Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Kópavogur:
Utsvarið verð-
ur 6,7 prósent
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur samþykkt 6,7% útsvar fyrir
árið 1988 og er þar með farið að tillögu félagsmálaráð-
herra en heimild er til 7,5% álagningar sem ekki kemur
til innheimtu fyrr en ári síðar.
Kristján Guðmundsson bæjar-
stjóri sagði að fasteignaskattur
væri innheimtur án afsláttar en
þeir sem óska eftir að greiða
gjöldin að fullu fyrir 1. febrúar
fá 15% afslátt. Þá hefur verið
ákveðið að Qölga gjalddögum í
tíu en þeir voru fímm áður í Kópa-
vogi. Gjaldagar verða, 15. jan.,
1. feb., 1. mars, 1. apríl, 1. maí,
1. júní, l.ágúst, 1. sept., 1. okt.,
og 1. nóv. Sagði Kristján að með
þessu gæfíst kostur á að jafna
greiðslum yfír allt árið í stað þess
að áður var það einungis mögu-
legt fyrri hluta árs.
Ellilífeyrisþegum innan vissra
tekjumarka verður sem áður
veittur afsiáttur af fasteigna-
gjöldum.
Loðnuverð aft-
ur gefið frjálst
VERÐLAGNING á loðnu til
bræðslu verður gefin fijáls frá
1. janúar nk. til loka loðnuver-
tíðar næsta vor, samkvæmt
ákvörðun Verðlagsráðs sjávar-
Kringlan:
Vinstri beygja
bönnuð
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að banna vinstri beygju þegar
ekið er út frá Húsi Verslunarinn-
ar í Kringlunni.
Bannið gildir frá kl. 16 til kl. 20.
Ensk messa í
HaUgrímskirkju
ENSK jólamessa verður í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 20.
desember kl. 16.00.
Síra Karl Sigurbjömsson predik-
ar. Mótettukórinn syngur.
útvegsins frá þvi á miðvikudag.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, sagði að fullt
samkomulag hafi orðið um
þetta í Verðlagsráðinu, enda
hefði fast verð sem ákveðið var
í haust verið haft að engu í
raun.
í haust var horfíð frá fijálsu
verði á loðnu til bræðslu, og
ákveðið að verðið skyldi vera 1600
krónur á tonn. Sú ákvörðun var
gerð með atkvæðum kaupenda
gegn atkvæði fulltrúa útgerðar-
manna, en fulltrúi sjómanna og
fulltrúi ríkisins sátu hjá.
Að sögn Kristjáns Ragnarsson-
ar kom í ljós eftir þessa ákvörðun
að mun hærra verð hefði verið
greitt í raun fyrir loðnuna, og því
hefðu menn verið sammála um
að hverfa aftur til fíjálsrar verð-
lagningar.
Á fundi nefndarinnar var einnig
ákveðið að gefa verðlagningu á
fískúrgangi, úrgangsfíski og lifur
fíjálsa frá 1. janúar til 31. maí
1988.
. Morgunblaðið/BAR
Freyja RE 38, nýkomin í fyrsta skipti til heimahafnar.
Ný Freyja komin
til heimahafnar
NÝR bátur, Freyja RE 38, kom til Reykjavíkur á miðvikudag. Freyja
er 136 brúttórúmlestir að stærð, smíðuð í Kolvereid í Norður-
Noregi. Skipasmíðastöðin tók gömlu Freyju, sem er 103 brúttó-
rúmlestir, smíðuð á Akranesi 1972, upp í kaupverðið sem var um
það bil 96 milljónir.
Eigandi Freyju er Gunnar I.
Hafsteinsson en skipstjóri er Erling
Pálsson. Freyja er útbúin til botn-
vörpu- og dragnótaveiða. Búnaður
er um borð til að heilfíysta aflann.
Lestarrými er 156 rúmmetrar,
mesta lengd skipsins 25,9 metrar
en breidd 8 metrar. Aðalvél er af
gerðinni Man, 990 hestöfl. Ljósavél-
ar eru einnig frá Man, 220 og 92
kflóvött. Freyja heldur til veiða með
botnvörpu upp úr áramótum.
Morgunblaðið/Júlíus
Frá blaðamannafundi þar sem bókin Iðnaðarmenn var kynnt, f.v. Atli Rafn Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Iðnskólaútgáfunnar, Jóhanna Sveinsdóttir, rithöfundur, Björgvin Frederiksen, vélsmiðameistari,
Bjarni Einarsson, skipasmíðameistari, Gísli Ólafsson, bakarameistari, Sigurgestur Guðjónsson, bifvéla-
virkjameistari og Sigurður Kristinsson, fyrrv. forseti Landssambands islenskra iðnaðarmanna.
Iðnaðarmenn segja frá:
Fyrstu skrefin í
iðnaði á íslandi
IÐNAÐARMENN er fyrsta bók í nýjum bókaflokki, sem nýkomin
er út hjá Iðnskólaútgáfunni. í þessu fyrsta bindi segja sex iðnaðar-
menn frá. Þeir eru Bjarni Einarsson, skipasmiðameistari, Björgvin
Frederiksen, vélsmíðameistari, Gisli Ólafsson, bakarameistari, Guð-
geir Jónsson, bókbandsmeistari, sem lést siðastliðið sumar, Jón
Björnsson, húsgagnasmíðameistari og byssusmiður og Sigurgestur
Guðjónsson, bifvélavirkjameistari.
„í bókinni má fínna gott yfírlit
yfír atvinnulífíð og lífsbaráttuna á
fyrstu áratugum aldarinnar." sagði
Jóhanna Sveinsdóttir rithöfundur á
blaðamannafundi þar sem bókin
Iðnaðarmenn var kynnt, en hún bjó
bókina til prentunar. í ritnefnd eru
Atli Rafn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnskólaútgáfunnar,
Jón Böðvarsson, ritstjóri Iðnsögu
íslendinga og Sigurður Kristinsson,
fyrrverandi forseti Landsambands
íslenskra iðnaðarmanna, og sagði
Atli Rafn Kristinsson Iðnskólaútg-
Hæsta bamaslysa
tíðni í Evrópu
SLYSATÍÐNI barna og ungiinga hérlendis er með því hæsta
sem gerist 1 heiminum, og hefur slysum á börnum og ungl-
ingum fjölgað á sama tíma og dregið hefur úr slysum á
þessum aldurshóp í nágrannalöndunum. Rúmur helmingur
slasaðra í umferð í Reykjavík árið 1985 var yngri en 20 ára
og verða flest slys í umferð á 17-18 ára unglingum.
Tíðni slysa á gangandi vegfar-
endum er hæst meðal bama og
unglinga, og nær hámarki í ald-
urshópnum 5-9 ára, að því er
kemur fram í nýjasta hefti Lækna-
blaðsins, en um helmingur þeirra
ökumanna er valda slysum á
gangandi vegfarendum eru 24 ára
og yngri. Rúmlega 80% þeirra sem
lentu í vélhjólaslysum í Reylq'avík
voru 15-19 ára, en slys á vélhjól-
um eru 6-7 sinnum algengari en
slys af öðrum ökutækjum, sé mið-
að við fjölda ökutækja. Langflestir
þeirra er slösuðust á reiðhjólum
voru 5-14 ára.
Vinnuslys eru algengust í ald-
ursflokknum 16-20 ára, og verða
þau flest á vorin, þegar ungling-
amir koma óvanir í sumarstörf. Á
árunum 1970-77 voru 25,6%
vinnuslysa í þessum aldursflokki,
en þessi háa vinnuslysatíðni ung-
menna er óþekkt í nágrannalönd-
unum.
Heimaslys eru einnig algeng
meðal bam og unglinga, og eru
böm á aldrinum 5-9 ára þar í
hæsta áhættuflokki. Á slysadeild
Borgarspítlans koma árlega um
30% bama fjögurra ára og yngri
á höfuðborgarsvæðinu vegna
slysa í heimahúsum, og er þetta
hæsta bamaslysatíðni í Evrópu.
Langalgengasta orsökin em eitr-
anir, en einnig eru vélar og
verkfæri algengir slysavaldar.
áfuna vilja leggja sitt af mörkum
til að varðveita sögu iðnaðar á ís-
landi, allt frá.því að iðngreinar voru
löggiltar árið 1928 og fram til okk-
ar tíma.
„í þessari bók er sagt frá fyrstu
skrefum okkar íslendinga í iðnaði,“
sagði Bjami Einarsson skipasmíða-
meistari, einn sexmenninganna,
„það er ekki lengra síðan lands-
menn fóru að fást við iðnað að
einhveiju marki. Þegar við vorum
í iðnskóla voru allt aðrar aðstæður
en nú er, við unnum fulla vinnu,
60 tíma á viku, og gengum síðan
í skóla á kvöldin."
Björgvin Frederiksen, vélsmíða-
meistari, tók í sama streng, og sagði
það táknrænt að þeir sem eiga frá-
sagnir í bókinni, hafa allir kynnst
kröppum kjörum. „Þetta voru erfíð-
ir tímar og það þóttu alger forrétt-
indi að komast í iðnnám. Tuttugu
manns vom á biðlista að komast að
í vélsmiðju, fyrir 30 aura á tímann,
þegar ég var að byija í iðninni. En
lífíð var alls ekki leiðinlegt, þó að
unga fólkinu gæti dottið það í hug
við að lesa frásagnir manna á okk-
ar aldri, þvert á móti var það mjög
skemmtilegt og menn vom ánægðir
með lítið."
Að sögn Atla Rafns Kristinsson-
ar er ætlunin að ræða einnig við
iðnrekendur í næstu bindum, og að
sjálfsögðu verða konum sem starfað
hafa við iðnað jafnframt gerð skil,
en af ýmsum ástæðum var því ekki
komið við í þessu fyrsta bindi.
Keflavíkurflugvöllur:
Stofnun starfsmanna-
félags í undirbúningi
Keflavfk.
TRÚNAÐARMENN starfsfólks varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli skipuðu undirbúningsnefnd að stofnun starfs-
mannafélags á fundi sínum á mánudaginn var.
Fulltrúar allra stéttarfélaga
starfsfólks hjá varnarliðinu eiga
sæti í riefndinni. Áætlað er að
félagið verði formlega stofíiað í
janúarmánuði næstkomandi.
Ekkert sameiginlegt félag starfs-
manna vamarliðsins er nú fyrir
hendi.
Félaginu er ætlað að vinna að
hinum ýmsu hagsmunamálum
íslenskra starfsmanna vamar-
liðsins og starfa á svipuðum
grunni og til dæmis starfsmanna-
félög hjá ÍSAL og í jámblendi-
verksmiðjunni á Gmndartanga.
BB