalýðsins tímum, allt frá 16. öld og fram á til heiðurs. heldur tónleika i Langholts- okkar daga. Meðal efnis er verð- Stjómandi Lúðrasveitar verka- kirkju laugardaginn 31. október launamarsinn Gamlir félagar eftir lýðsins er eins og undanfarin 10 kl. 17.00. Áma Bjömsson sem síðastliðinn ár Ellert Karlsson. sunnudag var gerður að heiðurs- Aðgangur á tónleikana er ókeyp- Á efnisskrá tónleikanna em lög félaga Sambands íslenskra lúðra- is. úr ýmsum áttum og frá ýmsum sveita og er marsinn leikinn höfundi vetrarfatnaður og vænir skór, nýir og notaðir. Nefna má, að efnalaug ein í höfuðborginni sendi FEF ný- lega mikið af vönduðum, hreinsuð- um flíkum, sem eigendum hafði láðzt að vitja. í næstu viku verður aðalfundur félagsins, nánar tiltekið þann 5. nóvember og verður hann einnig í Skeljanesi 6. Jóhanna Kristjóns- dóttir, sem hefur verið formaður FEF um árabil gefur ekki kost á sér í stjóm nú. Að loknum aðalfund- arstörfum ræða Hermann Gunnars- son, sjónvarpsmaður og Sigurður Skúlason, leikari efnið „Hvað segja umgengnisfeður?“Einnig verður skýrt frá umræðuhópastarfi, sem hefur verið vikulega á vegum FEF í vetur. Loks er tekið fram í fréttatil- kynningu FEF, að þessa dagana em að koma á markaðinn jólakort félagsins og era þau fjögur, tvö með bamateikningum og tvö eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur, listmál- ara. BÍKR með íallkeppni Bifreiðaiþróttaklúbbur Reykjavíkur, BÍKR, heldur keppni i „sprett-rally“ laugar- daginn 31. nóvember. Meðal þátttakenda eru þeir sem sjást hér á fullri ferð, þeir Bjami Heiðar Halldórsson og Amar Þorri Arajjótsson á 12 ára gömlum Datsun-bfl. Bfllinn á margar keppnir að baki en þetta verður önnur keppni þeirra félaga. í sfðasta rally urðu þeir í 3. sæti í „standard- flokki" og i 14. sæti af 31 keppanda. Þórólfur Stefánsson gftarleikarí. Burtfarar- prófstónleik- ar í Askirkju ÞÓRÓLFUR Stefánsson gitar- leikarí heldur burtfararprófs- tónleika frá Tónskóla Sigur- sveins D. Krístinssonar laugardaginn 31. október. Þórólfur er fæddur á Sauðár- króki. Hann hóf nám í Tónskóla Sigursveins haustið 1979 og hafa aðalkennarar hans þar verið þeir Gunnar H. Jónsson, Joseph Ka Cheung Fung, Sfmon ívarsson, og síðastliðin tvö ár Páll Eyjólfsson. Á tónleikunum sem eru sfðari hluti burtfararprófs, flytur Þórólfur m.a. verk eftir Bach, Sor og Brouwer. Tónleikamir í Áskirkju hefjast kl. 17.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.