Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 54
54
MORGUNBLAÐDÖ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Stjómarfrumvarp um tekju- og eignaskatt;
Undanþágnm fyrirtækja fækkað
'JÓN Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra mælti í neðri deild
á þriðjudag' fyrir stjómarfrum-
varpi um tekju- og eignaskatt.
Frumvarpið felur í sér niðurfell-
ingu á ýmsum undanþágum
fyrirtækja frá skatti, og sagði
fjármálaráðherra að það væri
fyrsta skrefið í einföldun skatt-
lagningar fyrirtækja með niður-
fellingu frádráttarliða. Ráðherra
sagði að breytingar þær, sem
fælust í frumvarpinu, myndu
skila um 150 milljónum króna í
rikissjóð á næsta ári.
í frumvarpinu er breytt ákvæð-
um, er snerta afskriftir birgða í
árslok, framlög í fjárfestingarsjóði
og bifreiðakostnað, auk þess sem
ráð er gert fyrir því að skatthlut-
fall fyrirtækja lækki úr 51% í 45%
til samræmis við lækkun skatthlut-
falls einstaklinga. Fjármálaráð-
herra sagði að þessu væri einnig
tengt að ákveðið væri að leggja
ekki fram frumvarp um framleng-
ingu heimildar til skattfijáls fram-
lags í varasjóð. Ennfremur er í
frumvarpinu að finna ákvæði um
meðferð verðbóta á verðtryggðar
eignir og skuldir.
Fjármálaráðherra sagði ákvæði
frumvarpsins um skattalega með-
ferð á kaupleigu og fjármagnsleigu
á einkabifreiðum miða að því að
mismunandi fjármögnunarform
hafi ekki áhrif á skattgreiðslur.
Einnig þætti við hæfi að skatthlut-
fall fyrirtækja væri 45%, miðað við
35,2% hjá einstaklingum, þar sem
skattar fyrirtækja væru greiddir
eftirá. Er þá höfð hliðsjón af verð-
bólgu og að ekki þurfi að útiloka
að nokkur munur á raunverulegu
^skatthlutfalli verði fyrir hendi.
Steingrfmur J. Sigfússon
(Abl/Ne) sagðist fagna því að fjár-
málaráðherra legði loks fram
frumvarp, sem tæki á skattamálum
fyrirtækja, og sagði að með þvi
væri í raun brotið blað, þar sem
fækka ætti undanþágum fyrirtækj-
anna. Steingrímur sagði að Abl.
hefði lengi gagnrýnt mismunun í
skattiagningu almennings og fyrir-
tækja og nú lægi fyrir Alþirigi
frumvarp Abl. um þessi sömu mál.
Væri fjármálaráðherra hollt að taka
frumvarp þetta sér til fyrirmyndar.
Steingrímur sagði hins vegar að
frumvarp þetta gengi afar skammt
og enn mætti auka skatta á fyrir-
tæki. Hann sagði að hinar 150
milljónir, sem frumvarpið aflaði,
væru aðeins 1,7% þeirrar skatta-
aukningar, sem boðuð hefði verið
og almenningur bæri afganginn.
Kristín Halldórsdóttir
(Kvl/Rn) sagði Kvl. andvígan þessu
frumvarpi fyrir þær sakir, að það
gengi alltof skammt í skattlagningu
á fyrirtæki. „Þetta er móðgun við
stöndug fyrirtæki," sagði Kristín.
Hún lauk ræðu sinni á því að spyija
fjármálaráðherra hvers vegna
frumvarp þetta væri svo seint á
ferðinni.
Hreggviður Jónsson (B/Rn)
sagði að skattastefna ríkisstjómar-
innar væri að sigla atvinnulífinu í
strand. Fyrst væri ráðist að almenn-
ingi, nú að fyrirtækjunum: Hann
sagðist hafa átt von á að Sjálfstæð-
isflokkurinn, flokkur hins fijálsa
framtaks, gerði athugasemdir við
þetta frumvarp, en svo hefði þó
ekki farið. „Sjálfstæðisflokkurinn
er orðinn fangi þessarar skatta-
stjómar," sagði Hreggviður.
Fjármálaráðherra svaraði fyrir-
spum Kristínar Halldórsdóttur og
sagði það hafa verið ætlun sína að
teggja fram viðameira frumvarp um
endurskoðun á skattlagningu fjár-
magns- og eignatekna, en það mál
þyrfti betri ígrundun, og því væri
á það ráð brugðið að flytja einung-
is frumvarp um þennan hluta þess.
Sl HAR P
Oö öö PIONEET KASSETTUTÆKI r
Um staðhæfingar Steingríms J.
Sigfússonar sagði ráðherra að
skattaálögur á fyrirtæki væru langt
frá því að vera 1,7% af heildar-
skattaaukningu, eins og fram kom
í máli Steingríms. Auk þessarar
nýju skattlagningar væri lagður á
fyrirtæki launaskattur, gjald á er-
lendar lántökur, verktökugjald,
kjamfóðurgjald og fleiri ný gjöld.
Frumvarpinu var vísað til Qár-
laga- og viðskiptanefndar að tillögu
fjármálaráðherra.
Steingrímur Hermannsson
Geir H. Haarde
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra;
Island hefur breytt
um afstöðu tíl tíu
tillagna hjá SÞ
Utanrikisráðherra svaraði í
fyrirspurnatíma í sameinuðu
þingi í gær fyrirspurn frá Geir
H. Haarde (S/Rvk) um hvort
hann hefði falið sendinefnd ís-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum
að greiða atkvæði með tillögu
Tékka og Úkraínumanna um
skilyrðislausa framkvæmd allra
afvopnunartillagna sem allsheij-
arþing Sameinuðu þjóðanna
hefði samþykkt. Utanríkisráð-
herra sagði svo vera og hefði
alls verið breytt um afstöðu ís-
lands til tíu tillagna í allsherjar-
þinginu i stjómartíð hans.
Geir H. Haarde (S/Rvk) sagði
að nýlega hefði verið bent á það í
blaðagrein af Hreini Loftssyni að
ísland hefði breytt afstöðu sinni til
tillögu frá Tékkum og Úkraínu-
mönnum, um skilyrðislausa fram-
kvæmd allra afvopnunarsamninga
sem allsheijarþing Sameinuðu þjóð-
anna hefði samþykkt, en þeir
síðamefndu væru raunar ekki sjálf-
stætt ríki heldur eitt af aukaat-
kvæðum Sovétríkjanna. Geir
sagðist telja nauðsynlegt að fram
kæmi hvort þama væri um stefnu-
breytingu að ræða eða handvömm,
mmmMmimm Bi
AIMAfil
eins og flogið hefði um í þinghúsinu.
Steingrimur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra, sagði margar
þær tillögur sem fluttar væru á
allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna
vera mjög athyglisverðar og hefði
hann breytt afstöðu íslendinga til
alls 10 tillagna. í þeim efnum hefði
hann lagt til grundvallar yfírlýsta
stefnu Alþingis og stefnu ríkis-
stjómarinnar. Einnig hefði hann
tekið tillit til þeirra miklu sviptinga
í heimsmálum sem orðið hefðu að
undanfömu, aðallega síðastliðið ár,
afstöðu hinna Norðurlandanna og
annarra bandalagsríkja íslands.
Utanríkisráðherra sagðist m.a.
hafa breytt afstöðu íslands þar sem
honum þótti ekki nægilega gætt
sjálfsákvörðunarréttar þjóða og
nefndi í því sambandi tillögu varð-
andi Vestur-Sahara.
Varðandi umrædda tillögu sagði
ráðherra það vera misskilning að
um breytta afstöðu væri að ræða
því þetta hefði verið ný tillaga sem
þama var borin fram. Ekki vildi
hann heldur fallast á að tillag??
greiddu atkvæði gegn tillögunni bað
hann um að kannað yrði hvemig á
því stæði. Þegar hann fékk upplýs-
ingar um það hefði þegar verið
búið að afgreiða hana frá allsheijar-
þinginu.
Utanríkisráðherra sagðist hafa
gert utanríkismálanefnd grein fyrir
afstöðu íslendinga eftir að atkvæði
hefðu verið greidd hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Hjörleifur Guttormsson (Abl/
Al.) sagði að þáð hefði verið að
hans ósk að utanríkismálanefnd
gerði ráðherra grein fyrir afstöðu
sinni til mála sem kæmu úr fyrstu
nefnd allsheijarþingsins. Hjörleifur
sagðist hafa lýst yfir sérstakri
ánægju sinni yfir breyttri afstöðu
íslands til tíu mála.
Eyjólfur Konráð Jónsson,
formaður utanrikismálanefndar,
sagði þessar tillögur hafa verið
sýndar og ræddar í utanríkismála-
neftid. Hann sagðist þó ekki
kannast við að Hjörleifur Guttorms-
son hefði sérstaklega óskað eftir
því. Mergurinn málsins væri að
hans mati sá að ákvörðunarvaldið
í þessum efnum væri hjá ráðherra.
Eyjólfur Konráð sagði að hann héldi
að þá deildi ekki mikið á í þessum
efnum.
Geir H. Haarde sagði það verða
gagnlegt ef þingheimur fengi upp-
lýsingar um það í hvaða málum
Island hefði breytt afstöðu sinni.
Hann harmaði ef það væri misskiln-
ingur að þetta mál hefði verið flutt
áður en upplýsingar þess efnis hefði
hann fengið hjá utanríkisráðuneyt-
inu.
Af þessu umræðum nú væri ljóst
að ákvörðun um afstöðu til um-
rædds máls hefði verið tekin að
yfirveguðu ráði en að hans mati
væri hún röng og byggð á misskiln-
ingi. Við hefðum greitt atkvæði
gegn eða setið hjá við afgreiðslu
margra tillagna um afvopnunarmál
og væri því mótsögn að krefjast
nú skilyrðislausra framkvæmda
allra þessarra tillagna.
I
Allir pakkar eru fallegir.,. en stundum
kemur fegurðin fyrst í Ijós þegar þeir eru opnaðir.
studiohúsiö
á homi Laugavegs og Snorrabrautar