Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 42

Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarrltstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Agúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösia: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 55 kr. eintakiö. Frá S-Kóreu til Nicaragna Lýðræðislegar forseta- kosningar fóru fram í Suður-Kóreu í fyrradag í fyrsta sinn í sextán ár. í febr- úar á næsta ári tekur öruggur sigurvegari kosninganna Roh Tae-woo við völdum af Chun Doo Hawn. Báðir eru þeir úr sömu fylkingu, sem á rætur í hemum, en hann hefur stað- ið að baki forsetum landsins undanfarin sextán ár og hafa þeir í raun stjómað í umboði hans. Stjómmálaástandið hefur einkennst af mikilli spennu í Suður-Kóreu undanfarið. Um langt skeið hefur verið ljóst, að Chun Doo Hawn myndi láta af völdum í byrjun næsta árs. Um mitt þetta ár kom hvað eftir annað til blóðugra átaka milli stúdenta og lög- reglu í Seoul, höfuðborg S-Kóreu. Var ljóst að and- staða gegn alræðisvaldi hersins var orðin víðtæk og mögnuð. 29. júní síðastliðinn gerðist það svo í beinni sjón- varpsútsendingu, að yfírlýstur arftaki Chun Doo Hawn, Roh Tae-woo, lýsti yfír þvi, að hann féllist á allar meginóskir stjómarandstöðunnar um breytingar í lýðræðisátt; á þeim gmndvelli var síðan gengið til forsetakosninganna nú 16. desember. Stjómarandstæðingar klofnuðu þegar nær dró kosn- ingunum; hefðu þeir samein- ast um einn frambjóðanda hefði Roh Tae-woo tæplega náð kjöri. Nú þegar sigur hans blasir við, hefur stjómarand- staðan uppi harða gagnrýni á þeim forsendum, að um kosn- ingasvik hafí verið að ræða. Formaður alþjóðlegrar eftir- litsnefndar, sem fylgdist með kosningunum, segir á hinn bóginn, að ástæðulaust sé að tala um víðtæk kosningasvik, þótt. sumt hefði vissulega mátt betur fara við fram- kvæmd kosninganna. Stjóm- völd í Japan, sem fylgjast best með kóreskum stjóm- málum af lýðræðisríkjunum, draga ekki í efa að kjör Roh Tae-woo sé lögmætt. í Suður-Kóreu hefur feng- ist enn ein staðfesting er á því að munur er á framgöngu stjómmálamanna í þeim ríkjum, þar sem einn flokkur fer með völd en ekki í nafni marxisma, og hinum, þar sem einn flokkur marxista fer með völd. Hinum síðamefndu dett- ur aldrei í hug að taka tillit til andmæla gagnrýnenda sinna. Marxistar beita her- valdi og fangelsunum mis- kunnarlaust til að þagga niður í þeim, sem ekki sætta sig við óskomð völd þeirra. Saga Castro á Kúbu er skýrt dæmi um þetta og þessi saga er að endurtaka sig í Nicaragua. Síðan sandínistar komust þar til valda á árinu 1979 hefur ekki verið efnt til lýðræðis- legra kosninga í landinu og ekkert slíkt er á döfínni. Þvert á móti stefnir þar allt f átt til hemaðarlegrar stjómar marxista með stuðningi og vemd Kúbu og Sovétríkjanna. Um síðustu helgi bámst frétt- ir um að ætlunin sé að koma á fót 500-600 þúsund manna herafla í Nicaragua, sem bú- inn verður sovéskum vopnum og vígvélum. Gorbatsjov og hans menn halda fast í þá firru, að þeir geti ekki dregið innrásarher- inn til baka frá Afganistan vegna þess að Bandaríkja- menn veita frelsissveitunum þar stuðning. Nú em brátt átta ár liðin frá því að blóðbað marxismans í Afganistan hófst. Sandínistar reyna að afsaka einræði sitt og hervæð- ingu með því að Bandaríkja- menn styðji þá, sem vilja aðra stjómarhætti í Nicaragua. Á sínum tíma réðust kommún- istar inn í Suður-Kóreu. Töldu þá margir, að heimsfriðurinn hengi á bláþræði. Þeirri árás var hrandið með sameiginlegu átaki á vegum Sameinuðu þjóðanna. Síðan ríkir hemað- arástand á landamærum Norður- og Suður-Kóreu. Þeir, sem hafa farið með völd- in í Seoul, hafa löngum afsakað einræðislega sljóm- arhætti sína með því að vísa til hættunnar að norðan. Stjómarherramir í Suður- Kóreu komust ekki upp með það — enda hafa þeir ekki beitt andstæðinga sína marx- ísku harðræði og styðjast ekki við marxískan heimstrúar- og áróðurssöfnuð Kammersveit Reykjavíkur á æfingxi í Áskirkju f gær. Morgunblaðið/BAR Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur: Vinnuni að sameigin- legri mynd af bylgjum - segir Rúnar Vilbergsson fagottleikari JÓLATÓNLEIKAR Kammersveitar Reykjavíkur, sem haldnir verða { Áskirkju nk. sunnudag og hefjast klukkan 17, eru að þessu sinni helgaðir itölskum tónskáldum. Fluttir verða fimm konsertar eftir fjögur tónskáld, trompet- og fagottkonsertar eftir Vivaldi, fiðlukon- sert eftir Tartini, gitarkonsert eftir Giuliani og Jólakonsert eftir Manfredini. Á æfingu Kammersveitarinnar i gær spjallaði Morgun- blaðið við Hlif Siguijónsdóttur, konsertmeistara og einleikarana Araald Amarson, Laufeyju Sigurðardóttur, Láras Sveinsson og Rúnar Vilbergsson. Einnig er Ásgeir H. Steingrímsson meðal einleik- ara. Hlíf Sigurjónsdóttir, sem er kon- sertmeistari í forfollum Rutar Ingólfsdóttur, sagði að Kammer- sveitin væri mjög skemmtilegur hópur og lofaði góðum tónleikum á sunnudaginn. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég spila með Kammer- sveit Reykjavíkur," sagði Hlíf. Ég starfaði eitt ár með Kammersveit- inni í ZÚrich í Sviss en kom heim f haust og verð hér alla vega fram í mars á næsta ári en það er að vísu óráðið hvað við tekur hjá mér. Það er mjög mikið tónlistarlíf í ZÚrich, tónleikar á hverju kvöldi. Ég var þar í tvö ár, fyrra árið við nám, en áður var ég búin að vera við nám í Indiana í Bandaríkjunum í tvö ár og í Toronto og Alberta- fylki í Kanada í fjögur ár,“ sagði Hlíf. í fyrsta sinn í hljómsveit hérlendis Amaldur Amarson, gítarleikari, sagðist ekki hafa leikið áður með hljómsveit hér á landi. „Ég spilaði hins vegar með hijómsveit þegar ég var í námi í Bretlandi," sagði Amaldur. „Það er stórgaman að vera kominn heim og spila með Kammersveitinni. Fjögur síðastliðin ár hef ég starfað við Luthiertónlist- arskólann í Barcelona á Spáni en ég var í eitt ár við nám í Álicante á Spáni. Það er nokkuð blómlegt tónlistarlíf í Barcelona. Þar er m.a. geysistórt ópemhús og mikið um að stórar hljómsveitir komi til tón- leikahalds í borginni. Það er hins vegar ekki mikil hefð fyrir kammer- tónlist á Spáni og því á hún nokkuð erfítt uppdráttar þar. Ég veit ekki til að þessi gítarkon- sert sem ég spila á sunnudaginn, Ópus 30 eftir Giuliani, hafí verið fluttur áður hér á landi. Þetta er fyrsti stóri einleikskonsertinn fyrir gítar og hann var frumfluttur í Vín árið 1808. Við flytjum hann hins vegar í útsetningu fyrir gítar og litla strengjasveit. Þetta er hálfgerð óperutónlist og eina verkið á tón- leikunum sem ekki er barokk. Tónmálið minnir einna helst á tón- list Rossinis, enda var Giuliani vinur og aðdáandi Rossinis," sagði Am- aldur. Alltaf jafn gaman að spila með sveitinni Láms Sveinsson, trompetleikari, sagði að Vivaldi hefði samið mikið af barokktónlist og trompetamir hefðu mikið verið notaðir almennt í henni. „Notkun trompetanna datt hins vegar niður í Vínarklassíkinni en náði sér aftur á strik í nútímatón- list," sagði Láms. „Þessi konsert eftir Vivaldi sem við spilum er þekktasta verkið fyrir tvo trompeta. Ég spilaði þetta verk fyrst með Jóni Sigurðssyni á tónleikum í Há- skólabíói fyrir átján eða nítján ámm en hef hins vegar ekki spilað það í fímmtán ár. Ég kom heim frá námi í Vín árið 1967 til að spila með Sinfóníuhljómsveitinni. Ég var einn af stofnendum Kammersveitar Reykjavíkur en hún var stofnuð árið 1974 að mig minnir. Ég hef spilað með sveitinni frá því að hún var sett á laggimar og alltaf haft gaman af að leika með henni," sagði Lárus. „Éghlakkatil tónleikanna“ Laufey Sigurðardóttir, fíðluleik- ari, sagði að fíðlukonsertinn væri dæmigerður ítalskur einleikskon- sert. „Mér finnst hann mjög fal- legur, í honum er mikið af trillum og öðm útflúri. Ég hef aldrei spilað þetta verk opinberlega, en sam- Herma í nokki HERMANNAVEIKI eða lungnaból hila hefur orðið vart hér á landi < loftræstikerfum og neysluvatni sj var á orsökum lungnabólgusýkingi ist mótefnahækkun gegn legionel slík sýking aldrei greinst hérlendi Ólafúr Steingrímsson, yfírlæknir, og Sigurður B. Þorsteinsson, smit- sjúkdómafræðingur á lyQadeild Landspítalans, hafa unnið að rann- sóknum á hermannaveiki hérlendis, auk Qölda annarra lækna á Land- spítala, Borgarspítala og Landa- koti. Sigurður sagði í samtali við Morgunblaðið að rannsóknir bentu til þess að þessi baktería væri mjög útbreidd á sjúkrahúsum hérlendis og hafa ráðstafanir verið gerðar til Stuðningur við tónlist- arskóla verði tryggður SAMTÖK tónlistarskólastjóra af- hentu í gær forseta Sameinaðs þings, Þorvaldi Garðari Kristjáns- syni, áskorun til Alþingis um að tryggja áframhaldandi stuðning ríkisins við starfsemi tónlistar- skóla i landinu. Áskomnin er með undirskrift 3.800 manns, forráðamönnum tón- listamema, tónlistamemum 18 ára og eldri, tónlistarkennumm, skóla- stjómm og öðmm velunnurum tónlistarskólanna, eins og segir í greinargerð með áskomninni. Þá segir ennfremur að með áskomninni sé ekki einvörðungu átt við það ákvæði í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1988 sem kveði á um að ríkið hætti stuðningi við tónlistar- skóla frá og með 1. september 1988 heldur sé einnig átt við nauðsyn áframhaldandi stuðnings ríkisins við tónlistarskóla í framtíðinni. MorgunbUðið/ÓLICM. Fulltrúar þeirra sem skrifuðu undir afhenda Þorvaldi Garðari Kristj- ánssyni, forseta sameinaðs þings, áskorunina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.