Morgunblaðið - 09.12.1987, Qupperneq 70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
fclk í
fréttum
Chile
Ofurmenni til bjargar málunum
Christopher Reeve sem enn lifir
á fomri Ofurmennisfrægð, er
nú staddur í Chile, starfsbræðrum
sínum úr leikarastétt til stuðnings.
Þeim hafa borist líflátshótanir frá
hægri öfgasamtökum, þó ekki
stjómvöldum, og sendu bandarískir
kollegar Christopher með stuðn-
ingsyfirlýsingu við leikarana.
Urðu þeir glaðir mjög þegar hann
birtist en líklega hefðu þeir helst
viljað aðstoð Ofurmennis ef þess
hefði verið nokkur kostur. Myndin
er tekin á blaðamannafundi sem
hann boðaði til við komu sína.
- V
Reuter
Öndvegiskokkur
Harry
hættir
í Hvíta
húsinu
Harry Haller er mikill öndvegis-
kokkur, af svissnesku bergi
brotinn og hefur þjónað banda-
rískum forsetahjónum dyggilega
síðastliðið 21 ár enda notið hand-
leiðslu og stjómunar fimm fyrir-
myndarhúsmæðra sem allar hafa
borið hag heimilisins fyrir btjósti.
Harry lét nýlega af störfum fyrir
aldurs sakir og hefur nú gefið út
bók sem ber heitið „Fjölskyldumat-
reiðslubók Hvíta hússins" og hefur
að geyma „tvær aldir af uppskrift-
um, slettu af endurminningum og
ögn af sögu.“
Harry gefur frú Nancy góð ráð
um hvernig best sé að matreiða
handa Gorbatsjov-hjónunum.
Vonandi tekst henni betur til en
Margréti Danadrottnigu.
Sýningarfólkið, talið frá vinstri: Frú Charles Ferm, frú Harry
Hall, David Hall, Gail Miskew, eigandi Hildu-verslunarinnar i
Kansas, frú F. Mortimer LeValley, frú Faith Whitley, formaður
kvennadeildarinnar og Vigdís Taylor ræðismaður. Krjúpandi eru
Kristin Jónína Taylor og Donna Round, en hún stjórnaði sýning-
Eddié Murphy
Vandfundin
næturgisting
Eddie Murphy er enginn aura-
púki eins og áður hefur komið
fram í þessum dálki. Hann heldur
áfram að spreða peningunum eins
og óður sé og um daginn skildi
hann eftir sig slóð seðla og hótel-
lykla um alla San Fransiskoborg
er hann var þar á ferðalagi og
þurfti að leita sér að næturgistingu.
Fyrst lá leiðin á fjögurra stjömu
hótel en honum líkaði ekki svítan
og yfírgaf hótelið samdægurs, þó
ekki fýrr en hann hafði greitt hótel-
reikning fyrir næturgistinguna vpp
á 27.000 kr. Þaðan fór hann á enn
fínna hótel en fannst skrautið hreint
ekki nógu mikið „ég vil meira svona
Hollywoodglys, svona ljósakrónur
og svoleiðis, ha?“ sagði vinurinn og
greiddi 48.000 krónur án þess að
gista. Loks hillti undir næturstað
Eddies enda áliðið kvölds. Fer eng-
um sögum af hóteli því er hann
áleit nægilega skrautlegt en fyrir
næturgistinguna greiddi hann um
60.000 kr. og svaf vært það sem
eftir lifði nætur. Og reyndar einnig
næstu nótt en eftir tveggja daga
dvöl í San Fransisko var reikningur-
inn fyrir mat og gistingu orðinn
800.000 króna hár, án ljósakróna
og kominn tími til að halda heim á
leið.
Skandinavíufélagið í Kansas
Islenska ullin
sýnd í Kansas
Kvennadeild „The Scandina-
vian Club of Greater Kansas
City“ er félag stofnað til að stuðla
að auknum samskiptum Norður-
landa og Bandaríkjanna. Það hélt
í lok síðasta mánaðar tískusýn-
ingu til að kynna ísland og voru
sýndar ullartískuvörur frá Hildu
í Milbum-sveitaklúbbnum í Over-
land Park í Kansasfylki. Meðal
þeirra sem sýndu vom ræðismað-
ur íslands, Vigdís A. Taylor og
dóttir hennar Kristín Jónína.
Reuter
"t Harðjaxlinn Robert Michum.
Eddie sefur svefni hinna réttlátu á bedda á ónefndu hóteli í San
Fransisko.
Christopher ásamt chileönskum starfsbræðrum sinum.
Kvikmyndastjörnur
Robert Micthum ber árin
sjötíu með sóma og sann
Robert „Stríðsvindur" Mictchum, ein af síðustu stórstjömum
Hollywood, er enn á fullri ferð þó lítið hafi heyrst frá honum
að undanfömu. Hann hefur nú nýlokið við leika í fjórum þáttum af
hinum geysivinsæla „The Equalizer". Hvaða hlutverk hann hafði þar
með höndum er okkur ókúnnugt um en það kemur væntanlega í ljós
þegar sýningar á þáttunum verða hafnar á nýjan leik. Robert, sem
er orðinn sjötugur, lætur engan bilbug á sér finna, „ég dey ekki
vegna of mikillar vinnu, en ég hrekk víst fljótlega upp af ef ég hef
ekkert að gera.