Morgunblaðið - 30.10.1987, Síða 49

Morgunblaðið - 30.10.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987 49 Er kirkjan ekki sið- fræðistofnun? Sverrir Bjarnason hringdi: „Að undanförnu hafa birst um það fréttir í blöðum að í ráði sé að koma upp svokallaðri siðfræði- stofnun á vegum kirkjunnar. Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að kirkjan væri siðfræðistofnun. Ég hélt að skólinn sem rekinn hefur verið í Skálholti væri skóli þessarar siðfræðistofnunnar þ.e. kirkjunnar. Ef það er ekki rétt hjá mér að kirkjan sé siðfræði- stofnun til hvers eru þá prestamir að predika yfir okkur á hveijum sunnudegi? Ég óska eftir þvi að þjóðkirkjan upplýsi hvort þetta álit mitt er rétt eða rangt." Stórvaxin læða Stórvaxin læða, hvít með gul- brúna flekki og ómerkt, hefur verið í óskilum í húsi á Melunum í rúmlega viku. Eigandi hennar er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 25858. Seðlaveski Brúnt kvenseðlaveski með skilríkjum o. fl. tapaðist föstu- dagskvöldið 23. október í leigubíl frá BSR eða fyrir utan Frosta- skjól 17. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 22721. Offáir Hreyfilsbílar Þ.E. hringdi og sagði að of fáir leigubílar frá Hreyfli væru í mið- bænum á kvöldin. Hún sagði að á planinu fyrir neðan Amarhól, þar sem Hreyfill hefur leigubíla, væri oft enginn bíll á kvöldin. Sagðist hún nota Hreyfilsbílana mikið og að það myndi koma sér mjög vel fyrir marga ef Hreyfíls- menn gætu bætt úr þessu. Svart reiðhjól Svart kvenreiðhjól með hvítri flutningagrind framaná fannst fyrir skömmu. Eigandi þess getur hringt í síma 12729. Köttur Svartur fressköttur með hvíta stjömu á enni fór að heimanfrá sér skömmu. Hann er með hvíta bringu og hvítar loppur og ber eymamark. Þeir sem hafa orðið varir við kisa eru beðnir að hringja í síma 28948. Gallaðir sjónvarpsþættir Til Velvakanda. Á því er enginn vafí að með auk- inni menningu íslensku þjóðarinnar hafa t.d. vinsældir Sinfóníuhljóm- sveitar íslands vaxið með þjóðinni og er það vel. Það var þess vegna vel tilfimdið hjá sjónvarpinu að láta gera sérstaka kynningardagskrá um hljómsveitina, en bara sorglegt hve sú kynning var lítilfjörleg. Að vísu sást hljómsveitin að verki, hins vegar var ekki sagt á hvaða hljóðfæri hver og einn lék. Slíkt hefði verið sjálfsagt, því vafa- laust hefðu flestir gaman af því að fá að vita hveijir það eru, sem lof eiga skilið, og ekki síst þar sem um langvarandi kynni yrði að ræða. Það er hins vegar áberandi hve mikil áhersla er lögð á að kynna í sjónvarpi einhveija poppara og há- vaðagerðarmenn og venjulegast em þessir ótíndu glamrar kallaðir „virtúósar" eða öðmm álíka fráleit- um lofsyrðum. Það væri oft skemmtilegt að vita nöfn á þeim óþekktu konum og körlum, sem fréttamenn sjónvarps taka tali í starfi sínu. En hvers eiga fremstu hljómlist- armenn þjóðarinnar að gjalda að ekki megi nefna nöfn þeirra og láta sjást hver er hver? Þá er mér ómögulegt að minnast ekki á hve misheppnaður var þátt- urinn „Maður vikunnar“ í síðustu viku, með Siguijóni Rist vatnamæl- ingamanni. Hann átti annað skilið. Mér er óskiljanlegt hvaða erindi „vínarvalsar" áttu inn í þáttinn. Því mátti ekki heyrast ámiður og straumköst, þegar ámar vora sýnd- ar? Mér þykir það oft til vansa hve fjarskyldri tónlist er oft hellt yfir mann í svona þáttum. Mér hefði fundist mega ræða meira við Sigur- jón Rist og fræðast af honum, ekki síst með ámið að undirspili. Þá hefði og verið eðlilegt að segja frá ' því hvaða ár og vötn væri um áð ræða. Vafalaust vita ekki allir mis- muninn á dragaá, bergvatnsá eða jökulá. Viðleitnin með þættinum „Manni vikunnar" er góð, en það verður að vanda til hans, það er ekki nóg að sitja undir heysátu úti í náttúr- unni og hlusta á glaðlega tónlist. Sjónvarpsunnandi Tjarnarbakkinn er rétti staðurinn fyrir ráðhúsið Til Velvakanda Nokkuð hefur verið um að fólk tjái sig um ráðhúsið sem byggja á við Tjömina og finni hugmyndinni allt til foráttu. Það er eins og engu megi hreyfa í miðbænum án þess mótmælaalda fari af stað. Þegar verkinu er lokið em hins vegar all- ir ánægðir. Þannig var það til dæmis með útitaflið sem mikið var deilt um á sínum tíma. Þar sem ráðhúsið á að rísa er nú bflastæði og húskofi með klósett- um í kjallara. Bflastæðið ásamt þessu jámslegna húsi er nú eftir því sem mér skilst orðið svo mikið menningarverðmæti að við því má alls ekki hrófla. Talað er um að ráðhúsið skemmi svip umhverfisins þama en enginn talar um að þetta hús ásamt bflastæðinu geri það. Mér lýst vel á þama verði reist vegleg bygging og þetta er einmitt rétti staðurinn fyrir ráðhús borgar- innar. Ráðhúsið mun setja skemmti- legan svip á Tjömina og umhveri hennar. Reykvíkingur HEILRÆÐI Rjúpnaveiðimenn Á þessum árstíma skipast veður oft skjótt f iofti. Kynnið ykkur því veðurútlitið áður en lagt er upp í veiðiferðina. Klæðist ávallt ullarfötum og hafið meðferðis léttan hlífðarfatnað í áberandi lit. Vandið fótabúnaðinn. Grandskoðið allan búnað ykkar og vandið hann af stakri umhyggju. Sýnið forsjálni og gætni á öllum leiðum og tillitssemi við þá er heima bíða. IANDSVIRKJI1N VERÐ KR. 3.465,- Stærð: 36-41 Litur: Svart með brúnu Póstsendum samdægurs 5% staðgreiðsluafsláttur 21212 Kringlunni, sími 689212 Ath.: Mikið úrval af fallegum leð- urstígvélum frá OSWALD, ARA o.fl. Forval Landsvirkjun hefur ákveðið að efna til forvals á verktökum vegna byggingar stjórnstöðvar við Bústaðaveg 7 í Reykjavík. Nær verkið til upp- steypu hússins og að gera það fokhelt. Húsið verður á þremur hæðum, samtals 1.997 mzað flatarmáli og 8.354 m3 að rúmmáli. ÁÆTLAÐAR HELSTU MAGNTÖLUR ERU: Mót 5.900 m2 Steypustyrktarstál 145 tonn Steypa 1.220 m3 Auk þess skal koma' fyrir lögnum, blikkstokkum og innsteypt- um pípum vegna raflagna. Miðað er við að útboðsgögn verði tilbúin í janúar 1988 og að verkið geti hafist 15. febrúar 1988 og að því verði lokið 15. júní 1988. Forvalsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 29. október 1987 á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík. Útfylltum og undirrituðum forvalsgögnum skal skila á sama stað eigi síðar en föstudaginn 13. nóvember 1987. Reykjavík, 29. október 1987. BESTI KOSTURINN! Nýja ökumanns- húsið er þekkt fyrir þægindi og vandaðan frágang NÝJA LÍNAN - FORCE II Nýtf ökumannshús í sérflokki, öflugri mótor en sparneytnari og samhæfður girkassi með fjölda hraðastiga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.