Morgunblaðið - 09.12.1987, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
Jóhann Árni Guð-
laugsson — Minning
Fæddur 10. júní 1912
Dáinn 7. nóvember 1987
Það voru heldur döpur tíðindi
sem síminn færði okkur hjónum
árla morguns laugardaginn 7.
nóvember. Þá voru okkur færð
þau tíðindi að einn bestu vina
okkar Jóhann Ámi Guðlaugsson,
Reykholti, væri látinn. Árni G.
hafði naustað skip sitt. Öllum
að óvörum barst honum kallið
-mikla.
Hann og við öll vinir hans
höfðum fengið aðvörun, en ég
held að engan hafí grunað að svo
stutt væri skapadægranna að
bíða. En sá er gaf honum lífíð
og hefur einnig gefíð okkur það,
hann sendi sendiboða sinn til
hans á Ijúfan og geðþekkan hátt.
Hann sagði: „Komdu nú bamið
mitt. Þessi stund er þín stund.
Gakk þú nú inn til fagnaðar
míns og til samfunda við vinina
sem ég hefí áður kallað." Og
þessi ljúfí og góði vinur brást
fljótt við og hann var skjótur í
heimanbúnaði sem oft áður er
til hans var kallað. Og nú erum
við eftir skilin um sinn. Það er
tómleiki í hug og hjarta og stórt
og mikið skarð sem seint mun
fyllast. Við höfum öll mikið misst
en þá er líka að geta þess að við
höfum mikið átt.
Ég er orðinn of gamall til að
sakast við Drottinn minn og Guð
minn. Og ég veit líka að honum
sem hér hefur kvatt, myndi ekki
vera það að skapi. En mikið hefð-
um við nú viljað hafa þetta á
annan hátt.
Örlögin eða hvað sem það
annars er valda því að við hjónin
gátum ekki fylgt honum síðustu
sporin. En hugur okkar var með
honum og ástvinunum hans. Um
leið og við kveðjum þennan
mæta vin og góða dreng með
innilegri þökk fyrir hina löngu
og tryggu vináttu biðjum við Guð
t
Ástkær systir, móðir, tengdamóðir, amma og iangamma,
SIGURBORG KARLSDÓTTIR,
Skarphéðinsgötu 12,
lést í Landakotsspítala 7. desember.
Ragnheiður Karlsdóttir,
Hörður Hákonarson, Þórdís Sveinsdóttir,
Ragnheiður Edda Hákonardóttir,
Guðbjörg K. Hákonardóttir, Birgir Scheving,
Kristín H. Hákonardóttir,
Anna M. Hákonardóttir,
Guðborg H. Hákonardóttir, Sigtryggur Stefánsson,
Jón Hákonarson,
Þorsteinn Hákonarson,
Guðrún S. Hákonardóttir, Gylfi Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Bróðir okkar,
HÖRÐUR ÁGÚST HJÖRLEIFSSON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu í Kaupmannahöfn þann 7. des.
Sjöfn Hjörleifsdóttir,
Vilhjálmur Hjörleifsson,
Hjördís Hjörleifsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐBERGUR S. GUÐJÓNSSON
frá Ásgarði i Grimsnesi,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 7. desember.
Jarðsett verður frá Bústaöakirkju þriðjudaginn 15. desember kl.
13.30.
Ingveldur Stefánsdóttir,
Guðjón Stefán Guðbergsson, Sigriður Hjartar,
Hjörtur Stefánsson, Bergur Stefánsson,
Hlynur Stefánsson.
Eiginmaður minn,
ODDUR KRISTJÁNSSON,
Hlíðarvegi 27,
Kópavogi,
sem andaðist 3. desember sl. verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju föstudaginn 13. desember kl. 13.30.
Blóm afþökkuð.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Barnaspítalasjóö
Hringsins.
Þorgerður Hermannsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan vinarhug og samúð við andlát
og jarðarför eiginkonu minnar,
KRISTBJARGAR TRYGGVADÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Grænuhlíð 13, Reykjavík.
Sæmundur Jónsson.
Jónbjörn Magnús-
son — Kveðjuorð
að blessa hann og ástvini hans.
Við notum orð Rjtningarinnar:
„Sárt trega ég þig bróðir
minn ... mjög varstu mér hug-
ljúfur." 2. Sam. 1,26.
Stefán Snævarr
Fæddur 3. ágúst 1967
.Dáinn 14. nóvember 1987
Það var 16. ágúst síðastliðinn
að vinur okkar, Jónbjöm Magn-
ússon, lenti í alvarlegu umferðar-
óhappi. Hann var vel kominn á
bataveg, þegar hann var svo
skyndilega kallaður burt.
Það er erfítt að sætta sig við
fráfall góðs vinar, en það er ekki
fyrr en einhver sem er manni
kærkominn deyr, að maður gerir
sér grein fyrir þeim áhrifum sem
dauðinn getur haft í för með
sér. En tilgangurinn með því að
kalla burt svo urigan og lífsglað-
an mann, sem Jómbi var, komum
við seint til með að skilja.
Það fór alltaf lítið fyrir Jómba,
en samt vissum við alltaf af hon-
um þegar hann var nálægt. Hann
kvartaði aldrei yfir nokkru held-
ur tók öllu með stakri ró og
yfirvegun. Gleði og ánægja áttu
stóran þátt í honum og hann
hafði einstakt lag á að koma
■■ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, h
SIGURJÓN MARÍASSON
er andaðist 2. desember verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 10. desember kl. Fyrir hönd vandamanna, 15.00.
Erlingur Þór Sigurjónsson, Þuríður Sigurjónsdóttir, Fjölnir Sigurjónsson, Lára Hafsteinsdóttir,
Anna Sigurjónsdóttir, Jón Hákonarson,
Sigríður Sigurjónsdóttir, Birgir Sigurjónsson, Lárus Jónsson, Maria Finnbogadóttir
og barnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
LAUFEYJAR SIGFINNSDÓTTUR,
Grænukinn 7.
Garðar Kristjánsson,
Guðni Kristjánsson,
Reynir Kristjánsson,
Jóhann Kristjánsson,
Ásta Kristjánsdóttir,
Ásta Jónsdóttir,
Rannveig Kjærnested,
Elínborg Sigurbjörnsdóttir,
Klara S. Árnadóttir,
Logi Knútsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur sam-
úð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar og bróður,
GUÐMARS GUÐMUNDSSONAR,
Nesgötu 32,
Neskaupstað.
Dagmar Þorbergsdóttir, Guðmundur Stefánsson
og systur.
manni í gott skap og sáum við
hann aldrei öðru vísi en glað-
beittan og brosandi. Það er líka
þannig sem við munum alltaf
minnast hans.
Nú þegar Jónbjöm er farinn
rifjast upp þær stundir sem við
eyddum saman. Þær eru ótal
margar og þær koma aldrei til
með að líða okkur úr minni.
Við söknum vinar okkar sárt
og með veikum mætti munum
við í tímans tönn reyna að fylla
það stóra tóm sem hann skildi
eftir. Minningin um hann mun
lifa með okkur um ókomna tíð.
Við viljum votta fjölskyldu
hans, ættingjum og öðrum að-
standendum okkar dýpstu samúð
og megi Guð styrkja þau í sinni
miklu sorg.
Ingvar og Halla Rut
Reykhólasveit:
Vinsælt að
köggla hey
Miðhúsum, Reykhólasveit. .
HEYKÖGGLUNARBÍLL frá Ak-
ureyri hefur verið hér að
undanförnu en hann tekur
þurrkað hey úr hlöðum bænda
og malar heyið og kögglar.
Bændur eru farnir að nota þessa
þjónustu í vaxandi mæli og blanda
sumir um 5% af fiskimjöli saman
við heyið en aðrir hafa sett þang-
mjöl. Kostnaður á hvert kíló er 4
krónur og virðist þessi aðferð eiga
vinsældum að fagna því að fleiri
láta köggla hjá sér hey en í fyrra
og í meira magni.
— Sveinn
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
bróður okkar,
GUÐMUNDARKR. GUÐMUNDSSONAR .
frá Stóra-Nýjabæ, Krisuvik.
Sigurður Guðmundsson, Vilhjálmur Guðmundsson,
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Þuriður Guðmundsdóttir,
Guðrún E. Guðmundsdóttir, Þórlaug Guðmundsdóttir.
t
Þökkum Innilega hlýhug og samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐFINNU JÓNSDÓTTUR,
Miðtúni 13,
Selfossi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.