Morgunblaðið - 07.01.1988, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988
Nokkur orð til
umhugsunar
eftir Einar Örn
Björnsson
Eins og nú horfir í efnahagsmál-
um þjóðarinnar blasir við að út-
flutningsatvinnuvegimir eru reknir
með tapi, einkum þær greinar sem
bundnar eru við viðskipti við Banda-
ríkin, og verkar það einnig á önnur
viðskipti. Ef ekkert verður að gert
mun verðbólgan aukast og færa
allt úr skorðum er ávannst í tíð
fyrrverandi ríkisstjómar. Launa-
samningar em lausir um áramót
og þegar hefur slitnað upp úr samn-
ingaviðræðum vinnuveitenda og
verkamannasambandsins. Hvað er
til ráða til að forða þjóðinni frá
slíkri holskeflu?
1. Gengið á að fella að því marki
sem nægilegt er til að útflutn-
ingsatvinnuvegimir geti gengið
en fastgengisstefna er blekking
er byrgir mönnum sýn eins og
nú er komið.
2. Leiðrétta ber lægstu laun þess
fólks er vinnur í fiskvinnslu og
annarra er stunda störf er telj-
ast til láglauna, en hærri laun
hækki ekki.
3. Jafnhliða nefndum ráðstöfunum
verður að tryggja að hverskonar
þjónusta hækki ekki á því tíma-
bili sem kann að verða ákveðið.
Ef ekki næst samkomulag um
þessi mál í frjálsum samningum
aðila vinnumarkaðarins taki Alþingi
og ríkisstjom í taumana og tögfesti
verðlag og kaupgjald til eins árs
eins fljótt og kostur er. Þetta er
leiðin til að bjarga útflutningsat-
vinnuvegunum frá hmni og ná
viðspymu til betri lífskjara fyrir
alla. Eina ráðið er að þjóðarsátt
fáist um þessi mál og eitt ár er
ekki langur tími í vegferð þjóðar
en gæti ef vel til tekst skapað
grundvöll að stöðugri efnahags-
þróun en áður hefur þekkst. Þetta
em gmndvallaratriði sem allir ættu
að skilja áður en í óefni er komið.
Bifreiðaskatturinn er ríkisstjóm-
in ákvað á að fella niður en það
er ranglátt skattheimta og eins-
dæmi hér á landi er gæti leitt til
þess að hinn almenni maður yrði
skattlagður eftir þyngd á göngu
sinni um þjóðfélagið.
Einnig ber að fella niður 300
milljónir sem ætlaðar em til bygg-
ingar radarstöðvanna og em á
fjárlögum 1988. Þá ber að ná samn-
ingum við Bandaríkin um að þeir
greiði allan kostnað vegna bygging-
ar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
þar sem gamla flugstöðin kemur
vamarliðinu til nota en þær 300
milljónir sem ætlaðar em til radar-
stöðvanna yrðu lagðar í flugvalla-
og hafnaframkvæmdir út á lands-
byggðinni.
Einar Öm Björnsson
„Eina ráðið er að þjóð-
arsátt fáist um þessi
. mál og eitt ár er ekki
langnr tími í vegferð
þjóðar.“
Einnig er nauðsynlegt að tekið
verði gjaldeyrislán til að eyða við-
skiptahalla sem fyrirsjáanlegur er
og tryggja með þeim hætti við-
skiptaaðstöðu útflutningsatvinnu-
veganna og styðja þá efnahags-
stefnu sem nefnd er hér að framan.
Alþýðubandalagið hefur hafið
upp mikinn hávaða um flugstöðina
í Keflavík, ekki til að greiða úr
málum heldur til að þeyta upp gam-
alkunnum óhróðri gegn samskipt-
um við vestrænar þjóðir. Hitt er
augljóst að bygging flugstöðvarinn-
ar hefur farið fram úr áætlun.
Núverandi utanríkisráðherra lýsti
því yfir áður en flugstöðvarbygg-
ingin var hafín að Bandaríkin ættu
að greiða allan kostnað við hana.
Nú er Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra og á að standa
við orð sín og beita áhrifum sínum
um að slíkt verði að vemleika. Það
þýðir ekki lengur að skella skolla-
eymm við því að íslendingar verða
að fá endurskoðun á úreltum varn-
arsamningi. Flugstöðin er dæmi um
það en gæti verið undanfari að
endurskoðun hans. Það er orðin
knýjandi nauðsyn að varnarsamn-
ingurinn verði endurskoðaður í heild
sinni og í staðinn komi ftjáls sam-
vinna við félagsþjóðir íslendinga í
Atlantshafsbandalaginu.
Gunnar- Thoroddsen fyrrveradi
iðnaðarráðherra lýsti því yfir á
fundi á Egilsstöðum 1977 að hann
myndi flytja tillögur um þessi mál
inn á ríkisstjómarfund um endur-
skoðun vamarsamningsins, þar sem
flugvellir, vegir og almannavarnir
yrðu felldir inn í hann. Meðráð-
herrar hans urðu hljóðir við og
sumir reyndu að eyða málinu, en
það lifir góðu lífi og ætti með góð-
um vilja og samstöðu þjóðarinnar
að fást í gegn.
Lokaorð
Ef sú leið er farin sem hér er
lýst þá er hægt að minnka þá miklu
skattbyrði er dynur á þjóðinni.
Söluskattur á matvæli er ósæmi-
legur og skapar erfíðleika í að ná
samningum aðila vinnumarkaðarins
og ýtir þar með undir óðaverðbólgu
er skapar niðurrifsöflum áframhald
iðju sinnar og ættu því stjórnvöld
að gefa eftir í þessu efni.
íslendingar verða að skilja að
gjaldmiðillinn verður að fylgja þeim
breytingfum sem verða á heimsvið-
skiptum á hverjum tíma.
Höfundur er bóndi á Mýnesi.
PIOIMEER
GEISLASPILARAR
ÞÚ GETUR GRÆTT
stórfé með því að mæta til leiks með
réttar upplýsingar
Viðskipta- og tölvublaðið, 6. tbl. ’87, er komið í bóka- og tölvuverslanir.
Áskriftarsími
91-82300
Vi? -
Frjálstframtak
8?
imm
6. TBL 6. ARG W87. VERÐ KR- 329
TÖLVUSAMSKIPTI - TÖLVUTELEX - SÍMFAX
GAGNANET - RAFEINDAPÓSTUR -
SKRIFSTOFUKERF!
Hvað þýðir þessi rtýja tækní fyrír atvinnulíf?
Samanburður á kostnaði við kaup og rekstur fjölnot-
endakerfa.
Hugbúnaður skoðaður; Nýtt launakerfi fyrir IBM PC.
Nýtt launakerfi fyrir Macintosb, MegaFlight-kerfið,
hagkvæm öryggisafritun.
TÆKNINÝJUNGAR - TÖLVUNÝJUNGAR
Nýjungar frá Hewlett-Packard
Nýjar tölvur frá Digital
Nýr búnaður frá IBM
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Fyrir 40 árum:
Hún: Þér virðist þykja vænna
um kjötbohurnar en um mig!
Hann: Nei, elskan mín, mér
þykir auðvitað vænna um þig,
vegna þess hve þú býrð til góðar
kjötbollur.
Matar-ástin er lífseig. Sagan
gæti hafa verið sögð í dag. Hún
hljómar jafnvel betur með smá
breytingu á hlutverkaskipan,
þannig að „hann“ fer í hlutverk
„hennar", og „hún“ í hlutverk
„hans“.
Það hljómar ágætlega svona til
tilbreytingar. Ekki rétt?
Til að létta „piltunum" starfíð
á nýju ári, fylgir hér réttur kjörinn
til að öðlast ást og virðingu „els-
kunnar“ sinnar.
Skötuselur
gratineraður með osti
1 kg skötuselur,
3 bollar vatn,
2 ten. kjúklingakraftur,
1 laukur,
2 gulrætur,
4 matsk. púrra (græni hlutinn
saxaður),
1 tsk. parsley eða
1 matsk. söxuð steinselja,
1 lárviðarlauf,
l'/2 tsk. tarragon (estragon),
2 tsk. salt,
4—5 heil piparkom.
1. Best er að útbúa soðið í jafn-
inginn fyrst. Sett er í pott vatn,
kjúklingakraftur, laukur saxaður,
gulrætur hreinsaðar og saxaðar,
púrra, parsley eða steinselja, Iár-
viðarlauf brotið í sundur, tarrag-
on, salt og piparkom. Suðan er
látin koma upp og er sósuefnið
soðið eða látið krauma í 20 mínút-
ur á meðan bragðefnin eru að
jafnast.
2. Skötuselurinn er skorinn í
stykki og soðinn í 10—15 mínútur
eða þar til hann er laus frá beini
eða brjóski. Þau eru síðan Ijar-
lægð ásamt hinni hlaupkenndu
himnu sem umlykur fiskinn. Fisk-
urinn er síðan hlutaður í stykki í
munnbitastærð.
Því næst er jafningurinn út-
búinn:
25 gr smjörlíki,
4 matsk. hveiti,
2 bollar grænmetissoð síað,
V3 bolli mjólk,
% bolli rifínn ostur mildur.
1. Smjörlíkið er hitað í potti,
hveiti er bætt út í og hrært með
grænmetissoðinu (grænmetið síað
frá) og mjólk eða undanrennu (nú
eða ijóma).
2. Sósan látin sjóða í nokkrar
mínútur og er stöðugt. hrært í á
meðan hún er að jafnast. Helm-
ingur af ostinum er settur út í
heita sósuna. Hún á að vera
bragðmikil og hæfilega þykk.
Bætið í hana salti og möluðum
pipar ef þurfa þykir.
3. Skötuselsbitamir eru settir
í eldfast fat og er sósunni hellt
yfir þá og því sem eftir er af ostin-
um stráð yfír.
4. Fatinu með fiskinum er
síðan brugðið undir grill, eða þar
til sósan er orðin vel heit í gegn
og osturinn bráðinn með létt-
brúnum lit.
Með rétti þessum er og vinsælt
að bera fram „franskar", þ.e.
þessar þráðmjóu úr dós!
Það má án ef nota aðrar fisk-
tegundir en skötusel í þennan
ágæta rétt.
Gangi ykkur vel.
Verð á físki á nýju ári liggur
ekki fyrir.