Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 38
STRIK/SlA
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
4x1,5 htriaf
PfPSI, w
ÚB fíPPflSIH
Sanitas
®TDK TÆRHUÓMUR
Reuter
Kona nokkur tekur Sake-flösku úr hrauk, sem féll úr hillum vínbúð-
ar, en þótt furðulegt megi teljast brotnuðu sárafáar þeirra í slqálft-
anum í gærmorgun.
Japan:
Tveir farast og 53
slasast í jarðskjálfta
Tókió, Reuter.
JARÐSKJÁLFTI, sem mældist
6,6 stig á Richters-kvarða, skók
Tókíó-borg í gærmorgun með
þeim afleiðingum að tveir fórust
og 53 slösuðust. Nær ÖU svæði á
Honshu-eyju urðu fyrir barðinu
á skjálftanum og urðu talsverðar
skemmdir af hans völdum.
Chiba-hérað skammt austur af
Tókíó varð verst úti, en þar varð
mannskaðinn og slösuðust 43 að
auki. Níu byggingar eyðilögðust.
Að sögn lögreglunnar voru bæði
fómarlömbin konur; önnur varð
undir ljósakrónu, en á hina hrundi
veggur.
I Japan hafa verið gerðar miklar
ráðstafanir til þess að minnka hætt-
una af jarðsjálftum, en þeir eru tíðir
þar eystra. Þessar varúðarráðstaf-
anir má rekja til Kanto-skjálftans
mikla hinn 1. september 1923, en
þá létust 100.000 manns í Tókíó
og næsta nágrenni. Skjálftans er
minnst árlega með miklum æfing-
um, en að sögn jarðskjálftasérfræð-
inga gæti skjálfti í líkingu við
Kanto-skjálftann dunið yfír þá og
þegar.
I skjálftanum í gærmorgun slös-
uðust átta manns í Tókíó, en alls
eyðilögðust 16 byggingar víðsvegar
um Japan og nokkurt tjón varð
einnig vegna þriggja aurskriða af
völdum skjálftans.
Vart hefur orðið að minnsta kosti
fímm skjálfta, sem mælst hafa
sterkari en 6,0 á Richters-kvarða,
á þessu ári, en enginn þeirra olli
vemlegu eignatjóni. Manntjónið nú
er hið fyrsta síðan í mars, en þá
lést einn maður.
Af völdum skjálftans urðu einnig
nokkrar truflanir á samgöngum og
rafmagn fór af nokkmm svæðum.
Að sögn japanskra fjölmiðla var
keisarinn á göngu um hallargarð
sinn þegar skjálftinn varð, en hon-
um mun ekki hafa orðið meint af.
Veðurstofa Japans sagði að upp-
tök skjálftans hefðu verið í Kyrra-
hafí, um 80 km austur af Chiba.
Holland:
Stjórnar heila-
vöxtur kynhneigð?
Haag, Reuter.
HOLLENSKUR vísindamaður
telur sig nú hafa komist á spor-
ið um hvað valdi þeirri þrá
sumra að vilja vera annars kyns,
en þess sem þeim var áskapað.
Segir hann að rannsóknir kunni
að benda til þess að þetta megi
rekja til heilans.
Að sögn Dicks Swaab, forstöðu-
manns Hollensku heilarannsóknar-
stofnunarinnar, hefur komið í ljós
að ákveðinn hluti heilans er stærri
í þeim, sem fínnst þeir hnepptir í
líkama rangs kyns, en hinum sem
eðlilegir teljast. Kom þetta fram í
máli Swaabs í gær á ráðstefnu
vísindamanna, sem haldin er í
Eindhoven.
Að sögn Swaabs leiddu rann-
sóknir á tveimur karlmönnum, sem
telja sig hafa fæðst í röngum
líkama hvað kynferði áhrærir, í
ljós að ákveðinn hluti heilans, sem
yfírleitt inniheldur um 50.000
frumur, var um tvöfalt stærri í
þeim en títt er. Þessi hluti heilans
er nauðsynlegur hinni lífeðlisfræði-
legu „klukku" og stjómar kynferð-
ishegðan margra spendýra.
„Hvort þama er beint samband
á milli þarf að rannsaka," sagði
Swaab og leiddi getum að því að
skortur á kynhormónum á ákveðnu
vaxtarskeiði heilans kynni að ráða
fyrmefndri hneigð. Hins vegar
sagði hann það ráðgátu hvað ylli
skortinum, ef þessi tilgáta reyndist
rétt vera.