Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Tekjuáætlun fjár-
laga óvenju nákvæm
— segir fjármálaráðherra
JÓN Baldvin Hannibalsson fjánnálarádherra segir að tekjuáætlun
fjárlagafrumvarpsins muni hiékka óvenjulega lítið við þessa fjárlaga-
afgreiðslu og mjög auðvelt sé að meta skattstofninn varðandi tolla,
vörugjald og söluskatt. í umræðum um frumvörp um söluskatt, tolla
og vörugjald á Alþingi á miðvikudagskvöld taldi Eyjólfur Konráð
Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að tekjur vegna þessara
skatta yrðu meiri en áætlað er og lagði tál að skattarnir yrðu lækkaði
Pjármálaráðherra sagði við muni hækka óvenjulega lítið frá
Morgunblaðið að það væri verkefni
Þjóðhagsstofnunar að meta tekju-
stofnana fyrir þriðju umræðu fjár-
laga og þar með eftirspumaráhrif
þessara skattkerfísbreytinga og
veltubreytingar í þjóðfélaginu mið-
að við reynslu þessa árs. Þessi
endurskoðaða tekjuáætlun lægi
ekki fyrir í endanlegri mynd, en
samkvæmt mati fjármálaráðuneyt-
isins og Þjóðhagstofnunar, á
grundvelli bestu fáanlegra upplýs-
inga undanfama daga og vikur,
væri ekki að vænta mikilla breyt-
inga á tekjuhiið.
Fjármálaráðherra benti á að
verðlagsforsendur Qárlagafrum-
varpsins væm ekki byggðar á
meðalverðlagi yfírstandandi árs,
eins og oftast áður, heldur áætluðu
verðlagi 1988. Þess vegna sýndist
honum að niðurstöðutölur fjárlaga
fiTimvarpi til laga, eða um 3%.
Eyjólfur Konráð nefndi einnig í
ræðu sinni að ríkið færði framlög
sín í eigin sjóði sem gjöld en ekki
eignir, og því væri niðurstaða ríkis-
reikninga í raun jákvæð. Fjármála-
ráðherra sagðist ekki vilja blanda
sér í innanflokksdeilur sjálfstæðis-
manna, en hann hefði bent á það,
við þessar umræður, að formaður
Sjálfstæðisflokksins hefði þegar
vísað þessum skoðunum Eyjólfs
Konráðs á bug og kallað þær bók-
haldsbrellur. „Það er ljóst að
vandinn í ríkisijármálum verður
ekki leystur með slíku enda get ég
ekki séð að breytt uppsetning á
bókhaldi A-hluta fjárlaga breyti
einu eða neinu um þann vanda sem
verið er að tala um, eða hvaða
breytingar slíkt hefur á tekjuöflun-
aráætlun ríkisstjómarinnar," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
Gaukur Jörundsson kjöriiui
umboðsmaður Alþingis
GAUKUR Jörundsson, prófess-
or, var á fundi sameinaðs þings
i gær kjörinn umboðsmaður
Alþingis tQ næstu fjögurra ára.
Hann tekur við embættinu í
byrjun næsta árs og er fyrsti
maður til að gegna þvi. Umboðs-
manni Alþingis er ætlað,
samkvæmt lögum sem sam-
þykkt voru á siðasta þingi, að
gæta réttar einstaklinga gagn-
vart stjórnvöldum.
Fimmtíu þingmenn vom við-
staddir atkvæðagreiðsluna í gær.
Gaukur hlaut 40 atkvæði, 9 sátu
hjá og Benedikt Blöndal, hæsta-
réttarlögmaður, hlaut eitt at-
kvæði.
Gaukur er fæddur í Reykjavík
þann 24. september 1934. Hann
lauk prófi frá lagadeild Háskóla
íslands áríð 1959 og stundaði
framhaldsnám í Osló, Kaup-
mannahöfn og Berlín. Hann var
ráðinn lektor við lagadeild HÍ
1967, skipaður prófessor 1969 og
varði doktorsritgerð árið 1970.
Hann var kjörinn í Mannréttinda-
neftid Evrópu árið 1974 og situr
þar enn. Síðasta hálfa- árið hefur
hann verið settur hæstaréttardóm-
ari.
Gaukur Jörundsson
Eiginkona Gauks er Ingibjörg
Eyþórsdóttir og eiga þau hjón tvö
böm.
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Borgarfulltrúarnir Vilhjálmur G. Vilhjálmsson og Arni Sigfússon kynna tillöguna nm textasíma,
Vilhjálmur á táknmáli en Árni les. Eins og sjá má á myndinni er Vilhjálmur að tala um síma.
Textasímar fyrir heymarlausa
BORGARSTJÓRN hefur samþykkt að veija 120.000 krónum til
kaupa á textasímum fyrir heymarlausa á þjónustustofnunum
Reykjavikurborgar. Það voru borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins sem lögðu fram tillöguna og var hún samþykkt með 15
samhljóða atkvæðum.
Það var Vilhjálmur G. Vil-
hjálmsson borgarfulltrui sem
kynnti tillöguna og flutti hann
ræðu sína á táknmáli, enda marg-
ir heymarlausir á áheyrenda-
bekkjum. Las Ámi Sigfússon,
borgarfuiltrúi, samtímis ræðu
hans.
í ræðu Vilhjálms kom fram, að
með textasímanum hefði orðið
bylting í samskiptamöguleikum
heymarlausra. Textasíminn er
ætlaður til notkunar með venju-
legum símum og vinnur með þeim
hætti, að sá sem hringir leggur
símtólið á textasímann. Á honum
er stafalyklaborð, sem gefur frá
sér hljóðmerki. Hljóðmerkin
breytast síðan í stafí á textasíma
viðtakanda. Getur móttakandi
svarað á sama hátt.
Flestir heymarlausir eiga slík
tæki sem þessi, en með þessari
tillögu verður þeim kleift að ná
sambandi við þjónustustofnanir
borgarinnar.
Borgarfulltrúar fögnuðu þess-
ari tillögu og þeim tímamótaat-
burði að ræða væri þar flutt á
táknmáli. Vonuðust þeir til þess
að þetta yrði til þess að brjóta
múrana á milli heymarlausra og
stofnana borgarinnar. Hvatti
borgarstjóm aðra opinbera aðila
til þess að festa kaup á slíkum
búnaði, en hvert tæki kostar
11.800 krónur.
Enn míkil þensla á
vinnumarkaðinum
Starfsfólk vantar í 3.250 störf
Vinnumarkaðurinn einkennist
enn af þenslu, samkvæmt könnun
Þjóðhagsstofnunar og Vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins á atvinnuástandi og
horfum í haust. Talið er að ófyllt-
í dag
JBorjjunblahíb
...B
• ■ .
1 v
BLAO C
Sérútgáfa Economist:
Óhjákvæmilegt að
fella gengi krónunnar
HIÐ virta tímarit The Economist hefur gefíð út sérblað þar sem
er að fínna yfirlit yfír það sem sérfræðingar blaðsins telja að
búast megi við að geríst i einstökum ríkjum og í alþjóðamálum
á næsta árí. Sérútgáfa þessi nefnist „Heimurinn áríð 1988“ (The
World in 1988). I rítinu er að finna stutta klausu um ísland þar
sem fullyrt er að ríkisstjómin komist ekki hjá því að fella gengi
krónunnar.
í formála ritsins segir að blaða-
menn og sérfræðingar The
Economist hafí ritað efiii þess auk
þess sem leitað hafí verið til sér-
fræðinga um tiltekin málefni, sem
ekki starfa á vegum The Econom-
isL Ennfremur segir í formálanum
að flestir spádómar tímaritsins í
sambærilegu hefti sem gefíð var
út skömmu fyrir síðustu áramót
hafi reynst réttir og áreiðanlegir,
þó svo viðurkenna beri að sér-
fræðingum blaðsins hafí á stöku
stað orðið á í messunni.
í greininni um ísland, sem rituð
er af Michael Metcalfe, fréttarit-
ara tímaritsins Business Intem-
ational í Evrópu, segir „Viðleitni
íslensku rikisstjómarinnar til að
vinna bug á verðbólgu, sem varð
þess valdandi að verðbólga var
um 14 prósent árið 1987 í stað
21 prósents árið 1986, á undir
högg að sækja. Kjarasamningar
ársins 1987 leiddu til að minnsta
kosti 22,5 prósenta hækkunar
launa á árinu og mun áhrifanna
áfram gæta á árinu 1988. Til að
tryggja samkeppnishæfni erlendis
mun ríkisstjómin aftur neyðast
til að grípa til þess ráðs að fella
gengi krónunnar."
ar stöður í þeim atvinnugreinum
sem könnunin náði til séu um
3.250, sem er um 3,5% af heildar-
mannaflanum í þeim. Er þetta
nokkur aukning frá sama tima í
fyrra.
Mestur skortur er á verkafólki,
þar sem vantar fólk í um 1.800
störf. Þenslumerkin eru meira áber-
andi á höfuðborgarsvæðinu en úti á
landi. Þar er talið að 1.800 störf
hafí verið laus í þeim atvinnugrein-
um sem könnunin náði til, en fyrir
einu ári vom 700 störf laus og árið
þar á undan vantaði fólk í 300 störf.
Á höfuðborgarsvæðinu vantar mest
verkafólk, eða 800, bæði í iðnaði og
byggingariðnaði. Einnig er veruleg-
ur skortur á ófaglærðu starfsfólki í
þjónustugreinum, fyrst og fremst á
sjúkrahúsunum. Úti á landsbyggð-
inni vantar verkafólk í um 1.000
störf, aðallega í fiskvinnslu, en einn-
ig í iðnaði. Hvergi á landinu er
mikill skortur á fólki til afgreiðslu-
og skrifstofustarfa, samkvæmt
könnuninni. Verulegur skortur er
hins vegar á sérhæfðu starfsfólki.
Þar ber mest á þörf sjúkrahúsanna
fyrir hjúkrunarfólk og annað sér-
menntað starfsfólk, en einnig virðist
vera talsverður skortur á sérhæfðu
fólki bæði í byggingariðnaði og öðr-
um greinum.
Vísbendingar frá fyrirtækjum
benda til þess að heldur dragi úr
eftirspum eftir vinnuafli í desember
en hún fari aftur að aukast með
vorinu.
Könnunin náði til nær allra at-
vinnugreina, nema hvað landbúnað-
ur. fiskveiðar og opinber þjónusta,
önnur en sjúkrahúsin em undanskil-
in. Er talið að um 75% af atvinnu-
starfseminni í landinu sé með í
könnuninni.
„Sjaldan séð
aðra eins ös“
— segir Karl Eiríks-
son forsljóri Bræðr-
anna Ormsson
BIRGÐIR af heimilistækjum virð-
ast vera að ganga til þurrðar í
mörgum verslunum á höfuðborg-
arsvæðinu. „Eftirspumin er
fádæma mikil. Við höfum selt
mörg hundmð þvotta- og eldavél-
ar undanfama daga, einnig
uppþ vottavélar, “ sagði Karl
Eiriksson, forstjórí Bræðranna
Ormsson hf. „ísskápar em upp-
seldir sém stendur en við fáum
sendingu á mánudag."
„Ég hef sjaldan séð aðra eins ös
í versluninni hjá okkur og undan-
fama daga. Það seljast allar gerðir
heimilistækja; ryksugur, hrærivélar
og allt sem nöftium tjáir að nefna.
Þurrkarar og frystikistur seljast
heldur minna og mér sýnist að fólk
vilji bíða með að festa sér þau tæki
þar til eftir áramót," sagði Karl.
„Við áttum von á mikilli sölu fyrir
jólin og áttum dijúgar birgðir en
þessi gífurlega eftirspum kom okkur
á óvart. Við eigum nú von á nýjum
sendingum á mánudag og aftur milli
jóla og nýárs og getum því vonandi
annað eftirspuminni," sagði Karl
Eiríksson að lokum.