Morgunblaðið - 18.12.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
37
I-í- Einar Farestveit &Co.hf
---------1 Borgartún 28, sími 91-622900.
Schiesser#
Schiesser# NÁTTKJÓLAR
stuttir, síðir
Náttföt, velúrsloppar, fottesloppar
lympíi
Laugavegi - Glæsibæ
Breytingar á kaupskrárnefnd:
Vænti þess að niður-
staða fáist innan tíðar
- segir Karl Steinar Guðnason, formaður
verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur
„Þetta mál hefur verið til um-
ræðu hjá verkalýðs- og sjómanna-
félaginu, verkakvennafélaginu og
iðnsveinafélaginu. Það hefur ver-
ið rætt við Alþýðusamband íslands
og komið á framfæri við það þeirri
óánægju sem rikt hefur með kaup-
skrárnefndarkerfið og við höfum
rætt um leiðir til úrbóta," sagði
Karl Steinar Guðnason, formaður
verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur, aðspurður um fund
trúnaðarmanna starfsmanna
vamarliðsins á mánudaginn var,
þar sem samþykkt var erindi til
miðstjómar ASÍ um breytingar á
kaupskráraefndarkerfinu, en full-
trúi verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur skrifaði ekki undir
erindið.
„Það hyllir nú undir breytingar í
þessum efnum. Einmitt um það leyti
sem niðurstaða er að fást er boðað
til þessa fundar og þar látið eins og
ekkert hafi verið gert í þessum mál-
um. Forseti Alþýðusambands íslands
hefur í umboði miðstjómar ASÍ skrif-
að verkalýðsfélögunum á Suðumesj-
um og leggur þar fram hugmyndir
um breytingar á kaupskrámefndar-
kerfínu í framhaldi af þessum
viðræðum. Það sem liggur því ríæst
fyrir er að félögin taki afstöðu til
þessara hugmynda og geri sínar at-
hugasemdir. Það er gjörsamlega
ástæðulaust að senda málið aftur til
miðstjómar ASÍ áður en afstaða
hefur verið tekin til þeirra hugmynda
sem fram em komnar," sagði Karl
Steinar.
„Við munum áfram vinna að lausn
þessa máls með það fyrir augum að
fá fram niðurstöðu sem allir geta
verið sáttir við. Við höfum þegar
farið fram á viðræður við miðstjóm
ASÍ og ég vænti þess að niðurstaða
fáist innan tíðar," sagði Karl Steinar
Guðnason að lokum.
Til greina kemur að
brejrta nefndarskipaninni
- segir Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSI
Á FUNDINUM um Kaupskrár-
nefnd síðastliðinn mánudag kom
m.a. fram að oft tæki það nefnd-
ina marga mánuði og jafnvel ár
að afgreiða einstaka mál, eins og
fram hefur komið í Morgunblað-
inu. Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, sagði í
samtali við Morgunblaðið að vel
kæmi til greina að breyta nefndar-
skipaninni með einhveijum hætti
en hann situr í nefndinni af hálfu
VSÍ.
„Ég held hins vegar," sagði Þórar-
inn „að reynslan af Kaupskrámefnd
hafí í það heila tekið verið miklu
betri en menn hefðu í sjálfu sér get-
að búist við. Ég sé hins vegar ekki
að afgreiðslu mála verði hraðað með
því að breyta nefndarskipaninni. Af-
greiðsla Kaupskrámefndar hefur
ekki verið hægari en almennt gerist
í kjaramálaumræðu hér á landi. Full-
trúar ASÍ og VSÍ í nefndinni verða
að finna lausnir á ágreiningsmálum
hveiju sinni. En ég held að í þessu
tilfelli hafí verið byggt upp kerfí sem
hefur gengið áfallalausara fyrir sig
en önnur slík hafa gert en þetta
kerfí er búið að standa frá árinu
1952.
Undanfarið hafa komið upp fleiri
mál og torleystari gagnvart launa-
ákvörðunum starfsmanna Vamar-
liðsins heldur en gerst hefur í mjög
mörg ár. Skýringin er að sjálfsögðu
sú að þegar jafn miklar launasvipt-
ingar eiga sér stað og á íslandi
síðustu tvö árin þá reynir meira á
að meta launabreytingar. Svona kerfi
sem miðar að því að tryggja að launa-
kjör séu hliðstæð á vallarsvæðinu á
við það sem er utan þess held ég að
sé óhjákvæmilegt ef ætlunin er sú
að íslenskir starfsmenn starfí á vall-
arsvæðinu í jafn miklum mæli og nú
gerist.
Kaupskrámefnd starfar sam-
kvæmt erindisbréfi utanríkisráðu-
neytisins sem aftur er byggt á
vamarsamningi íslands og Banda-
ríkjanna. í erindisbréfinu er kveðið
á um það að nefndin skuli sjá til
þess að launagreiðslur Vamarliðsins
til íslenskra starsmanna þess séu í
samrræmi við íslenska kjarasamn-
inga, lög og venjur.
Yfírleitt reyna fulltrúar ASÍ og
VSÍ í nefndinni að komast að sam-
komulagi um það hvað sé rétt og
eðlileg viðmiðun launa og oftast hef-
ur það tekist. Það hefur ekki komið
til þess að oddamaðurinn, sem er
fulltrúi stjómvalda, skeri úr um
ágreining fulltrúa ASÍ og VSÍ í
nefndinni. Oddamaðurinn er sátta-
maður í henni en hann sker hins
vegar ekki úr ágreiningi fulltrúa ASÍ
og VSÍ.
Það hefur ekki verið talið eðlilegt
að fulltrúi stjómvalda gerist dómari
í þessum málum. Það em engin
talnaleg rök fyrir því að starfsmenn-
imir á vellinum séu lakar settir en
aðrir íslenskir launþegar. Það er
raunar flest sem bendir til hins gagn-
stæða. Það hefur legið það orð á
nefndinni af hálfu atvinnurekenda á
Suðumesjum og víðar á landinu að
launalqor íslenskra starfsmanna
Vamarliðsins væru óeðlilega há,
þahnig að íslenskt atvinnulíf ætti
erfitt með að keppa við völlinn um
vinnuafl Það hefur aldrei verið ætl-
unin að bandaríski herinn sé ráðandi
um launaþróun á íslandi og því síður
að íslenskir starfsmenn hans sæti
lakari kostum en aðrir íslenskir laun-
þegar . Kaupskrámefnd hefur í 35
ár leitast við að halda báðar þessar
forsendur með þolanlegum árangri,"
sagði Þórarinn.
Vísitala bygg-
ingarkostnaðar:
0,37% hækk-
un í nóvember
VÍSITALA byggingarkostnaðar
hækkaði um 0,37% í nóvember-
mánuði og reyndist í byijun
desember vera 107,9 stig, en var
100 í júní 1987. Samsvarandi vísit-
ala miðað við eldri grunn er 345
stig.
Vísitala hefur hækkað um 18%
síðastliðna 12 mánuði. Undanfama
þijá mánuði hefur vísitalan hækkað
um 5,4% og jafngildir sú hækkun
23,3% verðbólgu á heilu ári. Af
hækkun vísitölunnar frá nóvember
til desember stafa um 0,1% af hækk-
un á gatnagerðargjöldum og töxtum
Rafmagnsveitu Reykjavíkur og tæp-
lega 0,3% af hækkun á verði ýmissa
vöru- og þjónustuliða.
pessirglæsilegufrönskupott-
ar frá Aubeco eru margverð-
launaðir fyrir glæsilega
hönnun.
Pottarnir eru úr hápóleruðu
stáli með höldum ur bronsi.
Loftop í loki. Botninn er full-
í.omlega sléttur, gerður ur
ijremur lögum: Stáli, ali og
stáli, 6 mmþykkur. Hamarks
hitaleiðni í botni genr pott-
innmjöghentuganagler-
keramikbelluborð.
| Verðið á þessumgullfallegu
pottum kemur á óvarv En svo
þú getir eignast þrja eða ei
' í einu, bjóðum við þér
greiðslukjör: 3.000 ut og
! 1.500 ámánuði.
ftMxh nvtfiamri niöf r