Morgunblaðið - 09.12.1987, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
Frá undirritun sanmingsins.
Hitaveita Suðumesja kaupir hlut
ríkisins í Sjóefnavinnslunni
FRIÐRIK Sophusson iðnaðarráðherra og Jón Baldvin Hannib-
alsson fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs og Finnbogi
Bjömsson stjórnarformaður, fyrir hönd stjórnar Hitaveitu
Suðurnesja, undirrituðu á laugardag samning um kaup Hita-
veitunnar á hlutabréfum ríkisins í Sjóefnavinnslunni hf. Um
er að ræða 84% af heildarhlutafé Sjóefnavinnslunnar.
Salan á hhitabréfum ríkisins í hafnasvæði. Iðnaðarráðherra
félaginu á sér stað í kjölfar ák-
vörðunar iðnaðarráðherra og
§ ármálaráðherra um að endur-
skipuleggja Ijárhag Sjóefiia-
vinnslunnar hf. og selja eignar-
hluta ríkissjóðs. Meginatriði
þessarar endurskipulagningar eru
að hlutafé félagsins hefur verið
fært niður og er nú 4 milljönir
króna, en þar af nemur hlutafé
ríkisins tæpum 3,4 milljónum.
Ríkissjóður léttir af Sjóefnavinnsl-
unni hf. öllum skuldum við
endurlánareikning ríkissjóðs og
ríkisábyrgðarsjóðs, svo og skuld
við Sparisjóð Keflavíkur, samtals
að Qárhæð 530 milljón krónur,
en félagið hefur í þessa stað gefið
út til ríkissjóðs verðtryggt veð-
skuldabréf að Qárhæð 70 milljón
krónur. Hlutafé Sjóefnavinnsl-
unnar hefur verið aukið um 50
milljónir með hlutafjárútboði og
hefur Hitaveita Suðurnesja skrif-
að sig fyrir allri htutafjáraukning-
unni. Sjóefnavinnslan hf. mun á
næstu árum eigi vetja lægri fjár-
hæð en 2 milljónum króna af fé
félagsins á ári til að kynna hér á
landi og erlendis möguleika til
efnavinnslu og annars iðnreksturs
á athafnasvæði félagsins.
Sjóefnavinnslan hf. hefur
skuldbundið sig til að greiða ríkis-
sjóði samtals 150 milljónir króna
á verðlagi nóvembermánaðar
1387 með 7,5% af rekstrarafgangi
sínum. Gerður hefur verið við-
aukasamningur milli félagsins og
ríkisins um land og landsréttindi,
sem tryggir félaginu aukið at-
hefur samkvæmt heimild í 4. grein
laga nr. 62 frá 1981 veitt Sjóefna-
vinnslunni hf. leyfí til raforku-
virkjunar vegna iðnrekstrar á
vegum félagsins allt að 5 MW til
viðbótar núverandi virkjun félag-
ins.
í frétt frá Iðnaðarráðuneytinu
segir að með þessari sölu hafi
náðst þau þríþættu markmið sem
unnið hafí verið að: Að hætt verði
beinum afskiptum ríkisins af fé-
laginu og það starfí framvegis
eftir almennum lögum. Að endur-
skipulagt félag verði áhugaverð
Qárfesting og hafí traustan
rekstrargrundvöll. Að félagið
haldi áfram að rannsaka nýtingu
jarðgufu til efnavinnslu og annars
iðnaðar og hafí fjárhagslega getu
til uppbyggingar.
Samtök gegn hávaða stofnuð:
Fólk er fyrst og
fremst þreytt á
tónlistarsíbyljuimi
- segir Steingrímur Gautur Krist-
jánsson í stjórn samtakanna
SAMTÖK gegn hávaða voru sett á laggimar sl. sunnudag. Markmið
þeirra er að koma af stað umræðu um hverskyns óþarfa og heilsu-
spillandi hávaða og berjast gegn honum, að sögn Steingríms Gauts
Kristjánssonar borgardómara en hann var kosinn í stjóra samtak-
anna, ásamt Svanhildi Konráðsdóttur, Kristínu Bjaraadóttur, Stefáni
Edelstein og Atla Heimi Sveinssyni. Samtökin eru einskonar grasrótar-
samtök, að sögn Steingríms, og því enginn kosinn formaður þeirra.
Að sögn Steingríms var eftirfar- klögumála. Jafnframt beinir fundur-
andi áskorun samþykkt af fundar-
mönnum: „Fundurinn skorar á
verslunarmenn og aðra sem komið
hafa fyrir gjallarhomum á almanna-
færi, m.a. til að vekja athygli á
vamingi sínum, að láta af því hátta-
lagi, án þess að koma þurfi til
inn því til rekstraraðila strætisvagna
og sundstaða að hætt verði að út-
varpa tónlist um gjallarhom í
almenningsvögnum og á sundstöð-
um.“
„Fólk virðist fyrst og fremst vera
orðið þreytt á tónlistarsíbyljunni,"
sagði Steingrímur. „En menn eru
einnig orðnir þreyttir á hávaða frá
t.d. flugvélum og bifreiðum. Yið
höfum nú þegar sett nefnd í að tala
við flugmálastjóra um það hvort
ekki sé hægt að minnka hávaða frá
Reykjavíkurflugvelli en menn hafa
sagt mér að flugvélar fljúgi t.d. of
lágt hér í aðflugi," sagði Steingrím-
Jólakort Harðar komin út
ÍÞRÓTTADEILD hestamanna-
félagsins Harðar í Kjósarsýslu
hefur gefið út jólakort. A kort-
inu er mynd sem Ragnar
Axelsson ^jósmyndari hefur tek-
ið á Fimmvörðuhálsi.
Þetta er þriðja árið sem íþrótta-
deildi hestamannafélagsins
Harðar gefur út jólakort. Agóði
af sölu kortanna rennur til starf-
semi deildarinnar.
Jólafrí-
*
merki UIA
UNGMENNA- og íþróttasam-
band Austurlands hefur gefið út
jólafrímerki. Ólöf Blöndal lista-
kona á Egilsstöðum teiknaði
merkið en Héraðsprent sf. prent-
aði.
Á merkinu er mynd af Eiða-
kirkju, en nýlega var þess minnst
að 100 ár eru liðin frá vígslu henn-
ar.
Jólamerkin eru til sölu hjá ung-
menna- og íþróttafélögum á
Austurlandi og á skrifstofu UÍA á
Egilsstöðum. I Reykjavík eru merk-
in seld I Frímerkjahúsinu og
Frímerkjamiðstöðinni.
Hluti þess fólks sem vann munina. Guðrún Guðmundsdóttir er
lengst til vinstri.
Skagaströnd:
Aldraðir sýna
handavinnu sína
Skagaströnd.
FÉLAGSSTARF aldraðra er í
töluverðum blóma í Skaga-
strönd. Nú nýverið héldu
aldraðir sölusýningu á mun-
um sem þeir hafa unnið undir
stjóm leiðbeinanda síns Guð-
rúnar Guðmundsdóttur. Á
sýningunni kenndi margra
grasa og seldust munirnir vel
enda unnir af miklum hagleik.
Á meðan sýningin stóð yfir
stóðu kvenfélagskonur fyrir
kaffisölu til að fólk gæti gert
sér dagamun.
Félagsstarfí aldraðra er þann-
ig háttað að fólkið hittist tvisvar
í viku og vinnur saman að hugð-
arefnum sínum frá kl. 13 til 17.
Bæði karlar og konur hafa sótt
þessa starfsemi og sagði Guðrún
leiðbeinandi að um 15 manns
væru nú í hópnum og færi stöð-
ugt fjölgandi. Aðsókn að sýning-
unni var mjög góð eða um 120
manns og var Guðrún ánægð
með sýninguna og söluna.
- ÓB.
Margt muna var á sýningunni.
Morgunblaðið/ÓIafur Bemódusson
Selfoss:
Tvær saumastofur starfandi
*
Selfossi.
SAUMASTOFAN Astra á Selfossi hefur verið starfrækt af Sjóklæða-
gerðinni í Reykjavík síðan í ágúst 1986, þegar Sjóklæðagerðin keypti
saumastofuna. Þar vinna nú 33 konur en alls eru 22 heilsdagsstörf
hjá Östru.
Þann 1. mars á þessu ári flutti
Sjóklæðagerðin starfsemi Östru í
nýtt húsnæði að Gagnheiði 15,
keypt af saumastofu Henson, Hens-
el,' sem hætti starfsemi á síðastliðnu
ári. Hjá Östru er framleiddur skjól-
og vinnufatnaður.
Önnur saumastofa, Sunna, hefur
verið starfrækt á Selfossi síðan í
maí. Hún var áður á Hvolsvelli. Hjá
Sunnu hefur verið saumaður ullar-
fatnaður til útflutnings fyrir
Álafoss. Þar unnu 20 manns þegar
flest var í sumar en núna vinna þar
7 starfsmenn. Ástæða fækkunar
starfsmanna er að Sunna hefur
ekki fengið nein verkefni frá Ála-
foss.
í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins var sagt að Astra hefði verið
lögð niður en það rétta er að Astra
er ekki lengur í ullariðnaði.
— Sig.Jóns.
Morgunblaðið/Siguiéur Jónsson
Hjá saumastofunni Östru starfa 33 konur. Á myndinni eru nokkrar
þeirrá við vinnu.