Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 87
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
87
Stsva Archlbald er kominn til
Englands á ný. Var lánaður til Black-
bum fram á vorið.
■ LIAM Brady, írski landsliðs-
maðurinn í knattspymu, fékk
gleðifréttir í gær. UEFA ákvað þá
að leikbann hans yrðu tveir leikir
en ekki fjórir, eins og hann var
dæmdur í á dögunum. Brady var
rekinn af leikvelli í Evrópuleik gegn
Bulgaríu. Brady getur þvf leikið
með írlandi í Evrópukeppni lands-
liða í V-Þýskalandi næsta sumar.
Hann mun missa úr tvo af þremur
leikjum írlands í riðlakeppninni.
I HAFSTEINN Tómasson,
verður ekki þjálfari 2. deildarliðs
ÍR í knattspymu, eins og fyrirhugað
var. Samningar náðust ekki á milli
hans og ÍR-inga, sem eru nú að
ræða við Selfyssinginn Gylfa Gfsla-
son.
I KARL Zimmermann, form-
aður a-þýska knattspymusam-
bandsins, dó f gær eftir alvarieg
veikindi. Zimmermann, sem var
56 ára, var einn æðsti maður
íþróttamála í A-Þýskalandi. Þess
má geta að hann kom til íslands í
sumar með a-þýska landsliðinu í
knattspymu.
■ HREGGVIÐUR Jónsson,
formaður Skíðasambands íslands
og alþingismaður, verður aðalfara-
stjóri íslendinga á Vetrar-Olympíu-
leikunum í Calgary.
■ KNA TTSPYRNUFÉLAGIÐ
Ashanti Kotoko frá Ghana var í
gær dæmt í eins árs keppnisbann
frá meistarakeppni Afriku og einnig
var félagið dæmt í þriggja ára
heimaleikjabann. Astæðan fyrir
þessu þunga banni er að þrír áhorf-
endur létu lífið í ólátum sem brutust
út í liðsins gegn meistaraliði
Egyptalands. Fjórir leikmenn liðs
Egyptalands meíddust og einnig
eftirlitsmaður frá Alsír.
U FH-ingar unnu sigur, 32:31,
yfir Bjama Guðmundsson og félög-
um hans hjá Wanne-Eickel á
mánudagskvöldið. Úrslitin skoluð-
ust til hjá okkur í gær - sagt var
að Wanne-Eickel hafi unnið sigur.
■ FRANCO Tancredi, mark-
vörður ítalska félagsins Roma, sem
var nær dauður í leik gegn AC
Mílanó um sL helgi, sagði í gær að
hann vilji ólmur Ieika með Roma
gegn Pescara á sunnudaginn kem-
ur. Tancredi, sem er aftur byijaður
að æfa, sagði aftur á móti á mánu-
daginn að hann myndi aldrei leika
knattspymu framar.
■ CARLOS Manuel, landsliðs-
maður Portúgals í knattspymu,
gekk til liðs við svissneska félags
Sion í gær. Sion borgaði Benfica
andvirði 1,3 milljóna króna fyrir
Manuel.
■ STEFFI Graf, tennisstjama
frá V-Þýskalandi, fór undir hnffínn
í gær. Aðgerð var gerð á nefi henn-
ar. Nefrennsli hefur hrjáð Graf í
keppni.
■ BARCELONA lánaði skoska
landsliðsmanninn Steve Archibald
til Blaekbum í gær. Archibald var
lánaður út þetta keppnistímabil.
Hann hefur ekki komist í liðið í
vetur. Aðeins má nota tvo leikmenn
í liðið, og valið verður að tilkynna
áður en keppnistímabilið hefst.
Englendingurinn Gary Lineker og
Vestur-Þjóðveijinn Bemd Schust-
er urðu fyrir valinu.
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILD
Jóhannes Kristbjömsson
til liðs við KR-inga
Verður löglegur með KR-liðinu gegn Grindavík þegar seinni umferðin hefst
JÓHANNES Kristbjörnsson,
landsliðsmaður f körf uknattleik
úr íslandsmeistaraliði Njarð-
víkur, hefur ákveðið að ganga
til liðs við KR-inga.
Jóhannes, sem verður 22 ára á
sunnudaginn, gekk frá félaga-
skiptunum í gær, þannig að hann
á að vera lögiegur með KR-liðinu
þegar seinni umferðin hefst - 17.
janúar. KR-ingar leika þá gegn
Grindvílringum. Ef Jóhannes hefði
ekki skipt um félag í gær, þá hefði
hann leikið sinn fyrsta ieik með
KR gegn Njarðvíkingum í Njarðvík.
„Ég var _ ekki óánægður hjá
Njarðvík. Ástæðan fyrir því að ég'
skipti um félag eru breytingar á
einkalífi mínu. Ég er að flytja til
Reykjavíkur," sagði Jóhannes f
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann hefur áður leikið með KR.
„Ég þekki vel til leikmanna KR.
Lék með þeim Guðna Guðnasjmi,
I Morgunblaöiö/Þorkell
Jóhannes Krlstbjörnsson, til vinstrí, iandsliðsmaður úr Njarðvíkum, boð-
inn velkominn í raðir KR-inga á ný. Það er Guðni Guðnason sem tekur á
móti honum.
Birgi Mikaelssyni, Ólafí Guðmunds- „Jóhannes mun styrkja KR-liðið
syni og Matthíasi Einarssyni í jmgri mikið. Okkur hefur vantað sterkan
flokkunum hjá KR.“ bakvörð," sagði Guðni Guðnason.
„Ég veit að ég mun ekki skora eins
mikið af stigum með KR, eins og
ég gerði með Njarðvíkurliðinu. Mitt
hlutverk verður að spila uppi hina
hávöxnu leikmenn - Guðna, Birgi
og Símon Ólafsson," sagði Jóhann-
es.
„Auðvita kem ég til með að sakna
félaga minna hjá Njarðvík. Liðið á
ekki að veikjast við brottför mína.
Það eru margir mjög sterkir ein-
staklingar í liðinu."
Þeir félagar Jóhannes og Guðni
sögðu að óneitanlega stæðu Suður-
nesjaliðin Njarðvík og Keflavík best
að vígi eftir fyrri umferðina. Þau
eru með 14 stig, Valur 10 og síðan
koma KR, Grindavík og Haukar
með átta stig. „KR-liðið á enn
möguleika að verða deildarmeistari.
Við ætlum okkur að vera með í
úrslitakeppninni um íslandsmeist-
aratitilinn. Þegar fjögur efstu lið
deildarinnar beijast,“ sögðu þeir
félagar.
KNATTSPYRNA
Sævar til Sviss
SÆVAR Jónsson, landsliðs-
maöur úr Val, fer í byrjun
janúar til Sviss, þar sam hann
mun leika með 2. deildarlið-
inu Solothurn fram á vor.
Liðið er í fallbaráttu, þetta er
svipað lið og Ómar Torfason
leikur með. Ég held þau séu í
sama riðli að beijast um að halda
sér í defldinni,“ sagði Sævar í
samtali við Morgunblaðið f gær-
kvöldi. Aðsetur liðsins er á milli
Bem og Zurich. Sævar fór utan
á dögunum og skoðaði þá aðstæð-
ur hjá féiaginu. „Ég fór bara
þangað, það var ekkeri úr því að
ég færi til FC Ziirich. Ég held það
verði ágætt að kynnast svissneska
boitanum á þennan hátt — eftir
þetta veit ég hvar ég stend. En
það er öruggt að ég verð ekki
lengur en fram á vorið hjá þessu
iiði. Þeir eru bara að reyna að
bjarga sér frá falli með því að
sfyrkja liðið. Öll liðin byija á núlli
þegar úrslitakeppnin hefst í
mars,“ sagði Sævar. Hann heldur
utan 10. janúr, undirbúningstíma-
bHið er janúar og febrúar og síðan
fara fram 14 leikir í úrslitakeppn-
inní í mars. Sævar missir væntan-
íega af nokkrum fyrstu leikjum
Vals í 1. deildinni næsta sumar
vegna þessa.
ENGLAND
McDonald aftur
til Leicester
Kevin McDonald, sem verið hef-
ur f herbúðum Liverpool sfðan
í nóvember 1984, var í gær lánaður
í einn mánuð til síns gamla félags,
Leieester City. Hann var á sínum
tíma keyþtur á 300.000 pund, en
fótbrotnaði í fyrra og náði aldrei
að tryggja sér sæti í stjömuprýddu
liði Liverpool að nýju. í gær var
einnig skýrt frá því að enska liðið
Sheffield United væri til sölu á
3.000.000 punda, svo og Dundee í
Skotlandi. Svona ef einhvem vantar
góða jólagjöf handa góðum vinL..
AFMÆLI
LolliíVal
lékk gull-
merki ÍSÍ
ogKSÍ
Ellert Sölvason, Éolli í Val eins
og hann er alltaf kallaður, varð
sjötugur í gær, og var haldið upp
á afmælið með veglegri móttöku í
Valsheimilinu að Hlíðarenda.
Lolli var heiðraður í gær. Hann
hlaut gullmerki íþróttasambands
íslands sem Sveinn Bjömsson, for-
seti ÍSÍ afhenti honum, og þá sæmdi
Ellert B. Schram, formaður KSÍ,
Lolla gullmerki Knattspymusam-
bandsins.
Lolli gekk í Val árið 1929 og keppti
fyrst fyrir félagið f þriðja flokki
1931.
Morgunblaöið/Þorkell
Lolll í góArl vlna hópl í afmælishófinu í gær. Þama eru nokkrir af íslandsmeisturum Vals í knattspymu frá því í
sumar með honum, frá vinstri: Jón Grétar Jónsson, Guðni Bergsson, Lolli, Sævar Jónsson og Ingvar Guðmundsson.
HANDBOLTI / LANDSLIÐIÐ
Sigurá Lúxemborg, 24:21
„VIÐ VORUM lengi f gang, en
náðum þó að sigra,“ sagði
Hilmar Björnsson, sem stjórn-
ar landsliði því í handknattleík
sem hóf í gær ferð um Evrópu,
eftir að það hafði sigrað lið
Lúxemborgar 24:21 f gærkvöldi
ytra.
Liðið tekur þátt í móti í Belgíu
sem hefst í kvöld, en keppti
einn vináttuleik við Lúxemborgara
í leiðinni. Liðið leikur sem A-lið
íslands í ferðinni þó þama sé ekki
okkar sterkasta lið á ferðinni. Hóp-
urin flaug utan í gær og fór beint
í leikinn. „Við vorum lengi í gang,
vomm undir 11:10 í hálfleik, en
hristum þá af okkur strax í bjnjun
seinni hálfleiks. Við komumst sex
mörk yfir, en skiptum þá inná með
tílliti til leikjanna næstu daga.
Strákamir vom frekar óömggir í
leiknum, enda hefur þessi mann-
skapur lítið æft sarnan," sagði
Hilmar. „Lúxemborgumm hefur
farið fram, en það er ljóst að sterk-
asta A-landslið íslands hefði algjör-
lega gengið yfir þá,“ sagði Hilmar
ennfremur.
Birgir Sigurðsson, línumaðurinn
knái, var atkvæðamestur Islending-
anna I gser, gerði 9 mörk úr 12
skotum, Hans Guðmundsson skor-
aði 8 mörk úr 9 tilraunum,
Guðmundur Albertsson gerði 3
mörk og Gylfi Birgisson 2. Að sögn
Hilmars var sóknamýting liðsins
um 50%, „sem er auðvitað ekki
nógu gott gegn svona liði, en það
er þó gott fyrir strákana að byrja
þessa ferð á sigri," sagði hann.
Mótið í Belgíu hefst i kvöld og þá
mæta íslendingar Belgíumönnum.
Á morgun etja þeir svo kappi við
Alsírbúa og við Prakka á sunnudag.