Morgunblaðið - 30.10.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1987
51
HANDBOLTI / 1. DEILD
Guðmundur varði vel
og Hans skoraði tíu
Það dugði Breiðabliktil að leggja Víkinga að velli
„SVONA geta piltarnir leikið.
Þetta var sigur liðsheildarinn-
ar, bæði í sókn og vörn,“ sagði
Geir Hallsteinsson þjálfari
Breiðabliks eftir að þeir lögðu
Víkinga að velli í Digranesi f
1. deiídinni í handbolta. Bæði
liðin hafa hlotið 8 stig en
Vikingar hafa hagstæðara
markahlutfall. Leikurinn var
fjörugur og skemmtilegur á að
horfa og það var ekki fyrr en
rétt í lokin sem Blikar náðu
verulegri forystu.
Víkingar skoruðu fyrsta markið
en jafnt var upp í 4:4. Þá skor-
uðu Víkingar þijú mörk en Blikar
gáfust ekki upp og tókst að komast
■HB yfir. Það var fyrst
SkúliUnnar og fremst slök vöm
Sveinsson Víkinga sem gerði
skrifar það að verkum.
Hans Guðmundsson
var einnig í banastuði og skoraði
hann 8 mörk í fyrri hálfleik.
Það virtist vanta baráttu og sigur-
vilja í Víkinga í leiknum. „Við
komum vel undirbúnir og vorum
ekki að hugsa um Evrópuleikinn,"
sagði Ámi Indriðason þjálfari þeirra
eftir leikinn. „Við skoruðum 14
mörk í fyrri hálfleik og það á að
duga til að vinna leik. Vömin klikk-
aði alveg hjá okkur og við skutum
vitlaust á Guðmund sem varði vel
í leiknum," sagði Ámi ennfremur.
Já, Guðmundur varði vel í marki
Blika, sérstaklega í síðari hálfleik
þegar hann hreinlega lokaði mark-
inu. Hann varði hvert skotið á fætur
örðu eftir að Víkingar höfðu skapað
sér dauðafæri.
í síðari hálfleik náðu Víkingar að
minnka muninn niður í 21:20 þegar
skammt var til leiksloka. Þá misstu
þeir tvo menn útaf á sama tima og
fengu á sig tvö mörk. Þar með var
draumur þeirra búinn.
Guðmundur var án efa maður leiks-
ins. Hann varði meistaralega og
hélt liðinu á floti á stundum. Hans
lék vel og skoraði mikið og Bjöm
lék nú eins og hann á að sér eftir
nokkra lægð að undanfömu. Ólafur
stóð sig vel í hominu og Kristján
einnig á línunni.
Hjá Víkingum var Kristján einna
bestur, hann varði ágætlega í leikn-
um og Hilmar stóð sig mjög vel á
línunni. Aðrir léku undir getu og
eins og áður sagði virtist vanta sig-
urvilja í liðið.
Dómarar leiksins vom ekki nógu
sannfærandi. Sigurði Baldurssyni
var frekar laus höndin á spjaldinu
og missti það meira að segja einu
sinni í öllum hamaganginum.
Víkingar vom útaf í 16 mínútur og
Blikar í 10. Auk þess fékk vara-
markvörður Blika að sjá rauða
spjaldið þar sem hann sat á bekkn-
um. Mikið um að vera í Digranesi
í gærkvöldi.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Reuter
Leikmenn Kýpur huga að markveröi sínum, Andreas Charitou, skömmu eftir að sprengja sprakk í marki hans í leik
Hollendinga og Kýpurmanna 1 Rotterdam í fyrrakvöld. Atvikið kann að eiga eftir að reynast Hollendingum dýrkeypt.
i Hollendinga í
úrslitunum í hættu
Hollendingar verða heppnir
ef þeir sleppa við brottvísun
úr Evrópukeppni landaliða í
knattspyrnu, sagðist Reuters-
fréttastofan hafa eftir heimild-
um úr innsta hring Knatt-
spyrnusambands Evrópu
(UEFA)ígær.
m
Ileik Hollendinga og Kýpur-
manna í Rotterdam í fyrrakvöld
var reyksprengjum og flugeldum
kastað inn á leikvanginn. Eftir að-
eins þriggja mínútna leik sprakk
ein sprengjan í marki gestanna og
slasaðist Andreas Charitou, mark-
vörður Kýpur.
Charitou var borinn af velli í sjúkra-
bömm og í mótmælaskyni við
framgöngu áhorfenda gengu Kýp-
urbúar af leikvelli. Eftir klukku-
stundar þóf í búningsklefunum
féllust þeir á að hefja leikinn aftur
og tók þá varamarkvörður stöðu
Charitou.
Um atvikið verður fjallað á fundi
aganefndar UEFA 12. og 13. októ-
ber og refsing þá væntanlega
ákveðin.
Hollendingar unnu leikinn 8-0 og
tryggðu sér þarmeð sigur í 5. riðli
Evrópukeppni landsliða og sæti í
úrslitakeppninni í Vestur-Þýzkal-
andi næsta sumar. Nú em þeir hins
vegar sagðir eiga á hættu að verða
útilokaðir vegna skrílslátanna á
leiknum í Rotterdam f fyrrakvöld.
Yrði það mikið áfall fyrir Hollend-
inga þvf þeir hafa ekki komizt f
úrslit stórmóts í knattspymu í átta
ár, eftir gullaldarskeið á áttunda
áratugnum.
Árið 1984 tryggði hollenzka ungl-
ingalandsliðið sér sæti í úrslitum
Evrópukeppni unglingalandsliða en
vom dæmdir frá keppni vegna
samskonar atviks í undankeppninni
og í leiknum í fyrrakvöld.
HANDBOLTI
Leika Atli og Birgir með?
Atli Hilmarsson æfði með Fröm-
umm í gærkvöldi í fyrsta sinn
eftir að hafa verið í gifsi í fjórar
vikur og sagðist hann vonast til að
geta leikið í kvöld. Birgir Sigurðs-
son verður éinnig að öllum líkindum
með Fram í kvöld.
í samtali við Morgunblaðið f gær-
kvöldi sagðist Alti mundu æfa með
spelkur og tæki hann ákvörðun um
leikinn i dag f samráði við þjálfara
Fram.
„Ég vonast til að geta leikið gegn
Þór. Höndin er að vísu öll stíf eftir
mánuð í gifsi en ég vona bara það
bezta. Það má segja að það sé beð-
ið eftir mér.“
UBK-Víkingur
26 : 21
Digranea, 1. deild karla I handbolta,
fimmtudaginn 29. október 1987.
Gangur leiksins: 1:1, 4:4, 4:7, 5:9,
8:9, 11:10, 12:13,16:14, 17:14, 20:17,
20:19, 21:20, 23:20, 23:21, 26:21.
MSrk UBK: Hans Guðmundsson 10/3,
Bjöm Jónsson 4, Ólafur Bjömsson 4,
Kristján Halldórsson 3, Aðalsteinn
Jónsson 2, Þórður Davfðsson 2, Jón
Þórir Jónsson 1.
Varin skot Guðmundur Hrafnkelson 17.
Mörk Vfkings: Hilmar Sigurgislason
5, Guðmundur Guðmundsson 4, Sig-
urður Gunnarsson 4/2, Karl Þráinsson
3, Bjarki Sigurðsson 2, Ámi Friðleifs-
son 2, Siggeir Magnússon 1.
Varin skot: Kristján Sigmundsson 13.
Dómarar: Sigurður Baldursson og
Bjöm Jóhannesson voru slakir.
Hans í ham
Hans Guðmundsson var í miklu stuði
í gær og skoraði tfu mörk.
ENGLAND
Bikardráttur
m
Igær var dregið í flórðu um-
ferð enska deildarbikarsins,
sem fram fer 16. nóvember.
Eftirtalin lið drógust saman:
Aston Villa - Sheff. Wed.
Man. City - Swindon/ Watford
Ipswich - Luton
Peterborough/Reading - Bradford
Everton - Leeds/Oldham
Arsenal - Stoke
Bury - Man. United
Wimbledon - Oxford/Leicester.
Haustfagnaður félagsins verður haldinn í félagsheimili
Þróttar laugardaginn 31. október og hefst klukkan
20.30.
Rúllugjald - Miðar við innganginn - MÆTUM ÖLL
Aðalstjórn.
Knattspyrnuþjálfarar!
2. deildar liði ÍR vantar þjálfara
fyrir mfl. í knattspyrnu.
Umsóknir skilist til autí lýsinga-
deildar Mbl. fyrir 1. nov. 1987
merktar: „ÍR - 87“.
, LEIKVIKA 10 hœgterað greiðafyrirmeð Leikir3l.október1987 K
1 x 2
kredítkorti. 1 Charlton - Southampton föstodaga 2 chelsea * Oxford United 3 Derby - Coventry
frá kl. 9.00 til 17«) 4 Man. Unite'd - Nott'm Forest 5 Newcastle - Arsenal oglaugandaga 6 Norwich-Q.P.R.
7 Portsmouth - Sheffield Wed. frá kl. 9.00 til 13:30. 8 jottenham - Wimbledon 9 Watford - West Ham
10 Oldham - Blrmlngham 11 Plymoth-Hull 12 Shetfield Unlted - Leeds