Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
... að við hefðum einungis gæða leðursófasett
á boðstóium.
-4^
Fullbúð afhúsgögnum og gjafavörum
Félagsmiðstöð í
Hafnarfirði:
Margrét K.
Sverrisdótfc-
ir ráðin for-
stöðumaður
Á FUNDI bæjarstjómar Hafnar-
fjarðar á þriðjudag var sam-
þykkt að ráða Margréti K.
Sverrísdóttur forstöðumann
nýrrar félgsmiðstöðvar, sem
verður til húsa að Strandgötu
(Skiphóll) og er fyrirhugað að
starf hefjist þar næsta vor.
Margrét, sem er 29 ára, lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík árið 1979 og prófi frá
Kennaraháskóla íslands arið 1983.
Hún hefur verið forstöðumaður fé-
lagsmiðstöðvarinnar Fellahellis í
Breiðholti síðastliðin þijú ár.
Kúbanskur —
ekki kúbskur
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi:
„Aðalfundur Vináttufélags ís-
lands og Kúbu, haldinn í Reykjavík
3. desember 1987, mótmælir harð-
lega þeim nýja sið sem upp hefur
verið tekinn hjá Rfkisútvarpinu að
tala um kúbönsku þjóðina sem
kúbska og Kúbumenn sem Kúb-
veija. Lýsingarorðið kúbanskur er
ólíkt hljómfegurra en kúbskur og
hefur þar að auki alltaf verið notað
■og særir alls ekki íslenska máltil-
fínningu eins og kúbskur hlýtur að
gera, eða hvar hafa menn séð þessa
stafi saman í einni runu: - bsk -?
Kínveiji er gamalt og gott orð í
málinu en Kúbveiji er óveijandi
með öllu að mati fundarins. Mál-
vemd er af hinu góða en sérviska
af þessu tagi þjónar engum til-
gangi."
Böm aðstoða
jólasveina
í umferðiimi
NÚ UM þessar mundir munu um
30 þúsund börn i skólum landsins
spreyta sig á getraun um um-
ferðarmál. Getraunin kallast „í
jólaumferðinni" og er ætluð
börnum á aldrinum 6—12 ára.
Þau eiga að þjálpa jólasveinun-
um með hin ýmsu atvik sem upp
koma þegar þeir koma í bæinn.
Ekki virðast karlamir hafa lært
mikið um umferðarreglur eftir
spurningunum að dæma.
Ætlast er til að bömin glími sem .
mest sjálf við þessar spumingar,
en foreldrar eða aðrir aðstandendur
aðstoði þau eftir þörfum. Vonast
er til að með þessu skapist umræð-
ur um umferðarmál á heimilum
bamanna og þau verði hæfari þátt-
takendur í henni á eftir.
Dregið er úr réttum lausnum og
hafa yfirleitt félög, stofnanir eða
fyrirtækig gefíð þau verðlaun sem
veitt eru. Því miður fá ekki öll böm
sem senda inn rétt svör verðlaun,
en þau heppnu mega eiga von á
því að fá einkennisklæddan lög-
regluþjón í heimsókn á aðfangadag,
eða einhvem daginn rétt fyrir jól,
með bókaverðlaun.
Kennarar og forráðamenn bama
eru vinsamlegast beðnir um að taka
þátt í þessu með bömunum og veita
þeim þá aðstoð sem með þarf.
Sá stutti tfmi sem fer í að veita
bami smá leiðbeiningu um umferð-
armál getur komið í veg fyrir að
það slasist í umferðinni.
(FréttatUkynnlng)