Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 30.10.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 31 Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra: Nú er lag til að ná samingum um nýtt álver FRIÐRIK Sophusson, iðnaðar- ráðherra, lagði á Alþingi í gær fram svar við fyrirspurn Kristín- ar Einarsdóttur (Kvl.-Rvk.) um ýmsa þætti er varða hugsanlegt nýtt álver við Straumsvík. Unnið hefur verið að þessu máli frá þvi febrúar og vinnur nú starfs- hópur að frumhagkvæmniathug- un. Fyrr á þessu ári áttu sér stað óformlegar viðræður milli full- trúa íslenskra stjórnvalda og nokkurra helstu álframleiðanda í Evrópu um myndun samsteypu til að eiga og reka slikt álver. Segir iðnaðarráðherra að margt bendi til þess að nú sé lag að ná samningum um nýtt álver. í svari iðnaðarráðherra segir að áformað sé að álverið verði 200.000 tonna álbræðsla í höndum nýs sjálf- stæðs fyrirtækis sem verði rekið óháð íslenska álfélaginu. Það myndi þó nýta þá aðstöðu sem til staðar væri. Starfshópur um málið ráð- gerði að ljúka frumhagkvæmniat- hugun í nóvembermánuði og myndu viðræður við hugsanlega samstarfs- aðila þá heijast að nýju. Þær könnunarviðræður myndu væntan- lega 'nefjast eftir áramót. Leiddu þær í ljós frekari áhuga væri stefnt að því að ganga frá stofnun form- legs undirbúningsfélags um mitt næsta sumar. Nýtt álver yrði byggt með nýjustu tækni, aukinni sjálf- virkni og fullkomnustu mengunar- vömum. Samkeppnisstaða álvera í Evrópu færi versnandi, vegna fyrirsjáan- legra verðhækkana á orkuverði og jafnvel samdráttar á orkuframboði, og því benti margt til að nú væri Sala fiskiskipa frá Suðurnesjum: Við núverandi fiskveiðistefnu verður ekki búið áfram Hreggviður Jónsson (B.-Rn.) hóf í sameinuðu þingi í gær utandagskrárumræður um sölu fiskiskipa frá Suðumesjum. í máli þeirra þingmanna er tóku þátt umræðunum kom fram hörð gagnrýni á núverandi kvótakerfi og sér í lagi á skipt- ingu landsins í tvö veiðisvæði. Sögðu nokkrir þingmenn að við núverandi stefnu yrði ekki búið áfram. Hreggviður Jónsson sagði að nýlega hefði Útgerðarfélag Akur- eyrar keypt Dagstjömuna frá Suðumesjum. Þetta væri sjöundi togarinn á skömmum tíma er seld- ur væri frá svæðinu án þess að aðrir kæmu í staðinn. Spurði Hreggviður hvort það væri stefna stjómarinnar að leggja útgerð á Suðumesjum niður. Vegna svæðaskiptingar við út- hlutun kvóta væru aðilar á suðursvæðinu ekki samkeppnis- færir við þá á norðursvæðinu, þar eð þeir hefðu betri kvóta. Það væri mikilvægt að Suðumesja- menn sætu við sama borð og aðrir. Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, sagði þetta vissulega vera vandamál en yrði ekki leyst í stuttum umræðum á Alþingi. Sagði hann það hafa ver- ið villandi í máli Hreggviðs, að hann hafi gefið í skyn að Dag- stjaman hafí verið seld vegna skorts á veiðiheimildum. Sú hafi ekki verið raunin en eigendumir hefðu átt í miklum Qárhagserfíð- leikum. Þorskstofninn væri aðallega smáfískur og héldi hann sig við norðanvert landið. Því væri meiri þorskur í kvóta norðanmanna en karfí meira áberandi fyrir sunnan. Þetta væri rótin að vandamálum Suðumesja. Engin ákvörðun hefði enn verið tekin um hvemig físk- veiðistefnan yrði á næsta ári. Ef menn ætluðu að leysa vandann þyrftu þeir að skilgreina hann á réttan hátt. Hreggviður Jónsson hefði ekki skilgreint vandann, sarfi sjávarútvegsráðherra. Olafur G. Einarsson (S.-Rn.) sagði að við óbreytt kvótakerfí yrði ekki búið til áfram. Það þjón- aði ekki hagsmunum Suðumesja- manna á neinn hátt að draga vandamál þessi inn í stuttar um- ræður utan dagskrár á þessu stigi. Hvort það gagnaði Hreggviði Jónssyni persónulega þyrfti hann að meta sjálfur. Þingmenn Reylq- aneskjördæmi8 hefðu undanfarið rætt þessi mál við hagsmunaaðila á svæðinu og væru nú að hefja fyrstu aðgerðir gegn vandanum. Sagðist hann tala fyrir hönd þing- manna kjördæmisins þegar hann áteldi vinnubrögð Borgaraflokks- ins. Þau væru líklegri til að valda sundmngu en sameiningu. Geir Gunnarsson (Abl.-Rn.) tók í sama streng og ólafur G. Einarsson og taldi það mjög óeðli- legt að taka þessi mál nú til utandagskrárumræðu. Farsælla hefði verið fyrir þingmenn kjör- dæmisins að vinna saman. Það væri óviðunandi að hans mati að gerður væri munur á þorskafla eftir svæðum. Það leiddi til þess að þeir á nyrðra svæðinu hefðu yfírburðaraðstöðu til þess að bjóða í skip. Þingmenn á syðra svæðinu ættu ekki að líða þetta lengur og breyta því. Til þess hefðu þeir meirihluta á Alþingi. Júlíus Sólnes (B.-Rn.) sagði það hafa verið tímabært fyrir löngu að ræða þessi mál. Þetta ástand hefði nú ríkt í 5 ár. Júlíus sagðist vilja minna á þegar togar- inn Ingólfur hefði verið seldur á Homafjörð. Þá hefði sjávarút- vegsráðherra einfaldlega fært linuna suður fyrir Homafjörð. Hvemig stæði á þessu? Taldi Jú- líus þarft að leiðrétta þessa svæðaskiptingu milli norður- og suðurhluta landsins og það órétt- læti sem henni fylgdi. Kristín Halldórsdóttír (KvL-Rn.) sagði vanda útgerðar á Suðumesj- um mega rekja til þeirrar miklu uppbyggingar á landsbyggðinni á sviði útgerðar sem gerð hefði ver- ið á sínum tíma með fyrirgreiðslu ríkisins. Reykjanes hefði ekki fengið þessa fyrirgreiðslu og hefði því útgerð þar verið vanbúin til þess að mæta nýjum tímum og kvótastefnu. Þetta lýsti sér m.a. í gömlum flota á þessu svæði. Skúli Alexandersson (Abl,- VI.) sagði vandann vera tilkominn vegna fískveiðistefnunnar. Afleið- ing hennar hefði verið ofveiði umfram tillögur fískifræðinga. Samsvaraði sú ofveiði ca. einni ársveiði. Þess vegna væri nú aðal- lega lítill þorskur í sjónum. Síðastliðin 4 ár hefðu 366.000 tonn af þorski verið veidd umfram tillögur Hafrannsóknastofnunar. Fiskveiðistefnan hefur mistekist, sagði Skúli. Oli Þ. Guðbjartsson (B.-Sl.) sagði engan efa að stjóm ætti að vera á fískveiðum. Hins vegar þyrfti að sniða af vankanta á kerf- inu í ljósi reynslunnar. Mesta óréttlætið fælist f tveimur veiði- svæðum. Albert Guðmundsson (B.- Rvk.) sakaði Ólaf G. Einarsson um að hafa sofíð í stjóm Byggða- stofnunar og ádeila hans á Borgaraflokkinn ætti sér enga stoð. Þingmenn hans gerðu það að umræðuefni sem þeir teldu að þyrfti að heyrast. Það færi hins- vegar í taugamar á þeim „sem hefðu sofíð". Kjartan Jóhannsson (A.-Rn.) bað þingmenn annarra kjördæma en Reykjaness að líta í eigin barm og íhuga hvemig þeir myndu líta á málið ef byggðarlag í þeirra kjördæmi yrði fyrir svona blóð- töku. Ástæður vandans sagði hann vera byggðastefnuna eins og hún hefði verið rekin á sínum tíma og að kvótakerfíð hallaði á suður- hluta landsins. Hann hefði „orðið undir í bardaganum". Allir ættu að sitja við sama borð, að hans mati. Sighvatur Björgvinsson (A-Vf.) sagði mikilvægt að þessi mál væm rædd á Alþingi en spuming hvort það væri tímabært. Þing- menn úr öðmm kjördæmum þekktu vissulega þennan vanda, þetta væri ekkert einsdæmi fyrir Suðumes. Sighvatur vildi taka undir þau orð að núverandi físk- veiðisteftiu yrði ekki fylgt óbreyttri áfram. Július Sólnes sagðist vilja vekja athygli á einu atriði í sam- bandi við sölu Dagstjömunnar. Útborgun hefði verið greidd í skreið, alls 20 miHjónir, en sá sem seldi togarann skuldaði heima- mönnum mun meira fyrir innlagða skreið. Þetta væri siðferðilegt hneyksli. Halldór Ásgrímsson sagði það hafa verið rangt að hann hefði fært til línur vegna sölu togara og væri ósmekklegt að vera með slfkar ásakanir. Togarinn Ingólfur hefði heldur aldrei verið seldur til Homafjarðar heldur Vestfjarða. Togarinn er seldur var til Homa- fjarðar hefði heitið Erlingur. Sjávarútvegsráðherra sagði þessi mál öll vera mjög viðkvæm og hætta á illdeilum milli landshluta þeirra vegna. Það þyrfti að varast. Þessi uppdráttur sýnir þá stað- setningu verksmiðjunnar sem stuðst verður við i frumhag- kvæmniathugun. Hann felur þó ekki í sér endanlegt mat á þvi hvar nýju álveri við Straumsvik verður valinn staður. lag á að ná samningum. Hugmynd- in væri að hluti evrópskrar álfram- leiðslu yrði flutt til Islands þannig að nýtt álver yrði ekki til aukningar á framleiðslugetu í Evrópu. Væntanlega þyrfti samvinnu - þriggja til fímm fyrirtækja til að byggja álver af þessari stærð. Ekki væri gert ráð fyrir eignaraðild íslenska ríkisins, nema þá að óvem- legum hluta. Vegna viðskiptaleynd- ar væri ekki hægt að upplýsa um nöfn þeirra fyrirtækja sem haft hefði verið samband við en það yrði gert þegar það væri tímabært. Ymsir aðrir aðilar hefðu sýnt málinu áhuga. Áætluð orkuþörf væri 2500 GWh og reikna mætti með að aflþörfin yrði rétt um 300 MW. Æskilegt væri að verksmiðjan tæki til starfa á ámnum 1992-94. Sú tímasetning virtist raunhæf. Varðandi áætlanir um byggingu raforkuvera í í tengsl- um við nýtt álver segir í svari iðnaðarráðherra að Landsvirkjun ætti í fómm sfnum nokkra verk- hannaða virkjunarkosti auk Blönduvirkjunar sem nú væri f smíðum. Orkugeta þessara virkjun- arkosta ásamt Blönduvirkjun væri um 4000 GWh sem væri langt umfram þarfir umrædds álvers. Hér við bættist að líklegt er talið að hagkvæmt reynist að framleiða ra- forku með jarðgufu í náinni framtíð bæði á Nesjavöllum í tengslum við jarðhitavirkjun Hitaveitu Reykjavíkur og á Reykjanesi í tengslum við jarðhitavinnslu Hita- veitu Suðumesja. Kostnaður við athugun á bygg- ingu nýs álvers við Straumsvík fram til þessa væri rúmar 3,3 milljónir. j niÞinGi Stuttar þingfréttir: FUNDUR var I sameinuðu þingi í gær. Þar voru eftirfarandi ný þingmál lögð fram. Fyrirspurnir Kristfn Haildórsdóttir (Kvl.-Rn.) spyr menntamálaráðherra um ráðn- ingu Náttúruvemdarráðs í stöðu þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli. M.a. spyr Kristín hvort hvort ráðherra geti upplýst hvaða forsendur lágu til grundvallar þeirri ráðningu og til hve langs tíma ráðningin sé. Skúli Alexandersson (Abl.-Vl.) spyr dómsmálaráðherra um leigu- tekjur af flugvél Landhelgisgæsl- unnar, TF-SYN. Guðrún Helgadóttir spyr dóms- málaráðherra um undirbúning að fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við pyndingum. Heilbrigðisfræðsluráð Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.-Rvk.) og Danfríður Skarphéðinsdóttir (Kvl.-Vl.) hafa lagt fram frumvarp til laga um að ríkið starfræki stofn- un er nefnist heilbrigðisfræðsluráð. Ráð þetta á að annast heilbrigðis- fræðslu sem miði að því að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.