Morgunblaðið - 16.12.1987, Page 48

Morgunblaðið - 16.12.1987, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 16, DESEMBER 1987 Brotist inn í verslunarhús BROTIST VAR inn í verslun- arhús við gömlu brúna yfir Fnjóská í gærmorgun, en verslunin er í eigu Háls- hrepps. Málið er að fullu upplýst hjá Rannsóknarlögreglunni á Akur- eyri. Engu var stolið og lítið skemmt, en að verki voru tveir akureyrskir piltar um tvítugt. Grafíksýn- inguaðljúka Grafíksýningu níu grafík- listamanna í Glugganum galleríi lýkur nk. sunnudags- kvöld 20. desember. Glugginn gallerí er til húsa á Glerárgötu 34, 1 hæð. Galleríið er opið frá kl. 14.00 til 20.00 alla daga vikunnar. Þórey Eyþórsdóttir Morgunbiaðið/GSV Gallerí AllraHanda Nytjalist opnað GALLERÍ AllraHanda Nytjalist hefur verið opnað á Brekku- götu 5 á Akureyri og er það Þórey Eyþórsdóttir, formaður félagsskaparins Nytjalistar, sem stendur fyrir því, en félag- ið var stofnað fyrir um þremur árum. Auk sýningarsalarins er i húsnæðinu lítil verslun og vefstofa Þóreyjar, en auk þess að vera talmeinakennari hefur hún lært til handavinnu- og vefnaðarkennara. Þórey sagðist í samtali við Morgunblaðið taka muni alls stað- ar að í umboðssölu. „Ég vil ekki krefjast margra ára menntunar af því fólki sem fær mér listmuni sína, svo framarlega sern ég fæ fallega og vandaða hluti. Ég ætla að leggja sérstaka áherslu á frum- lega og vandaða muni annars vegar og hinsvegar þjóðlega. hluti.“ Galleríið var formlega tekið í notkun sl. laugardag, en Þórey ætlar að opna það nk. fimmtudag, viku fyrir jól, og verður það opið eftir hádegi fram að jólum. Eftir jólin verður galleríið opið á föstu- dögum eftir hádegi og á laugar- dögum fyrir hádegi. Þegar félagið Nytjalist var stofnað upprunalega, fyrir þremur árum, fékk það inni í gamla út- varpshúsinu við Norðurgötu. Þaðan flutti - félagið í Hafnar- stræti en síðan í sumar hefur það verið á hrakhólum. Það síðasta sem félagið stóð fyrjr var að taka á móti norrænni heimilisiðnaðar- sýningu, sem sett var upp í Amtsbókasafninu. Til að koma í veg fyrir að félagsskapurinn legð- ist af, var ákveðið á aðalfundi fyrir nokkru að fela Þóreyju um- sjón með galleríi og tæki hún meðal annars að sér muni félags- manna í umboðssölu. 20-40% hækkun á ullarvörum Álafoss hf.: Undirboð kippa stoðunum end- anlega undan ullariðnaðinum — segir Jón Sigurðarson forstjóri JÓN Sigurðarsón, forstjóri hins nýja fyrirtækis Álafoss hf., sagði í samtali við Morgunblaðið i gær að stefnan væri að hækka verð á íslenskum ullarfatnaði frá þetta 20% og upp í 40%. Verðhækkunin væri misjöfn eftir mörkuðum, en búast mætti við mestri verð- hækkun á ferðamannamarkaði hér innanlands. „Það byijar að reyna á verðhækk- animar í janúar- eða febrúarmán- uði, en einn er sá markaður sem mjög augljóslega er hægt að ná verðhækkunum á og það er innan- landsmarkaðurinn hér heima fyrir erlenda ferðamenn. Ljóst er að verðhækkun innanlands verður í efri kantinum, þetta 40%, en afar þýðingarmikið er að önnur fyrirtæki verði ekki með undirboð á ullar- mörkuðunum, því þá kippa þeir fótunum endanlega undan ullariðn- aðinum, bæði okkur og sjálfum sér,“ sagði Jón. Forstjóri og forsvarsmenn hins nýstofnaða fyrirtækis, Álafoss hf., áttu fund á Sauðárkróki í fyrradag með fulltrúum allra pijóna- og saumastofa á Norðvesturlandi. Til fundarins var boðað fyrir forgöngu iðnráðgjafa Norðurlands vestra. Jón sagði að öll þessi pijóna- og sauma- stofufyrirtæki hefðu flest haft veruleg verkefni frá gamla Álafossi í Mosfellsbæ á meðan ullariðnaðar- deild SÍS hefði búið að eigin framleiðslugetu. „Þessi fyrirtæki voru fyrst og fremst að kynna sig og kynna hvaða þjónustu þau gætu boðið nýja fyrirækinu og fyrir okk- ur var þetta kærkomið tækifæri. Við ræddum um nauðsyn þess að ná verði verulega upp á við á ullar- iðnaðarmarkaðnum, enda er það ónauðsynlega lágt á íslenskum pijónavarningi, meðal annars hér innanlands. Þar sem Álafoss hf. er nú stærsta fyrirtækið í ullariðnaði, fannst okkur síður en svo óeðlilegt að skýra öðrum fyrirtækjum frá okkar verðstefnum. Ef við náum upp aukinni sölu hlýtur sá árangur að skila sér jafnframt í auknum Jón Sigurðarson verkefnum til þessara sauma- og pijónastofa. Þessar viðræður okkar við smærri fyrirtækin eru ekki að- eins hundnar við Norðurland vestra, heldur reiknum við með að fara um landið þvert og endilangt og ræða við alla þá forráðamenn sauma- og pijónastofa alls staðar þar sem við náum í þá.“ Við skýrðum fulltrúum fyriitækj- anna á Norðurlandi vestra jafn- framt frá því að við munum ekki fjárfesta í aukinni afkastagetu í pijóni eða saumi. Ef hinsvegar vel tekst til með sölu, munum við hafa verkefni handa þessum fyrirtækj- um. Við getum þó ekki ábyrgst áframhaldandi samvinnu fyrr en verkefni eru í höfn og salá hefur átt sér stað. Ljóst er að mikið óvissuástand ríkir hjá okkur þessa stundina í sölu- og verkefnamálum þar sem ekki hefur verið gengið frá samningum við Sovétríkin ennþá. Ekki voru íjárveitingar komnar á hreint til kaupa á íslenskum ullar- viirum, en teknar verða upp viðræð- ur aftur um leið og það liggur á borðinu. Það er of seint að fara af stað með samningaviðræður þegar komið er fram á næsta ár svo við vildum helst geta lokið þessum við- ræðum fyrir áramót, enda erum við á kafi í verðlagningarmálum þessa dagana. Við bíðum eftir svari um hvort fjárveiting hafi fengist til að Sovétmenn geti staðið við viðskipta- samning ríkjanna. Fyrr en samið hefur verið við Rússa, ríkir algjör óvissa um verkefnastöðu nýja fyrir- tækisins," sagði Jón Sigurðarson. BETRA VÖFFLUJÁRN FRÁ ÍPlrfrWM=yr| allt sem þarf til að gleðja heila fjölskyldu. V-þýsk gæðavara sem endist og endist.... Vöruhús járn og glervörudeild - Akureyri Ljósa- úrvalið er í Raforku RAFORKAHF., Glerárgötu 32, sími 21867 Jólagjafir, jólakort, jólaskraut, klippimyndir. VISA KOMPÁN SKIPAGÖTU 2 • AKUREYRI SIMI 96-2 59 17 FJARSTÝRÐIR BÍLAR MIKIÐ ÚRVAL HAFNARSTRÆTI 96 - SlMI 96-27744 AKUREYRI Rjúpna- veiðimenn Eigum öryggisblys í átta skota pakkningum. Póstsendum um land allt. SANDFELL HF Veiðarfæri - útgerðarvörur v/Laufásgötu, sími 96-26120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.