Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 18. DESEMBER 1987
53
Steingrímur Hermannsson um Flugstöð Leifs Eiríkssonar;
„Glæsilegt hlið inn í land okkar“
5000 fermetra og 20000 rúmmetra stækkun sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson. Alþingi kjósi rannsóknarnefnd sagði Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra, mælti í gær i
sameinuðu þingi fyrir greinar-
gerð sinni um skýrslu Rikisend-
urskoðunar um byggingu
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar,
sem hann kallaði „glæsilegt hlið
inn í land okkar“. Ráðherra sagði
að flestir verkþættir, sem
„skornir voru niður“ við endur-
skoðun upphaflegra byggingar-
áforma, hefðu komið inn aftur á
síðari byggingarstigum, enda
reynzt nauðsynlegir til að flug-
stöðin gæti sinnt fyrirsjáanlegri
umferð og þjónustukröfum.
Þeim hafi hinsvegar fylgt um-
talsverður kostnaðarauki.
Viðbótar verkþættir
Ráðherra rakti þessa verkþætti,
sem ykju notagildi flugstöðvarinn-
ar, en hafi sagt til sín í um það bil
870 m.kr. kostnaðarauka. Þar af
næmi^ kostnaður við verkþætti,
umfram endurskoðuð byggingar-
áform, um 650 m.kr., magnaukning
um 150 m.kr. og ófyrirséður kostn-
aður rúmlega 80 m.kr. Kostnaðar-
aukinn ætti m.a. rætur í
hönnunarkostnaði, stækkun land-
gangs og landgangshúss, sem
reynsla sýndi að þörf hafi verið
fyrir, stækkun kjallara, endurbættu
loftræstikerfi o.fl.
Það sem um væri deilt væri hins-
vegar það, hvort leitað hafi verið
réttra heimilda til að taka inn þann
viðbótarkostnað er var viðbótar-
framkvæmdum og endurhönnun
samfara. Byggingamefnd hafi sent
upplýsingar hér um til fjárlaga- og
hagsýslustofnunar. Réttara hefði
verið senda þær beint til ríkisstjóm-
ar og Alþingis. Það komi hinsvegar
einnig fram í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar, sagði utanríkisráðherra,
að yfírstjóm byggingarinnar hefði
„að ýmsu leyti brugðizt rösklega
við þegar erfíðleikar steðjuðu að“ á
byggingartímanum, en svo virtist
sem „skort hafi á heildaiyfírsýn".
5000 fermetra
og 20000 rúm-
metra stækkun
Jón Baldvin Hannibalsson, fjár-
málaráðherra, sagði skýrslu Ríkis-
endurskoðunar leiða í ljós, að
stjómendur byggingarinnar hafí
ekki haft nægilega yfírsýn yfír
kostnaðarframvindu — og breytt
byggi ngaráætl u nu m án þess að
fjárveitingavaldið kæmi nægilega
við sögu. Ráðherrann gerði og sam-
anburð á byggingarkostnaði Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar og
byggingarkostnaði lítið eitt minni
flugstöðvar f Harrisburg í Banda-
ríkjunum. Kostnaður á fermetra hér
væri 127.800 - 139.600 krónur, en
ekki nema um 75.000 krónur í
Harrisburg. Kostnaður hér væri því
um 87% hærri.
„Eins og fram hefur komið,"
sagði flármálaráðherra, „var upp-
lýsingastreymi til stjómvalda mjög
áfátt". Hann nefndi nokkur dæmi.
Hér verður eitt þeirra rakið orðrétt:
„Byggingamefnd breytti veru-
lega út frá upphaflegri áætlun sem
Alþingi hafði samþykkt. Land-
göngubrúm var fjölgað úr þremur
í sex, landgangur lengdur um þriðj-
ung, kjallari stækkaður og svo
mætti lengi telja. Þetta voru um-
fangsmiklar breytingar, enda varð
niðurstaðan sú að flugstöðin er að
minnsta kosti 5.000 fermetrum og
20.000 rúmmetmm stærri, en upp-
haflega hafði verið samþykkt. í
skýrslum utanríkisráðuneytis til
Alþingis á ámnum 1984-87 er ekki
að fínna greinargerðir um að breytt
hafi verið frá upphaflegri áætlun.
í fjárveitingabeiðnum nefndarinn-
ar, sem bámst á þessum tíma, er
heldur ekki getið um þessar breyt-
ingar. Ekki er til þess vitað að
málið hafí verið rætt í ríkisstjóm.
Því síður bámst upplýsingar um
þann aukakostnað sem af þessu
hlytizt ..."
Ráðherra sagði að lokum að
skýrsla ríkisendurskoðunar vekti
spumingar um það, „hvað læra
megi af þessari mistakasögu". í því
samabandi sé rétt að huga að niður-
stöðum Ríkisendurskoðunar um
nauðsyn á vönduðum undirbúningi
framkvæmda, vandaðri áætlunar-
gerð (samræmingu framkvæmda
og fjárhagsáætlana), vandaðri
vinnubrögðum við fjárlagagerð og
loks að varast breytingar á verk-
tíma.
Fræðslustj órinn
og flugstöðin
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl/nl.e.) minnti í upphafí máls
síns á fræðslustjóra norður í landi,
sem farið hafí fram úr fjárlaga-
heimildum, að dómi viðkomandi
ráðherra, og verið rekinn. Um hafí
verið áð ræða fáeinar milljónir, ráð-
stafað til sérkennslu. Hér sé
hinsvegar verið að ræða um lang-
leiðina í þúsund milljónir, sem sóað
hafí verið án heimildar ijárveitinga-
valdsins. En nú er enginn rekinn,
sagði þingmaðurinn. Stjómvöld
virðast telja að allt sé í stöku lagi.
Þingmaðurinn staðhæfði að
skýrsla utanríkisráðherra um þetta
mál væri röng, stangaðist á við
skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hann
krafðist þess að ráðherra dragi
skýrsluna til baka. Svona meðferð
utanríkisráðherra á opinberu plaggi
er ámælisverð, sagði hann. Loks fór
þingmaðurinn fram á fund forseta
þingsins, formanna þingflokka og
skýrslugjafa um málið.
Þá lét þingmaðurinn að því liggja
að Alþingi hafí verið blekkt þegar
upphaflegar kostnaðaráætlanir
vóru lagðar fram og samþykktar.
Annaðhvort var Alþingi blekkt,
sagði hann, eða málsvöm aðila er
brostin.
Þingmaðurinn sagði að Flugstöð
Leifs Eiríkssonar eigi rætur að
rekja til þess tíma er ríkisstjóm
Steingríms Hermannssonar varð til
1983. Þá hafí þau ráð verið ráðin
er skópu þetta óskabam Sjálfstæð-
isfíokksins, sem flugstöðin væri.
Alþýðubandalagið lagði hinsvegar
til, sagði þingmaðurinn, að hannað
yrði verulega smærra mannvirki,
sem byggja mátti í áföngum.
Alþýðubandalagið leggur til,
sagði þingmaðurinn, að Alþingi
kjósi sérstaka rannsóknamefnd,
þingmannanefnd, sem fari ofan í
þetta mál. Það er rökrétt því hér
eiga hlut að máli miklir valdamenn
í þjóðfélaginu. Það á ekki að vera
hægt að sóa heilum milljarði án
þess að nokkur bæri ábyrgð.
Þegar Steingrímur J. Sigfússon
hafði lokið máli sínu tók Matthías
Á. Mathiesen, samgönguráðherra
og fyrrverandi utanríkisráðherra,
til máls. Ræða hans er birt í heild
á öðmm stað hér í blaðinu í dag.
Ábyrgð fram-
kvæmdavaldsins
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
(B/Rvk) ræddi umræðuefnið frá
sjónarhóli kvenna, sem væru tíðast
Qármálaráðherrar heimilanna. Á
þeim vettvangi skipti kostnaður
umfram áætlun miklu máli. Þegar
eytt er umfram «61! á þeim vett-
vangi verði ekki fram hjá því gengið
að axla ábyrgðina.
Hér virðist enginn bera ábyrgð
á neinu. Það er blásið út í loftið
yfír þúsund milljónum, rétt eins
verið sé að blása á bifukollu. En
enginn ber ábyrgð; ekki byggingar-
nefndin, ekki húsameistarar, ekki
ráðherrar. Það veit enginn hvemig
þetta skeði. Þetta bara varð svona.
Skýringar eru engar. En einhver
hlýtur að hafa stjómað framvind-
unni.
Fagráðherrar hljóta að bera
ábyrgð á framkvæmdum sem heyra
ráðuneytum þeirra til.
Þegar við konumar hér á Alþingi
leggjum til að ráðstafa fjármunum,
oft til að rétta hlut þeirra sem lak-
ar standa, þá er svarið jafnan: Það
em engir peningar til. Svo er til
milljarður í svona fyrirtæki. „Það
em peningar til, bara þegar þið
viljið eyða þeim.“
„Haldið þið virkilega að almenn-
ingur trúi því,“ spurði þingmaður-
inn, „að þrællærðir menn hafí ekki
getað reiknað út, hvað þetta kost-
aði? Haldið þið að almenningur trúi
því að jafn verkvanir menn og
byggðu þessa flugstöð hafí ekki
vitað að hún var stækkuð". „Við
vitum að þið hafíð setið einhvers
staðar saman í hnapp og falið þetta.
Þið hafíð alltaf vitað af því.“
Þórhildur Þorleifsdóttir
(Kvl/Rvk) vék, eins og Aðalheiður,
að hugtakinu ábyrgð. Þegar konur
settu fram tillögur um fjárframlög
til örykja, aldraðra og svo fram-
vegis fengju þær það svar, að það
þurfi að umgangast almannafé af
ábyrgð. Þessi ábyrgð gagnvart al-
mannafjármunum komi hinsvegar
fram með öðmm hætti í þessu
máli, þegar byggingarkostnaður
flugstöðvar fari langleiðina í millj-
arð fram úr kostnaðaráætlun.
Þingmaðurinn rakti ýmsa þætti
úr skýrslu Ríkisendurskoðunar sem
hún taldi sýna, að hér hefði sitthvað
farið úr skorðum. í lok máls síns
spurði hún síðan, hvort almanna-
krafa um þessa flugstöð hafí verið
svo hávær, að hún hafí mátt sín
meir en réttmætar kröfur um
bamadagheimili, betri laun kvenna,
bætt skóla- eða heilbrigðiskerfí.
Embætti húsameistara
ríkisins verði lagt niður
Arni Gunnarsson (A/Ne) gagn-
lýndi harðlega embætti húsameist-
ara ríkisins sem hann sagði hafa
algjörlega borið ábyrgðina á hönn-
un hússins. Alvarleg mistök hefðu
verið gerð í þeim efnum við bygg-
ingu flugstöðvarinnar og taldi
þingmaðurinn rétt að leggja stofíi-
unina niður. Líkti hann þessu máli
við Kröflumálið og sagði að við
værum nú eins og þá að tala um
umtalsverða aukningu á skatt-
greiðslum islensku þjóðarinnar.
Abyrgðin hlyti að liggja einhvers
staðar, annað væri fásinna.
Svavar Gestsson (Abl/Rvk)
sagði að farið hefði verið fram úr
fjárlagaheimildum um 871 milljón
og teldi byggingamefndin sig hafa
til allar heimildir frá sínum- yfir-
manni, þáverandi utanríkisráð-
herra. Hvað á að gera við þessa
menn, spurði Svavar og sagði að
við ættum tveggja kosta völ sam-
kvæmt ákvæðum laga. Annarsveg-
ar að ákveða að landsdómur verði
kallaður saman og hinsvegar að
bera fram tillögu um vantraust á
ráðherra. Hvomg leiðin taldi hann
að myndi bera árangur, meðal ann-
ars vegna þess að nægjanlegar
upplýsingar lægju ekki fyrir. '
Svavar sagði að við þyrftum að
komast út úr því stigi að við létum
okkur nægja að flytja langar ræður
— við þyrftum að fínna málum af
'þessu tagi nýjan farveg og nefndi
sem dæmi að hægt væri að setja
ný lög um ráðherraábyrgð eða
ábyrgð opinberra embættismanna.
Hann sagðist ekki skilja hvemig
samgöngumálaráðherra færði rök
fyrir andstöðu Alþýðubandalagsins
í þessu máli. Aðalröksemd þeirra
gegn flugstöðinni hefði verið að
taka átti erlent ijármagn inn í þetta
mannvirki. Þetta væri raunar angi
af herstöðvamálinu.
Guðrún Agnarsdóttir
(Kvl/Rvk)gagnrýndi vinnubrögð
við hönnun hússins og sagði að
bruðl og flottræfilsháttur hefðu
gengið berserksgang í flugstöðinni
og valdið þar tjóni.
Það væri líka ámælisvert hvemig
staðið hefði verið að upplýsingagjöf
um framkvæmdir. Sú hollusta sem
væri sýnd við kostnaðaryfírlit sneri
aðallega að Bandaríkjamönnum.
Guðrún spurði hvort við ættum
að horfa einu sinni enn á ábyrgðina
í máli sem þessu gufa upp og láta
þjóðina axla byrðamar. Um tillögu
Alþýðubandalagsins þess efnis að 9
manna þingnefnd rannsakaði
ábjrgð á umframkostnaði sagðist
hún ekki vita hvemig það mundi
takast. Hún væri of hrædd við sam-
trygginguna. Taldi hún að þing-
menn þyrftu að koma sér saman
um leiðir þegar verkefni fæm úr
böndunum.
Páll Pétursson (F/Nv) sagði að
sennilega ættum við ekki eftir að
byggja fleiri svona hús. Byggingar-
sagan væri vörðuð mistökum. Las
hann lögin um bygginguna frá 1984
og sagði allt hafa farið úr böndun-
um.
Breytingar þær sem gerðar hefðu
verið kynnu að vera réttmætar, en
ekki samkvæmt heimild Alþingis.
Ef þær væm réttmætar væri um
stórfelld hönnunarmistök að ræða
og spumingin væri hver bæri
ábyrgðina á þeim. Hönnuðum væri
borgað samkvæmt háum töxtum
þar eð þeir ættu að bera svo mikla
ábyrgð.
Varðandi hina pólitísku ábyrgð
og ábyrgð á því að hefí farið fram
úr áætlun sagði hann tvo fyrrver-
andi utanríkisráðherra auðvitað
bera hana. Pólitísk ábyrgð lægi ljós
fyrir og bæm þeir ekki á móti því.
Páll sagðist hafa átt sæti í fjár-
hags- og viðskiptanefnd neðri
deildar á síðasta kjörtímabili og
hefði nefndinni ekki verið greint frá
þeim umframkostnaði sem varð við
framkvæmdimar. Þingflokki Fram-
sóknarflokksins, sem var annar
stjómarflokkana, hafði heldur aldr-
ei borist greinargerð um fjárhags-
stöðu byggingarinnar. Ekki væri
heldur minnst á þetta í skýrslu ráð-
herra til Alþingis. Páll sagðist
treysta því að ráðherra hefði ekki
vitað um þennan umframkostnað á
þessari stundu og starfsmenn hans
því farið á bak við hann.
í ffamtíðinni yrðu ráðherrar að
fylgjast betur með framkvæmdum
sem þeir hefðu yfírstjóm yfír og
gera Alþingi grein fyrir framgangi
mála.
Opinberum fram-
kvæmdum ábótavant
Þorsteinn Pálsson, forsætis-
ráðherra, sagði það hafa verið
þarft verk af Qármálaráðherra að
óska eftir því við Ríkisendurskoðun
að gera þessa athugun á fram-
kvæmdunum. Hann sagðist vera
þeirrar skoðunar að ýmsu hefði
verið ábótavant af hálfu fram-
kvæmdavaldsins og Alþingis við
m.a. áætlanagerð, eftirlit o.fl.
Þann stutta tíma, sem hann hefði
starfað í fjármálaráðuneytinu, hefði
hann séð að ríkar ástæður væm til
að færa þessi mál til betri vegar.
Skýrslan staðfesti að ábótavant er
hvemig staðið er að opinbemm
framkvæmdum. Kaflinn í skýrslu
Ríkisendurskoðunar er fjallaði um
hvaða lærdóma mætti draga af
þessu máli væri líka um margt at-
hyglisverður.
Nú þessa daga væm menn að
fjalla um fjárveitingar til ýmissa
opinberra framkvæmda sem líkt
stæði á með. Upphaflegar áætlanir
hefðu farið úr böndunum. Nefndi
hann sem dæmi hús sem keypt
hefði verið í Ármúla fyrir nokkm
fyrir hluta starfsemi nokkurra ráðu-
neyta og hús undir Listasafn ríkis-
ins.
Forsætisráðherra sagði að í um-
ræðunum hefðu verið höfð stór orð
og þungir áfellisdómar látnir falla
í garð þeirra manna sem að bygg-
ingunni hefðu starfað án mikils
rökstuðnings. Ef sami leikur væri
leikinn gegn talsmönnum Alþýðu-
bandalagsins mætti nefna hér að
eitt af því sem skorið var niður, að
kröfu Alþýðubandalagsins, vom
reykskynjarar. Þetta skipti ekki
sköpum í þeim stóm tölum sem um
væri að ræða, en ef nota ætti sömu
útúrsnúninga mætti krefjast þess
af alþýðubandalagsmönnum að þeir
gerðu Alþingi grein fyrir því hvort
þeir hefðu viljað byggja flugstöð
án jafn sjálfsagðra öryggishluta og
reykskynjara.
Forsætisráðherra sagði okkur
búa í þjóðfélagi þar sem breytingar
á verðlagi væm örar og einnig
yæri algengt að menn gerðu breyt-
ingar á byggingartímanum. Teknar
hefðu verið ákvarðanir um breyt-
ingamar af því stjómvaldi sem hefði
til þess heimild. Að segja eins og
sumir að einum milljarði hefði verið
sóað án heimilda væri ekki rétt. -
Þetta væri umframáætlun, en ekki
án heimilda. Þama væri um dylgjur
og róg að ræða.
Hitt væri annað mál að við þyrft-
um almennt betra skipulag við
opinberar framkvæmdir þannig að
Alþingi og framkvæmdavaldinu
væri á hveijum tíma ljóst hvaða
breytingar væru gerðar. Slík gagn-
rýni ætti að hans mati rétt á sér.
Sú stjómsýsluendurskoðun, sem
Ríkisendurskoðun hefði fram-
kvæmt, gerði það auðvelt fyrir
hvem og einn að draga ályktanir
þar af. Forsætisráðherra sagði
furðulegt að Svavar Gestsson skyldi
bera það á borð að ekki væri hægt
að kalla menn til ábyrgðar eftir
venjulegum leiðum því ekki lægju
fyrir neinar upplýsingar og þyrfti
því nýjar rannsóknir. Það væri eng-
in smáásökun að bera á menn að
þeir hefðu sóað einum milljarði eins
og Steingrímur J. hefði sagt og
síðan kæmi Svavar og segði að
ekki lægju fyrir neinar upplýsingar.
Skoraði hann á Svavar að bera fram
vantrauststillögu svo úr því fengist
skorið til hvors væri borið traust.
Forsætisráðherra sagðist ekki
hafa heyrt almenna ádeilu á það,
að breytingamar hefðu ekki verið
á rökum reistar, en hann teldi að
fyrir þeim mætti færa gild rök. Það
kæmi heldur hvergi fram í lögum
annað en að allt hefði verið lögðum
samkvæmt. Gallinn væri sá að ekki
hefði verið unnin ný heildaráætlun.
Það væri kjami málsins 0g hægt
að taka undir þá gagnrýni. Ætti
það líka við um flestar opinberar
framkvæmdir og ætti að leita leiða
til þess betri vinnubrögð yrðu við-
höfð í framtíðinni.
Hreggviður Jónsson (B/Rn)
sagði ástæðu þess að hann tæki til
máls vera að komið hefði verið inná
vamar- og öryggismál í umræðun-
um en Morgunblaðið hefði oftast
snúið öllu við sem Borgaraflokkur-
inn segði um þau mál. Hann teldi
þessa stöð og staðsetningu hennar
vera til mikilla bóta en mistök hefðu
orðið varðandi kostnaðinn. Hart
hefði verið deilt um hver væri
ábyrgur, en margir hefðu verið
gerðir ábyrgir fyrir minni sakir en
þetta og verið látnir víkja úr bæði
flokkum og störfum.