Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 65

Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 65
MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 65 Frumvörp um tolla, vörugjald og söluskatt: Fleiri tollar lækkaðir eða felldir niður af „smyglgj örmim“ varningi FUNDIR í efri deild Alþingis stóðu til rétt rúmlega þijú að- faranótt fimmtudags en á dagskrá voru frumvðrp rikisstjórnarinnar um toila-, söluskatt og vörugjald. Tollafrumvarpið var afgreitt til neðri deildar en atkvæðagreiðslu um frumvörpin um söluskatt og vörugjald og breytingartillögur við þau var frestað að lokinni annarri umræðu. Halldór Blöndal (S/Ne) mælti fyr- ir áliti meirihluta fárhags- og viðskiptanefndar. Halldór sagði að nefndin mælti með samþykkt frum- varpsins með nokkrum breytingum. Breytingartillögumar væru í megin- atriðum þær að gengið væri enn lengra í þá átt að lækka eða fella alveg niður tolla af tilteknum vörum sem kalla mætti „ferðamannavörur" eða „smyglgjamar vömr“ eins og hann kaus að nefna þær. Þama væri átt við vörur sem íslendingar keyptu frekar á ferðalögum en hér heima. Af einstökum vömflokkum mætti nefna sjónauka, rakvélar, hár- þurrkur, ryksugur, hljóðnema o.fl. Jafnframt væri horfið frá álagningu vömgjalds á þessa flokka. Halldór Fjármálaráðherra: Fyrsta skrefið stig- ið í átt til samræm- ingar launaskatts JÓN BALDVIN Hannibalsson, fjármálaráðherra, mælti í neðri deild í gær fyrir stjórnarfrum- varpi um 1% Iaunaskatt af hvers konar vinnulaunum og atvinnu- tekjum hjá skattskyldum aðilum sem stunda starfsemi sem flokk- ast undir fiskveiði, þ.m.t. fiski- rækt eða iðnað. Með þessu er verið að leggja launaskatt á allar þær atvinnugreinar sem nú eru undanþegnar þessum skatti nema búrekstur. Aðrar atvinnugreinar bera 3,5% launaskatt. Fjármála- ráðherra sagði þetta vera fyrsta skrefið í átt til samræmingar launaskatts milli atvinnugreina. Steingrímur J. Sigfússon (Abl/ Ne) sagði að með því að undanskilja útflutnings'greinamar væri verið að sýna skilning stjómvalda á mikil- vægu hlutverki þeirra fyrir efna- hagslífíð í heild. Sagði hann afkomu þessara greina vera slæma og tíma- setninguna á þéssum skatti því ekki heppilega. Hann og Alþýðubanda- lagið myndu ekki styðja þetta frumvarp við núverandi aðstæður. Albert Guðmundsson (B/Rvk) sagði Borgaraflokkinn vera andvíg- an þeim auknu álögum sem hér væru lagðar fram. Hann sagðist harma að undirstöðuatvinnuvegimir þyrftu nú að bera nýjan skatt auk þess milljarðs sem tekinn væri frá þeim vegna þess að hætt var við endurgreiðslu söluskatts. Hreggviður Jónsson (B/Rn) gagnrýndi að leggja ætti á þennan skatt og sagðist búast við verri af- komu fyrirtækja í því góðæri sem nú ríkti en áður. Kristín Halldórsdóttir (Kvl/ Rvk) sagði skattafrumvörpunum snjóa yfír landsmenn þessa stundina. Taldi hún nú ekki vera rétta tímann til að leggja launaskatt á þessar atvinnugreinar. Góðærið hefði ekki náð til landsbyggðarinnar en með þessu væri verið að leggja nýja skatta á dreifbýlið. Hjörleifur Guttormsson (Abl/AI) sagði afkomuhorfur þessara greina ekki vera góðar en ríkisstjómin „hamaðist" við að leggja á þær nýj- ar álögur. Hjörleifur sagði að ráðherramir hefðu liklega verið svo uppteknir við að semja hin ýmsu fiumvörp að þeir hefðu ekki haft tíma til að skoða rekstrarhorfur at- vinnuveganna. Steingrímur J. Sigfússon: Komið verði á mark- vissari kynningu á staðgreiðslunni Steingrímur J. Sigfússon (Abl/ Ne) varpaði fram fyrirspum til fjármálaráðherra við aðra um- ræðu um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda í neðri deild Alþingis síðastliðinn þriðjudag. Steingrímur sagðist telja að hið nýja staðgreiðslufyrirkomulag þyrfti meiri og markvissari kynn- ingu og að jafnvel kæmi til greina að koma upp sérstakri símaþjón- ustu skattstjóraembættisins fyrir skattgreiðendur. Steingrímur sagði það hafa valdið mglingi að upphæð fulls persónuaf- sláttar væri önnur á skattkortum en komið hefði fram í flölmiðlum. Hann spurði hvemig samstarfi fjármála- ráðuneytisins og embættismanna væri háttað við fjölmiðla, sem kynna ættu hina nýju skipan mála. Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra sagði að hann myndi sagði að með þessu væri verið að stuðla að því að verslunin færðist inn í Iandið og kæmu þannig auknar söluskattstekjur á móti hugsanlegu tollatekjutapi. Einnig væm felldir niður tollar af vömm sem flokkast undir öryggis- búnað ökutækja. Tollar af innfluttum álpönnum væm ákveðnir 30% til að gefa innlendum framleiðendum færi á að laga sig að breyttum samkeppn- isaðstæðum. Gerð væri tillaga um að flýta gildistöku lokaáfanga tolla- samninga við Portúgal og Spán um tvö ár þannig að hann kæmi til fram- kvæmda um næstu áramót og gerðar væm ýmsar minni háttar lagfæring- ar á einstökum atriðum. Minnihluti fjárhags- og viðskipta- nefndar, þeir Júlíus Sólnes (B/Rn) og Svavar Gestsson (Abl/Rvk), lagði til að framvarpinu yrði vísað aftur til ríkissljómarinnar og henni falið að láta vinna frumvarpið betur þann- ig að ný tollskrá geti tekið gildi fiá og með 1. mars nk. Málið yrði þá tekið til eðlilegrar meðferðar í þing- inu eftir hátíðar. Meirihluti íjárhags- og viðskipta- nefndar flutti tvíþætta breytingar- tillögu við fmmvarpið um vömgjald, sem hann leggur til að verði sam- þykkt. Annarsvegar er horfíð frá álagningu vömgjalds á smyglgjamar < vömr og hins vegar er horfið ftá álagningu vömgjalds á kökur. Fyrir síðari breytingunni væm tvær meg- inástæður. í fyrsta lagi ylli álagning vömgjalds á innlenda framleiðslu innlendri kökuframleiðslu erfíðleik- um í innheimtu og í öðra væri sýnt að eftirlit með framkvæmdinni yrði mjög erfitt þar sem gjaldendur em mjög margir. Minnihluti nefndarinnar leggur til að frumvarpinu verði vísað aftur til ríkisstjómarinnar til skoðunar og að með þeim kerfísbreytingum sem gert væri ráð fyrir yrði vafasamt að hafa vömgjaldið inni sem skattstofn fyrir ríkið. Þessi meðferð vekti upp spum- ingar um heildarendurskoðun. Hér væri enn verið að dytta að í stað þess að gera róttækar breytingar. Meirihlutinn lagði einnig til að frumvarpið um söluskatt yrði sam- þykkt. Halldór Blöndal, framsögu- maður nefndarinnar, sagði m.a að nefndinni hefðu borist ábendingar frá ýmsum aðilum um nauðsyn þess að reglur yrðu settur um það með hvaða hætti erlendir ferðamenn gætu fengið söluskatt niðurgreiddan við brottför eins og víða tíðkast erlendis. Ekki síst hefði verið nefnt í því sam- < bandi að ullariðnaðurinn gæti haft af því mikinn ávinning. Til þess að taka af tvímæli væri lagt til að ákvæði um heimild til flármálaráð- herra til að gefa út slíkar reglur væri bætt við lögin og legði meiri- hlutinn til að þeirri heimild yrði beitL Minnihluti nefndarinnar er andvig- ur tillögunum um matarskatt. í samræmi við það væm fluttar breyt- ingartillögur við frumvarpið um söluskatt. Meirihlutinn teldi að þrennt myndi vinnast með matarskattinum. 1. Skil- virkni. 2. Réttlæti. 3. Einföldun. < Varðandi fyrsta atriðið væri engin ástæða til að tryggt væri að sölu- skattur skilaði sér betur af þúsundum smáfyrirtækja sem einkum seldu þjónustu sína þó söluskattur yrði lagður á matvæli. Skatturinn væri að því Ieyti skilvirkur að fólk neyddist til þess að geta lifað. Varðandi réttlætið væri það að segja að skatturinn væri bersýnilega ranglátur því hann legðist þyngst á láglaunafólkið. Þannig færi skattur- inn hlutfallslega hækkandi eftir því sem launin væm lægri. Það gæti a.m.k. ekki talist jafnaðarstefna. Í þriðja lagi gæti það verið skyn- samlegt markmiðið að einfalda skattakerfið. En þá hefði ekki átt' að byija á því að leggja á matar- skatt. Byija hefði átt á þvl að tryggja betur að fyrirtæki og þeir tekjumeiri i þjóðfélaginu greiddu réttlátan skatt af tekjum sínum. lTLaKiZa. \ RAFMAGNSHANDVERKFÆRI beita sér fyrir því að skattstjóra- embættið hefði samkomuiag við §ölmiðla um kynningu málsins. Hann sagði að öflugt kynningarátak hefði verið fyrirhugað, en því seink- að. Níels Árni Lund (F/Rn) gagn- rýndi hið opinbera fyrir að auglýsa nýja fyrirkomulagið aðeins í DV og Morgunblaðinu, og sagði að þar ættu öll dagblöð að sitja við sama borð, bæði veitti þeim ekki af styrk frá ríkinu, og einnig læsu alls ekki allir landsmenn þessi tvö umræddu blöð. Fmmvarpið um staðgreiðslu opin- berra gjalda var afgreitt við aðra og þriðju umræðu í neðri deild með breytingu frá íjárhags- og viðskipta- nefnd, um að sækja megi um skattkort með uppsöfnuðum per- sónuafslætti ef innan við 20% persónuafsláttar hafa verið nýtt, í stað 10% áður. Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík Jólabarnaskemmtun Jólabamaskemmtunsjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldin sunnudaginn 20. desember nk. í Sjálfstæðishúsinu Valhöllkl. 15.00-17.00. Hljómsveit Ólafs Gauks skemmtir og jólasveinar koma í heimsókn. Kaffiveitingar og smákökur. Sjálfstæðisfólk er hvatt til að ijölmenna með bömin. Miðaverð kr. 400,- fyrir fullorðna, en frítt fyrir böm. Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.