Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 36

Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 36
AUK hf. 9.197/SiA VP 36 pí> r acjcr ac c VÍT /’IT/' T/TTAO MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 Komdu til okkar á DAGANA UHHELQINA Ljúfmeti af léttara taginu verður á boðstólum úr tilraunaeldhúsi Osta- og Smjörsölunnar, þar á meðal ný og spennandi ostakaka. Kynntu þér í slenska gæðamatió Nú hefur þú tækifæri til að kynna þér niðurstöður íslenska gæðamatsins á ostunum sem voru teknir til mats nú í vikunni. Ostameistaramir veröa á staðnum og sitja fyrir svörum um allt sem lýtur að ostum og ostagerð og bjóða þér að bragða á ostunum sínum. Ostar á kynningarveiöi Ostarnir verða seldir á kynningarverði OSTADAGANA, notaðu tækifærið. OPIÐ HÚS kl.1-6 laugardag & sunnudag að Bitruhálsi 2 Verið velkomin OSTA- OG SMJORSALATS Að aflokinni tískusýningu. Bjamarfj örður: Nemendur frá Hólma- vík heimsækja nem- endur Klúkuskóla Laugurhóli, Bjarnarfirði. FJÖLMENNI gisti hér á Laugar- hóli um helgina 23.-25. október, þá var í heimsókn Grunnskóli Hólmavikur, og er þetta annað árið sem þrír efstu bekkir skól- ans koma í helgarheimsókn hingað, ásamt skólastjóra sínum og kennurum. Að þessu sinni var það 28 manna hópur, sem eyddi helginni hér við leik og nám. Þá hafa ýmsir góðir gestir heimsótt skólann að undanfömu. Það voru 28 nemendur og kenn- arar frá Grunnskóla Hólmavíkur, sem gistu hér á Laugarhóli þessa helgi. Þetta er annað árið sem slíkar heimsóknir eiga sér stað. Klúku- skóli fór svo í gagnkvæma heim- sókn í Hólmavíkurskóla á síðast- liðnum vetri og var þá meðal annars gefíð út sameiginlegt bekkjablað skólanna. Hafa þessar gagnkvæmu heimsóknir mælst vel fyrir, bæði hjá nemendum og foreldrum. Aukið víðsýni nemenda og kynni, auk þess sem slík ferðalög teljast tvímæla- laust til skemmtilegri athafna í skólaiífínu. Fór til dæmis Klúku- skóli einnig í slíka heimsókn til skólans á Broddanesi í fyrra og var þar haldið dansnámskeið, en Broddanesskóli hafði verið í heim- sókn í Klúkuskóla í fyrrahaust. Þá hefír tvívegis verið á áætlun að heimsækja eða fá í heimsókn skólann á Finnbogastöðum í Ámes- hreppi, en veðurguðimir brugðust þannig við að ekki hefur af orðið, en það mál er enn á dagskrá. Auk þessara gagnkvæmu heim- sókna milli skólanna hafa ýmsir fleiri gestir komið hér. Gideon sendi fulltrúa sinn hingað fyrir helgina og kom hann og ræddi við bömin og afhenti 10 ára nemendum í skól- um Nýja Testamentið að gjöf frá félagsskapnum. Þá hefír starfsfólk Fræðsluskrifstofunnar á ísafirði verið í heimsókn í skólanum og hafa heimsóknir þess verið þakk- samlega þegnar. Heilsugæslulækn- irinn á Hólmavík hefir framkvæmt hina árlegu skólaskoðun og svo mætti lengi telja. Skólastarfíð hefír því verið all líflegt á haustinu og var haldinn foreldrafundur nýlega með þátttöku foreldra frá öllum heimilum er eiga böm hér í skóla og öllu starfsfólki skólans. Voru þar ýmis mál rædd um það er til bóta gæti horft um skólastarf hér á staðnum. Var mik- ill samhugur í öllum mættum um þau mál. Á næsta ári eru 80 ár frá því að kosin var skólanefnd í Kaldrana- neshreppi og þar með hafíð skóla- starf í hreppnum. Stendur til að minnast þess á næsta ári á ýmsan hátt í skólastarfinu og með sýningu í skólanum á næsta vori. - SHÞ Morgunbladið/Sigurður H. Þorsteinsson Unnið að greiningu undir stjórn kennara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.