Morgunblaðið - 09.12.1987, Page 51
51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
Þessi skemmtilega mynd er tekin fyrir nákvæmlega 20 árum í Sam-
komuhúsinu, en þessar konur sáu um kaffiveitingar á 50 ára
afmælinu.
Garður:
Kvenfélagið
Gefn70ára
Garði.
KVENFÉLAGIÐ Gefn á 70 ára
afmæli í dag, miðvikudag. Af
þessu tilefni verður haldið sam-
sæti í Samkomuhúsinu í kvöld
þar sem konurnar bjóða vinum
og velunnurum félagsins til
kvöldverðar. Þá hafa félagskon-
ur gefið út veglegt rit i tilefni
dagsins.
I ritinu kennir margra grasa.
Formaður félagsins, Sigrún Odds-
dóttir, skrifar ágrip af sögu félags-
ins sl. 70 ár og segir Sigrún svo
frá um nafngift félagsins:
„Það var séra Friðrik Rafnar sem
gaf félaginu hið sögulega nafn
„Gefn“ en það var eitt af dulnöfnum
Freyju ásynju. „Hún á þann bæ á
himni er Fólkvangur heitir,“ segir
í Gylfaginning. Ennfremur segir
þar: „Freyja var systir Freys, en
þau voru böm Njarðar í Nóatúnum.
Þau voru fögur álitum og máttug.
Freyja var ágætust af ásynjum. A
hana var gott að heita til ásta.
Frigg var kona Óðins, henni gekk
næst Freyja. Hún giftist manni
þeim er Óður heitir. Dóttir þeirra
var Hnoss. Óður maður Freyju
hvarf að heiman og leitaði Freyja
hans víða. Á þeirri för gaf hún
sjálfri sér mörg nöfn til að dyljast.
Eitt þeirra var nafnið „Gefn“. Á
þessum fyrsta fundi vom einnig
samþykkt lög fyrir félagið."
Kvenfélagið hefur verið mjög
áberandi í lífi og starfi Garðmanna
þessa áratugi. Finnbogi Bjömsson,
oddviti Gerðahrepps, skrifar í af-
Afmælisrit Gefnar.
mælisblaðið og farast honum svo
orð:
„Kæru Gefnarkonur. íbúar
Gerðahrepps óska ykkur innilega
til hamingju á þessum tímamótum.
Það er ákaflega notalegt fyrir okk-
ur að vita af Gefn í byggðarlaginu,
því Gefnarkonur hafa löngum haft
augun opin fyrir því sem betur
mætti fara. Ferill Gefnar er samof-
inn öllu því sem til framfara og
vegsemdar má telja í Garðinum.
Svo mun einnig lengi verða.
Lifíð heilar."
— Arnór
Jólasýningii Gallerí
Borgar lýkur um helgina
JÓLASÝNINGU leirlistamanna í
Gallerí Borg, Austurstræti 10,
sem opnuð var 3. desember lýkur
sunnudaginn 13. desember.
Á sýningunni eru verk tólf leir-
listamanna. Kaupendur geta tekið
hlutina með sér strax og ný verk
koma þá í staðinn.-
Sýningin er opin kl. 10-18 virka
daga og kl. 14-í8 um helgina.
7 Flymo rafknúinn E 30
Ginge handsláttuvólar
Lipurtá BS 40 300
' Flymo E 38
Snotra 46
Lipurtá BS 40
500 mJ
Flymo L 38
Snotra 46
Ginge valsasláttuvól m/driti
700 m!
Flymo L47
Snotra m/grassatnara
Ginge þyrlusláttuvól m/drifi
1000 m:
Hjá okkur færðu allar
stærðir af sláttuvélum f úrvali.
Rafmagnsvélar og tví.
jengisvélar. Allar bensínvélqr
meo rafeindakveikju. Við
SL7
Snotra UFO
B&S motor
Flymo E38
Flymo '
,Æ
jm
Flymo
RE40
r ; LsláfKytól, sem hentar þér og\
garSL
; .;... ''w...,.:É<i.rö»';og Visakjör., . / f.,
•'.Éngin.útborgoh,:. \.\ .* .
: : > :; ■ ^gfeiðslaskípHst djjéíá ; l \
Flymo
L47
Vélorf Zenoah
markaöurínn
Smiðjuveguc 30 E-gata Kóp'
Símar 77066 og 78600
Flymo L38