Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
39
Indland:
Union Carbide gert
að greiða skaðabætur
Bhopal, Reuter.
DÓMARI á Indlandi gerði Union
Carbide fyrirtœkinu í gær að
borga fómarlömbum gaslekans
fyrir þremur árum 270 miiyónir
Bandaríkjadala í bráðabirgða-
skaðabætur. Enn á eftir að skera
úr um hver beri ábyrgð á mesta
iðnaðarslysi veraldarsögunnar
er 2.500 manns fórust og tvö
hundruð þúsund slösuðust.
Indverska stjómin hefur einnig
kært bandaríska fjölþjóðafyrirtækið
fyrir landspjöll sem hlutust af slys-
inu og krefst hún 3.3 milljarða
Bandaríkjadala í skaðabætur.
Union Carbide fyrirtækið sem
hefur aðsetur í Connecticut í Banda-
ríkjunum heldur því fram að starfs-
maður þess hafi fyrir skemmdar-
verk orðið valdur að slysinu í
verksmiðjunni í Bhopal þar sem
skordýraeitur var framleitt. Tals-
menn fyrirtækisins hafa mótmælt
úrskurði dómarans og segja að það
bijóti í bága við indversk og al-
þjóðleg lög að dæma skaðabætur
án undangenginna réttarhalda um
sök ( málinu.
Hagfræðingar svart-
sýnir á efnahagslífið
HAGFRÆÐINGAR úr öUiim
heimshomum eru sammála um
að Bandaríkin og aðrar þjóðir
þurfi að gripa til skjótra aðgerða
tíl að koma í veg fyrir alvarlega
kreppu og frekara hrun á verð-
bréfamörkuðum.
Hagfræðingar frá rannsóknar-
stofnunum í Bandarikjunum,
Evrópu, Suður-Ameríku og Asíu
gerðu grein fyrir sameiginlegum
niðurstöðum sínum um afieiðingar
verðbréfahrunsins í október í
skýrslu á vegum Alþjóðahagfræði-
stofnunarinnar (Institute of Inter-
national Economics) í Washington.
Sögðu þeir að að Bandaríkjamenn
og aðrar þjóðir hefðu brugðist rétt
við eftir verðfallið. Þó hefði ekki
verið gengið nógu langt í aðgerðum
og bentu hagfræðingamir á að al-
þjóðlegar ráðstefnur gætu ekki
bætt upp ófullnægjandi aðgerðir í
efnahagsmálum heima fyrir.
„Ef ekki koma til beinskeyttari
aðgerðir til að höggva að rótum
þess ójafnvægis sem nú ríkir í efna-
hagsmálum verða næstu ár þau
erfiðustu síðan á kreppuárunum
uppúr 1930,“ segir í niðurstöðum
hagfræðinganna. Ef ekki verður
gripið til þeirra aðgerða sem hag-
fræðingamir leggja til telja þeir að
þriðja fallið á verðbréfamörkuðun-
um sé óumflýjanlegt og að það verði
meira en hrunin tvö í október.
Hagfræðingamir telja að undir-
rót kreppunnar sé bandaríski fjár-
laga- og viðskiptahallinn,
umframframleiðsla Japana og mik-
ið atvinnuleysi í Evrópu. Auk þess
telja þeir að skuldir og efnahagsleg
stöðnun þróunarlandanna sé hluti
vandans sem við er að glíma.
Það sem hagfræðingamir telja
brýnast, er að Bandaríkjamenn
haldi aftur af eyðslu innanlands.
Telja þeir að bandarísku flárlögin
sem nýlega vom samþykkt séu
skref afturábak.
Forstjórar
á móti
reykingum
London, Reuter.
ÞRÍR af hveijum fjórum for-
stjórum fyrirtækja i Bretlandi
segjast reiðubúnir að banna
reykingar starfsfólks við vinnu.
62% þeirra hafa reyndar þegar
bannað reykingar að huta til í
verksmiðjum og á skrifstofum.
Þijú prósent aðspurðra sögðust
hafa orðið vör við mótmæli eftir
að banni við reykingum var komið
á. Margir forstjóranna sögðust ein-
ungis ráða starfsfólk sem ekki
reykti.
Iðnaðardómstóll hafnaði á dög-
unum skaðabótakröfu reykinga-
manns á hendur vinnuveitanda
sínum. Maðurinn sagðist hafa orðið
að hætta í vinnunni vegna
reykingabannsins.
JOLAHJOL
Jólatilboð:
Verðið á öllum okkar
hjólum er eins og eftir
fyrirhugaða tollalækk-
un (án gengisbreyt-
■
... Reidhjólaverslunin,—
Sérverslun f meira en 60 ár ORNINNl
Spilalastig 8 við Oðinslorg simar: 14661,26888
LEIÐARLJÓSIÐ
Lítill, skrítinn verðlaunalampi á aðeins 593 krónur.
Lausn á lýsingarvanda.
Stundum þarfbirtu án þess að alltsé uppljómað með „uenju-
legri“ lýsingu.
LEIÐARLJÓSIÐ er tilvalinn í barnaherbergið, í forstofuna
og í svefnherbergisganginn. Á nóttunni lýsir hann upp gangana
i fyrirtœkinu.
LEIÐARLJÓSIÐ endist von úr viti og eyðir sáralitlu
rafmagni.
LEIÐARLJÓSIÐ var valinn lampi ársins ’86 í Noregi og
hlaut hin virtu vestur-þýsku IF 87 hönnunarverðlaun fyrir að
leysa þessi lýsingarvandamál á stórkostlega hagkvœman og
öruggan hátt.
Hann er samþykktur af Rafmagnseftirliti ríkisins og fœst í
öllum helstu raftœkjaverslunum landsins.
BRÆÐURNIR
ORMSSÖN HF
Lágmúla 9 sími: 38820