Morgunblaðið - 09.12.1987, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
Fjármálaráðherra um breytingar á skattalöggjöf:
Merkur áfangí að endur-
skoðun skattkerfisíns í heild
Stjórnarandstaðan: Verið að þyngja skattbyrðina
Stjórnarfrumvörp um gildis-
töku staðgreiðslu opinberra
gjalda og tekju- og eignaskatt
komu til fjrstu umræðu i efri
deild i gær. í framsöguræðu sinni
með síðara frumvarpinu sagði
fjármálaráðherra m.a. að þessi
lög væru merkir áfangar að end-
urskoðun skattkerfisins i heild
sem stefndu að þvi að skapa hér
heilstætt, skilvirkt og réttlátt
skattakerfi. Nokkrar umræður
urðu út af þessu frumvarpi og
sögðu stjórnarandstæðingar að
rikisstjómin væri með breyting-
um sínum á skattkerfinu að
þyngja skattbyrðina. Frumvarp-
inu um gildistöku staðgreiðslu
var vísað til nefndar og annarrar
umræðu. Einnig átti að vísa fmm-
varpinu um tekju- og eignarskatt
sömuleið en tókst það ekki þar
sem of fáir þingmenn vom í saln-
um. Þeir vom 21 en þurftu að
vera 22. Var því atkvæðagreiðslu
frestað.
Jón Baldvin Hannibalsson,
fjármálaráðherra, sagði þau lög
sem hér væru til umij'öllunar, þ.e.
breytingar á tekjuskattlagningunni
og lög um tekju- og eignarskatt
vera merka áfanga í skattalöggjöf-
inni. Þeir væru ekki einungis merkir
vegna þess að þeir gerðu okkur
kleift að taka hér upp einfalt stað-
greiðslukerfí. Ekki síður væru þetta
merkir áfangar að endurskoðun
skattakerfisins í heild sem stefndi
að því að skapa hér heilstætt, skil-
virkt og réttlátt skattakerfi.
Endurskoðun skattalaganna nú
byggðist ekki á því að þau lög sem
við byggjum við væru of gömul né
heldur vegna þess að þau hefðu í
grundvallaratriðum verið léleg.
Meginástæðumar fyrir brýnni þörf
breytinga nú væru tvær. Annars-
vegar breyttar aðstæður í þjóðfélag-
inu, s.s. vöxtur samneyslu og
samskipti við aðrar þjóðar og kröfur
á þeim vettvangi um óhlutdrægni
skatta og ennfremur þær breytingar
sem orðið hefðu á hlutverkum ein-
stakra tekjustofna í tekjuöflun
ríkisins. Hins vegar þær beyglur og
göt sem gerðar hefðu verið á skatta-
kerfið á liðnum árum eða hefðu
ioðað við það frá upphafi.
Því miður hefðu undanþáguá-
kvæðin eða raunveruleg áhrif þeirra
verið í andstöðu við önnur markmið
skattalaga, t.d. tekjujöfnunarmark-
mið, þar sem það væru í reynd þeir
betur settu sem hefðu tök á að nota
sér undanþágumar.
Hin stjómmálalega niðurstaða
væri sú að við ættum að láta skatta-
kerfíð vera einfalt tekjuöflunarkerfí
og undanþágulaust. Með því sköp-
uðum við því forsendur til að vera
skilvirkt og réttmætt. Hins vegar
mætti mæta réttmætum þörfum
einstakra þjóðfélagshópa -- og
pólitískum markmiðum með beinum
Qárveitingum og styrkjum. Þannig
tækjum við beina afstöðu fyrir opn-
um tjöldum en feldum hana ekki í
frumskógi undanþága og frávika
sem enginn vissi hvað kæmi út úr
þegar upp var staðið.
Fjármálaráðherra sagði þessi orð
ekki eiga sérstaklega við það frum-
varp sem hér væri til umræðu eða
tekjuskattslögin ein. Þau ættu ekki
síður við aðra skatta, óbeina skatta
og tolla, og væru sögð hér til að
minna á samhengi þessa frumvarps
við grundvallaratriði í endurskoðun
á skattamálum sem hafín væri.
Endurskoðun á tekjuskattslögun-
um væri af hagkvæmnisástæðum
m.a. unnin í þremur þáttum. Skatt-
ar af launatekjum ' einstaklinga,
skattar af eignatekjum og skattar
fyrirtækja. Þetta frumvarp og þau
lög sem hefðu verið afgreidd á
síðasta þingi snertu aðeins fyrsta.
þáttinn en engu að síður ætti að
meta það með tilliti til hinna þátt-
anna einnig og móta með afgreiðslu
þess þá stefnu sem myndi auðvelda
næstu skref.
Fjármálaráðherra sagði að þegar
. skattafrumvörpin hefðu verið til
umræðu á Alþingi sl. vor hefði ver-
ið ákveðið að skipa nefnd sem skyldi
yfírfara og endurmeta ákvæði hinna
nýju laga m.a. þegar fýrir lægju
framtöl fyrir tekjur ársins 1986 og
álagning gjalda 1987. Nefnd þess
hefði skilað ítarlegri álitsgerð og
tillögum um ýmsar breytingar á lög-
um um staðgreiðslu opinberra
gjalda og lögum um tekju- og eign-
arskatt.
Þegar hefðu verið flutt frumvörp
um breytingar á lögum um stað-
greiðslu og lögum um gildistöku
þeirra laga og þetta frumvarp um
breytingar á lögum um telq'uskatt
og eignarskatt byggði að mestu á
álitsgerð nefndarinnar um þau atriði
er vörðuðu álagningu tekjuskatts.
Niðurstaða nefndarinnar væri að
ekki þyrfti að gera meiriháttar
breytingar á uppbyggingu laganna
eða efni, til þess að þau næðu þeim
tilgangi og áformum um skattlagn-
ingu sem uppi hefðu verið við
samþykkt þeirra. Hins vegar leiddu
breyttar forsendur í verð- og kaup-
lagsmálum þ.e. verulega aukinn
kaupmáttur frá því sem ætlað var
til þess, að gera þyrfti breytingar á
persónuafslætti og bamabótum til
þess að staðið yrði við staðgreiðsluá-
formin.
Við afgreiðslu Qárlaga fyrir árið
1987 og breytingu á lögum um
tekju- og eignarskatt vegna álagn-
ingar á því ári hefði verið miðað við
að beinir tekjuskattar einstaklinga
til ríkisins að meðtöldu gjaldi í fram-
kvæmdasjóð aldraðra og að við-
bættum sóknar- og kirkjugarðs-
gjöldum yrðu um 4,3% af
heildartekjum einstaklinga eða 0,3%
lækkun frá 1986. Til viðbótar þess-
ari lækkun hefði ríkisstjómin
ákveðið við valdatöku á miðju
síðasta ári hækkun bamabótaauka
sem svaraði til um 0,1% í skatt-
byrði. Þróun kauplags og verðlags
hefði hins vegar orðið önnur en
ætlað hefði verið í upphafí árs. í
stað um 20% hækkunar á launum
milli áranna 1986-87 liti nú út fyrir
að þessi hækkun yrði 37-38%. Það
leiddi til þess að skattbyrði af tekju-
skatti til ríkisins og öðmm framan-
greindum yrði lægri eða um 3,4% í
stað 4,2%. Þessa sveiflu taldi fjár-
málaráðherra vera dæmi um nei-
kvæð einkenni núverandi skatta-
kerfís.
Vegna breytinga á kauplagi um-
fram verðlag þyrfti að breyta
álagningarreglum ef ná ætti þeirri
skattbyrði sem áformuð væri. Gert
væri ráð fyrir að hækka persónuaf-
slátt, barnabætur og bamabótauka
til að ná því markmiði. í fmm-
varpinu væri gert ráð fyrir að þessir
liðir hækkuðu um 8,7-10% umfram
það sem orðið hefði að óbreyttum
lögum frá því í vor. Útreikningar
sem gerðir hefðu verið fyrir milli-
þinganefndina sýndu að með þessu
álagningarkerfí næðist áformuð
skattbyrði.
Fjármálaráðherra sagði dreifíngu
skattbyrði verða í litlu frábmgðna
því sem nú væri að því frátöldu að
skattleysismörk hækkuðu vemlega.
Slíkt gæti þó ekki orðið nema til
kæmi einhver hækkun hjá öðmm.
Að hluta til kæmi þessi hækkun frá
því að frádráttarliðir væm felldir
niður og skattstofn breikkaður. Að
sjálfsögðu væri ekki hægt að full-
yrða að hvergi yrði um að ræða
breytta skattbyrði enda væri ekki
að slíku marki stefnt nema menn
væm sannfærðir um að núverandi
skattkerfíð væri fullkomið.
Ráðherra taldi að þeirri gagnrýni
að með fmmvarpinu yrði dregið úr
stíganda í skattlagningu mætti vísa
á bug og færði fyrir því ýmis rök.
Sagði hann að draga mætti þá álykt-
un að með breytingum á tekjuskatt-
lagningu í heild væri stefnt að
stöðugri og síst minni stíganda í
skattlagningu en verið hefði.
Fmmvarpið gerði ekki ráð fyrir
að breyta því skatthlutfalli, 28,5%,
sem ákveðið hefði verið á síðasta
þingi. Fmmvarpið gerði hins vegar
ráð fyrir að öðmm álagningarþátt-
um yrði breytt vemlega nefnilega
persónuafslætti, sjómannaafslætti,
bamabótum, barnabótaauka og
húsnæðisbótum.
Þetta hefði áhrif til hækkunar á
skattleysismörkum. Að teknu tilliti
til hækkunar á útsvari og áhrifa
þess á skattleysismörkin mætti gera
ráð fyrir að þau yrðu um 42.500
krónur að jafnaði á einhleyping án
bams en 77.400-85.000 hjá barn-
lausum hjónum eftir því hvort bæði
afla tekna eða ekki.
Fjármálaráðherra vildi einnig
taka upp eitt atriði sem ekki væri
í frumvarpinu. Vakin hefði verið
athygli á réttmæti þess að skatt-
leggja iðgjöld til lífeyrissjóða. Hér
væri um að ræða flókið mál er
tengdist mörgum þáttum í skatt-
lagningu einstaklinga, eignartekna-
skattlagningu og skattiagningu
fyrirtækja. I núgildandi lögum væm
iðgjöld frádráttarbær í orði en í
reynd hefðu þau lítil áhrif þar sem
þau lentu í flestum tilvikum innan
almenns 10% frádráttar. Áhrif
lífeyrisgreiðslna yrðu framvegis
önnur en verið hefðu vegna hærri
persónuafsláttar o.fl. Þetta mál yrði
tekið til sérstakrar endurskoðunar
á breiðari gmndvelli í framhaldi af
endurskoðun skattalaga.
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.-Ne.) sagði að á síðasta ári
hefði náðst samstaða um um fmm-
vörp er tengdust staðgreiðslubreyt-
ingunni. Hann taldi stöðuna nú vera
þannig að margir væm ekki alveg
vissir á því hvað biði þeirra eftir
áramót. Það þyrfti að upplýsa fólk
betur.
Aðstæður nú taldi hann vera
breyttar frá því á síðasta vetri. Þá
hefðu ekki legið fyrir yfírlýsingar
um aðrar breytingar á skattkerfínu.
Talað hefði verið um virðisauka-
skatt en mjög skiptar skoðanir verið
á því máli. Þetta mál sem nú væri
til umræðu væri aðeins hluti af þeim
viðamiklu breytingum sem ætti að
gera.
Steingrímur J. sagðist vilja byija
á því að ræða nokkur gmndvallarat-
riði sem hann vildi taka á. Sagði
hann skattbyrði vegna tekjuskatts-
laganna ekki verða aðskilda frá
skattbyrði vegna óbeinna skatta.
Einnig vildi hann minnast á
vinnubrögð í sambandi við þessi
mál. Ríkisstjórnin og Alþingi hefðu
FRUMVÖRPUM ríkisstjórnarinn-
ar um flutning útgáfu útflutn-
ingsleyfa og Útflutningsráðs
íslands frá viðskiptaráðuneyti til
utanríkisráðuneytis var vísað til
efri deildar í gær. Við afgreiðslu
málsins úr neðri deild var flutt
breytingartillaga frá þingmönn-
um Borgaraflokksins við frum-
varpið um útflutningsleyfi þess
efnis að útflutningur verði gefin
fijáls. Var þessi tillaga felld að
viðhöfðu nafnakalli.
að hans mati fullt fangið við að
afgreiða fjárlög og staðgreiðslulögin
fyrir jól og flækti það málið vem-
lega að taka einnig inn í umræðuna
breytingar á t.d. neyslusköttum.
Ljóst væri að í vændum væri
þynging skatta og kæmist ráðherra
ekki hjá því að viðurkenna að ein-
kenni allra þessara aðgerða væri
þynging skattbyrði hins almenna
skattgreiðanda. Skattbyrði hinna
hæst launuðu myndi aftur á móti
léttast. Ætti þetta sérstaklega við
ef verðbólga færi lækkandi á næstu
ámm.
Þetta frumvarp myndi líka þýða
miklar tilfærslur innan ársins.
Skattar yrðu dregnir frá tekjum
þegar í janúar og tekjur væm skatt-
lagðar að fullu án tillits til vaxtafrá-
dráttar. Honum yrði ekki skilað fyrr
en upp úr miðju ári. Vildi þingmað-
urinn fá að vita hversu mikil
tekjutilfærsla ætti sér þama stað.
Einnig taldi hann að aukin skatt-
lagning á matvæli myndi þýða 7%
hækkun á matarkostnaði vísitölu-
fjölskyldunnar og væri þarna því
um að ræða 20.000 króna auka-
skatt á hana.
Hækkun fasteignamats um 50
milljarða umfram byggingarvísitölu
hefði í för með sér mikla hækkun
á tekjum sveitarfélaganna. Þetta
bæri alit að sama bmnni að hans
mati. Um væri að ræða auknar álög-
ur á hinn almenna skattgreiðanda.
Og svo væm menn hissa á því að
verkalýðshreyfíngin hlypi ekki til
og semdi. Sagði hann allar þessar
aðgerðir, sér í lagi matarskatturinn,
hljóta að torvelda allar sættir á
vinnumarkaðinum.
Steingrímur J. gagnrýndi einnig
ýmis efnisatriði frumvarpsins, m.a.
taldi hann vaxtafrádráttinn vera
með öllu ófullnægjandi.
Óli Þ. Guðbjartsson (B.-Sl.)
sagði það vera miklar skattahækk-
anir sem hér væm að ríða yfir og
væri þetta fmmvarp aðeins „bám-
gjálfur“ miðað við þá holskeflu
skattahækkana sem nú væri von
á. Að hans mati væri það skatt-
byrðin sem væri aðalatriðið. Miðað
við að hún væri 3,4% á þessu ári
og stefnt væri að því að hún yrði
4,2% á næsta ári væri hér um hrika-
lega þyngingu að ræða frá því sem
hefði verið. Nánast um fjórðungs
þynging.
Oli Þ. kynnti næst breytingartil-
lögur Borgaraflokks við fmmvarpið
en þær em í fjórum liðum. Er með-
al annars lagt til maður sem sé að
ljúka starfsævi sinni og skilar inn
til skattayfirvalda skattkorti sínu fái
endurgreiddan tekjuskatt síðustu
tólf mánaða fyrir starfslok. Sama
myndi gilda um mann sem þyrfti
að hætta störfum vegna varanlegrar
örorku af völdum veikinda eða slyss.
Kristín Halldórsdóttir (Kvl.-
Rn.) sagði tollabreytingar þær sem
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, Kjartan Jóhannsson (A.-Rn.)
og Ragnhildur Helgadóttir (S.-Rvk.)
gerðu grein fyrir atkvæði sínu.
Þorsteinn Pálsson og Jón Sigurðs-
son sögðu að hér væri einungis með
þessum fmmvörpum verið að ræða
um flutning þessara verkefna milli
ráðuneyta en ekki skipulag útflutn-
ingsviðskipta. Þeir greiddu því
atkvæði gegn þessari tillögu. Kjart-
an Jóhannsson sagðist lengi hafa
nú væm ráðgerðar ganga gegn allri
réttlætiskennd og fjölskyldustefnu.
Taldi hún furðulegt að það væm
jafnaðarmenn sem stæðu að þessu.
Minnti hún á að fulltrúi Kvennalista
í milliþinganefndinni hefði haft fyr-
irvara á áliti nefndarinnar um ýmis
atriði. Meðal annars teldi Kvenna-
listinn að tíminn sem hún hefði haft
til starfa hefði verði óeðlilega
knappur og að ekki hefði verið reynt
á mörg atriði. Kristín vildi einnig
ítreka þá stefnu Kvennalistans að
sveitarfélögum veitti ekki af því að
fá meiri hækkanir á tekjustofnum
sínum í samræmi við að verið væri
að færa aukin verkefni yfír til
þeirra. Þau ættu jafnvel að fá að
ráða sinni álagningu sjálf.
Hún taldi einnig ófært að per-
sónuafsláttur væri ekki framreikn-
aður mánaðarlega heldur tvisvar á
ári. Það væri ósanngjamt að beita
þeirri aðferð.
Stefán Valgeirsson (SJF-Ne.)
sagði ríkisstjómina nú vera að
hækka vexti stórlega. Taldi hann
vaxtahækkanimar eiga eftir að hafa
veruleg áhrif á verðbólguna og
myndi þessi stefna leiða til þess að
ríkisstjórnin myndi lenda í vandræð-
um með að leysa mál eins og t.d.
húsnæðismálin.
Ríkisstjómin hefði lofað ýmsu
þegar hún tók við völdum, s.s. hóf-
legum raunvöxtum og að dregið
yrði úr launamun, én þær aðgerðir
sem nú væri verið að framkvæma
stefndu að hans mati allar í öfuga
átt. Stefán boðaði að hann myndi
ræða þessi mál ítarlegar þegar mat-
arskatturinn kæmi til umræðu og
myndi hann þá einnig ræða vaxta-
stefnuna og sýna fram á að bankar
réðu engu um vextina þegar ríkis-
stjómin byði ávallt hærri og hærri
vexti. Taldi hann þetta vera strand-
stefnu.
Kjartan Jóhannsson (A.-Rn.)
sem var formaður milliþinganefndar
um staðgreiðslu skatta, sagði menn
í umræðunum hafa sagt að um
skattaþyngingu væri að ræða. Til
dæmis hefði þingmaður Borgara-
flokksins sagt að verið væri að
hækka skattbyrði um fjórðung.
Sagði Kjartan þetta vera rangt og
ef menn skoðuðu útreikninga kæmi
í ljós að alls ekki væri um svona
mikla þyngingu skattbyrði að ræða.
Varðandi dæmi Steingríms J. af
matarkostnaði vísitölufjölskyldunn-
ar þá hefði hann gleymt að taka
með í dæmið að stór hluti af tekjum
þessarar fjölskyldu fæm í kaup á
öðm en matvælum. Ef fram færi
sem horfði myndu margir þessara
útgjaldaliða bera lægri skatta og
tolla og ætti dæmið því að koma út
á sléttu.
Steingrímur J. Sigfússon gagn-
rýndi fjármálaráðherra fyrir að
svara ekki öllum spumingum sem
til hans hefði verið beint. Svaraði
fjármálaráðherra því til að umrædd-
um spurningum hefði annaðhvort
verið svarað af Kjartani Jóhanns-
syni eða svörin væri að fínna í áliti
milliþinganefndarinnar. Steingrím-
ur J. sætti sig ekki við þetta svar
og gengu stjórnarandstæðingar úr
salnum þegar atkvæðagreiðsla um
málið átti að hefjast. Ekki vom
nógu margir stjórnarliðar í salnum
til hægt væri að vísa málinu til
nefndar og var atkvæðagreiðslunni
því frestað.
verið - talsmaður fijálsrar útflutn-
ingsverslunar en þetta mál. væri
flóknara og margþættara en svo að
hægt væri að afgreiða það með þess-
um hætti. Ragnhildur Helgadóttir
sagðist greiða atkvæði gegn þessari
breytingartillögu með vísan til grein-
argerða tveggja ráðherra í ríkis-
stjórn sem hún styddi.
Tillagan var felld með 30 atkvæð-
um gegn 4.
Utflutningsráð og útflutn-
ingsleyfi til efri deildar
Breytingartillaga um frjálsan útflutning felld