Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Frístandandi eldavél með blástursofni
og venjulegum. Gerð EK 2034
Glæsileg vél með 4 hellum, 1
með termostati, 3 hraðsuðu-
hellur. Höggvarin emalering.
Emaleraðarhliðar. Sjálf-
hreinsandi ofn, grill, blástur,
yfir- og undirhiti, geymslu-
skúffa. íslenskar
leiðbeiningarfylgja.
Blomberq
Verð:
Kr. 39.950,-
Kr. 37.952,- stgr.
Þvottavél gerð VM 818
Stillanlegur hiti 30-90°. Ullar-
og gardínuval. Hraðþvottur,
vindustopp. Vinding 400-800
snúningar. Stórt op. Mjög
góð reynsla. íslenskur leið-
arvísir.
Blomberq
Verð:
Kr. 31.500,-
Kr. 29.900,- stgr.
Kæliskápur fyrir minni heimili.
Gerð KS145/KS150
143 lítra kælir. Fæst einnig
með 15 lítra fyrstihólfi.
Mál: H85 x B50 x D54.
Blomberq
Verð:
Kr. 15.900,-
Kr. 14.900,-stgr.
Frystiskápur fyrir minni heimili.
GerðFS120
113 lítra djúpfrystir. 4 skúff-
ur. Frystir 14 kg. á sólarhring,
lítil rafmagnseyðsla.
Mál: H85 x B50 x D54
Blomberq
Verð:
Kr. 27.900,-
Kr. 26.500,- stgr,
Einar Farestveit & Co .hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91J 16995 OG 622900 - NÆG BILASTÆÐI
Tekur nýr heims-
meistari við í kvöld?
Skék
Margeir Pótursson
Anatoly Karpov stendur með
pálmann í höndunum fyrir
sfðustu skákina f heimsmeist-
sraeinvfginu sem tefld verður
í dag. Hann náði forystunni í í
gærdag með þ ví að vinna næstsí-
ðustu skák einvigisins i 57
leikjum. Þar með er staðan
12-11 Karpov í vO og honum
nægir jafntefli í dag tíl að end-
urheimta heimsmeistaratitil-
inn, sem hann glataði í hendur
Kasparovs árið 1985. Fari leik-
ar hins vegar svo að Kasparov
vinni síðustu skákina þá heldur
hann titlinum á jöfnu, 12-12.
Framhald biðskákarinnar í gær
var svo dramatískt að það á
vart sinn líka í meira en hundr-
að ára sögu heimsmeistara-
keppninnar í skák. Kasparov
var með lakari stöðu og hugð-
ist rétta úr kútnum með
hróksfórn i tímahraki. Hún
reyndist byggð á grófri yfir-
sjón og Karpov hrakti fórnina
á fremur einfaldan máta.
Þegar 23. skákin fór í bið í
fyrrakvöld var ljóst að Karpov
stóð mun betur. Þegar hún var
tefld áfram í gærdag kom í ljós
að Karpov ætlaði sér að fara að
engu óðslega, hann virtist fyrst
og fremst hugsa um að treysta
góð tök sín á stöðunni. Gegn
þrautseigri vörn heimsmeistarans
hefði verið allt annað en auðvelt
verk fyrir hann að færa sér stöðu-
yfírburðina í nyt og skákin hefði
í þvf tilviki getað farið aftur í bið.
Kappamir fóru rólega af stað og
báðir lentu í miklu tímahraki. I
50. leik lét Kasparov síðan til
skarar skríða, en hróksfóm hans
reyndist byggð á hrikalegri yfír-
sjón. Þegar tímahrakslátunum
linnti stóð hann síðan uppi með
gjörtapaða stöðu. Kasparov brosti
síðan þurrlega þegar hann gafst
upp í 57. leik og stóð upp frá
borðinu, en áhorfendur í troðfullu
leikhúsinu fögnuðu Karpov ákaft.
Þetta var frábær skák hjá
Karpov, líklega hans bezta frá því
hann vann 28. einvígisskákina við
Kasparov í fyrsta einvígi þeirra
árið 1984. Hann hafði allan
tímann betra tafl og sýndi ofur-
mannlegan skilning sinn á eðli
stöðubaráttu. Kasparov náði aldr-
ei því frumkvæði eða sem hann
þarf til að sýna sínar beztu hliðar
og þegar hann loksins lét til skar-
ar skríða innsiglaði hann örlög sín.
Einvíginu er þó ekki lokið.
Kasparov hefur allt frá því í ell-
eftu skákinni gert þau mistök að
gera sig ánægðan með jafntefli,
jafnvel í hagstæðum stöðum. Nú
er slíkur leikmáti fyrir bí og
heimsmeistarinn á engra kosta
völ nema þann að tefla stfft til
vinnings. Nú er það hann sem
hefur engu að tapa.
Það má þvf búast við að 24.
skákin f kvöld gefí sfðustu skák
lítið eftir. Það er þó lítil ástæða
til bjartsýni fyrir Kasparovs hönd.
Hann hefur t.d. aðeins tæpan sól-
arhring til að undirbúa sig, því
ekki er um það að ræða að ská-
kinni verði frestað. Það má einnig
minna á að úrslit heimsmeistara-
einvígis hafa aldrei ráðist í síðustu
skák þess. Enski stórmeistarinn
Raymond Keene, sem er vinur
Kasparovs til margra ára, var
mjög svartsýnn. „Möguleikar
hans em núll. Það getur ekki
nokkur maður náð sér á strik eft-
ir svona áfall." Sovézki stórmeist-
arinn Eduard Gufeld benti hins
vegar á að staða Kasparovs nú
væri ekkert lakari en Karpovs
fyrir 23. skákina. „Fyrst Karpov
tókst að nýta sitt síðasta tæki-
færi, þvf ætti Kasparov ekki að
geta það líka," sagði hann.
23. skákin tefldist á þessa leið
eftir bið:
Svart: Gary Kasparov •
41. Hgl!
Biðleikur Karpovs, en hér í
blaðinu í gær var einmitt stungið
upp á þessum leik og hann talinn
sá bezti.
41. - h5 42. Ha5
Áætlunin sem nefnd var hér í
gær, 42. Bel, á ekki við eftir
síðasta leik svarts. Henni yrði
svarað með 42. — Hfl! 43. Bg3
— Hxgl+ 44. Hxgl — h4 og bisk-
upinn á g3 er lentur í dálitlum
vandræðum.
42. - De7 43. Hbl!T
Þessi leikur kemur talsvert á
óvart, því hrókurinn er mjög góð-
ur vamarmaður á gl og dálæti
Karpovs á slíkum staðsetningum
er vel þekkt. Raunin verður líka
sú að hann leikur _ hróknum til
baka eftir fáa leiki. Ég hafði búist
við að Karpov myndi nú fara með
biskupinn yfír á kóngsvæng og
leika 43. Bel, því 43. — Hfl er
ekki lengur mögulegt.
43. - h4 44. Ha6 - H8f7 45.
Hc6 - Df8 46. Hgl! - Be7 47.
He6 - Kh7 48. Bel.
Auðvitað ekki 48. Hxe5?? -
Bd6 49. He6 - H7f3! o.s.frv.
48. - Hfl 49. Bd2 - Bc5
Kasparov vill ekki leyfa Karpov
að losna úr timahrakinu með þrá-
leikjum og hyggst breyta stöð-
unni. Þetta bendir til þess að hann
hafi ekki talið að hægt væri að
halda taflinu með óvirkri vöm.
50. Hc6
50. - H7f3?? 51. gxf3 - Hxf3
52. Hc7+ - Kh8 53. Bh6!
Vinningsleikurinn, sem Ka-
sparov hefur auðsjáanlega yfír-
sést er hann fómaði hróknum.
Leikurinn er tiltölulega einfaldur,
flestir sæmilegir meistarar hefðu
átt að taka eftir honum.
Það er eins og Kasparov hafí
annaðhvort verið búinn að missa
þolinmæðina eða farið á taugum
og óskhyggja ráðið ferðinni þegar
hann fómaði. Það þarf ekki mikið
hugmyndaflug til að reikna með
að hvítur víki drottningunni ekki
undan í stöðunni, heldur setji á
drottningu andstæðingsins. Þar
sem þetta er mögulegt eru úrslit-
in ráðin.
53. - Hxd3 54. Bxf8 - Hxli3+
55. Kg2 - Hg3+ 56. Kh2 -
Hxgl 57. Bxc5
Síðasta von Kasparovs var 57.
Kxgl?? - d3+ 58. Kfl - h3 og
svartur bjargar sér.
57. — d3 og Kasparov gafst upp,
því hvítur leikur auðvitað 58. Be3
- Hel 59. d6.
Yfirlýsingar sem
engan veginn standast
Athugasemd frá Gunnari Oskarssyni
aðstoðarf ramkvæmdastj óra
Fjárfestingarfélagsins
SÚ HÆKKUN sem orðið hefur á
fasteignaverði undanfarið er fyrst
og fremst tilkomin annars vegar
vegna þess að síðasta ríkisstjóm jók
vemlega flármagn til húsnæðis-
kaupa á stórlega niðurgreiddum
kjörum, sem gerði það að verkum
að menn tóku lán, hvort sem þeir
þurftu á því að halda eða ekki, og
hins vegar vegna þess hringlanda-
hátts og óvissu sem ríkt hefur í
húsnæðislánakerfinu. Stjómmála-
menn verða að fara að gera sér
grein fyrir því fyrirfram hvort þeir
geti staðið undir þeim skuldbinding-
um, sem lög um húsnæðismál hafa
í för með sér, og setja lög sem
standast til lengri tíma. Það er frá-
leitt að gefa sér að 2% fjármögnun
á húsnæðisioforðum hafi valdið
þeirri þenslu, sem átt hefur sér stað
á fasteignamarkaði, eins og kom
fram í ræðu Jóhönnu Sigurðardótt-
Borgarnesi.
STÖÐ 2 næst núna í Borgarnesi.
Endurvarpsstöð var sett upp við
bæinn og hófust útsendingar í
gær, fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum mark-
aðsdeildar Stöðvar 2 verður dag-
skráin send rugluö inn í kapalkerfið
sem nær um hluta bæjarins, þannig
að hver og einn áskrifandi þarf að
ur í gær. Þar að auki hefur slík
Qármögnun ætíð verið til staðar,
en í öðru formi.
Þær hugmyndir sem komið hafa
fram um að setja bann við fjár-
mögnun lánsloforða er með öllu
fráleit og þjóna engum tilgangi, þar
sem íbúðarkaupendur geta eftir
sem áður fengið lán út á væntanleg
húsnæðislán, með öðrum tiygging-
um, sem einfaldlega gerir lánið
dýrara þegar upp er staðið, þar sem
ávísun á lánsloforð húsnæðisstofn-
unar hefur verið talin mjög góð
trygging.
kaupa sér myndlykil. Þeir sem
tengdir eru við kapalkerfíð geta þó
sparað sér kaup á Ioftnetum. Þeir
sem ekki eru tengdir við kapalkerf-
ið geta náð Stöð 2 með gömlu
loftnetunum, en ekki með fullum
myndgæðum. Gætu þeir þurft að
kaupa sér nýtt.
- TKÞ
Stöð 2 næst í Borgarnesi