Morgunblaðið - 18.12.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
31
Snorri Sveinn Friðriksson listmálari og Viðar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Vöku-Helgafells í salnum þar sem sýning Snorra
Sveins á myndunum við sögu Halldórs Laxness fer fram. Þeir halda
á islenskri og enskri útgáfu bókarinnar Sagan af brauðinu dýra.
Sýndar myndir úr Sög-
unni af brauðinu dýra
OPNUÐ hefur verið sýning á
málverkum eftir Snorra Svein
Friðriksson, listmálara, í nýjum
sýningarsal í tengslum við for-
lagsverslun Vöku-Helgafells, í
Síðumúla.29 í Reykjavík.
A sýningunni eru margar stórar
vatnslitamyndir Snorra Sveins sem
hann gerði fyrir viðhafnarútgáfu
bókarinnar „Sagan af brauðinu
dýra“ eftir Halldór Laxness. Bókin
er gefin út í tilefni af 85 ára af-
mæli Nóbelsskáldsins á þessu ári.
Nú á dögunum kom bókin út á
ensku í þýðingu Magnúsar Magnús-
sonar, rithöfundar og sjónvarps-
manns, undir titlinum „The Bread
of Life“.
Snorri Sveinn Friðriksson fædd-
ist á Sauðárkróki 1934. Hann
stundaði nám við Myndlistarskól-
ann í Reykjavík,. Myndlista- og
handíðaskóla íslands og framhalds-
nám við Konstfackskolan í Stokk-
hólmi. Snorri Sveinn veitir nú
forstöðu leikmyndadeild sjónvarps-
ins, en hann hefur starfað sem
leikmyndateiknari við sjónvarpið
frá 1969.
Snorri Sveinn hefur haldið einka-
sýningar í Reykjavík og ennfremur
tekið þátt í samsýningum á vegum
Félags íslenskra myndlistarmanna,
hér á landi og erlendis. Þá hefur
Snorri gert veggskreytingar á opin-
berar byggingar.
Sýning Snorra Sveins er sem
fyrr segir haldin í húsakynnum
Vöku-Helgafells í Síðumúla 29.
Sýningin verður opin alla virka
daga frá klukkan 9.00 til 18.00
fram að áramótum.
Áskorun til ökumanna frá löggæslunni:
Stemmum stiguvið
áfengi í umferðinni
UM jólin er alltaf nokkuð um að
lögreglan verður að hafa afskipti
af ölvuðum ökumönnum. Skýring-
in er meðal annars talin sú, að
jólaglögg er viða á boðstólum og
menn dreypa gjarnan á vini með
mat, en láta bílinn ekki eiga sig
á eftir, eins og þeir ættu þó að
gera. Fjölmörg umferðarslys
verða á ári hveiju og má rekja
stóran hluta þeirra til neyslu
áfengis. Nokkrir aðilar, sem Iáta
sig þetta nokkru skipta, héldu
fund til að kynna ástandið fyrir
blaðamönnum. Þar kom meðal
annars fram, að nú i svartasta
skammdeginu er nauðsynlegt að
allir vegfarendur sýni sérstaka
aðgætni og tillitssemi i umferð-
inni.
Þeir, sem boðuðu til fundarins
voru Áfengisvarnarráð, lögreglan,
Umferðarráð og Fararheill ’87.
Fram kom, að árlega missa um 2000
íslendingar ökuréttindi vegna ölv-
unaraksturs. Ekki er nóg með að
menn aki ölvaðir heim til sín eftir
veisluhald, heldur eru einnig mjög
margir stöðvaðir morguninn eftir,
þegar þeir telja sig hafa „sofið úr
sér“, en eru enn með áfengi í blóð-
inu. Lögreglan, Fararheill og
Umferðarráð hafa gefíð út bækling,
þar sem rakin er raunasaga manns,
sem missti ökuskírteinið. Þessi bækl-
ingur var prentaður í 25 þúsund
eintökum og verður dreift við áfeng-
isútsölur, á skrifstofum tryggingafé-
laganna og víðar.
í máli fundarmanna koma fram,
að ölvunarakstur er stærri vandi en
flestir gera sér grein fyrir. Um fjórð-
ung allra dauðaslysa í umferðinni
má rekja til neyslu áfengis. Áfengi-
svamarráð hefur ákveðið að bregð-
ast við þessum vanda með því að
gefa út bækling, þar sem er að fínna
uppskriftir að óáfengum drykkjum,
í þeirri von að fólk dreypi fremur á
slíkum en áfengum. Bent var á að
áfengisneysla er ekki aðeins til vand-
ræða í umferðinni, heldur getur hún
eyðilagt jólahald fjölskyldunnar.
Fundargestum var boðið upp á jóla-
glögg, sem að sjálfsögðu var óáfeng.
Varðandi jólaumferðina að öðm
leyti kom fram, að hún verður nú
þyngri en áður, þar sem bílaeign
landsmanna hefur stóraukist. Þá er
enn skuggsýnna en ella í skammdeg-
inu, þar sem enginn snjór hjálpar
til við lýsinguna. Því þurfa ökumenn
að huga að ljósum bílanna og gang-
andi vegfarendur að fá sér endursk-
insmerki, en slík merki fást meðal
annars í öllum lyfjabúðum. Loks er
vert að minna menn á að hafa bíla
sína vel búna til vetraraksturs, því
ekki er hægt að reikna með að veð-
urblíðan haldist fram á næsta sumar.
Morgunblaðið/Júlíus
Það þykir ef til vill sumum skjóta skökku við að sjá þessa menn stilla sér upp með vínglas í hönd, en
það skal tekið fram að í glösunum er óáfengt jólaglögg, sem þeir mæla með að menn drekki fremur en
hið áfenga. Á myndinni eru Bjarki EHasson, yfirlögregluþjónn, ÓH H. Þórðarson, framkvæmdasljóri
Umferðarráðs, Sigurður Helgason, framkvæmdastjóri FararheiUar '87, Arni Einarsson fulltrúi Áfengi-
svarnarráðs og Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri.í dómsmálaráðuneytinu.
FÉLAGANÁTTFÖT
fráHENSON
Skemmtileg og gagnleg jólagjöf.
M.a. íslensku félögin ásamt
Manch. Utd. og Liverpool
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Vísir, Blönduósi
Kaupfólag Húnvetninga,
Blönduósi
Versl. Ósk, Akranesi
Sport-Gallerí, Hafnarfirði
H-búðin, Garðabæ
Hólasport, Breiöholti
Sportbúð Óskars, Keflavík
Einar Guðfinnsson,
Bolungarvfk
Þingey, Höfn Hornafirði
Sparta, Reyjavik
Verslun Ara Jónssonar
Patreksfiröi
Kaupfélag Þingeyinga,
Húsavík
Verslunin Skógar,
Egilsstöðum,
Sporthúsið, Akureyri
Aldan, Seyðisflrðl
Stelnl og Stjánl,
Vestmannaeyjum
Gestur Fanndal, Siglufirði
Hákon Sófusson, Eskifiröi
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1 -38
Skipholt 40-50
Stigahlíð 37-97
VESTURBÆR
Fornaströnd
Bauganes
Nýlendugata
Einarsnes
Látraströnd
SELTJNES
Hrólfsskálavör
UTHVERFI
Kirkjuteigur
MIÐBÆR
Grettisgata 37-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Barónsstígur 4-33 o.fl.
Laugavegur 32-80 o.fl.