Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 32

Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 32 vilja skrifborðs- stól íjólagjöf 2.210, Speedy-skrifborðsstóllinn sem er stillanlegurogáhjólum, kostar aðeinskr. 2.210.- Speedyafhendistílitlumpakka og erauðveltað setja hann saman. húsgagnaJiðllin © nEmaii REYKJAVlK Verðtil að taka eftir: Skíðapakkar: Barnapakki A: Hagan skíði 80-11 O cm. — Salomon bindingar — skór — stafir — ásetning. Verd frá kr. 6.590.- Barnapakki B: Hagan skfði 1 20-1 4-0 cm. — Salomon bindingar — skór — stafir — ásetning. Verð frá kr. 8.230,- (Jnglingapakki: Hagan skíði 1 50-1 70 cm. — Salomon bindingar — skór — stafir — ásetning. Verð frá kr. 8.950,- Fullorðinspakki: Hagan skíði — Salomon binding- ar — skór — stafir — ásetning. Verð frá kr. 11.900,- Gönguskíðapakki: Skíði — bindingar — skór — stafir — ásetning. Verð f rá kr. 5.900,- Póstsendum um allt land - Euro/Visa SPORTl MARKAÐURINN SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290 (Nýja húsið gegnt Tónabíói) K-bygging Landspítalans eftirHjalta Þórarinsson í Morgunblaðinu fimmtudaginn 10. desember sl. birtist grein eftir Davíð Á. Gunnarsson, forstjóra Ríkisspítala, er hann nefndi Miðstöð hátæknilæknisfræði á íslandi. Þar segir m.a.: „Það er í K-byggingu Landspítalans sem hjarta þessarar þjónustu þarf að slá, og í dag slær það aðeins á lh takti.“ Á fímmtíu ára afmæli Landspítalans 1980 var áætlun um að reisa K-bygginguna á 5 árum, en nú, 7 árum síðar, er aðeins þriðji hluti byggingarinnar rúmlega fokheldur. Hvað skyldi valda? Er þessi bygging óþörf eða hefur þjóðfélagið ekki efni á að koma henni upp? Engan hef ég heyrt telja hana óþarfa og nauðsyn- legt er að það komi skýrt fram, að þá hátækniþjónustu sem höfundi verður svo tíðrætt um, er ókleift að veita á Landspítala né annars staðar á landinu, nema að alltof litlu leyti ef ekki verður undinn bráður bugur að því að reisa fyrirhugaða K-byggingu. Höfundur telur að við íslendingar eigum sennilega best menntuðu heilbrigðisstéttir í heim- inum. Ýmsum kann að finnast að forstjórinn taki hér nokkuð stórt upp í sig, en ég er ekki viss um að þetta sé fjarri lagi. Önnur full- yrðing, sem komið hefur frá höfundi greinarinnar, kemur því miður ekki þama fram en hún er sú, að senni- Iega er sérfræðiþjónusta sú sem við veitum hér á Islandi, einhver sú ódýrasta í heiminum. Það er ekki síður ástæða til að taka undir þessa fullyrðingu, en hina fyrri, ef það mætti verða til að opna augu þeirra sem álíta að bruðlað sé með al- mannafé á sjúkrahúsum á íslandi. Sérhæfð hátæknilæknisþjónusta hlýtur alltaf að vera mjög dýr og ætla mætti, að hún væri mun dýr- ari fámennum þjóðum þar sem þarf að koma upp litlum einingum með mjög dýram tækjabúnaði fyrir til- tölulega fáa sjúklinga. Þrátt fyrir þetta er þessi þjónusta ekki dýrari hér en annars staðar og má þakka það góðri skipulagningu á sjúkra- húsvinnu sérhæfðra lækna og annarra heilbrigðisstétta. Ef hér væri um dýrari sérfræðiþjónustu að ræða, en í nágrannalöndunum, þá myndu sjúklingar væntanlega flyklq'ast þangað til að kaupa sér ódýrari þjónustu í stíl við innkaupa- ferðimar frægu. Þeir sjúklingar einir hafa leitað til annarra landa, sem ekki gátu fengið þá þjónustu hér sem þeir þurftu, en það vora fyrst og fremst sjúklingar sem þutfru að fara í hjartaaðgerðir. Á sl. ári hófust hjartaaðgerðir á Landspítala og hafa nú verið gerðar u.þ.b. 100 aðgerðir með ekki síðri árangri en annars staðar. Það hefur þó engan veginn verið unnt að anna eftirspuminni og ennþá verða því margir að leita til útlanda, nauðug- ir viljugir. Það sem fyrst og fremst hefur sniðið okkur þröngan stakk í þessum efnum, hefur verið skortur á hjúkranarfræðingum og alltqf lítil gjörgæsludeild á Landspítala. í fyr- irhugaðri K-byggingu verður ný skurðstofuálma og ný og fullkomn- ari gjörgæsludeild. Það er því m.a. þessi þáttur læknisþjónustu á Landspítala, sem líður óbætanlega ef dregst úr hömlu að reisa K- byggingu. Hið háa Alþingi hefur sett í landslög að veita beri alla þá bestu og fullkomnustu læknisþjón- ustu hér á landi, sem unnt sé hverju sinni, og það hlýtur því að vera skýlaus skylda sömu aðila að skapa þær aðstæður, að unnt sé að fram- fylgja þessum lögum. Þessar staðreyndir mættu gjama koma skýrar fram, þegar rætt er um fyrir- hugaða K-byggingu. Ekki væri heldur úr vegi að skýra frá öðram þeim greinum hátæknilæknisþjón- ustu, sem verða til húsa í K-bygg- ingu. Því miður er það oftast reyndin, þegar svona greinar era ritaðar á þessum tíma árs, að stjóm spítalans hefur ekki orðið ágengt sem skyldi varðandi fjárveitingu til K-bygging- ar. Þá mætti staldra aðeins við þá spumingu, sem ég varpaði fram í byrjun þessa greinarkoms, þ.e.a.s. hvort við höfum efni á að reisa þessa byggingu? Áætlað er að það muni kosta 675 milljónir að fullgera K-bygginguna. Þessi upphæð er ekki há í þjóðfélagi, þar sem reist er á örskömmum tíma verslunar- miðstöð fyrir 1700 milljónir króna, án þess að uppi hafi verið háværar kröfur eða óskir almennings um fjölgun verslana og nú í vikunni vora opnaðir einn eða tveir tugir af enn nýjum verslunum. Að vísu era verslanir ekki reistar af því opinbera, en engum heilvita manni dettur í hug að efast um, að það era neytendur sem standa undir þessum kostnaði, sem er velt út í verðlagið með hækkuðu vöraverði. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif á kjör almennings, ekki síður en hækkun íjárveitinga til heilbrigðis- mála eða annarra sameiginlegra þarfa þegnanna. Heildarkostnaður við K-bygginguna er heldur ekki nema hluti af umframkostnaði við flugstöðvarbygginguna frægu. Tal- ið er að einn milljarður sé í umferð í þjóðfélaginu í happdrættum og alls konar getraunum og éra þó stóra happdrættin ekki talin með. Þetta sýnir að það era náegir peningar til ef þeim væri beint inn á réttar brautir og ef þeir aðilar, sem kjömir era til stjómunar pen- ingamála og forgangsröðunar verkefna í þjóðfélaginu, kynnu á þeim nægjanleg skil. Þá má ekki gleyma öllum nýju fjölmiðlarásun- um. Eitthvað hafa þær kostað og kosta. Þar tekur hið opinbera þátt í kapphlaupinu af all nokkurri Smásagnasafn effcir Harald Magnússon BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur sent frá sér bókina Öspina og ýlustráið, smá- sagnasafn eftir Harald Magnús- son og er það fyrsta bók hans. í kynningu Skuggsjá á höfundi og bókinni segir m.a.: „Haraldur fæddist á Árskógsströnd við Eyja- flörð 1931. Hann ólst upp (Eyjafirði og Skagafírði fram að tvítugsaldri. Lengst af hefur hann búið í Hafnar- fírði. Hann hefur stundað ýmis störf bæði á sjó og landi, en síðustu tutt- ugu árin hefur hann unnið sem múrari. Haraldur hefur starfað mik- ið í íþróttahreyfíngunni. Þetta smásagnasafn er fyrsta bók höfundar, en þessar sögur og fleiri til hefur hann skrifað ( frístundum sínum undanfarin ár. Sögumar era að ýmsu leyti óvenju- legar og flestar fela þær I sér boðskap. Þetta eru myndrænar og hugmyndaauðugar sögur, sem höfða til allra aldurshópa, sögur sem vekja fólk til umhugsunar." Öspin og ýlustráið var sett og prentuð í Prisma, Hafnarfírði, og bundin i Bókfelli. Kápu teiknaði Stefán Grétarsson. Bókin er 168 bls. að stærð. Hjalti Þórarinsson „í fyrirhugaðri K-bygg-ingu verður ný skurðstofuálma og ný og fullkomnari gjör- gæsludeild. Það er því m.a. þessi þáttur lækn- isþjónustu á Landspít- ala, sem líður óbætanlega ef dregst úr hömlu að reisa K- byggingu. Hið háa Alþingi hefur sett í landslög að veita beri alla þá bestu og full- komnustu læknisþjón- ustu hér á landi, sem unnt sé hverju sinni, og það hlýtur því að vera skýlaus skylda sömu aðila að skapa þær að- stæður, að unnt sé að framfylgja þessum lög- um.“ . áfergju. Þetta er að sjálfsögðu allt af hinu góða, þetta heitir frelsi og sanjkeppni, en mitt í þessum óhófs- munaði í allsnægtaþjóðfélaginu, megum við ekki gleyma hinum öldnu og sjúku. Já, það er í K-byggingu Landspít- alaris, sem hjarta háþróaðrar læknisþjónustu þarf að slá og það slær í dag bara á lh takti, sagði forstjórinn réttilega. Hætt er við að svo verði þá meðan þeir sem eiga að hjálpa okkur til að bæta hér um, era ekki í takt við kröfur tímans í þessum efnum. í þeirri von að hæstvirtir alþingismenn gaum- gæfí þær staðreyndir, er hér koma fram, og verði nú einhuga um að K-byggingin verði reist hið bráð- asta, óska ég þeim gleðilegra jóla og réttsýni og farsældar í því ábyrgðarmikla starfí, sem þeim hefur verið falið. Höfundur er prófessor íhand- læknisfræðum. Haraldur Magnússon
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.