Morgunblaðið - 30.10.1987, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI MEfSTARALIÐA
Víkingar í Evrópukepni tíunda árið í röð:
Danir sigurvissir en Víkingar
staðráðnir í að komast áfram
Fyrri leikurinn við Kolding í Höllinni á sunnudagskvöld
VÍKINGAR mœta danska liðinu
Kolding f Laugardalshöll á
sunnudagskvöldið f 16-liða úr-
slitum vrópukeppni meistara-
liða í handknattleik. Þetta
verður 39. Evrópuleikur
Víkinga, en árið f ár er einmitt
það tfunda f röð sem liðið leik-
ur í keppnlnni. Leikurinn á
sunnudaginn hefst kl. 20.30 en
síðari leikur llðanna verður ytra
að viku liðinni.
Svo merkilega vill til að á öllum
þessum tíma hafa Víkingar
aldrei dregist gegn dönsku liði fyrr
en nú. Kolding liðið varð danskur
meistari í fyrsta skipti síðastliðið
vor og í því eru margir þekktir leik-
menn. Þar ber fyrstan að nefna
stórskyttuna Kim Jacobsen, sem
leikið hefur mjög vel með danska
landsliðinu að undanfömu. Hann
skoraði 12 mörk gegn HIK í 1.
deildinni á dögunum er Kolding
tapaði með einu marki, 22:23. HIK
sló Breiðablik út úr Evrópukeppn-
inni í haust eins og menn muna
eflaust. Þá má nefna markvörðinn
Carsten Holm, sem er landsliðsmað-
ur og Hans Peter Munk Andersen.
Þjálfari liðsins er Bjame Simonsen,
sem á sínum tíma lék með hinu
fræga Fredericia-KFUM liði. Hann
á að baki 190 landsleiki, lítill og
snaggaralegur, stórhættulegur
homamaður.
Oútreiknanlegt llð
Kolding-hðið leikur mjög hraðan
handknattleik, og eru leikmenn þess
stórhættulegir í hraðaupphlaupum.
Liðið er mjög gott þegar það nær
sér á strik, en skv. upplýsingum sem
Víkingar hafa fengið hjá Degi Jón-
assyni, fyrrum leikmanni Fram og
nú liðsmanni danska liðsins Ribe,
er liðið óútreiknanlegt. „Ef áhorf-
endur standa á bak við Víkinga í
HÖllinni - Qölmenna og hvetja
Víkinga, þá geta þeir slegið danska
liðið út af laginu. Ef Víkingar ná
sterkum vamarleik, þá er ég sann-
færður um að þeir geta brotið sókn
Kolding á bak aftur með stuðningi
áhorfenda," segir Dagur. Hann
bætir við: „Hins vegar má aldrei
vanmeta þetta lið,“ — hann segir
liðið feikilega sterkt á heimavelli
og að mikill áhugi sé á leiknum í
Danmörku. Dagur segir lið Koiding
þekkt fyrir að leggja aldrei árar í
bát: „f fyrra tókst þeim hvað eftir
annað að snúa töpuðum leikjum sér
í vil, vom kannski fímm eða sex
mörkum undir þegar tíu mínútur
vom til leiksloka, en náðu að sigra
á endasprettinum. Víkingur þarf
helst að vinna með átta marka mun
í Reykjavík því Kolding er þekkt
fyrir að snúa erfíðristöðu sér í vil.
En þátt fyrir allt þetta þá hef ég
trú á Víkingum," sagði Dagur.
Dflnsku blöflln slgurvlss
Dönsk blöð sem fjallað hafa um
viðureign Kolding við íslensku
Víkingana telja það nánast formsat-
riði að leikimir fari fram — svo
ömggt sé að þeirra menn komist
áfram í 8-liða úrslitin. Ef til vill er
ástæðan sú hve auðveldlega HIK
lagði Breiðablik að velli fyrr í haust,
en þó undarlegt þegar tillit er tekið
til þess hve hátt íslenskur hand-
knattleikur er skrifaður.
Á blaðamannafundi sem Víkingar
héidu í vikunni, kom fram að sér-
stök stemmning yrði í kringum
þessa leiki þar sem þetta væri í
fyrsta skipti sem þeir léku gegn
dönsku liðið. Einnig vom þeir
ákveðnir í að sýna frændum vomm,
iq -mm
Morgunblaöið/Bjarni Eiríksson
Það er til mikils að vinna hjá Vfldngum er þeir leika gegn danska liðinu Kolding í Evrópukeppni meistaraliða á sunnu-
daginn. Fyrirtækið Bifreiðar og landbúnaðarvélar h/f hefur ákveðið að gefa liðinu bfl, Lada Samara, komist það áfram
í 8-liða úrslit keppninnar. Leikmenn stilltu sér upp við bflinn sem þeir vilja ólmir eignast.
eftir skrif dönsku blaðanna, hvar
Davíð keypti ölið. Og í þriðja lagi,
eins og Ámi Friðleifsson, einn hinna
ungu leikmanna Víkings, orðaði
það: „Við emm ákveðnir í að hefna
fyrir tap Breiðabliks í haust." Það
er því greinilegt að Víkingar ganga
til leikjanna ákveðnir í að sigra.
Með góðum stuðningi áhorfenda í
Höllinni á sunnudagskvöldið ættu
þeir að geta gert góða hluti, eins
og þeir hafa gert í Evrópukeppninni
undanfarin ár.
íkvöld
HANDBOLTI
Fram og Þór leika I 1. deild karla á íslandsmótinu í handknatleik f Laugardalshöll
kl. 20.00 f kvöld. FH og KR leika f 1. deild kvenna f Hafarfirði kl. 19.00.
KÖRFUBOLTI
Tveir leikir verða f úrvalsdeildinni f körfuknattleik f kvöld. Nýliðamir UMFG og Þór
leika f Grindavík kl. 20.30 og UMFN og Breiðablik f Njarðvík kl. 20.00.
BLAK
Þróttur frá Reykjavfk og Þróttur frá Neskaupstað leika f bikarkeppni kvenna f
Hagaskóla f kvöld kl. 18.30. Að þeim leik loknum leika Fram og Þróttur, Nes. og
sfðan Víkingur og Þróttur f 1. deild klara.
HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Gytfl Blrgisson er aðalskytta Stjömunnar og ef hann nær sér á strik á
morgun má markvörður Norðmanna passa sig.
Stjarnan annað árið í röð í Evrópukeppni bikarhafa:
Stjaman mætir
Urædd á morgun
Stjaman ætlar sér sigur og áframhald í keppninni
STJARNAN mœtir norsku bik-
armeisturunum Urœdd frá
Porsgrunn í 2. umferfl Evrópu-
keppni bikarhafa á morgun,
laugardag, kl. 16.00 í Digra-
nesi. Stjarnan tekur nú þátt í
Evrópukeppni bikarhafa íann-
afl sinn á jafnmögurm árum.
Bœöi árin hefur liðiö náð aö
komast í 2. umferð eftir að
hafa unnið liö frá Bretlandsl-
eyjum nokkuö örugglega.
Urædd hefur verið eitt sterkasta
félagslið Noregs undanfarin
ár. Liðið hefur nær undantekning-
arlaust unnið til verðlauna í norsk-
um handknattleik síðastliðin 5 ár,
og hefur þar af leiðandi mikla
reynslu í Evrópukeppni. Liðið sló
Valsmenn út í fyrra.
Flmm norsklr landsllösmenn
í liði Urædd eru fímm norskir lands-
liðsmenn. Atkvæðamestir eru Bent
Svele, sem lék um tíma sem at-
vinnumaður á Spáni, og Roger
Kjendalen báðir útispilarar. Þá er
línumaðurinn Ketil Larsen talinn
einn besti vamarmaður þeirra
Norðmanna. Roger Kjendalen er
leikstjómandi bæði hjá Urædd og
landsliðinu. Hann er mikil skytta
oggerir oftast 5 til 8 mörk í leik.
Urasdd «fst í Noregl
Urædd er nú efst í norsku 1. deild-
inni með sjö stig eftir 4 leiki. Þess
má geta að norskur handbolti er í
mikilli sókn og til marks um það
gerði norska karlalandsliði jafntefli
við Svía í síðustu viku.
Það gæti orðið mikilvægt fyrir
Stjömuna að Gunnar Einarsson.
þjáflari, hefur dvaldið í Noregi við
nám og þjálfun í nokkur ár og þekk-
ir því mjög vel til liðsins. Gengi
Garðbæinga hefur hins vegar verið
misjafnt í íslandsmótinu það sem
af er. Það er ljóst að þeir verða að
detta niður á sinn besta leik til að
sigra á morgun.
Garðbæingar sönnuðu það í heima-
leiknum gegn jógóslavneska liðinu
Dinos Slovan í fyrra að á góðum
degi geta þeir bitið frá sér. Þeir
töpuðu þá stór á útivelli en sigruðu
heima 20:17 í mjög góðum leik.
Stjaman verður að sigra Urædd á
morgun ætli þeir sér að eiga mögu-
leika á áfaramhaldandi þátttöku í
keppninni. Urædd er mjög sterkt á
heimavelli því fengu Valsmenn að
kynnast í fyrra. Stuðningur áhorf-
enda er því mikilvægur fyrir
Garðbæinga á morgun.