Morgunblaðið - 21.11.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987
Borgarstjórn um húsið við Tjarnargötu 11:
Samþykkt að finna annan stað
en hom Túngötu og Garðastrætis
BORGARSTJÓRN samþykkti á
fundi sínum á fimmtudags-
kvöldið að beina þvi til borgar-
DOKTORSVÖRN fer fram við
læknadeild Háskóla íslands í dag,
laugardaginn 21. nóvember.
Ólafur Grétar Guðmundsson ver
doktorsritgerð sina, sem lækna-
deild hafði áður metið hæfa til
doktorsprófs. Heiti ritgerðarinn-
ar er „Immunologic Aspects of
the Lacrimal Gland and Tears".
Andmælendur af hálfu lækna-
ráðs, að fundinn verði annar
staður fyrir húsið við Tjarnar-
götu 11, en ráðgert var á horni
deildar verða prófessor dr. Alec
Gamer, MRCP., FRCPath., Uni-
versity of London, og prófessor
Helgi Valdimarsson. Deildarforseti
læknadeildar, prófessor Ásmundur
Brekkan, stjómar athöfninni.
Doktorsvömin fer fram í Odda,
stofu 101, og hefst kl. 14.00. Öllum
er heimill aðgangur.
Túngötu og Garðastrætis.
Á fundi borgarráðs 20. október
sl. var samþykkt að flytja og stað-
setja húsið við Ijamargötu 11 á
lóð á homi Túngötu og Garða-
strætis. Á fundi bygginganefndar
Reykjavíkur 29. október sl. var
samþykkt að heimila flutning
hússins, en staðsetningu var fre-
stað.
Það kom fram hjá Hilmari Guð-
laugssyni, formanni bygginga-
nefndar, á borgarstjómarfundin-
um að hugmyndin um
staðsetningu hússins á lóðinni
stangaðist á við ákvæði bmna-
málareglugerðar. Ef framfylgja
ætti þessum ákvæðum þyrfti að
færa húsið allnokkuð til. Taldi
Hilmar að miðað við þetta væri
staðsetning hússins allt önnur og
verri. Tillaga Hilmars um að fresta
staðsetningu var samþykkt sam-
hljóða.
Doktorsvörn við
Háskóla Islands
I/EBURHORFUR í DAG, 21.11.87
YFIRLIT á hádegl f gæn Skammt fyrir noröan land er 997 milli-
bara lægö sem þokast austur en 1038 millibara lægö suðvestur
af Bretlandseyjum. Á morgun myndast hæöarhryggur á Grænlands-
hafi. Veður fer smám saman kólnandi.
SPÁ: í dag veröur vestan- og norövestankaldi víða um landið.
Smám saman lóttir til, en þó verða dólitil snjó- eöa slydduél við
norð- og norðausturströndina fram eftir degi. Hiti 0—5 stig, og
heldur kólnandi með kvöldinu.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
SUNNUDAGUR: Vestan og norðvestanátt og víða vægt frost. Él
verða við norðausturströndina, en þurrt og víða bjart veður annars
staðar.
MÁNUDAGUR: Suðvestanátt og hlýtt víða á Suöur- og Vestur-
landi. Þokusúld. Þurrt á Norður- og Austurlandi.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■\ 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. III O* <!• Skúrir Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning Þoka
Hálfskýjað r r r * / * 5 ? 5 Þokumóða Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo 4 Mistur Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær aö ísi tíma hhi veður Akureyrf 7 hilfskýjað Reykjavfk 6 rígning
Bargen 6 Iðtttkýjað
Heltlnki 2 slydda
Jan Mayen +7 úrkomafgr.
Kaupmannah. 8 léttakýjað
Narasarsauaq +1 úrkomafgr.
Nuuk +2 snjókoma
Oaló 2 altkýjað
Stokkhólmur 4 tkýjað
Þórahðfn 5 ^cýjað
Algarve 18 lótttkýjað
Amsterdam 10 akúr
Aþena 16 lótukýjað
Barcelona 16 akýjað
Beríln 7 tkýjað
Chlcago 44 helðskfrt
Feneyjar 6 aúld
Frankfurt 7 akýjað
Glasgow 10 tkýjað
Hamborg 7 akúr
Lat Palmat 23 rykmittur
London 11 tkýjað
Lot Angelet 16 lótttkýjað
Lúxemborg 4 akúr
Madríd 16 mlstur
Malaga 18 lótttkýjað
Mallorca 18 tkýjað
Montreal 4 tkúr
NewYork 8 alakýjað
Parít 8 rigning
Róm 17 altkýjað
Vín 8 altkýjað
Wathlngton 7 úrkomafgr.
Wlnnlpeg 414 halðtkfrt
Valencia 22 lóttakýjað
Kristján Karlsson
Krístján skrifar sjálfur titil og
höfundarnafn á Kvæði 87.
Ný ljóðabók eftir
Kristján Karlsson
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Almenna bókafélaginu:
„Kristján Karlsson skáld og bók-
menntafræðingur, hefur sent frá
sér sína fímmtu ljóðabók, Kvæði
87. Kristján er eins og kunnugt er
eitt af okkar sérstæðustu skáldum.
Flest ljóða hans krefjast vandlegs
lestrar, en hljóti þau hann launa
þau lesandanum því að hér er á
ferð mikill skáldskapur.
Stfll Kristjáns er afar persónuleg-
ur, en höfundurinn er eigi að síður
nýr í hverri bók. Síðasta bók mark-
aði þáttaskil í skáldskap hans og
þá munu Kvæði 87 ekki síður gera
það.
Kvæði 87 er 50 bls. að stærð.
Kvæðin eru alls 28, sum nokkuð
löng. Útgefandi er Almenna bóka-
félagið og kemur bókin út bæði
fyrir almennan markað og sérút-
gáfa fyrir Ljóðaklúbb AB.“
Fj ármálaráðuneytið:
Nýr skrifstofustjóri
ÞÓRHALLUR Arason viðskipt-
fræðingur hefur verið ráðinn
skrifstofustjóri greiðslu- og
eignadeildar fjármálaráðu-
neytisins.
Þórhallur lauk viðskiptafræði-
prófí frá Háskóla íslands 1972 og
starfaði síðan hjá Vegagerð ríkis-
ins. Hann hefur gegnt starfí
forstöðumanns fjárhagsdeildar
Vegagerðarinnar síðan 1976.
Hann er kvæntur Rannveigu Tóm-
asdóttur og eiga þau þrjú böm.
Af starfí skrifstofustjóra lætur
Sigurður Þórðarson sem tekur við
stöðu vararíkisendurskoðanda.
Jón Björnsson tón-
skáldfrá Hafsteins-
stöðum látínn
Sauðárkrólci.
JÓN Björnsson tónskáld frá Haf-
steinsstöðum lést aðfaranótt 18.
nóvember sl. á sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki, 84 ára að aldri.
Jón var fæddur 23. febrúar 1903
að Glaumbæ í Skagafírði. Foreldrar
hans voru hjónin Steinvör Véfreyja
Siguijónsdóttir frá Sörlastöðum í
Fnjóskadal og Bjöm Lárus Jónsson
bóndi og hreppstjóri að Stóru-Seylu.
Jón stundaði tónlistamám á Ak-
ureyri á árunum 1921-1924 en
síðan búskap lengst af á Hafsteins-
stöðum í Staðarhreppi eða allt til
þess er hann fluttist til Sauðárkróks
árið 1973.
Jón Bjömsson var mikilvirkur í
tónlistarlífi Skagafjarðar, var
stjómandi Karlakórsins Heimis frá
stofnun hans 1927-1968 og Sam-
kórs Sauðárkróks 1966-1971. Þá
var Jón organisti við Glaumbæjar-
og Reynistaðakirkjur um árabil og
við Sauðárkróks-, Hvamms- og
Ketukirkjur eftir að hann flutti til
Sauðárkróks til ársins 1984.
Eftir Jón liggja fjölmörg lög sem
hann samdi fyrir kóra og einsöngv-
ara og út hafa verið gefín fjögur
sönglagahefti með lögum hans und-
ir nafninu Skagfírskir ómar. Fyrir
störf sín að tónlistarmálum var Jón
Jón Björnsson
sæmdur fálkaorðunni 1979.
Eiginkona Jóns var Sigríður
Tijámannsdóttir frá Akureyri en
hún lést 3. september 1969 og áttu
þau einn son, Steinbjöm, sem lést
árið 1975, aðeins 49 ára að aldri.
Sambýliskona Jóns síðar var Anna
Jóhannesdóttir frá Vindheimum en
hún er látin fyrir nokkrum árum.
- BB
Þórhallur Arason