Morgunblaðið - 18.12.1987, Qupperneq 66
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Verkalýðsfélagið Eining:
Áhyggjur af gámaútflutningi
Á STJÓRNARFUNDI í Verka-
lýðsfélaginu Einingu 9. septem-
ber var tekin til umræðu áskorun
sú, sem starfsfólk Frystihúss
ÚKE á Dalvík sendi i byijun
mánaðarins til bæjarstjórnar
Dalvíkur og ýmissa fleiri aðila
vegna sívaxandi útflutnings á
óunnum fiski í gámum. í fram-
haldi af því gerði stjóm Einingar
eftirfarandi ályktun:
„Stjóm Vlf. Einingar lýsir
áhyggjum sínum vegna þess ofur-
kapps sem á sumum útgerðarstöð-
um er nú lagt á að flytja afla
^fískiskipanna á uppboðsmarkað er-
lendis. Með þessu er verið að flytja
atvinnu við vinrislu flsksins úr landi
í stórum stíl, atvinna dregst saman
í heimahöfnum veiðiskipanna og
hætta er á verulegu atvinnuleysi
vegna þessa. Þá má og ljóst vera
að afleiðingin verður sú að flsk-
vinnslufólk leitar í vaxandi mæli
annarra starfa og verður því ekki
tiltækt til fískvinnu, þegar óhentugt
kann að þykja að seija óunninn flsk
erlendis.
Þá vill stjómin benda á að auk
þess sem verkafólk við fískvinnslu
missir miklar tekjur þegar fískurinn
er fluttur óunninn úr landi, dragast
einnig saman telq'ur viðkomandi
sveitarfélaga og þjóðarbúið í heild
missir gjaldeyristekjur, því að óunn-
inn flskur, jafnvel þó hann seljist á
góðu verði, gefur aldrei jafn mikið
til þjóðarbúsins og sá flskur sem
fluttur er út eftir vinnslu í landi.
Ennfremur hlýtur það að vera dýrt
í reynd að láta fískiðjuverin standa
ónotuð. Stjómin skorar því á út-
gerðaraðila að taka öll þessi atriði
til gaumgæfilegrar athugunar og
væntir þess alveg sérstaklega að
þau útgerðarfyrirtæki, sem að
meira eða minna leyti em í eigu
sveitarfélaga eða sameignarfyrir-
tækja íbúanna, láti ekki glepjast
af því, sem kann að sýnast hagur
i augnablikinu, en veldur margs-
konar tjóni og tekjuskerðingu,
þegar til iengri tíma er litið.“
Jólaljósin færðu hjá okkur ....
Útiljós • 24 VOLT • 36 hvítcir perur • engin snertihœtta
samþ. af Rafmagnseftirliti ríkisins.
Falleg sœnsk aðventuljós úr tré, verð frá kr. 1.877,-.
heimilistæki
KRINGLUNNI —SÍMI (91)685868
Morgunblaðið/BAR
Magnús Þór Sigmundsson með nýju plötuna, sem eins og sjá má er
einnig fáanleg á snældum og geisladiskum. Að sögn Hálfdáns Örlygs-
sonar hjá Erni og örlygi er þetta í fyrsta sinn sem islenskt bamaefni
kemur út á geisladiskum.
Barnaplata með gömlu og nýju efni:
Lögin valin af börnum
á dagheimilinu Marbakka
EINA íslenska bamaplatan sem
út kemur fyrir þessi jól er plata
Magnúsar Þórs Sigmundssonar,
Ég ætla að syngja, sem Öm og
Örlygur gefa út. Á plötunni era
13 lög, mörg þeirra kunnar og
klassiskar barnagælur og einnig
lög sem Magnús Þór hefur samið
við ýmsar þulur, stef og vísur
úr ýmsum áttum. Meðal flytjenda
má nefna, auk Mmjnúsar, Pálma
Gunnarsson, Jón Olafsson, stúlk-
ur úr kór Verslunarskólans og
marga fleiri. Þetta er sjötta
baraaplatan sem Magnús Þór
hefur unnið að. Á textabiaði sem
fylgir plötunni eru gítarhljómar
og -grip við lögin.
„80-90% af efninu á plötunni
völdu krakkamir á dagheimilinu
Marbakka í Kópavogi," sagði
Magnús Þór. Kona hans, Jenný
Borgedóttir er fóstra á Marbakka.
„Þegar ég ákvað að gera þessa
bamaplötu fékk ég í hendur spólu
þar sem krakkamir sungu með
fóstrunum. Ég ákvað að hafa nokk-
ur þeirra laga á plötunni og bar svo
árangurinn af upptökunum undir
krakkana. Það var greinilegt að þau
vom mjög vel sátt við útkomuna.
Magnús segir að platan sé þann-
ig hugsuð að á A-hliðinni séu lög
frekar ætluð yngstu bömunum, til
dæmis alkunnar bamagælur eins
og Ein ég sit og sauma, Skóara-
kvæði og Bíum, bíum bambaló en
á B- hliðinni lög eftir Magnús, við
texta úr ýmsum áttum, til dæmis
Fingraþulu og Úllen dúllen doff og
er sú hliðn frekar æltuð stærri böm-
um. „Annars held ég að allir
aldurshópar ættu að hafa gaman
af plötunni enda þekkja flestir efn-
ið,“ sagði Magnús. „Gítargripin og
-hljómamir eru svo höfð með fyrir
þann flölda fólks sem kann algen-
gustu gripin á gítar og vill spila
lögin sjálft.
Platan var tekin upp í stúdíóinu
Glaðheimum. Magnús Þór stjómaði
upptökunum. Mynd á umslagi gerði
Jenný Borgedóttir. Myndin, sem er
í eins konar myndagátuformi, er
myndskreyting á bamavísunni Ein
stutt, ein löng og geta yngri bömin
stuðst við myndina til að muna
vísuna betur.
Johannesarpassuin
eftir Tiack
Langholtskirkju þann
17. apríl 1987.
Hér fer saman
fagurt verk, frábær
flutningur og full-
komin tóngæði. Þessi
geisladiskur er þess
vegna efstur á óska-
lista allra unnenda
góðrar tónlistar - og
fyrir þá sem ekki
eiga geislaspilara
er verkið einnig
væntanlcgt á snældu.
Jóhannesarpassían
á geisladiski, flutt
af Kór ogKammersveit
Langholtskirkju.
Einsöngvarar eru
Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir,Solveig Björling,
Michael Goldthorpe,
Kristinn Sigmundsson
og Viðar Gunnarsson.
Stjórnandi er Jón
Stefánsson.
Hljóðritunin er
gerð með stafrænni
tækni á tónleikum í