Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 58

Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 58
58_________________________________MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 Almennur bændafundur á Blönduósi: Mótmælt álagningu sölu- skatts á landbúnaðarafurðir Blönduósi. ALMENNUR bændafundur sem haldinn var á vegum Búnaðar- sambands Austur-Húnavatns- sýslu á Blönduósi fyrir skömmu samþykkti ályktanir um land- BÓKUM YOGA VASAÚTGÁFAN hefur gefið út bókina „Yoga-heimspeki“ eftir Ramacharaka I þýðingu Stein- unnar Briem. Hér er um að ræða endurútgáfu á verki sem kom fyrst út á íslensku fyrir 26 árum. _ í kynningu útgefanda segir m.a.: „í bókinni Yoga-heimspeki er fjallað í víðri sýn um ýmis helstu undir- stöðuatriði dulspekinnar, svo sem þrískiptingu mannsins í líkamlega, hugræna og andlega eðlisþætti. Þar eru útskýrð ýmis dularfull fyrirbæri eins og fjarhrif, dulskyggni, mann- legt ségulafl, dulrænar lækningar og ekki síst hið svokallað lífsafl (prana). Hinir ólíku þættir dulspek- innar og tilveruhugmyndir hinnar austrænu speki eru hér útskýrðir í 14 fyrirlestrum, sem kallast Fræða- stundir." Bókin er 192 bls., prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar, en Friðrika Geirsdóttir gerði kápu- skreytingu. búnaðarmál. Framsögumaður á fundinum var Haukur Halldórs- son formaður Stéttarsambands bænda. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar samhljóða: „Almennur bændafundur haldinn á Hótel Blönduósi 8. desember 1987 mótmælir harðlega öllum hug- myndum um söluskatt á landbúnað- arafurðir og varar við gylliboðum stjómmálamanna um niðurgreiðsl- ur á kjöti og mjólkurvörum sem lofað er á móti slíkum skatti og engin trygging er sett fyrir þegar til lengri tíma er litið. Fundurinn telur að slíkar álögur stórminnki neyslu íslenskra landbúnaðaraf- urða. Fundurinn skorar á ríkisstjómina að standa skil á lögbundnum greiðslum til afurðastöðva, svo sem útflutningsbótum og vaxta- og geymslugjöldum og tryggja flár- magn til að þeim sé klejrft að greiða framleiðendum fullt verð nú fyrir áramót. Fundurinn skorar á Alþingi að í fjárlögum 1988 verði tiyggt fé til fullnaðargreiðslu út á framkvæmdir 1987, samkvæmt jarðræktarlögum, og að fjárlögin tryggi nægilegt fé til að hægt sé að standa við gerða samninga vegna riðuniðurskurðar. Fundurinn mótmælir eindregið hug- myndum um frestun á hluta þessara greiðslna til 1989 og telur að trún- aðarbrestur verði milli ríkisvalds og bænda verði ekki staðið við lög- bundnar greiðslur og gerða samn- inga.“ Jón Sig. Kristín Steinsdóttir, Ármann Kr. Einarsson og Guðmundur Ólafsson, en Vaka-Helgafell gefur út barnabækur eftir þau á þessu ári. Þrír íslenskir verðlaunahöfundar með barnabækur frá Vöku-HelgafeDi UNDIRBÚNINGUR að sam- keppni Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka fyrir næsta ár er þegar hafinn og er skilafrestur fyrir handrit í samkeppnina til 31. desember næstkomandi. Megintilgangur sjóðsins er að örva fólk til að skrifa bækur fyrir böm og unglinga og stuðla þann- ig að auknu framboði íslensks úrvals lesefnis fyrir æsku lands- ins. Sjóðurinn veitir árlega ís- lensku bamabókaverðlaunin fyrir besta handrit sem berst í sam- keppni hans að mati dómnefndar. Verðlaunasjóðurinn var stofn- aður 30. janúar 1985 í tilefni af sjötugsafmæli bamabókahöfund- arins vinsæla, Armanns Kr. Einarssonar. Fjölskylda Armanns og Bókaútgáfan Vaka lögðu fram stofnfé sjóðsins. Vaka-Helgafell gefur út þijár bamabækur eftir íslenska verð- launahöfunda á þessu ári. Bækumar eru eftir þau Ármann Kr. Einarsson, Guðmund Ólafsson og Kristínu Steinsdóttur, en þau Guðmundur og Kristín hafa bæði hlotið verðlaun í verðlaunasam- keppni Verðlaunasjóðs íslenskra bamabóka. Ármann sjálfur er svo þriðji verðlaunahöfundurinn og hefur bæði hlotið verðlaun hér- lendis og í Noregi fyrir bama- og unglingabækur sínar. Guðmundur Ólafsson gefur nú út sína aðra bók, Klukkuþjófinn klóka, en Guðmundur hlaut verð- laun Verðlaunasjóðsins árið 1986 fyrir bók sína Emil og Skundi sem hlotið hefur almennar vinsældir. Kristín Steinsdóttir fékk fyrstu verðlaun í samkeppni Verðlauna- sjóðsins á þessu ári fyrir bók sína Franskbrauð með sultu sem er fyrsta bók hennar. Eftir Ármann Kr. Einarsson kemur út bókin Leitin að gullskip- inu sem er sjötta bókin í bóka- flokknum Ævintýraheimur Ármanns frá Vöku-Helgafelli. Menn eru glaðir þá vel veiðist. Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson Húsavík: Atvinnuleysi er þriðjungi minna Húsavik. ATVINNUÁSTAND á líðandi ári telst hafa verið gott á Húsavík og skráning atvinnulausra mun minni en síðastliðið ár. Samkvæmt könnun, sem bæjar- stjóm Húsavíkur lét gera í haust miðað við 30. september, voru at- vinnuleysisdagar á árinu þá orðnir 1.611 en þijú undanfarin ár voru þeir á sama tíma yfír 5.000. Undirstöðuatvinnuvegurinn er sem áður sjávarútvegurinn, þó þró- unin undanfarin ár hafí orði sú að í þeirri grein fækkar, en aftur á móti fjölgar í þjónustugreinunum. Af hveijum 100 Húsvíkingum vinnur 31 við fiskveiðar og -vinnslu, 19 við einhverskonar iðnað, en 50 við þjónustustörf. Á þessa þróun líta menn misjöfn- um augum. — Fréttaritari Umferðarráð: Meiri jólaumferð en nokkru sinni fyrr NÚ í svartasta skammdeginu er nauðsynlegt að allir vegfa- rendur sýni sérstaka aðgát og tillitssemi í umferðinni. Jólaumferðin þyngist dag frá degi og ættu allir að stefna að slysalausri og farsælli þátttöku í henni. Gangandi vegfarendur geta auk- eða neglda sóla. ið öryggi sitt verulega með því að bera endurskinsmerki og nota þau á réttan hátt. Þörf fyrir þau er nú enn brýnni en endranær þar sem óvíða slær birtu frá snævi þakinni jörð. í hálku ættu þeir sem ganga mikið skilyrðislaust að heimsækja næsta skósmið og fá sér búnað til hálkuvama svo sem mannbrodda V er slunar manna- félag Árnessýslu: Söluskatti ámatvörur mótmælt ALMENNUR félagsfundur í Verslunarmannafélagi Ár- nessýslu hefur mótmælt harðlega framkomnum til- lögum stjórnvalda um sölu- skatt á matvörur, svo og þeim álögum sem þegar hafa tekið gildi. í ályktun fundarins segir að hann telji að með slíkri skattlagn- ingu sé vegið að afkomu heimil- anna í landinu. Fundurinn telji að eðlilegra hefði verið að afla ríkissjóði aukinna tekna með skattlagningu stóreigna og fjár- magnstekna. í þessari miklu umferð er nauð- synlegt að fólk, akandi og gangandi ætli sér meiri tíma en endranær. í því sambandi má hafa í huga mikla fjölgun bíla í ár sem eðlilega leiðir til þyngri umferðar og því miður einnig til þess að margir ökumenn verði þungir á brún við stýrið. Það hæfír jólaumferð illa. Ljósabúnaður þarf að vera í góðu lagi og ættu ökumenn að nota öku- ljósin allan sólarhringinn. Vert er að huga að hjólbörðum, oft duga grófmynstruð dekk, en víða eru skilyrði þannig að þau þurfa auk þess að vera negld. Þessa dagana er víða veitt ,jóla- glögg". Ökumenn ættu að minnast þess að oftast er í því áfengi, stund- um sterkt. Gildir sama um ,jóla- glögg" sem neyslu annars áfengis að akstri og áfengi má alls ekki blanda saman. Benda má á að gott ,jólaglögg“ má blanda án áfengra efna og eru til prýðisgóðar upp- skriftir að slíkum ökumannadrykkj- um. Umferðarráð væntir þess að allir landsmenn verði jákvæðir og tillitssamir í jólaumferðinni þannig að sem flestir megi eiga slysalaus og gleðileg jól. Morgunblaðið/JúlíuB Að skapa hættu í umferðinni ÞESSI bifreið var stöðvuð þannig í Borgartúni í gær, að hún stóð langt fram í götu. Gangandi vegfarendur urðu að fara fram fyrir hana til að komast leiðar sinnar og þar með voru þeir í mikilli hættu vegna umferðar austur götuna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.