Morgunblaðið - 30.10.1987, Page 35

Morgunblaðið - 30.10.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 35 • • Ollum Bjarnfirðing-- um boðið til veislu Laugarhóli, Bjarnarfirði. LOKAVEISLA var haldin af kon- um þeim í Bjarnarfirði er ráku sumarhótelið á Laugarhóli f sum- ar. Buðu þær þriðjudaginn 20. október til kvöldveislu mökum sínum og öðrum íbúum fjarðar- ins, er heima sátu án þeirra í sumar, meðan þær unnu við störf sín á hótelinu. Veislu þessa sóttu allir íbúar Bjamarfjarðar og gestir er þar vom staddir. Meðal annars vom þaraa þrír skóla- stjórar er starfað hafa við Klúkuskóla. Það var mikill fagnaður í kvenna- veislu aldarinnar í Bjamarfírði um daginn. Eftir að lokið var starfí og frumuppgjöri hótelrekstrar kvenn- anna hér í sumar, auk þess sem lokið var smölun og slátmn Qár í firðinum, buðu þær ölium íbúum byggðarinnar og gestum þeirra er staddir vom á heimilum þeirra, til kvöldveislu, sem jafnaðist á við það besta á betri hótelum borgarinnar. Gestir nutu góðra veitinga. Hótelreksturinn hafði gengið vel í sumar og töldu þær því ástæðu til að fagna þessu, auk þess sem haustannir vom að mestu leyti hjá liðnar. Þá var einnig stóraftnæli þennan dag, en Ingibjörg Sigvaldadóttir húsfreyja á Hóli, eiginkona Ingi- mundar Ingimundarsonar, héraðs- höfðingja dalsins, varð 75 ára Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson Hótelstýrumar sem ráku sumarhótelið á Laugarhóli í sumar. þennan dag, en hún er fædd 20. október 1912, dóttir hjónanna Guð- bjargar Einarsdóttur og Sigvalda Guðmundssonar, bónda í Sandnesi. Hafa þau hjón, Ingibjörg og Ingi- mundur eignast sex böm. Bámst henni einnig gjafír og heillaóskir. Má geta þess hér að í bókinni ís- lenskir samtíðarmenn segir svo um hana, þar sem sagt er frá ævi- hlaupi Ingimundar manns hennar: „Það er fyrst og fremst konan sem hefír gert mér og öðmm mögulegt að starfa í félögum og við önnur trúnaðarstörf. Kona má aldrei gleymast þegar störf bóndans em metin." Tveir fyrrverandi skólastjórar Klúkuskóla tóku þátt í þessari veislu, þeir Einar Unnsteinsson og Magnús Rafnsson, auk núverandi skólastjóra við skólann. Skemmtu sér allir þaraa hið besta fram eftir kvöldi og nutu ijöl- breytts maðseðils kvennanna. - SHÞ. FÉLAGSMAN NADAGAR í STÓRMARKAEN KRON Það borgar sig að vera félagsmaður í KRON. Laugardaginn 31. október efnum við til sérstaks félagsmannadags. Þá veitum við félags- mönnum 5% afslátt af öllum vörukaupum í Stórmarkaði KRON, einni allraódýrustu verslun höfuðborgarsvæðisins. Tilboðið gildir líka laugardagana 7., 14. og 21. nóvember. Félagsmenn, notið tækifærið og gerið hagstæð innkaup, m.a.: Appelsínur kg. kr. 51,50_____________ Epli, rauð kg. kr. 59,50 Egg kg. kr. 79,- Kartöflur kg. kr. 65,- Barber tekex kr. 21,50 Blanda, hreinn appelsínusafi kr. 49,-________ Sanitas gosdr. 2 Itr. kr. 99,- Dauer bjór 450 ml. kr. 49,- - 5% félagsmannaatsláttur. FYRIR FRAMTÍÐINA Auk þess á sérstöku félagsmannatilboði:__________ Kitchen Aid hrærivél kr. 14.370,- (venjul.verð 17.245,-) Samsung myndbandstæki kr. 29.900,- (venjul.verð 35.900,-) Braun Multipractik kr. 6.170,- (venjul.verð 7.980,-) Skrifborðssett kr. 1.590,- (venjul.verð 1.924,-) Tilboðið giidir meðan birgðir endast. KKN Munið félagsskírteinin. Gerist félagar. Það er hægt t.d. í Stórmarkaði KRON á laugardaginn og áskrifstofu KRON, sími 22110. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.