Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
63
Jón PáU Bjamason gítarleikari og Stefán S. Stefánsson saxófónleik-
ari verða gestir i Heita pottinum nk. sunnudagskvðld.
Jóladjass í Heita pottínum
JÓLADJASS verður í Heita pott-
inum í Duus-húsi sunnudags-
kvöldið 20. desember.
Þar kemur fram kvartett skipað-
ur þeim Hilmari Jenssyni gítarleik:
ara, Kjartani Valdimarssyni
píanóleikara, Tómasi R.. Einarssyni
kontrabassaleikara og Matthíasi
Hemstock trommuleikara, en auk
þeirra koma fram tveir gestir. Gest-
imir eru saxófónleikarinn Stefán
S. Stefánsson og gítarleikarinn Jón
Páll Bjamason.
Tónleikamir í Heita pottinum
hefiast kl. 21.30.
Morgunblaðið/Árai Helgaaon
Björgvin Guðmundsson, Kristján Guðmundsson og Smári Axelsson
fyrir framan bátinn sem smíðaður var í skipasmíðastöð Kristjáns.
Stykkishólmur:
76 ára skipasmiður
afhendir nýjan bát
Stykkishólmi.
KRISTJÁN Guðmundsson, skipa-
smíðamesitari í Stykkishólmi,
afhenti 10. desember sl. nýjan
bát sem hann hefur lokið við
smíði á í skipasmíðastöð sinni í
Stykkishólmi. Er þetta 26. bátur
sem Kristján hefir afhent síðan
hann hóf hér skipasmiðar fyrir
rúmum 40 árum.
Kristján hóf störf hjá Skipa-
smíðastöðinni hf. í Stykkishólmi
árið 1945 og var þar skipasmíða-
meistari og ráðandi þar til sú stöð
var lögð niður. Hóf Kristján þá
skipasmíði á eigin vegum og byggði
fyrir nokkrum árum ágætt hús þar
sem hann hefír sinnt smíðinni síðan.
Kristján er og vandaður skipasmið-
ur og hans handbrögð eru bæði
viðurkennd og hafa reynst vel.
Hann er nú 76 ára að aldri og hef-
ir fram á þennan dag unnið hörðum
höndum og ótrúlegt hvað honum
hefír unnist.
Þessi bátur sem nú hefír verið
afhentur er í eigu Björgvins Guð-
mundssonar og félaga hans og eru
þeir mjög ánægðir með smíði Krist-
jáns á þessum bát.
— Árni
LEDUREÐALÚX
EFNI
Nýjar sendingar af vestur-þýskum
sófasettum oghomsófum, leðurklædd-
um eða í frábæru Leðudux-efni.
Glæsileg sófasett ú hagstæðu verði.
Vinsamlegast vitjið pantana
sem fyrst.
Opið laugardag til kl. 22.00.
VALHUSGOGN
Ármúla 8, sími 82275