Morgunblaðið - 09.01.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 09.01.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988 raðauglýsingar raðauglýsingar raðauglýsingar RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Skattmat í staðgreiðslu áárinu 1988 1. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda teljast fríðindi og hlunnindi svo sem fatnaður, fæði, húsnæði og afnot bifreiða til launa sem reikna skal staðgreiðslu af. Sam- kvæmt 116. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignaskatt skal ríkisskatt- stjóri meta hlunnindi til verðs. Með tilvísun til áðurnefndra lagagreina metur ríkisskattstjóri eftirtalin hlunnindi sem veitt verða á árinu 1988 þannig til verðs sem staðgreiðsla reiknast af. 1.1. Fullt fæði, sem launagreiðandi lætur launamanni í té endurgjaldslaust, skal metið honum til tekna sem hér segir: Fyrir fullt fæði, fulloröins............437 kr. á dag Fyrir fullt fæði barns, yngra en 12 ára.350 kr. á dag Fyrir fæði að hluta (ein máltið).175 kr. á dag Fjárhæð fæðisstyrks (fæðispeninga) í stað fulls fæðis eða fæðis að hluta ber að telja til tekna að fullu. Allt fæði, sem fjölskyldu launamanns er látið í té endurgjaldslaust hjá launa- greiðanda hans, svo og fjárhæð fæðis- styrkja (fæðispeninga) sem launamanni er greidd frá launagreiðanda hans vegna fjölskyldu launamannsins, ber að telja til tekna á sama hátt. Sérhver önnur fæðishlunnindi, látln launamanni og fjölskyldu hans í té end- urgjaldslaust, ber að telja til tekna á kostnaðarverði. 1.2. Endurgjaldslaus afnot íbúðarhúsnæðis, sem launagreiðandi lætur launamanni sínum í té, skulu metin launamanni til tekna sem hér segir: Fyrir ársafnot reiknast 2,7% af gildandi fasteignarmati íbúðarhúsnæðisins, þ.m.t. bílskúr og lóðar. Fjárhæð þessi skiptist hlutfallslega á greiðslutímabil miðað við tímalengd þeirra. Hafi launamaður afnot íbúðarhúsnæðis, sem launagreiðandi hans lætur honum í té gegn endurgjaldi sem er lægra held- ur en 2,7% af gildandi fasteignarmati íbúðarhúsnæðisins (þ.m.t. bílskúr) og lóðar, skal meta launþega mismuninn til tekna eftir því sem hlutfall greiðslu- tímabils segirtil um. Sá hluti orkukostn- aðar launamanns sem launagreiðandi hans greiðir skal talinn að fullu til tekna. Endurgjaldslaus afnot launamanns á orku (rafmagni og hita) skulu talin að fullu til tekna á kostnaðarverði. Húsaleigustyrk, sem launagreiðandi greiðir launamanni sínum, ber að telja til tekna að fullu. Fylgi starfi launþega kvöð um búsetu í húsnæði, sem vinnuveitandi lætur hon- um í té, er skattstjóra heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda með hliðsjón af ákvæðum 5. gr. reglugerðar nr. 104/1970 við álagningu opinberra gjalda á næsta ári eftir staðgreiðsluár, svo sem verið hefur. Eigi skal meta launamanni til hlunninda afnot af húsnæði í verbúðum eða vinnu- búðum þar sem launamaður dvelur um takmarkaðan tíma í þjónustu launa- greiðanda. 1.3. 'Fatnaður, sem ekki telst einkennisfatn- aður, skal talinn til tekna á kostnaðar- verði. Eigi skal reikna launamanni til tekna nauðsynlegan hlífðarfatnað sem launa- greiðandi afhendir honum til afnota við störf í þágu launagreiðandans. Af greiðslum launagreiðanda til launa- manns til kaupa á fatnaði skal hins vegar ávallt reikna staðgreiðslu af allri greiðslunni. 1.4. Endurgjaldslaus afnot launamanns af bifreið, sem launagreiðandi hans lætur honum í té, skulu metin honum til tekna sem hér segir: Fyrir fyrstu Fyrir næstu Yfir 10.000 km afnot 10.000 km afnot 20.000 km afnot kr. 15,50pr. km. kr. 13,90pr. km. kr. 12,25 pr. km. Láti launagreiðandi launamanni í té af- not bifreiðar gegn endurgjaldi sem lægra er en framangreint mat skal mis- munurinn teljast launamanni til tekna. Hafi launamaður fullan umráðarétt yfir bifreið í eigu launagreiðanda hans skal við það miða að launamaður aki bifreið- inni a.m.k. 10.000 km á ári í eigin þágu eða 833 km á mánuði. Staðgreiðslu- skyld hlunnindi slíks launamanns skulu því teljast nema kr. 12.912 hið lægsta á mánuði. Ef vitað er að umræddur akstur launamanns í eigin þágu muni nema meiru en 10.000 km á ári skal ákveða mánaðarlegan akstur sem V12 af áætluðum heildarakstri á ári. Við ákvörðun á staðgreiðsluskyldum hlunn- indum á mánuði er þá mat á eknum km umfram 833 km kr. 13,90, enda fari heildarakstur á ári eigi fram úr 20.000 km. Leggi launamaður fram gögn með skattframtali sínu er sanni óvéfengjan- lega að akstur hans í eigin þágu hafi verið minni en viðmiðun ríkisskattstjóra til ákvörðunar staðgreiðslu byggir á skal leiðrétta hlunnindamat vegna bif- reiðaafnota í samræmi við fram komnar upplýsingar við álagninu. 2. Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 591/1987 um laun, greiðslur og hlunn- indi utan staðgreiðslu skal ríkisskatt- stjóri meta endurgreiddan kostnað til launamanns, vegna afnota launagreið- anda af bifreið hans, sem halda má utan staðgreiðslu. Samkvæmt 6. gr. sömu reglugerðar skal ríkisskattstjóri meta fjárhæð dagpeninga sem launa- maður fær greidda vegna ferða sinna á vegum launagreiðanda og sem halda má utan staðgreiðslu. Með tilvísun til áðurnefndra reglugerð- argreina metur ríkisskattstjóri endur- greiddan bifreiða- og ferðakostnað sem halda má utan staðgreiðslu á árinu 1988 þannig: 2.1. Mat samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar, þ.e. á kílómetra- gjaldi undir viðmiðunarmörkum: Fyrir 1-10.000 km kr. 15,50 pr. km. Fyrir 10.001-20.000 km kr. 13,90 pr. km. Fyrir 20.001 - kr. 12,25 pr. km. Þar eð kílómetragjald er lægra fyrir akstur umfram 10.000 km þarf launa- greiðandi að fylgjast með heildarakstri launamanna í hans þágu. Fái launamaður greitt kílómetragjald frá opinberum aðilum vegna aksturs í þágu þeirra, sem miðast við „sérstakt gjald“ sem Ferðakostnaðarnefnd ákveður, má hækka viðmiðunarfjárhæðir fyrir 1-10.000 km akstur um 2,55 pr. km og um kr. 5,60 pr. km miðist kílómetra- gjaldið við „torfærugjald" sem Ferða- kostnaðarnefnd ákveður einnig. Fyrir akstur á bilinu 10.001-20.000 km má hækkun vegna sérstaks gjalds nema kr. 2,25 pr. km en kr. 5 pr. km vegna torfærugjalds. Fyrir akstur umfram 20.000 km má hækkun vegna sérstaks gjalds nema 2 kr. pr. km en kr. 4,40 vegna torfærugjalds. Varðandi skilyrði fyrir því að heimilt sé að fella greiðslur samkvæmt framan- greindri viðmiðun fyrir afnot launagreið- anda af bifreið launamanns undan staðgreiðslu er vísað til þeirra skilyrða sem um það eru sett i áðurnefndri 3. gr. reglugerðarinnar, sbr. 2. mgr, þeirr- ar gr., sem hljóðar svo: „Heimild þessi er að öðru leyti bundin þeim skilyrðum að færð sé akstursdag- bók eða akstursskýrsla þar sem skráð er hver ferð, dagsetning, ekin vega- lengd, aksturserindi, kílómetragjald greitt launamanni, nafn og kennitala launamanns og einkennisnúmer við- komandi ökutækis. Gögn þessi skulu færð reglulega og vera aðgengileg skattyfirvöldum þegar þau óska þess, hvort sem er í bókhaldi launagreiðanda eða hjá launamanni." 2.2. Mat samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar á dagpeningum undir viðmiðunarmörkum til greiðslu á gistingu, fæði og fargjöldum frá og að flugvöllum og öðrum sambærilegum fárgjöldum erlendis verður sem hér segir: Almennir dagpeningar: Noregur og Svíþjóð SDR165 Annarsstaðar SDR150 Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa: Noregur og Sviþjóð Annars staðar SDR105 SDR 95 2.3. Mat samkvæmt 2. mgr. 6. gr. reglugerð- arinnar á dagpeningum undir viðmiðun- armörkum til greiðslu á gistingu og fæði innanlands: Gisting og fæði i einn sólarhring kr. 3.960 Gisting í einn sólárhring kr. 1.890 Fæði hvem heilan dag, minnst 10 tima ferðalag kr. 2.070 Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 1.035 Varðandi skilyrði fyrir því að heimilt sé að fella dagpeninga, sem greiddir eru samkvæmt framangreindri viðmiðun undan staðgreiðslu, er vísað til þeirra skilyrða sem um það eru sett í áður- nefndri 6. gr. reglugerðarinnar. Sé gisting erlendis greidd samkvæmt reikningi frá þriðja aðila og launa- manni, auk þess greitt ferðafé til að standa straum af öðrum ferðakostnaði erlendis, skal við það miða að heildarfj- árhæð þeirra dagpeninga sem falla innan mats ríkisskattstjóra hverju sinni sé 67 SDR á dag. Af þeim hluta dag- peninga sem er umfram þá fjárhæð skal þá reikna staðgreiðslu. Sambæri- legri reglu skal beitt um staðgreiðslu af umframfjárhæð, hafi annar ferða- kostnaður en gisting verið greiddur samkvæmt reikningi, en ferðafé greitt til að standa straum af gistingu. Reikn- ast þá staðgreiðsla af greiddum dagpeningum sem eru umfram 83 SDR á dag. Fái launamaður greidda dagpeninga fyrir 30 daga eða fleiri á sama ári, skulu viðmiðunarmörk skv. 2.2. og 2.3. hér að framan lækka um kr. 437 fyrir hvern dag umfram 30 daga. Reykjavík, 4.janúar 1988. Garðar Valdimarsson, ríkisskattsstjóri. fundir — mannfagnaöir Grunnvíkingar Hinn árlegi þrettándafagnaður Grunnvíkinga- félagsins verður haldinn í félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 9. janúar og hefst kl. 21.00. Skemmtinefndin. Þorrablót Þorrablót brottfluttra Patreksfirðinga og Rauðasandshreppsbúa verður haldið í Domus Medica fyrsta dag þorra, föstudaginn 22. jan. Miðar verða seldir í Domus fimmtudaginn 14. jan. kl. 17-19 og laugardaginn 16. jan. kl. 14-17. Athugið, ekki verður hringt í fólk. Stjórnin. Eyja s.: 25335, Bjargmundur s.: 685959, Eyrún s.: 35651.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.