Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
75
Sæt-súrt
meðlæti
með lg'öti.
Súkkulaði-
kaka með
kexi í.
JóLaundirbúningiiriim
Skraut á eldspýtustokkinn.
Kremið:
2 eggjarauður,
1 egg,
4 matsk. sykur,
2 matsk. maizenamjöl,
2 dl vatn,
IV2 dl sherry,
Allt sett í pott og hitað um leið
og hrært er stöðugt í. Kremið
látið þykkna áður en potturinn
er tekinn af. Kreminu smurt á
milli laga.
Glassúr
2 eggjahvítur,
250 g flórsykur,
1 tsk. edik,
ávaxtalitur ef vill.
Flórsykurinn hrærður með ed-
iki og óþeyttum eggjahvítunum.
Bragðbætt að smekk. Bráðin er
sett yfír efsta lag kökunnar og
stuðlar að því að hún helst mjúk.
Hér er skreytt með kokteilberjum
og súkkati.
Súkkulaðikaka
með kexi í
250 g suðusúkkulaði
4 matsk. sterkt kaffí,
1 egg,
3 matsk. flórsykur,
250 g palmín.
Súkkulaðið brotið í sundur og
brætt í heitu kaffinu yfír vatns-
baði. Palmín brætt við mjög
vægan straum. Egg og sykur
þeytt saman, súkkulaðinu blandað
saman við og síðan hálfvolgri
jurtafeitinni, lítið sett í í einu,
blandað vel á milli og hrært stöð-
ugt í á meðan. ílangt formköku-
mót er „fóðrað" með smjörpappír.
Síðan sett í lög súkkulaðiblanda
og tekex (eða sætt kex ef vill).
Súkkulaðið haft neðst og efst.
Einnig má setja rúsínur, hnetur
eða annað góðgæti á milli lag-
anna. Kakan látin standa á
köldum stað þar tii súkkulaðið
stífnar. Kakan er ekki bökuð eins
og sjáanlegt er og vel tilfallin til
að jmgri meðlimir fjölskyldunnar
sjái um tilbúnaðinn með dálftilli
aðstoð. Kakan er all sæt á bragð-
ið.
Jólapokar o.fl. úr
bómullarefni
í mörgum vefnaðarvöruversl-
unum er mikið úrval af fallegum
bómullarefnum og þar á meðal
efni með Jólalegum mynstrum".
Þunn, vatteruð efni, rauð eða
hvít í grunn með hjörtum eða
stjömum í rauðum eða hvítum lit,
henta vel sem efni í jólapoka.
Einfaldast er þá að sauma poka
með kramarhúslagi. Vegna þess
að efnið er stíft heldur það vel
lagi. Á myndinni sem hér fylgir
er servíetta sett innan í en það
er þó alveg óþarfí.
Skrautá
eldspýtustokkinn
Á einlitt, rautt efni eru límd
hjörtu úr mismunandi mynstmð-
um efnum. Það er líkast til betra
að leggja flisselín undir efnið áður
en strengt er á stokkinn. Ef til
em afgangar af rauðum bómullar-
efnum, ekki síst ef hjörtu eða
stjömur em á, er ekki úr vegi að
reyna fyrir sér á þessu sviði.
Skrautlegir eldspýtustokkar em
skemmtilegir til að nota heima
fyrir og eins er hægt að stinga
einum slíkum með í jólapakka.
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Það er engum blöðum um það
að fletta að framundan em anna-
sömustu dagar ársins, því í nógu
er að snúast á hveiju heimili við
jólaundirbúninginn. Margt af því
sem menn taka sér fyrir hendur
á jólaföstunni er ekki hreyft við
á öðrum tíma ársins. Eftirvænting
liggur í loftinu og hefur áhrif á
unga sem aldna. Skammdegis-
þankar víkja eins og dögg fyrir
sólu þegar hugurinn er bundinn
við hátíðina sem í vændum er
ásamt því að gera hana sem
ánægjulegasta fyrir sína nánustu.
Það fylgir því sérstök tilfínning
að gera laufabrauð fyrir jólin,
enda ekki staðið í slíku á öðram
árstímum. Sama má segja um
smákökubaksturinn. Hann er með
allt öðra sniði en ef staðið er í
þvi sama á björtum sumardegi.
Nú, svo era það jólagjafír, skraut,
jólakort og bréf. Ef til vill þau
einu sem skrifuð era á árinu. Það
er sannarlega skemmtilegt að fást
við þessa hluti og það er hægt
að gera svolítið hátíðlegt I kring-
um sig á meðan, kveikja á kertum
(gott að nota hálf kerti og stubba
sem teknir hafa verið úr stjökum)
o.s.frv.
Jólaundirbúningurinn getur svo
sannarlega verið skemmtilegur,
þ.e. ef ekki er færst of mikið í
fang. Það er því vel við hæfi að
segja: Góða skemmtun við jó-s'
laundirbúninginn. Ennfremur:
Það er afar vel þegið, bæði af
heimilisfólki og gestum, þegar
boðið er upp á jólasmákökumar
fyrir jól!
Það hefur verið viðtekin venja
í Heimilishomi um miðjan desem-
ber að minnast á eitt og annað
Jólapokar úr bómullarefni.
sem jólahaldi fylgir og svo er einn-
ig nú.
Sæt-súrt meðlæti með
kjöti — Gamaldags
„chutney“
2 stór epli, skorin í teninga (hýðið
má fylgja),
2 meðalstórir laukar, brytjaðir
smátt,
1 hvítlauksrif, pressað,
3/4 bolli sykur,
V2 bolli vatn,
350 g steinlausar sveskjur, skom-
ar í tvennt,
2 matsk. sinnepskom,
V2 tsk. þurrkuð rauð paprika (má
sleppa),
(1 matsk. rifín engifer-rót ef vill).
Epli, laukur, paprika, edik, vatn
og sykur sett I pott og látið malla
við vægan straum í ca. 15 mín.
eða þar til þykknar. Sveskjum og
kryddi bætt í og látið malla áfram
í ca. 35 mín. Þessi skammtur fyll-
ir 3 venjuleg sultuglös. Þarf að
geymast á köldum stað. Geymslu-
þol 2 vikur eða meir. Best er að
láta glasið, eða öllu heldur inni-
hald þess, ná stofuhita fyrir
notkun.
Epla-„chutney“
1 kg epli, helst súr,
1 stór laukur,
2 dl eplaedik
350 g sykur (miðað við súr epli),
3 dl rúsínur,
1 tsk. salt,
3 tsk. karrý,
1 matsk. sinnepskom,
1 tsk. engifer,
2 hvítlauksrif,
Hýðið tekið af eplunum og þau
skorin í bita. Laukurinn skorinn
smátt. Sett í pott með öðra því
sem upptalið er. Hvítlauksrifin
pressuð út í. Látið malla við væg-
an straum í allt að einni klst.
Áferðin á að verða á við þykkt
marmelaði. Hellt í heit glösin.
Geymt á köldum stað og þarf
helst að bfða í 3—4 vikur fyrir
notkun.
Jólaterta með
vínkremi
150 g smjörlíki,
200 g sykur,
6 egg,
200 g hveiti,
V4 tsk. hjartars'alt.
Smjörlíki og sykur þeytt vel
saman, eggjunum bætt í einu í
senn og hrært vel á milli. Að
síðustu er hveiti með hjartarsalti
sett saman við og blandað vel.
Deigið sett í smurð lagkökumót
eða teiknaður er hringur á smjör-
pappír og deigið sett á. Lögin eiga
að vera þunn og helst 8—10 tals-
ins. Áð sjálfsögðu er hægt að
baka þykkari botna og kljúfa svo.
Bakað í 150—160°C heitum ofni
í nokkrar mínútur.
Jólaterta
með
vínkremi.
Hrinadu til vina Dæmi um gjaldflokka á sjálfvirku vali til útlanda. Kostnaður á mínútu.
og ættingja erlendis 1. Norðurlöndin (að frátöldu Finnlandi) .. 2. Finnland og Holland 3. Bretland . . . . kr. 38. . . . . kr. 41. . . . . kr. 43.
um hátíðarnar... 4. Frakkland, Spánn, V-Þýskaland 5. Bandaríkin .. . . kr. 49. .... kr. 85.
...þu gefur ekki betri jol; agjof ^
■ ■ - ■ -■■ —- - - PÓSTUR OG SÍMI